Morgunblaðið - 16.05.1996, Blaðsíða 2
2 C FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1996 C 3
ÚRSLIT
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Breiðablik-ÍA 1:3
Kaglakriki, úrslitaleikur Deildarbikarkeppni
KSÍ í karlaflokki miðvikud. 15. maí 1996.
Aðstæður: Logn og blíða sumar og sól eða
því sem næst en eðlilega var farið að kólna
er ieið á. Völlurinn í fínu ásígkomulagi.
Mark Breiðabliks: Kjartan Einarsson (86.).
Mörk ÍA: Ólafur Adolfsson 2 (43., 117.),
Mihajlo Bibercic (99.)
Gult spjald: Mihajlo Bibercic (44.)- fyrir
brot, Stefán Þórðarson (54.)- fyrir brot,
Alexander Högnason (109.)- fyrir taut.
Rautt spjald: Mihajlo Bibercic (103.)- fyrir
annað brot á andstæðingi.
Dómari: Bragi Bergmann.
Línuverðir: Ólafur Ragnarsson og Gísli
Björgvinsson.
Breiðablik: Hajrudin Caradaclija - Pálmi
Haraldsson, Vilhjálmur Haraldssson, The-
ódór Hervarsson, Hákon Sverrisson - Guð-
mundur Guðmundsson (ívar Ásgrímsson
66.), Sævar Pétursson, Gunnlaugur Einars-
son (Amaldur Loftsson 105.), Þórhallur
Hinriksson (Gunnar Ólafsson 70.) - Kjartan
Einarsson, Hreiðar Bjamason (Grétar
Sveinsson 70.).
ÍA : Þórður Þórðarson - Sturlaugur Haralds-
son, Zoran Milkovic, Ólafur Adolfsson, Sig-
ursteinn Gíslason - Ólafur Þórðarson, Kári
Steinn Reynisson (Jóhannes Harðarson
75.), Alexander Högnason, Steinar Adolfs-
son (Bjarni Guðjónsson 46.)- Mihajlo Bi-
bercic, Stefán Þórðarson (Bjarki Pétursson
84.).
UEFA-bikarinn
Seinni úrslitaleikurinn.
Bordeaux, Frakklandi:
Bordeaux - Bayern Miinchen........1:3
Daniel Dutuel (75.) — Mehmet Scholl (53.),
Emil Kostadinov (65.), Júrgen Klinsmann
(79.). 36.000.
■ Bayern vann samtals 5:1.
Bordeaux: Gaetan Huard, Anthony Banc-
arel, Bixente Lizarazu (Cedric Ancelin 32.),
Jacob Friis-Hansen, Jean-Luc Dogon,
Philippe Lucas (Francois Grenet 79.), Zined-
ine Zidane, Laurent Croci (Daniel Dutuel
Bayern MUnchen: Oliver Kahn, Markus
Babbel, Christian Ziege, Thomas Stmnz,
Thomas Helmer, Dieter Frey (Alexander
Zickler 60.), Mehmet Scholl, Ciriaco Sforza.
Júrgen Klinsmann, Lothar Mattháus, Emil
Kostadinov (Marcel Witeczek 75.).
Júgóslavfa
Bikarúrslitaleikur:
Red Star Belgrad - Partizan Belgrad ..3:1
Spánn
Espanyol - Barcelona..............1:1
Ismael Urzaiz (88.) — Luis Figo (52.).
ísland - Noregur 72:75
íþróttahúsið við Strandgötu, vináttulands-
leikur í körfu, miðvikud. 15. maí 1996.
Gangur leiksins: 0:2, 118, 13:12, 15:23,
22:25, 33:36, 36:44, 41:44, 42:45, 46:54,
55:55, 55:62, 63:64, 65:70, 70:72, 72:75.
Stig íslands: Herbert Arnarson 13, Her-
mann Hauksson 12, Teitur Örlygsson 12,
Guðjón Skúlason 11, Guðmundur Bragason
8, Jón Amar Ingvarsson 7, Hegli Jónas
Guðfinssson 3, Hjörtur Harðarson 2, Marel
Guðlaugsson 2, Sigfús Gizurarson 2.
Fráköst: 9 i vöm og 9 í sókn.
Stig Noregs: Torgeir Bryn 29, Lars G.
Sönsteby 15, Börre Sundberg 12, Halvor
Larsen 11, Geir Mandt 7, D. Dyngedal 1.
Fráköst: 22 í vörn og 4 í sókn.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Jan Kors-
havn. Góðir.
Villur: ísland 26 - Noregur 13.
Áhorfendur: 24 greiddu aðgangseyri.
NBA-deildin
Úrslitakeppni:
Austurdeild:
Chicago - New York...........94:81
■ Chicago vann 4:1
Vesturdeild:
San Antonio - Utah...........98:87
■Utah hefur yfir 3:2.
