Morgunblaðið - 12.05.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 12.05.1996, Síða 1
96 SÍÐUR B/C/D 107. TBL. 84. ÁRG. SUNNUDAGUR12. MAÍ1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Morgunblaðið/RAX Sumarblíða í Vesturbænum KOTTURINN á myndinni er í góðum holdum og virðist hafa haft ar eru í hreiðrum og foreldramir gæta sín ekki vel enda upptekn- það náðugt í vetur. Hvað sem því líður verður að hafa í huga að ir af fæðuöflun fyrir ungviðið. Kattavinir ættu því að stuðla að veiðihvötin er sterk og freistingarnar margar um þetta leyti. Ung- friðsamlegri sambúð og muna að hafa bjöllu á hálsbandi kisa. Finnskir áhrifamenn ræða aðild að NATO Helsinki. Morgunblaðið. Minningar að austan VINSÆLASTA spilið í Þýskalandi núna er eins konar austur-þýsk út- gáfa af hinu þekkta Monopoly, þátt- takendur fá sýn inn í daglegt líf borg- aranna í alþýðulýðveldinu gamla. Meðspilarinn, sem þú hefur treyst fullkomlega, getur reynst vera njósn- ari á vegum öryggislögreglunnar al- ræmdu, Stasi. Að sjálfsögðu er fjöld- inn allur af tækifærum til að misstíga sig og hafna í steininum. Leikreglurnar endurspegla gálga- húmorinn sem gerði mörgum Austur- Þjóðveijum lífið í einræðisríki komm- únista bærilegra en ella. Þátttakend- ur verða að kljást við skrifræði, mútu- þægni og svarta markaðinn þegar þeir keppast um að eignast bíl, síma eða aðgöngumiðann að öllum gæðum, sjálft flokksskírteinið. Robert Kurek, þrítugur verkfræð- ingur, fann upp spilið ásamt eigin- konu sinni, Heike, sem er tónlistar- kennari. Leikurinn ber nafn sem er tilvitnun í eitt af slagorðum kommún- ista, „Fram úr þeim en án eftiröpun- ar“ og vísaði til þess að markmiðið væri jafngóð lífskjör og vestan megin en sneitt yrði hjá göllunum. Fóru vitnin hundavillt? DÓMSTÓLL í Wales breytti nýlega fyrri ákvörðun og neitaði að taka til greina ósk manns sem vildi fá að sannfæra menn um sakleysi hundsins síns. Mark Hayes, smábóndi í Llangrannog og eigandi hundsins Dino, fullyrti að annar hvutti í byggðarlaginu, nauðalíkur Dino, hlyti að hafa verið á ferð er vitni sáu hund bera önd nágranna Hayes á brott í kjaftinum. Vildi Hayes, sem segir Dino, fimm ára gamlan völskuhund, hræðast önnur dýr og aldrei gera þeim nokkurt mein, fá að láta hann vera í réttarsalnum samtímis verðlauna- öndinni Snædísi og hænunni Gæsku er deildi vistarverum með Dino um 18 mánaða skeið. Áhugaleysi hundsins á öllu fiðurfé myndi þá verða öllum yóst. „Ef hæna reyndi að gogga í hann myndi hann umsvifalaust taka til fótanna," segir Hayes. Hann varð að greiða granna sínum 2.500 króna sekt vegna andarhvarfs- ins. Gæska verpti eggi í biðstofu rétt- arsalarins og sagðist Hayes ekki vita hvort hann ætti að snæða það í morg- unverð eða fleygja því í dómarann. I ÞESSARI viku hefur aðild Finna að Atlants- hafsbandalaginu, NATO, orðið hitamál meðal æðstu ráðamanna í Helsinki. Martti Ahtisaari Finnlandsforseti sá ástæðu til þess á föstudag að ítreka með formlegum hætti að stefna Finna í öryggismálum verði óbreytt: Þeir myndu halda uppi sjálfstæðum landvömum og ekki gerast aðilar að neinum vamarsamtökum. Einnig varaði jafnaðarmaðurinn Taija Hal- onen utanríkisráðherra menn við því að velta fyrir sér hugsanlegri NATO-aðild. Sagði Halon- en að best væri fyrir Finna að óháðu ríkin innan Evrópusambandsins, ESB, yrðu einhuga í þeim öryggismálaviðræðum sem tengjast ríkjaráðstefnu ESB. Það sem að lokum olli hörðum viðbrögðum Finnlandsforseta og utanríkisráðherra var við- tal við Ole Norrback Evrópumálaráðherra, sem birtist á föstudaginn. í því viðtali sagðist Norr- back halda að NATO-aðild Finna og Svía yrði að raunveruleika innan tíðar. Hefur mál þetta alls ekki verið á dagskrá í ríkisstjórninni og teljast viðbrögð forseta einnig vera áminning um að Norrback skuli ekki skipta sér af þeim málum sem ekki em innan verkahrings Evrópu- málaráðherra. Ummæli Jakobsons Ummæli Norrbacks vom hins vegar aðeins framhald á umræðu sem hófst með erindi sem Max Jakobson, fyrrum sendiherra Finna hjá Sameinuðu þjóðunum og virtur stjómmálaskýr- andi, flutti. Að mati Jakobsons væri aðild Finna að NATO aðeins rökrétt skref á þeirri braut sem þjóðin valdi með því að ganga í ESB. Meðal þeirra sem nú hafa stutt NATO- aðild er einnig Pertti Salolainen fyrmm ráð- herra, sem sá um aðildarviðræður Finna við ESB. Salolainen tjáði sig einnig um NATO- aðildina í vikunni enda er hann að hætta þing- mannsstörfum til þess að verða sendiherra á Bretlandi. Það er opinbert leyndarmál að öryggismál vom þyngst á metunum þegar þjóðin og for- ráðamenn hennar kusu að ganga í ESB haust- ið 1994. Rökstuðningur fyrir NATO-aðild Finna byggist aðallega á því að óhagstætt verði að vera einir ESB-þjóða á hugsanlegu hagsmunasvæði Rússa án tryggingar frá Atl- antshafsbandalaginu. Verði Borís Jeltsín ekki næsti forseti Rússlands telst mjög líklegt að hemaðarbrölt og þjóðemishyggja fari enn vax- andi þar eystra. Talsmenn stjórnarandstöðu- flokka í Rússlandi hafa sumir hótað að her- taka Eistland á ný. Talið er að frá þeirra sjón- arhóli sé sáralítill munur á Eystrasaltsríkjunum og Finnlandi. NEMENDUR í FYRIRRÚMI mVRVÖRVR IYRIR IAMSMEMÍ60ÁR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.