Morgunblaðið - 10.05.1996, Side 4
KORFUKNATTLEIKUR
Hardaway og
Shaq frábærir
Shaquille O’Neal og Penny
Hardaway fóru á kostum í
liði Orlando Magic, sem sigraði
Atlanta 117:105 í fyrstu viðureign
liðanna í undanúrslitum Austur-
deildar NBA í fyrrinótt. Félagarnir
gerðu alls 73 stig - Shaq 41 og
Hardaway 32.
Orlando-menn voru vel upp lagð-
ir og úthvíldir því átta dagar voru
liðnir síðan þeir slógu Detroit út
en andstæðingarnir frá Atlanta
þurftu hins vegar fimm leiki gegn
Indiana og sá síðasti þeirra fór
fram á sunnudag.
Leikmenn Atlanta lögðu höfuð-
áherslu á að stöðva O’Neal í leikn-
um en höfðu ekki erindi sem erf-
iði. Tveir og stundum þrír sóttu
fast að risanum þegar hann fékk
knöttinn í námunda við körfu and-
stæðinganna og ef hann átti þess
ekki kost að skora sjálfur var hann
fljótur að senda á Hardaway eða
Nick Anderson, sem gerði 21 stig.
O’Neal, sem skoraði 25 af stigum
sínum í fyrri hálfleik, tók 13 frá-
köst og átti sex stoðsendingar í
leiknum. „Ég lagði mig bara allan
fram, kom kraftmikill til leiks og
var ákveðinn í að leika af harð-
fylgi. Ég var að koma úr átta daga
„fríi“ þannig að ég var úthvíldur,“
sagði hann.
„Faðir minn kenndi mér að leika
af skynsemi. Ef tveir eða þrír reyna
að passa mig liggur í augum uppi
að tveir í mínu liði eru lausir og
ég reyni því að koma boltanum til
þeirra,“ sagði O’Neal.
Horace Grant skoraði 17 stig og
tók 10 fráköst og Dennis Scott
gerði 5 stig - en þessir fimm, sem
skipa byijunarliðið, skoruðu öll stig
Orlando nema eitt.
Stacey Augmon var atkvæða-
mestur í liði Atlanta með 23 og
Steve Smith og Mookie Blaylock
skoruðu 18 stig hvor.
Leikmenn Atlanta fengu aðeins
einu sinni meira en 87 stig á sig í
leikjunum fimm gegn Indiana, .en
hafi einhver verið í vafa þar til í
leiknum í fyrrinótt þá er Orlando
sannarlega ekki svipað lið og Indi-
ana, jafnvel þó Shaq og félagar
hafi virkað hálf-óöruggir fyrstu
mínúturnar, eftir að hafa ekki leik-
ið í átta daga.
O’Neal hitti úr 18 af 28 skotum
í leiknum, Hardaway 12 af 19 og
Grant 8 af 11 en í heild var skota-
nýting leikmanna Orlando fyrir
utan vítaskot 58 af hundraði; þeir
hittu úr 48 af 83 skotum.
Þrátt fyrir að Atlanta hefði aldr-
ei átt möguleika er þjálfarinn
Lenny Wilkens ekki á þeirri skoðun
að verkefnið sé vonlaust. „Við gef-
umst ekki upp,“ sagði hann.
„Strákarnir halda áfram að leggja
sig fram og ég veit að allt annað
verður upp á teningnum í næsta
leik.“
Landsleikir
við Norðmenn
NORSKA landsliðið í körfuknattleik kemur hingað til lands í
næstu viku og mun leika tvo vináttuleiki við íslenska landsliðið.
Leikir þessir eru kærkomnir fyrir Jón Kr. Gíslason landsliðsþjálf-
ara og lærisveina hans því landsliðið undirbýr sig nú af krafti
fyrir Evrópuriðilinn sem verður leikinn hér á landi 22. til 26. maí.
SHAQUILLE O’Neal fór á kostum ásamt Penny Hardaway er
Orlando vann Atlanta 117:105 í fyrstu viðurelgn liðanna í
undanúrslitum Austurdeildar NBA.
