Morgunblaðið - 09.05.1996, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
KNATTSPYRNA
3K*f)tmtlritafeife
1996
FIMMTUDAGUR 9. MAI
BLAÐ
Úrslitaleikurinn ífyrsta
sinn á Laugardalsvelli
ÚRSLITALEIKURINN í meistaraflokki karla á
Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu fer fram á Laug-
ardalsvellinum sunnudaginn 12. maí. Knattspymu-
ráð Reylqavíkur (KRR), sem er framkvæmdarað-
ili Reykjavíkurmótsins, var stofnað árið 1919 og
er þetta í fyrsta sinn sem úrslitaleikur mótsins fer
fram á aðalleikvanginum í Laugardal.
Reykjavíkurmeistarar KR leika til úrslita við
Fylki og hefst viðureignin kl. 17. Markakóngsbik-
arinn verður veittur i annað sinn en Guðmundur
Benediktsson úr KR hlaut hann í fyrra. Einhver
ársmiðahafi fær óvæntan glaðning í leikhléi en
þá verður dregið úr happdrættismiðum ársmiða-
hafa. Lúðrasveit leikur fyrir áhorfendur fyrir
leikinn og i leikhléi.
A blaðamannafundi í gær afhentu forráðamenn
KRR fulltrúa Einars J. Skúlasonar skjöld sem
þakklætisvott fyrir veittan stuðning vegna
Reylqavíkurmótsins síðustu tvö árin og nýr samn-
ingur var undirritaður.
Meiðsl Eiðs Smára alvarlegri en talið var
Máekkiæfa
í fjóra mánudi
Eiður Smári Guðjohnsen,
landsliðsmaður í
knattspyrnu og leikmaður
Eindhoven í Hollandi, getur
ekki byrjað að æfa fyrr en
í fyrsta lagi eftir fjóra mán-
uði. Þetta kom fram eftir
aðgerð sem gerð var á hon-
um í Eindhoven í gær en
gert er ráð fyrir að hann
verði á sjúkrahúsinu fram að helgi.
Eins og Morgunblaðið greindi frá
í gær var brotið ruddalega á Eiði
Smára í leik írlands og íslands í
Evrópukeppni piltalandsliða í fyrra-
kvöld. Mótherji sparkaði í hann með
þeim afleiðingum að hægri sperri-
leggur brotnaði og tvö liðbönd slitn-
uðu. Læknar Eindhoven vildu ekki
að hann færi i aðgerð í Dublin held-
ur lögðu áherslu á að framkvæma
hana sjálfir og fór hann i uppskurð
skömmu eftir komuna til Hollands
síðdegis í gær.
Geir Þorsteinsson, skrifstofu-
stjóri Knattspymusambands ís-
lands, fylgdi Eiði Smára til Hol-
lands og þar tók Ólöf Einarsdóttir,
móðir hans, á móti honum.
„Læknamir negldu lið-
böndin föst og settu plötu
við brotið," sagði hún við
Morgunblaðið, aðspurð um
aðgerðina. „Hann má ekki
hreyfa fótinn í sex vikur
og ef allt fer að óskum
verða naglarnir teknir eftir
12 vikur og platan eftir
fjóra mánuði. Því er ljóst að þetta
setur strik í reikninginn varðandi
næsta tímabil því hann missir af
öllu undirbúningstímabilinu, að ekki
sé minnst á bikarúrslitaleikinn gegn
Spörtu 16. maí og hugsanlegan
landsleik með föður sínum í sumar.“
Ólöf sagði að Eiður Smári væri
í höndum færustu sérfræðinga Hol-
lands, lækna sem hefðu séð um
alla leikmenn Eindhoven, og þeir
segðu að hann næði sér fullkom-
lega. „Það er svekkjandi að lenda
í svona í lok ánægjulegs tímabils,
en hann hefur aldurinn með sér,
er ekki nema 17 ára, og læknarnir
sögðu að allt yrði jafngott aftur.
99,9% eins og þeir orðuðu það.“
Elður Smárl
Sigurmarki fagnad
FRANSKA li&IA Paris St. Germain varð Evrópumeistari bikarhafa í knattspyrnu í gœrkvöldl,
vann Rapld Vín frá Austurríki 1:0 í úrslitalelknum í Brussel. Varnarmaöurlnn Bruno N’Gotty
gerðl elna mark lelksins á 29. mínútu, skaut af um 35 metra færl, og var að vonum ánægður
en samherjarnir fylgdu honum fagnandi. Þetta er í fyrsta slnn sem PSG verður Evrópumelst-
arl en undanfarin þrjú ár hefur liðiA tapað í undanúrslitum allra þrlggja Evrópumótanna.
