Morgunblaðið - 12.05.1996, Side 1

Morgunblaðið - 12.05.1996, Side 1
BMW 520i REYNSLUEKIÐ - NÝR TOYOTA LAND CRUISER í SUMAR - TVECO VÖRUBÍLL MEÐ HÁLFSJÁLFSKIPTINGU - SENDIBÍLL FRÁ CITROÉN OG PEUGEOT - VOLVO 850 ALDRIFINN Aðeins kr. 849.000,- 1©Oi fRAMrtOIN BYCCIST A HCfDINNI Tryggðu þér nýjan fjölskyldubíl núna. Þýsk gæði á ótrúlega lágu verði. 1 S 4 S - 1 ? 9 4 Nýbýlavegur 2 Síml: 554 2600 1996 SUNNUDAGUR12. MAI BLAÐ Sölumenn bifrdðatunboðanna X\ ó'X' ry> annast útvegun lánsins á 15 mínútum Glitnirhí DÓTTURFYRIRTAKI ÍSLANDSBANKA Tveir nýir Rover bílar verða kynntir í ógúst BIFREIÐAR og landbúnaðarvélar hf. hafa skrifað undir samning við Rover verksmiðjurnar um sölu á bílum þeirra á Islandi. Fyrstu bíl- amir verða kynntir um miðjan ágúst næstkomandi. Gísli Guðmundsson forstjóri Bif- reiða og landbúnaðarvéla segir að nýr Range Rover og Discovery verði til sölu hérlendis. Hins vegar verður ekki boðið upp á fólksbíla- línu Rover sem Gísli segir að yrði ekki á samkeppnishæfu verði hér- lendis. „Við vonum að Range Rover og Land Rover Discovery verði á sam- keppnisfæru verði og annars vær- um við ekki að fara út í það að selja þessa bfla hérna,“ sagði Gísli. RANGE Rover og Land Rover Discovery verða kynntir hér- lendis á vegum B&L í fyrsta sinn í mörg ár um miðjan ágúst. Lada 2110 FRAMLEIÐSLA er hafín á nýrri gerð Lödu 2110 stallbaks í verk- smiðjum Lada í Togliatti. Lada nýt- ur aðstoðar við hönnun bílsins frá þýska sportbílaframleiðandanum Porsche. 2110 er framhjóladrifínn bíll og vélin verður annað hvort 1,5 lítra vél með fjölinnsprautun sem hefur verið í boði í Samara, eða ný 1,5 lítra, 16 ventla vél með tveimur yfírliggjandi knastásum. Ekki er búist við að fjöldafram- leiðsla hefjist fyrr en í september og líkast til verður bíllinn boðinn til sölu í Evrópu á næsta ári. Búist er við að 2110 verði einnig í boði sem hlaðbakur og langbakur. Þess má geta að finnski framleið- andinn Valmet, sem allt þar til fyr- ir skemmstu framleiddi Opel Cali- bra fyrir Adam Opel í Þýskalandi, hefji framleiðslu á endurbættri gerð af Samara. Þessi nýi bíll kallast Baltic og er með breyttum fram- enda og nýjum sætum auk þess sem iíknarbelgur býðst sem aukabúnað- ur. Líklegt er að bíllinn komi á markað í Evrópu á næsta ári. ■ Islendingar viljn sjálfskiptn bíla ÆTLA má að meiri eftirspum sé eftir sjálfskiptum bílum hér á landi en hjá nágrannaþjóðunum. Hjá Brim- borg er 75-80% allra seldra Volvo 440/460 sjálfskiptir og 20-30% allra Daihatsu Charade bfla. Egill Jó- hannsson framkvæmdastjóri Brim- borgar segir að þessu alveg öfugt farið víða annars staðar í Evrópu þar sem hátt í 95% allra bíla séu bein- skiptir. „Ætli þetta séu ekki amerísk áhrif á íslandi. Langflestir jeppar á íslandi eru sjálfskiptir og beinskiptir jeppar eru nánast óseljanlegir," segir Egill. Loftur Ágústsson hjá Toyota segir að hlutfallið sé heldur lægra í Toy- ota bílum. Gróflega áætlað taldi hann að nálægt 60% allra Toyota Carina sem seldust hérlendis í fyrra hefðu verið sjálfskiptir en 40% Corolla. Bifreiðaskoðun íslands heldur ekki sérstaka skrá yfír drifbúnað bíla en hjá Heklu hf. fengust þær upplýs- ingar að mun meiri eftirspurn væri eftir sjálfskiptum Mitsubishi Lancer en beinskiptum og Galant væri nán- ast eingöngu tekinn sjálfskiptur. Pajero jeppinn með bensínvélinni og stór hluti dísilbílanna væri einnig mest keyptur með sjálfskiptingu. Audi er eingöngu keyptur með sjálf- skiptingu. Hins vegar er langstærsti hluti VW beinskiptur. Hjá Heklu eru menn þeirrar skoðunar að heldur hafi dregið úr eftirspum eftir sjálf- skiptum bílum í takt við það að vélar hafa minnkað. Hins vegar sé jafnan meiri eftirspum eftir sjálfskiptingu í dýrari gerðum bíla en ódýrari. ■ BÍLAHORNIÐ varahluraverslun HafnarfjarOar Reykjavíkurvegi 50 • SÍMI: 555 1019

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.