Morgunblaðið - 14.05.1996, Qupperneq 1
64 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
108. TBL. 84.ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Nýja Silkileiðin opnuð
Jeltsín Rússlandsforseti varar við sigri kommúnista
ÚLFALDAREKI í borginni Sar-
akhs á landamærum Túrkmen-
istans og Irans heldur í far-
skjóta sinn, í baksýn sést Stolt,
fyrsta járnbrautarlestin á njrri
leið milli Túrkmenistan og Ir-
ans, aka framhjá. Nýju braut-
inni,sem er 300 km, er ætlað
að auka samskipti milli Asíu og
Evrópu og endurlífga gömlu
Silkileiðina svonefndu. Um
hana fóru öldum saman kaup-
mannalestir með silki og annan
dýran varning milli Kína og
Vesturlanda. Vinna við lagn-
ingu brautarinnar tók hálft
fjórða ár. Er nú hægt að aka
lest milli Persaflóa og kínver-
skra hafna við Kyrrahaf.
Þjóðhöfðingjar 12 ríkja í
þessum heimshluta komu sam-
an í gær við hátíðlega athöfn í
norðurhluta írans vegna vígslu
brautarinnar. Akbar Rafsary-
ani Iransforseti sagði að með
járnbrautinni væri nýtt tímabil
hafið. „Upplausn Sovétríkjanna
hefur fært okkur nýtt skeið
samskipta milli landanna á
svæðinu,“ sagði forsetinn.
Oskar eftir stuðn-
íngí fjölmiðlanna
Moskvu. Reuter.
BORIS Jeltsín, forseti Rússlands, skoraði í gær á fjölmiðla landsins
að fylkja sér um hann til að afstýra því að frambjóðandi kommúnista,
Gennadí Zjúganov, kæmist til valda í komandi forsetakosningum. For-
setinn kvaðst einnig vona að nokkrir af frambjóðendunum féllust á
að ganga til liðs við sig og mynda bandalag gegn Zjúganov.
Reuter
Jeltsín ávarpaði fréttamenn
rússneska ríkissjónvarpsins RTR í
tilefni þess að í gær voru fimm
ár liðin frá því útsendingar þess
hófust. Forsetinn minnti frétta-
mennina á ritskoðunina á valda-
tíma kommúnista áður en Sovét-
ríkin liðu undir lok.
„Þarf ég að segja ykkur að það
er hætta á að snúið verði til baka,
hætta á hefndum?" spurði forset-
inn áður en hann sæmdi nokkra
fréttamenn sjónvarpsins heiðurs-
merkjum. „Ég reiði mig mjög á
stuðning ykkar, á fagmennsku
ykkar, hlutlægni ykkar, ástríðu
ykkar. Við megum ekki snúa aftur
til fortíðarinnar ... Við verðum að
fylkja liði.“
Jeltsín sagði að stofnun fijálsra
íjölmiðla væri eitt af helstu afrek-
unum sem unnin hefðu verið frá
hruni Sovétríkjanna.
Kvartað yfir hlutdrægni
Kosningabaráttan hefst form-
lega í dag á útvarps- og sjónvarps-
stöðvum Rússlands, þeirra á meðal
RTR, sem nær til 98% af 150 millj-
ónum íbúa landsins. Frambjóðend-
unum ellefu hafa verið úthlutaðir
ókeypis útsendingartímar á
morgnana og kvöldin og nokkrir
þeirra hafa greitt fyrir aukaþætti
sem sýndir verða þegar nær dreg-
ur kosningum.
Míkhaíl Gorbatsjov, síðasti for-
seti Sovétríkjanna og einn fram-
bjóðendanna, kvartaði yfir því á
fréttamannafundi í Moskvu um
helgina að fjölmiðlarnir drægju
taum forsetans í kosningabarátt-
unni. Hann skoraði á ijölmiðlana
að gæta hlutlægni og sagði að
minna prentfrelsi væri nú í Rúss-
landi en á valdatíma hans í lok
síðasta áratugar.