FRJALSIÞROTTIR
Péturog Sigurðurfá ekki notið leiðsagnar Stefáns Jóhannssonareins og þeir hafa óskað eftirvið FRÍ
Við sitjum eftir þjálf-
aralausir í Alabama
PÉTUR Guðmundsson, kúlu-
varpari og Sigurður Einarsson,
spjótkastari, sem báðir hafa ver-
ið við æfingar í Alabama í Banda-
ríkjunum í vetur, keppa á fyrsta
mótinu á þessu keppnistímabili i
lok maí. Þeir óskuðu eftir því við
Frjálsíþróttasambandið að fá
Stefán Jóhannsson þjálfara út í
lokaundirbúninginn fyrir Ólymp-
íuleikana, en fengu neitun. „Við
erum búnir að standa í stappi við
FRÍ út af þessu máli því við telj-
um mjög mikilvægt að fá Stefán
til að fínpússa tæknina hjá okkur
því hann hefur reynst okkur vel
í gegnum árin,“ sagði Pétur Guð-
mundsson i samtali við Morgun-
blaðið.
Pétur segir að þeir hafi haft
aðgang að þjálfara í Alabama en
sá væri ekki nægilega vel að sér
í tækninni. „Þessi þjálfari er
ágætur í styrktarþjálfunina en
veit lítið sem ekkert um tækni.
Stefán hefur hjálpað mér og Sig-
urði þegar við höfum staðið okk-
ur sem best í gegnum árin. Við
vildum því endilega fá hann hing-
að síðustu þrjá mánuðina fyrir
ÓL og óskuðum eftir styrk frá
FRÍ til þess. Það má því segja
að við sitjum hér eftir þjálfara-
lausir og það er ekki gott svona
rétt fyrir Ólympíuleika."
Pétur sagði að undirbúningur-
inn hefði gengið vel enda aðstæð-
ur til æfinga í Alabama eins og
best verður á kosið. „Ég byija
ekki að keppa fyrr en í lok maí
[27. maíj á alþjóðlegu stigamóti
í Oregon. Ég ætlaði upphaflega
að keppa á fyrsta stigamóti sum-
arsins sem fram fór i Brasiliu
um síðustu helgi en tognaði í
hægri mjöðm fyrir mánuði og
er rétt að jafna mig á því núna.
Ég er þokkalega bjartsýnn á
sumarið. Það getur allt gerst í
kúluvarpinu. Ölympíuleikar eru
öðruvísi mót og það er aldrei að
vita hveijir komast á pall. Það
gæti alveg eins orðið Islending-
ur.“
Hann sagðist ætla að nota
snúningsstílinn í sumar. „Ég var
með þennan hefðbundna bakstil
i tvö ár og náði að kasta 20,63
metra. Síðan skipti ég yfir í snún-
inginn og þá byrjaði ég á því að
rifa upp meiðsl i handarbaki. Ég
hef því lítið keppt síðan og hef
kastað lengst 20,13 metra á móti
hér sl. haust.“
Er ekki seint að byrja keppni
ílok mai þegar svo stutt er í
Ólympíuleika?
„Nei, það held ég ekki. Þegar
ég var að æfa heima á íslandi
byijaði ég yfirleitt að keppa í
byijun maí á vormótunum og var
orðinn meiddur í júní. Núna sner-
ist þetta við því ég meiddist
snemma og er að ná mér og von-
andi held ég mér hejlum fram
yfir Ólympiuleika. Ég ætla að
keppa sem mest í júní og alveg
fram að leikum i stað þess að
vera að hanga einhverstaðar í
æfingabúðum og bíða spenntur
og vera svo allt of stifur þegar
kemur að leikunum sjálfum. Ég
ætla að „keppa mig i form“ eins
og stundum er sagt.“
Vésteinn Hafsteinsson,
kringlukastari, hefur einnig ver-
ið við æfingar á sama stað en
hann er með John Powell, fyrr-
um kringlukastara, til að leið-
beina sér. Vésteinn hefur verið
meiddur eins og Pétur og ætlar
að hefja keppnistimabilið í lok
maí eins og Pétur og Sigurður.
KÖRFUKN ATTLEIKUR: CHICAGO SIGRAÐINEW YORK AFTUR / C4