Morgunblaðið - 15.05.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ1996 23
■ m.
n n
ii I
mi !Sii [
V •
íf ^
|| » »*
lillli MIII
Víðistaðakirkja
Snæfellingakórinn
í Reykjavík
SNÆFELLINGAKÓRINN
heldur tónleika í Víðistaða-
kirkju fimmtudaginn 16. maí
kl. 17.
Á efnisskránni eru negra-
sálmar, lofgjörðarsöngur,
þjóðlög, dægurlög og syrpa
úr brosandi landi eftir Frans
Lehár. Sljórnandi er Þóra V.
Guðmundsdóttir. Undirleik-
ari Peter Máté.
Að tónleikum loknum
verður boðið upp á kaffi og
kökur.
Agatha sýn-
ir í Nesbúð
NÚ stendur yfir sýning Agöthu
Kristjánsdóttir að Nesbúð á
Nesjavöllum. Sýningin er opin
alla virka daga og um helgar.
Agatha hefur
aflað sér þekk-
ingar í gegnum
sjálfsnám og
sótt námskeið
hjá Tómstunda-
skólanum,
Námsflokkum
Reykjavíkur og
Kópavogs svo
og Mynd-
menntaskóla
Rýmis 1992.
Agatha
Kristjánsdóttir
Einnig hefur hún verið meðlimur
í Myndlistarklúbbi áhugamanna
um ára bil.
Allar myndirnar eru unnar
með olíu á mesonit.
Greipar Ægis
sýnir sand-
skúlptúra
í TILEFNI af 10 ára afmæli
Hótels Keflavíkur opnar lista-
maðurinn Greipar Ægis sýn-
ingu á sandskúlptúrum. Sam-
heiti verkanna er Tár tímans
og eiga þau að endurspegla þau
tár gleði, saknaðar, hláturs,
sorgar, vonar og örvæntingar
er fallið hafa hjá þjóðinni í ald-
anna rás.
Á afmælisdaginn föstudaginn
17. maí verður opið hús og gefst
gestum kostur á að kynna sér
starfsemi hótelsins.
Sellótónleikar
SELLÓTÓNLEIKAR verða
haldnir í sal Tónskóla Sigur-
sveins, Hraunbergi 2, miðviku-
daginn 15. maí kl. 20.30.
Stefan Thut sellóleikari flytur
verk eftir Bach, Hindemith, Hön-
igsberg, Reger og Crumb.
Aðgangseyrir er 600 kr. Nem-
endur 300 kr.
Gerningar í
Nýlistasafninu
GERNIN G AKV ÖLD verður í
Nýlistasafninu á Vatnsstíg 3b í
kvöld kl .21.
Norsku listamennimir Kurt Jo-
hannessen og Jorgen Knudsen sem
frömdu geming í Nýlistasafninu
s.l. haust em komnir aftur til
landsins með geming í farteskinu.
í för með þeim er norski bogfimi-
maðurinn Lars Humlekjær.
Nokkrir nemendur úr Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
munu einnig fremja gerninga við
þetta tækifæri.
Allir eru velkomnir og aðgang-
ur er ókeypis.
Vortónleikar
Tónlistarskóla
Njarðvíkur
Á MORGUN, uppstigningardag,
halda báðar lúðrasveitir Tónlist-
arskóla Njarðvíkur, yngri og eldri
deild, sína árlegu vortónleika á
sal Njarðvíkurskóla kl. 14.
Stjórnendur era Einar St. Jóns-
son og Haraldur Árni Haralds
son. Aðgangseyrir er kr. 500 en
frítt fyrir börn og er kaffi og
meðlæti innifalið í verði.
Eldri deildin hyggur á tón
leikaferð til Hollands sumarið
1997 og rennur ágóðinn í ferða-
sjóð sveitarinnar. Fjórðu og síð-
ustu tónleikarnir verða svo í Ytri-
Njarðvíkurkirkju laugardaginn
18. maí kl. 17.
Skólaslit verða sunnudaginn
19. maí kl. 14 í Ytri-Njarðvíkur
kirkju.
FJAU
RAVEN
Góður ferðofélciQÍ
Tiður höfuðverkur dregur úr starfsorku og hefur slæm ahrif a
andlega líðan fólks. Migrenihöfuðverkur getur verið afskaplega
sár en mörg dæmi eru um að fólk þjáist mikið af höfuðverk án
þess að vita að það sé með mígreni. Á síðustu árum hefur
þekkingu á sjúkdómnum fleygt fram þannig að mun auðveldara
er nú að hjálpa sjúklingum með mígreni en áður var.
Eftirfarandi spurningar geta hjálpað til við greiningu mígrenis.
Auk þess bendum við á þátt um mígreni í Sjónvarpinu,
miðvikudagskvöldið 15. maí, kl. 22.40.
Ef þú svarar einhverjum þessara spurninga játandi bendir það
til þess að þú hafir mígreni. Frekari upplýsinga um migreni má
leita hjá Mígrenisamtökunum.
w
MÍGREN SAMTÖKIN
Pegar þú ert með hðfuðverk:
o Kemur hann í köstum sem standa yfir (fáeinar klukkustundir
og allt að 3 dögum?
o Er hann aðeins öðrum megin í höfðinu?
o Fylgir ógleði og jafnvel uppköst?
o Finnur þú fyrir æðaslætti í höfðinu?
o Þolir þú illa skært Ijós, hávaða eða ertandi lykt?
o Uður þér svo illa að þér finnst þú jafnvel vera að ganga af vitinu?
Q Vilt þú vera í einrúmi og liggja hreyfingarlaus?
o Finnur þú fyrir sjóntruflunum, t.d. Ijósglömpum, sikk-sakk
mynstri fyrir augunum eða dimmir yfir hluta sjónsviðsins?
o Rnnur þú fyrir dofatilfinningu eða fiðringi í andliti og/eða útlimum?
Q Fölnar þú upp og lítur svo veikindalega út að ættingjar og þú
telur þig hafa mígreni? Hikaðu þá ekki við að leita læknis, hann
getur ráðlagt þér og sennilega hálpað þér?
PÓSTHÓLF 3307
123 REYKJAVlk
SlMI 587 5055