Rússneski kommúnistaflokkur-
inn tók í sama streng og tilkynnti
um helgina að hann myndi ekki
greiða fyrir auglýsingar í stóru
fjölmiðlunum í Moskvu en einbeita
sér þess í stað að svæðisbundnum
fjölmiðlum og dreifingu bæklinga
til að kynna málstað sinn.
Samkvæmt þremur skoðana-
könnunum, sem birtar voru á
sunnudag, hefur Jeltsín náð naumu
forskoti á Zjúganov fyrir kosning-
arnar 16. júní.
■ Jeltsín með forskot/19
ESB lýsir áhyggjum vegna hrakninga skips með líberísku flóttafólki
Bandaríkjaforseti
Grannríki veiti
flóttafólk-
inu landvist
Takoradi. Reuter.
SKIP með nærri 4.000 líberíska
flóttamenn um borð, er fór frá Ghana
á sunnudag, sneri í gær aftur til
hafnar í bænum Takoradi vegna vél-
arbilunar en var skipað að sigla brott
á ný í gærkvöldi. Fréttamaður Reut-
ers sá skipið halda úr höfn en ekki
var vitað hvert ferðinni var heitið að
þessu sinni. Evrópusambandið, ESB,
hvatti í gær grannþjóðir Líberíu-
manna til að veita flóttafólkinu a.m.k.
tímabundið landvistarleyfi.
Skipið heitir Bulk Challenge og
er gamall og hriplekur ryðkláfur.
Óljóst var hve margir hefðu fengið
að fara frá borði í Takoradi en emb-
ættismenn sögðu að flestir væru enn
í skipinu. Vitað var að 30 manns
voru fluttir frá borði með pramma
og í tjaldbúðir skammt frá hafnar-
bakkanum þar sem fólkið fékk
læknishjálp. Var öflugur hervörður
við skipið er fólkið hélt frá borði.
Fullyrt var að það hefði neitað að
snúa aftur um borð en ekki var vit-
að hvernig málinu lauk.
Talsmaður hafnaryfirvalda sagði
að skipveijar hefðu fengið vatn og
vistir.
Frakkar heita aðstoð
Líberíubúarnir flúðu átökin í
Monróvíu fyrir rúmri viku og tróðust
þúsundir manna um borð í skipið.
Skipinu var fyrst vísað frá höfn í
Ghana og stóð til að senda fólkið
aftur til Líberíu. Vél skipsins bilaði
hins vegar á leið frá Ghana og fékk
það þá leyfi til að leggjast að aftur
að bryggju.
Frönsk stjórnvöld lýstu í gær yfir
vilja sínum til að aðstoða fólkið.
„Frökkum rennur til rifja þær hörm-
ungar sem farþegarnir um borð í
líberíska skipinu Bulk Challenge
ganga nú í gegnum,“ sagði talsmað-
ur franska utanríkisráðuneytisins.
Kvað hann Frakka reiðubúna að
kanna óskir sem kynnu að berast
um aðstoð til handa fólkinu.
Reuter
AÐSTÆÐUR um borð í Bulk Challenge eru skelfilegar. Þrír
farþeganna hafa látist, þar af tveir í skotbardaga. Aðeins eitt
salerni er um borð og hafa margir sýkst af blóðkreppusótt.
Oryggi
í flugi
aukið
Washington. Reutcr.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
fyrirskipaði samgönguráðuneyti
landsins í gær að útvíkka rann-
sókn á brotlendingu DC-9 þotu
ValuJet á Everglades-fenja-
svæðinu í
Flórída á laug-
ardag svo
„tryggt verði
að öll flugfé-
lögin okkar
verði rekin
með hámarks-
öryggi í fyrir-
rúmi“.
Flugriti þot-
unnar, svarti
kassinn svonefndi, fannst í
gærkvöldi og náðist upp úr
eðjunni á slysstað, að sögn
tveggja sjónvarpsstöðva á
Flórída. Hann kann að geyma
upplýsingar sem leitt geta or-
sakir slyssins í ljós en með
þotunni fórust 109 manns, nær
eingöngu Bandaríkjamenn.
■ Nauðlent sjö sinnum/18