FRJALSIÞROTTIR
Fengu styrk til að Stef-
án gæti veittaðstoð
Eg kannast við þessa beiðni þeirra.
Kastararnir Pétur Guðmunds-
son og Sigurður Einarsson óskuðu
eftir því að Stefán Jóhannsson kæmi
út. Við afgreiddum málið með aðstoð
frá Ólympíunefnd íslands, þeir hafa
fengið ákveðinn styrk á mánuði til
að létta róðurinn til að njóta aðstoð-
ar Stefáns og auk þess höfum við
lagt til flugmiða til að Stefán gæti
verið á ferðinni, komið til þeirra og
farið eftirþví sem þeir þyrftu," sagði
Knútur Oskarsson, framkvæmda-
stjóri Fijálsíþróttasambands íslands,
við Morgunblaðið í tilefni ummæla
Péturs Guðmundssonar kúluvarpara
í blaðinu í gær þess efnis að þeir
Sigurður fengju ekki notið leiðsagnar
Stefáns þrátt fyrir að hafa óskað
eftir því við FRl.
„Við höfnuðum hins vegar að ráða
Stefán til okkar og hafa hann á
launaskrá þar sem þeir væru í æf-
ingabúðum í Bandaríkjunum. Við
höfum ekki fjármagn í það, og einn-
ig má benda á að þeir eru á styrkjum
frá Afreksmannasjóði sem á að
standa straum af undirbúningskostn-
aði fyrir keppni."
Knútur sagði ennfremur: „Menn-
imir hafa verið í æfíngabúðum á veg-
um Ólympíusamhjálparinnar í eitt og
hálft ár við betri aðstæður en áður
hefur þekkst í undirbúningi fyrir
Ólympíuleikana, innifalið i þeim búð-
um er öll æfingaaðstoð, þjálfun, vell-
ir, læknisaðstoð og annað þvíumlíkt.“
Knútur sagði nú þegar búið að
ákveða, og tilkynna íþróttamönnun-
um það, að „vera með alla ólympíu-
kandidatana með þjálfurum þeirra,
meðal annars Stefáni, í æfingabúð-
um í Bandaríkjunum í þijár vikur
fyrir Ólympíuleikana. Þá geta þessir
einkaþjálfarar aðstoðað íþrótta-
mennina að vild eins og í keppninni
sjálfri ef þeir vilja því þjálfararnir
geta fengið aðgang að Ólympíuleik-
unum, keppnisvellinum og æfinga-
völlum þó þeir yrðu ekki á okkar
vegum á leikunum sjálfum. Við
stöndum straum af kostnaði við þess-
ar æfingabúðir og ferðir og áætlum
að það muni kosta okkur um þijár
milljónir króna,“ sagði Knútur.
Framkvæmdastjórinn vildi taka
fram að Vésteinn Hafsteinsson
kringlukastari hefði nýtt sér þá fjár-
muni sem FRÍ lagði fram í þjálfara-
kostnað til að ráða til sín John Pow-
ell, fyrrum heimsmeistara í kringlu-
kasti, „og við erum mjög ánægðir
með það.“
Seljum
ekki leik-
menn upp
í skuldir
JOHN Hall, eigandi New-
castle, er ánægður með
árangur liðsins þótt það hafi
ekki orðið Englandsmeist-
ari. „Þetta er kraftaverk
miðað við stöðuna fyrir fjór-
um árum þegar við vorum
við það að falla. Héðan í frá
lítum við ekki til baka og
við þurfum aldrei aftur að
selja bestu leikmennina til
að borga skuldir,“ sagði
Hall, sem leyfði Kevin Keeg-
an knattspyrnustjóra að
kaupa leikmenn fyrir 26
miiy. punda á tímabilinu.
■ DARREN Anderton, sem lék
aðeins fjóra leiki með Tottenham á
leiktíðinni vegna meiðsla, var í gær
valinn í enska landsliðshópinn sem
mætir Ungverjum í vináttulandsleik
18. maí. Tony Adams, sem hefur
ekki leikið með Arsenal síðan í jan-
úar vegna meiðsla, er einnig í landsl-
iðshópnum.
