Morgunblaðið - 08.05.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 08.05.1996, Síða 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ1996 BLAD Sýningar Aflabrögd 3 íslendingar á mat- vælasýningu í Barc- elona 4 Aflayfirlit og stað setning fiskiskipa Markaðsmál 0 Framleiðsla SH meiri en reiknað var með Greinar 1' Deilt um rækjuverð AULAÞORSKUR Morgunblaðið/Sigrún Sveinbjörnsdóttir O ELVAR Unnsteinsson, trillusjómaður á Erni SF-70, landar vænum þorski eða aulaþorski eins og þeir Austfirðingar orða það. Mj8g góð veiði hefur verið hjá smábátum á Homafirði það sem af er almanaks- árinu og mun drýgra hefur verið af stærri físki nú en í fyrra. Norðmenn úthluta síldarkvóta eftir stærð og lengd skipa KRISTJÁN Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna, segist vonast til að engum manni komi til hugar að fara að dæmi Norðmanna í skiptingu síldar- kvótans á skip. Þeirra kerfi væri arfavitlaust, en hann hefði m.a. kynnt sér það hjá „vinum“ okkar í Norges Fiskarlag í Ósló á dögunum í tengslum við samn- ingafund um skiptingu síldarinnar. „Arfavitlaust kerfi,“ segir formaður LIU Norsku síldveiðiskipin eru flokkuð í þrennt m.t.t. úthlutunar kvóta úr norsk- íslenska síldarstofninum. í fyrsta flokki eru um 70 togskip, sem fá 7% kvótans. í öðrum flokki eru um 350 skip, sem teldust til svokallaðs strandveiðiflota og væru styttri en 27,5 metrar. Þau veiða aðallega með hringnót og einnig drag- nót og fá 50% af síldarkvótanum, en kvóti á skip markast af lengd þess og er 33 tonnum úthlutað á hvern metra. Þessum tveimur flokkum skipa er úthlut- að hærri kvóta á hvert skip en samtala þeirra leyfir. Þess vegna eru þetta tald- ir ótryggir kvótar því veiðar þeirra eru stöðvaðar þegar heildarmagninu er náð, þótt einstök skip eigi óveiddan hluta af eigin kvóta, að sögn Kristjáns. í þriðja flokknum eru 115 skip, sem veiða með hringnót og eru lengri en 27,5 metrar. Þau fá 43% af kvótanum og hafa svo- nefndan tryggan kvóta því ekki er út- hlutað til hópsins meiru en samanlögðum kvótum skipanna. Kvóti á hvert skip er miðaður við burðargetu að hluta, en stærstum hluta er úthlutað jafnt á skip. Ef skip í þessum flokki er endurnýjað með stærra skipi, fær það ekki samtölu kvóta t.d. tveggja skipa. Nýtt skip er flokkað að nýju og fær kvóta í samræmi við stærð. Af þessum ástæðum er ekki áhugi fyrir endurnýjun með stærri skip- um því betra er að eiga tvö lítil en eitt stórt, segir Kristján. I Noregi er framsal kvóta milli skipa óheimil. Því væru veiðarnar óhagkvæm- ar og til þeirra notuð allt of mörg skip, að mati Kristjáns. Norsku síldveiðiskipin eru yfirleitt í eigu einstaklinga, sem ekki eiga vinnslu í landi og er síldin seld í gegnum fjarskiptamarkað þrisvar á dag, en þó tryggja norsku Síldarsamtök- in ákveðið lágmarksverð. Veiðireynsla eða geðþóttaákvörðun Formaður LÍU sagðist ætla að bíða með yfirlýsingar þar til í Ijós kemur hvernig íslensk stjórnvöld hyggjast skipta síldarkvótanum og ekki væri held- K ur hægt að leggja mat á það hvort eðli- legt geti talist að hafa síldarkvótann framseljanlegan fyrr en viðmiðunarregl- ur liggja Ijósar fyrir. „LIÚ iagði til að veiðar úr síldarstofninum yrðu ftjálsat' í ár svo að hægt yrði að byggja á veiði- reynslu síðar við úthlutun kvóta, en ekki geðþóttaákvörðun ráðherrans, eins og nú stefnir í. Það gæti orðið mjög erfitt að byggja á veiðireynslu síðar þegar búið er að kvótasetja hann með slíkum hætti.