Morgunblaðið - 09.05.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 09.05.1996, Síða 1
f FYRIRTÆKI [ ' BANKAR M TÖLVUR X X c Sláturfélagiö eflist Skurðarhnífurinn Lokaverkefnin i á ný/4 á lofti /6 lykill framtíðar /9 >c..^ VIÐSKIFn AIVINNULÍF PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996 BLAÐ Ríkisbréf Avöxtunarkrafa óverðtryggðra ríkisbréfa lækkaði verulega í út- boði Lánasýslu ríkisins í gær, miðað við síðasta útboð. Avöxtunarkrafa 3ja ára Ríkisbréfa lækkaði um tæp- lega 1% í 7,97% en ávöxtunarkrafa 5 ára bréfanna lækkaði um 0,67% í 8,8%. Alls var tekið tilboðum að fjárhæð 280 milljónir króna. Sláturfélagið Sláturfélag Suðurlands stefnir að því að fá útflutningsleyfi fyrir slát- urhús sitt á Selfossi næsta haust þannig að hægt verði að hefja út- flutning á afurðum til rílya Evr- ópusambandsins. Ennfremur er stefnt að því að fá slíkar heimildir fyrir kjötvinnsluna á Hvolsfelli. Sjá bls. 4-5. Nýsköpun Þeirri hugmynd var hreyft á ráð- stefnu Rannsóknarráðs að örva mætti fjárfestingar í nýsköpun með því að breyta reglum um skattaafslátt einstaklinga vegna hlutabréfakaupa. Hlutabréf í hlutabréfasjóðum sem settu hluta af sínu ráðstöfunarfé í nýsköpun- arfyrirtæki ættu að gefa rétt á meiri skattaafslætti en bréf í öðr- um almenningshlutafélögum eða hlutabréfasjóðum. SÖLUGENGIDOLLARS GENGI NOKKURRA GJALDMIÐLA frá 1. maí 1995 (sölugengi) STERLINGSPUND +0,21% breyting /rQ frá áramótum - -^^101 57 101,78 yo 1995 1996 'm' j' j'á's'o'n'd j'f'm'a'm' 00 Franskur FRANKI -2,21 % breyting / frá áramótum 1 3,352 1 0 1995 7, , . , 11 'm' j'j'á's'o'iTd J'F’M'A'M' Afurðasalan í Borgarnesi hf. Festir kaup á kjötdeild Isl- lensks fransks AFURÐASALAN í Borgarnesi hf. hefur keypt kjötdeild íslensks fransks hf. og er gert ráð fyrir að fyrirtækið taki við rekstri hennar í júní. íslenskt franskt hf. hefur jafn- framt gerst hluthafi í Afurðarsöl- unni. Að sögn Þráins Þorvaldssonar, framkvæmdastjóra ÍF, verður öll framleiðsla deildarinnar flutt til Borgarness í kjölfarið, en hún verði þó áfram seld undir vörumerki ís- lensks fransks. Þetta er önnur stórbreytingin sem verður á rekstri ÍF á skömmum tíma, en nýverið var gengið frá samning- um um flutning fiskdeildar fyrirtæk- isins til Akraness fyrir skömmu, í tengslum við samstarf þess við Har- ald Böðvarsson hf. Þráinn segir að ástæða þess að ákveðið hafi verið að selja kjötdeild fyrirtækisins tengist fyrirhuguðum útflutningi tilbúinna sjávarrétta. Bæði kjöt- og fiskframleiðslan út- heimti talsverða fjárfestingu í tækja- búnaði og því hafi verið ákveðið að fyrirtækið myndi einbeita sér alfarið að framleiðslu og útflutningi físk- réttanna. Með aukinni sérhæfingu í fiskvinnslunni ætli fyrirtækið sér að nýta betur þau markaðstækifæri sem þar virðist vera að skapast. Hann segir þó að rekstur kjötdeild- arinnar hafi gengið vel að undanfömu og söluaukning hafi orðið á síðasta ári og það sem af sé þessu. Þá sé ætlunin að fyrirtækin muni hafa með sér samstarf um vöruþróun, gæðaeft- irlit og markaðssetningu landbúnaðar- vara erlendis í framtíðinni. Einnig muni matreiðslumeistarar ÍF áfram hafa eftirlit með framleiðslu á kjötvör- um undir vörumerki þess. Betri nýting á fram- leiðslugetu Afurðasölunnar ívar Ragnarsson, framkvæmda- stjóri Afurðasölunnar, segir að þessi samningur ætti að styrkja markaðs- stöðu fyrirtækisins. Jafnframt hafi þetta talsverða hagræðingu í för með sér enda geti fýrirtækið nú nýtt framleiðslugetu sína betur. Sú framleiðsla sem kjötdeild ÍF hafi haft með höndum komi sem hrein viðbót við þá framleiðslu sem Af- urðasalan sé með fyrir og þurfi ekki að koma til nein viðbótarfjárfesting í búnaði vegna hennar. „t>essi samningur kemur einnig til með að þýða 7-9 störf tii viðbótar hjá okkur og aukna fullvinnslu. í dag erum við að fullvinna u.þ.b. 75% af því sem við slátrum en við þetta ætti hlutfallið að aukast í 85-90%,“ segir ívar. Hann segir að dreifingarkerfi þessara tveggja fyrirtækja verði einnig sameinað á höfuðborgarsvæð- inu undir stjórn Afurðarsölunnar og þýði það ákveðna hagræðingu í dreifingunni. Þeir starfsmenn ís- lensks fransks sem unnið hafi að þessari dreifingu muni gera það áfram, ásamt starfsmönnum Af- urðasölunnar. Þá muni Afurðarsalan sjá um dreifingu fyrir fiskdeild ÍF á höfuðborgarsvæðinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.