■ ALAN Shearer, markakóngur
úrvalsdeildarinnar, sem var meiddur
í síðasta landsleik kemur aftur inn í
landsliðið. Paul Gascoigne verður
ekki með vegna þess að hann er að
leika með Glasgow Rangers sama
dag í úrslitum skosku bikarkeppninn-
ar gegn Hearts.
■ IAN Porterfield, sem var aðstoð-
arknattspyrnustjóri Bolton undan-
farna flóra mánuði, er hættur vegna
persónulegra ástæðna.
■ GORDON Milne, fyrrum leik-
maður Liverpool, er á leiðinni til
Tyrklands til að gerast þjálfari hjá
Bursaspor, en hann var þjálfari
Grampus Eight í Japan í skamman
tíma. Milne þekkir til mála í Tyrk-
landi en hann var þjálfari Besiktas
í sjö ár.
■ GRAEME Souness, sem var rek-
inn frá Galtasaray á dögunum,
gæti orðið áfram þjálfari í Tyrk-
landi. Honum hefur verið boðið að
taka við Besiktas, sem rak Þjóðverj-
ann Christoph Daum um síðustu
helgi.
■ DAVID Ginola segist vera
ákveðinn í að vera áfram hjá New-
castle en orðrómur hefur verið um
að hann væri á förum til Frakk-
lands. „Þótt við lentum í öðru sæti
var tímabilið frábært og ég verð
áfram því mér líkaði spilamennskan."
■ PAUL Merson, sem hefur verið
leikmaður Arsenal í tíu ár, fékk
allan ágóða af leik Arsenal og
stjörnuliðs, sem í vöru m.a. Glenn
Hoddle, Paul Gascoigne, Paul Ince
og Vialli og fleiri á Highbury í
fyrrakvöld. Rúmlega 30 þúsund
áhorfendur greiddu aðgangseyri og
fékk Merson 450 þúsund pund eða
um 45 milljónir króna í vasann.
■ STUART Pearce, leikmaður
Nottingham Forest, fékk sömuleið-
is ágóðaleik á dögunum, gegn New-
castle. 23 þúsund áhorfendur komu
til að sjá þann leik og fékk Pearce
25 milljónir í sinn hlut. Þess má
geta að Kevin Keegan, fram-
kvæmdastjóri Newcastle, kom inn á
í leiknum til að taka víti og skoraði.
■ MANCHESTER United fékk
ávísun upp á 99 milljónir króna frá
Sky sjónvarpsstöðinni fyrir sigur í
ensku úrvalsdeildinni. Liverpool,
sem varð í þriðja sæti, fékk 89 millj-
ónir og Bolton, sem endaði í neðsta
sæti og féll, fékk 5 milljónir króna.
■ TREVOR Francis, George Gra-
liam og Alan Curbishly (Charlton)
eru inni í myndinni sem þjálfari
Birmingham City sem rak Barry
Frey í vikunni.
í kvöld
Knattspyrna
Deildarbikarkeppni KSI
Meistaraflokkur karla:
Valbjarnarvöllur: FYam-ÍA.19.00
Kópavogsv.: Breiðabl. - UMFG19.30
Fyrsta stigamót LEK í
Vestmannaeyjum
Fyrsta stigamót Landsambands eldri kylf-
inga til landsliðs, fer fram í Vesmannaeyjum
um helgina. Keppt er í flokkum karla 55
ára og eldri og 50-54 ára, auk þess í flokki
kvenna 50 ára og eldri. Skráning fer fram
( golfskálanum í Vestmannaeyjum.
Stigamótin verða alls 6 að þessu sinni en
5 bestu hringirnir telja. Að loknu síðasta-
mótinu, i Grafarholti 14. júni, verður ljóst
hveijir skipa landslið eldri kylfinga á Evr-
ópumeistaramótinu sem fram fer á Ítalíu í
byijun júlí.