“ Gjörbreyttar forsendur Alls sóttu 87 íslensk skip um leyfi til síldveiða þegar óskað var eftir umsókn- unt áður en samningar um skiptingu veiðanna lágu fyrir. „Óskað var eftir umsóknum á grundvelli 244 þúsund tonna. Veiðar yrðu frjálsar upp að 190 þús. tonnum, en afganginum yrði skipt á milli skipa til að tryggja að menn færu ekki í fýluferð á miðin. Nú er búið að gjörbreyta þessum forsendum þannig að ég álít að það þurfi að auglýsa þetta upp á nýtt. Núna þegar fyrir liggur miklu minna rnagn og skipting alls kvót- ans, er ekki lengur hægt að skipta hon- um eftir umsóknum, sem byggjast á allt öðrum forsendum en þeim, sem nú verða lagðar til grundvallar. Það var allt eins hægt að skipta 244 þús. tonnum á skip eins og 190 þús. tonnum nú,“ segir Kristján. Fréttir Veiði Norðmenn óráðnir í niðurskurði • EKKI hefur verið tekin ákvörðun um hvernig síldarkvóti norskra skipa verður skorinn niður en það verður að gera skv. síldarsamningum Norðmanna við Islendinga, Færeyinga og Rússa./2 Ber að lögskrá á Islandi • í SVARI samgönguráðu- neytisins til Sjómanna- sambands íslands kemur fram að erlendum útgerðar- aðila fiskiskipsins Heinaste hafi borið að láta lögskrá á skipið hjá Sýslumanninum í Hafnarfirði./2 Ekki svartsýnn á humar- vertíðina •„Eg vona allavega að veiðin verði ekki eins léleg og í fyrra enda má hún vera ansi slæm til að ná því,“ segir Kristinn Guðmundsson, skipstjóri á Bjarna Gíslasyni SF-90, sem er að undirbúa sig fyrir komandi humárvertíð./2 Rúm 3% fyrir kvótakerfi SMÁBÁTAR veiddu rúm 3% af heildarafla þorsks á viðmiðunarárum fyrir daga kvótakerfisins. Hlutur þeirra í þorskaflanum 1990 hafði ríflega fjórfaldast frá því fyrir 1984 og var orðinn tæp 14%. Við endurskoðun laga um fiskveiðistjórnun árið 1990 voru 6-10 tonna bátar teknir inn í afla- markskerfið, en eigendum annarra smábáta gefinn kostur á að velja milli afla- marks og krókaleyfis. Skipting þorskaflans á báta eftir stærð þeirra frá viðm.árum til 1990 □ Bátar yfir 10 brl. Minni bátar '80-83 '84 '85 '86 '87 '88 '89 '90 Tæp 22% á síðasta ári Nasl úr saltfiskroði •„ÚLFAR Eysteinsson matreiðslumeistari stefnir að því að koma nasli úr djúpsteiktu saltfiskroði á markað i sumar./5 Skylt er að flokka karfa • NÚ ER skylt að flokka allan karfaafla í gullkarfa og cjjúpkarfa Um borð í veiðiskipum og skulu skipstjórar jafnframt greina á milli þessara tegunda í afladagbókum. Sömuleiðis á að landa og vigta hvora tegund sérstaklega./7 Fjórir millj- arðar í úthafs- karfakvóta • ÆGIR úthlutar úthafs- karfakvótanum til einstakra skipa og útgerða skv. veiðireynslu á Reykja- neshrygg og reynir að áætla verðmæti karfakvótans./8 Skipting þorskaflans á aflamarksskip og króka- ieyfisbáta frá 1. jan. ‘91 FJ Atlamarksskip @ Krókaleyfisbátar 100 % 80 60 40 20 0 1991 '91 '92 '93 '94 '95 ÁRIÐ 1991 var búinn til flokkur krókaleyfisbáta sem í voru bátar undir 6 brúttólestum. Upphaflega var þessum hópi útdeilt rúmuni 2% af úthlutuðum þorskkvóta í samræmi við aflareynslu. Síðan hefur veiði hans farið stigvaxandi og á síðasta fiskveiðiári veiddi hann tæp 22% af heildarafla þorsks eða um 36 þús. tonn. Ef þessi hópur hefði búið við sömu tak- markanir og aflamarksbát,- ar, hefðihann mátt veiða 2.700 tonn á síðasta ári, skv. útreikningum útvegs- mannafélaga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.