Morgunblaðið - 11.05.1996, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1996
JMófigtittttlð&tö
■ LAUGARDAGUR 11. MAÍ
BLAÐ
íslendingamir
sigruðu báðir í
fyrstu umferð
KRISTJÁN Helgason íslandsmeistari og Jóhannes
B. Jóhannesson bytjuðu vel í Evrópukeppni einstakl-
inga í snóker sem hófst í Antwerpen í Belgíu í
gær. Strákamir sigruðu mótheija sína örugglega
en önnur umferð fer fram í dag.
Kristján vann Belgann Bart Van Ginneken 4:1
og sömu úrslit urðu í leik Jóhannesar gegn Finn-
landsmeistaranum Rysto Vyraneu. „Við byijuðum
báðir mjög vel og þetta var sannfærandi," sagði
Jóhannes við Morgunblaðið í gærkvöldi.
Keppt er í átta sex manna riðlum og fara tveir
efstu í hveijum riðli áfram í 16 manna úrslit en
riðlakeppninni lýkur á þriðjudag. Kristján mætir
Danmerkurmeistaranum Rune Kampe í 2. umferð
og Jóhannes spilar við Finnann Marku Hamnlinen.
ÍA og Breiða-
blik leika
til úrslita
Morgunblaðið/Porkell
SUND
Eðvarð og Ragnheiður
þjálfa lið Keflvíkinga
AKURNESINGAR sigruðu Fram-
ara 5:0 í deildarbikarkeppninni á
Valbjamarvelli í gærkvöldi og
Breiðablik sigraði lið Grindavíkur
3:0 í Kópavogi. ÍA og Breiðablik
leika því fyrsta úrslitaleik keppn-
innar í karlaflokki og fer sú viður-
eign fram á Kaplakrikavelli í
Hafnarfirði næsta miðvikudag kl.
20.00. Mihajlo Bibercic, sem er í
herbúðum IA á ný eftir árs dvöl
hjá KR, gerði þijú mörk gegn
Fram en Bjarai Guðjónsson og
Bjarki Pétursson sitt markið hvor.
í Kópavogi skoruðu Pálmi Har-
aldsson, Kjartan Einarsson og
Amar Grétarsson fyrir Breiða-
blik. Á myndinni er Bibercic með
knöttinn, Valur Fannar Gíslason
sækir að honum. Til hægri sést í
bak Haraldar Ingólfssonar.
■ Lelklrnlr / D4
Eðvarð Þór Eðvarðsson og Ragn-
heiður Runólfsdóttir hafa verið
ráðin þjálfarar hjá Sunddeild Kefla-
víkur. Eðvarð, sem hefur þjálfað
unglingaflokka deildarinnar, tekur
við eldri keppendunum af Þjóðveij-
anum Martin Rademacher, sem
senn flyst úr landi og fer að þjálfa
í Lúxembourg og Ragnheiður tekur
við unglingaflokkum af Eðvarð.
„Það stóð alltaf til að Eðvarð Þór
tæki við þegar Martin færi. Eðvarð
hefur verið hjá okkur í tvö ár, nú
gerðum við þriggja ára samning við
hann til viðbótar en sömdum til
tveggja ára við Ragnheiði,“ sagði
Birgir Ingibergsson, formaður
Sunddeildar Keflavíkur við Morg-
unblaðið í gær.
EðvarA Þór RagnhelAur
„Það er mikill fengur fyrir okkur
í því að ráða þau. Við höfum alltaf
lagt áherslu á að vera með íþrótta-
menntað, gott fólk við þjálfun,
bæði unglingaflokkanna og þeirra
eldri og það hefur alltaf skilað sér.
Það hefur sýnt sig að þetta borgar
sig, Eðvarð hefur til dæmis unnið
mjög gott starf og skilað mörgum
efnilegum krökkum frá sér upp í
eldri flokkana."
Eðvarð Þór og Ragnheiður voru
bestu sundmenn íslands um árabil
og hafa t.d. bæði hlotið sæmdar-
heitið íþróttamaður ársins í kjöri
Samtaka íþróttafréttamanna. Eð-
varð hefur þjálfað í Keflavík undan-
farið, eins og áður greinir, en Ragn-
heiður hefur þjálfað á Akranesi, í
Mosfellsbæ og er nú á Akureyri þar
sem hún tók við þjálfarastarfi hjá
Óðni sl. haust. Hún kemur til starfa
1. ágúst og þá tekur Eðvarð form-
lega við af Rademacher.
Gullit tek-
ur við af
Hoddle
HOLLENDINGURINN Ruud
Gullit var f gær ráðinn knatt-
spyrnustjóri enska úrvals-
deildarliðsins Chelsea og mun
einnig leika með iiðinu. Hann
tekur við af Glenn Hoddle, sem
verður næsti landsliðsþjálfari
Englands og tekur við af
Terry Venables eftir Evrópu-
keppnina í sumar. Leikmanna-
samningur Gullits rennur út í
júní 1998.
„Þegar við vissum að Glenn
Hoddle væri að fara frá okkur
kom nafn Gullits strax upp í
hugann og stjórn félagsins
ákvað að bjóða honum starf-
ið,“ sagði Colin Hutchinson,
framkvæmdastjóri Chelsea.
Gullit, sem er i Hollandi
ásamt fjölskyldu sinni og verð
ur þar fram yfir helgi, hefur
verið nyög vinsæll á Stamford
Bridge frá því hann kom frá
Ítalíu sl. sumar. Á sfðasta leik
liðsins í deildinni, gegn Black-
bura, eftir að \jóst var að
Hoddle færi, létu stuðnings-
menn Chelsea f ljós áhuga á
að Gullit yrði ráðinn þjálfari -
héldu á loft stórum borðum
með kröfum þar að lútandi.
Þeim hefur nú orðið að ósk
sinni.
Tilkynnt var í gær að Gull-
itt myndi einvörðungu sjá um
þjálfun liðsins en fjármál varð-
andi leikmannakaup og annao
vafstur í þeim efnum yirði al
farið á herðum áðurnefnds
Hutchinson.
Kristinn á
leið til Eyja
KRISTINN Hafliðason, knatt-
spyrnumaður sem lék með
Fram í fyrra, mun að öllum
lfkindum leika með í B V í sum-
ar. Hann hefur æft með liðinu
að undanf örau og er reiknað
með að hann gangi frá félaga-
skiptum eftir helgina.
„Kristinn hefur sjálfur sýnt
áhuga á að leika með okkur í
sumar. Hann væri ekki að æfa
með okkur ef hann ætlaði sér
ekki að skipta um félag. Ég
reikna raeð að hann skrifiund-
ir leikmannasamning við ÍBV
á allra næstu dögum," sagði
Jóhannes Ólafsson, formaður
knattspyraudeildar ÍBV.
BIKARÚRSUTALEIKSIIMS í EIMGLANDIBEDIÐ MED MIKILU EFTIRVÆIMTINGU / D3