Morgunblaðið - 14.05.1996, Side 1

Morgunblaðið - 14.05.1996, Side 1
 1 i i BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1996 ÞRIÐJUDAGUR 14. MAI BLAD Abkashev á SeKöss Mikael Abkashev, 34 ára gam- all Rússi og sonur Boris Abkashevs aðstoðarmanns Þor- bjöms Jenssonar landsliðsþjálfara, var í gær ráðinn þjálfari 1. deildar- liðs UMF Selfoss í handknattleik. Mikael lauk háskólanámi í íþróttafræðum í heimalandinu með handknattleik sem aðalgrein og hefur mikla reynslu af þálfun. Síð- ustu árin hefur hann þjálfað yngri flokka hjá Val. Hann mun flytja til Selfoss og verður í fullu starfi sem þjálfari því honum er ætlað að sjá um uppbyggingu yngri flokka fé- lagsins. „Við erum að byggja upp hand- knattleikinn á Selfossi og teljum þetta gott skref fyrir framtíðina því Mikael er vel menntaður og verður í fullu starfi," sagði Hallur Hall- dórsson formaður handknattleiks- deildar Selfoss í samtali við Morg- unblaðið í gær. Hallur sagði að Valdimar Gríms- son hefði kvatt félagið í fullri sátt og vinsemd og sagðist óska honum velfarnaðar í nýju starfi. Hvað leik- mannahópinn áhrærði sagði Hallur að verið væri að leita að rússneskum leikmanni og þar gæti Mikael hjálp- að. Valdimar Grímsson sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær að ekki væri ljóst hvort hann tæki að sér þjálfun annars staðar. Sagðist í krefjandi vinnu og ætlaði sér að hugsa málið næstu daga. Valdimar hefur verið orðaður við Stjörnuna í Garðabæ sem leikmaður og þjálf- ari og Morgunblaðið veit að hann hefur rætt við forráðamenn Stjöm- unnar. En enn er sem sagt allt óljóst í þeim efnum. Það er hins vegar öruggt að Valdimar ætlar sér að halda áfram að leika. Hann sagðist ekki tilbúinn að leggja skóna á hill- una strax. Mæta Keflvík- ingar liði I Inter? INTERNAZIONALE frá Mílanó , lenti í sjöunda sæti ítölsku 1. deildarinnar í knattspymu, sem lauk á sunnudag, og gæti því hugsanlega mætt liði Keflvík- inga í Inter-toto Evrópukeppn- inni í sumar. Keflvíkingar fá heimaleik gegn fyrsta liði frá Ítalíu en reyndar er ekki endan- lega ljóst hver mótheijinn verð- ur. Möguleikarnir eru reyndar þrír því mótheijinn gæti einnig orðið Sampdoria eða Vicenza. AC Milan fer í Evrópukeppni meistaraliða og skv. töflunni fara Juventus, Lazio, Fiorentina, Roma og Parma í UEFA-keppn- ina og Inter kemur svo næst, í Toto-sætinu. Þetta gæti hins vegar breyst. Verði Juventus Evrópumeistari (með sigri á Aj- ax) fer liðið sjálfkrafa í Evrópu- keppni meistaraliða, Inter í UEFA og þá færi Sampdoria, sem varð í áttunda sæti, S Toto- keppnina og mætti Keflvíking- um. Enn enn möguleiki er sá að Fiorentina verði ítalskur bik- armeistari, með sigri á Atalanta í úrslitum, og að því gefnu að Juventus yrði Evrópumeistari þá færi Sampdoria enn ofar, í UEFA-keppnina, og liðið í níunda sæti yrði þá mótheiji Keflvíkinga - lið Vicenza. KORFUKNATTLEIKUR Hinrik í raðir KR-inga HINRIK Gunnarsson frá Sauðárkróki hefur ákveðið að leika með KR í úrvalsdeildinni í körfuknattleik næsta vetur. Hinrik, sem á nokkra lands- leiki að baki, en gat ekki verið með í undirbúningnum fyrir Evrópukeppn- ina, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að hann færi í Tækni- skólann eftir áramótin en ætlaði sér að vinna í Reykjavík frá miðjum júlí þegar hann kæmi suður. „Ég valdi KR fyrst og fremst vegna þess að ég þekki strákana þar ágætlega og svo leikur Ingvar Ormarsson með KR, en við lékum saman í öllum yngri flokkum Tindastóls," sagði Hinrik. Reuter Fagnað í Munchen DORTMUNDARAR höfðu bet- ur í baráttunnl vlð Bayern Miinchen og fögnuðu þýska melstaratltllnum annað árið í röð. Þelr fögnuðu í Miinchen og tóku stuðnlngsmenn þelrra þátt í því á Ólympíulelk- vanginum, þar sem Dortmund lagði 1860 Munchen á sama tíma og Bayern tapaðl útl gegn Schalke. ■ Dortmund / B5 SNÓKER: JÓHANNES BURSTAÐIÞANN SIGURSTRANGLEGASTA / B6 AÐALTOLUR BÓNUSTOLUR ^ @ Vinningar Fjöldi vinnlnga Vinnings- upphæð 1 . 6 af 6 26.502.500 201.420 3. 5»16 35.160 4. 4.16 395 1.270 1.085 19 : Samtals: 1.495 HoilUarvinningsupphÆð: 107.437.080 107.437.080 1.427.080 05 13 05 96 UPPLÝSINGAR | • ÞAR SEM enginn var með fimm aðal- tölurnar réttar í Lottó 5/38 á laugar- daginn var, verður potturinn þrefaldur næst. Tveir þátttakendur voru meö 4 aðaltölur réttar auk bónustölu og fengu hvor um sig kr. 189.180.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.