Morgunblaðið - 14.05.1996, Síða 1
1
i
i
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1996
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAI
BLAD
Abkashev á SeKöss
Mikael Abkashev, 34 ára gam-
all Rússi og sonur Boris
Abkashevs aðstoðarmanns Þor-
bjöms Jenssonar landsliðsþjálfara,
var í gær ráðinn þjálfari 1. deildar-
liðs UMF Selfoss í handknattleik.
Mikael lauk háskólanámi í
íþróttafræðum í heimalandinu með
handknattleik sem aðalgrein og
hefur mikla reynslu af þálfun. Síð-
ustu árin hefur hann þjálfað yngri
flokka hjá Val. Hann mun flytja til
Selfoss og verður í fullu starfi sem
þjálfari því honum er ætlað að sjá
um uppbyggingu yngri flokka fé-
lagsins.
„Við erum að byggja upp hand-
knattleikinn á Selfossi og teljum
þetta gott skref fyrir framtíðina því
Mikael er vel menntaður og verður
í fullu starfi," sagði Hallur Hall-
dórsson formaður handknattleiks-
deildar Selfoss í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Hallur sagði að Valdimar Gríms-
son hefði kvatt félagið í fullri sátt
og vinsemd og sagðist óska honum
velfarnaðar í nýju starfi. Hvað leik-
mannahópinn áhrærði sagði Hallur
að verið væri að leita að rússneskum
leikmanni og þar gæti Mikael hjálp-
að.
Valdimar Grímsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að ekki
væri ljóst hvort hann tæki að sér
þjálfun annars staðar. Sagðist í
krefjandi vinnu og ætlaði sér að
hugsa málið næstu daga. Valdimar
hefur verið orðaður við Stjörnuna
í Garðabæ sem leikmaður og þjálf-
ari og Morgunblaðið veit að hann
hefur rætt við forráðamenn Stjöm-
unnar. En enn er sem sagt allt óljóst
í þeim efnum. Það er hins vegar
öruggt að Valdimar ætlar sér að
halda áfram að leika. Hann sagðist
ekki tilbúinn að leggja skóna á hill-
una strax.
Mæta
Keflvík-
ingar liði
I Inter?
INTERNAZIONALE frá Mílanó
, lenti í sjöunda sæti ítölsku 1.
deildarinnar í knattspymu, sem
lauk á sunnudag, og gæti því
hugsanlega mætt liði Keflvík-
inga í Inter-toto Evrópukeppn-
inni í sumar. Keflvíkingar fá
heimaleik gegn fyrsta liði frá
Ítalíu en reyndar er ekki endan-
lega ljóst hver mótheijinn verð-
ur. Möguleikarnir eru reyndar
þrír því mótheijinn gæti einnig
orðið Sampdoria eða Vicenza.
AC Milan fer í Evrópukeppni
meistaraliða og skv. töflunni
fara Juventus, Lazio, Fiorentina,
Roma og Parma í UEFA-keppn-
ina og Inter kemur svo næst, í
Toto-sætinu. Þetta gæti hins
vegar breyst. Verði Juventus
Evrópumeistari (með sigri á Aj-
ax) fer liðið sjálfkrafa í Evrópu-
keppni meistaraliða, Inter í
UEFA og þá færi Sampdoria,
sem varð í áttunda sæti, S Toto-
keppnina og mætti Keflvíking-
um. Enn enn möguleiki er sá
að Fiorentina verði ítalskur bik-
armeistari, með sigri á Atalanta
í úrslitum, og að því gefnu að
Juventus yrði Evrópumeistari
þá færi Sampdoria enn ofar, í
UEFA-keppnina, og liðið í
níunda sæti yrði þá mótheiji
Keflvíkinga - lið Vicenza.
KORFUKNATTLEIKUR
Hinrik í raðir KR-inga
HINRIK Gunnarsson frá Sauðárkróki hefur ákveðið að leika með KR í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik næsta vetur. Hinrik, sem á nokkra lands-
leiki að baki, en gat ekki verið með í undirbúningnum fyrir Evrópukeppn-
ina, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að hann færi í Tækni-
skólann eftir áramótin en ætlaði sér að vinna í Reykjavík frá miðjum
júlí þegar hann kæmi suður. „Ég valdi KR fyrst og fremst vegna þess að
ég þekki strákana þar ágætlega og svo leikur Ingvar Ormarsson með
KR, en við lékum saman í öllum yngri flokkum Tindastóls," sagði Hinrik.
Reuter
Fagnað í Munchen
DORTMUNDARAR höfðu bet-
ur í baráttunnl vlð Bayern
Miinchen og fögnuðu þýska
melstaratltllnum annað árið í
röð. Þelr fögnuðu í Miinchen
og tóku stuðnlngsmenn
þelrra þátt í því á Ólympíulelk-
vanginum, þar sem Dortmund
lagði 1860 Munchen á sama
tíma og Bayern tapaðl útl
gegn Schalke.
■ Dortmund / B5
SNÓKER: JÓHANNES BURSTAÐIÞANN SIGURSTRANGLEGASTA / B6
AÐALTOLUR
BÓNUSTOLUR
^ @
Vinningar
Fjöldi
vinnlnga
Vinnings-
upphæð
1 . 6 af 6
26.502.500
201.420
3. 5»16
35.160
4. 4.16
395
1.270
1.085
19
: Samtals:
1.495
HoilUarvinningsupphÆð:
107.437.080
107.437.080
1.427.080
05
13
05
96
UPPLÝSINGAR |
• ÞAR SEM enginn var með fimm aðal-
tölurnar réttar í Lottó 5/38 á laugar-
daginn var, verður potturinn þrefaldur
næst. Tveir þátttakendur voru meö 4
aðaltölur réttar auk bónustölu og fengu
hvor um sig kr. 189.180.