Golf
LEK-mót í Vestmannaeyjum
(Mótið gaf stig til landsliðs eldri kylfinga)
Karlar 55 ára og eldri, án forgjafar:
1. Sigurjón Gíslason, GK 155
2. Baldvin Jóhannsson, GK 158
3. -5. Gísli Sigurðsson, GK 159
3.-5. Sigurður Albertsson, GS 159
3.-5. Karl Hólm, GK 159
Karlar 55 ára og eldri með forgjöf:
1. Sveinn Halldórsson, GV 134
2. -4. Ottó Pétursson, NK 137
2.-4. Friðrik Andrésson, GR 137
2.-4. Ólafur A. Ólafsson, NK 137
5. Sverrir Einarsson, NK , 139
Karlar 50-54 ára án forgjafar:
1. Atli Aðalsteinsson, GV 163
2. Skúli Ágústsson, GA 164
3. Sigmar Pálmason, GV 17
Konur A. fl. með forgjöf:
1. JakobínaGuðlaugsdóttir, GV 139
2. Sigríður Matthiesen, GR 152
3. Sigurbjörg Guðnadóttir, GV 160
Konur B. fl. með forgjöf:
1. Kristín Zoéga, GR 204
2. FríðaDóra Jóhannsdóttir, GV 150
3. Lýdía Egilsdóttir, GSG 157
Besta skor kvenna án forgjafar:
Jakobína Guðlaugsdóttir, GV 175
Frjálsar íþróttir
Vormót HSK
100 m hlaup karla:
Ingi Þór Hauksson, Aftureldingu 11,2
Arnar _M. Vilhjálmsson, UFA 11,3
Elías Á. Högnason, Umf. Þórsmörk 11,3
300 m hiaup karla:
Ingi Þór Hauksson, Aftureldingu 35,1
Geir Sverrisson, Ármanni 35,9
Friðrik Amarson, Ármanni 36,1
Míluhlaup karla:
Gunnlaugur Skúlason, UMSS 4:47,1
Stefán Már Ágústs., Umf. Gnúpveija 4:58,4
Ingvar Garðars., Umf. Skeiðamanna 5:09,5
Hástökk karla:
Einar K. Hjartarson; USAH 1,80
Róbert Már Þorvaldsson UMSE 1,60
Daníel Marteinsson, ÍR 10,46
Þristökk karla:
Örvar Ólafsson, Umf. Dagsbnln 13,37
Elías Bergur Sigurbergsson, ÍR 10,46
Kúluvarp karla:
Stefán R. Jónsson, UBK 12,84
Jón Þ. Heiðarsson, USAH 12,02
Teitur I. Valmundars., íþf. Garpur 11,26
Kringlukast karla:
Magnús Aron Hallgrímsson, FH 47,86
Stefán R. Jónsson UBK 41,42
Auðunn Guðjóns., Umf. Skeiðamanna 36,42
Spjótkast karla:
Magnús Aron Hallgrímsson, FH 52,18
Ómar Kristinsson, UMSE 49,08
Kjartan Kárason, Umf. Laugdæla 44,46
300 m hlaup kvenna:
G. Sunna Gestsdóttir, USAH 39,0
Helga Halldórsdóttir, FH 39,5
Geirlaug B. Geirlaugsdóttir, Ármanni 39,8
Míluhlaup kvenna:
Guðrún B. Skúlasd., Umf. Laugdæla 5:34,5
Dagný H. Erlendsdóttir, Ármanni 5:54,7
Borghildur Valgeirsd., Umf. Selfossi 6:01,2
Hástökk kvenna:
Sigríður A. Guðjónsdóttir, Umf. Selfoss 1,55
Þrístökk kvenna:
Sigríður A. Guðjónsd., Umf. Selfossi 12,48
Fanney Ólafsdóttir, Umf. Vöku 9,99
Sigrún Dögg Þórðardóttir, Umf. Þór 9,58
Kúluvarp kvenna:
Guðbjörg Viðarsd., Umf. Dagsbrún 12,04
Eva Sonja Schioth, Umf. Selfossi 10,75
Sigríður A. Guðjónsd., Umf. Selfossi 10,18
Kringlukast kvenna:
Guðbjörg Viðarsd., Umf. Dagsbrún 29,54
Helga Guðmundsdóttir, Umf. Selfossi 34,74
Eva Sonja Sehiöth, Umf. Selfossi 30,68
Spjótkast kvenna:
Sigríður A. Guðjónsd., Umf. Selfossi 31,48
Kristín Gunnarsdóttir, Umf. Selfossi 29,58
Tinna Pálsdóttir, Umf. Þór 25,84
Hafnarfjarðar
í Golfi
Laugardaginn 18. maí verður haldið opið golfmót
á Keilisvellinum í Hafnarfirði.
Keppnisfyrirkomulag er 18 holu höggleikur.
Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir 1. 2. og 3- sæti
með og án forgjafar í karla og kvennaflokki.
Aukaverölaun:
Ncest holu á öllum par 3. hrautum
Nœst holu í öðru höggi á 18. braut
Ræst verður út frá ki. 8.00
Keppnisgjald: 1800 kr.
Skráning er í golfskála í síma 555 3360
Bakhjarl af mótinu er líafnarfjarðarbœr
HANDKNATTLEIKUR
| KNATTSPYRNA
New York úr leik
Blásið til nýrr
arsóknar
Enn sigra
Blikastúlkur
Morgunblaðið/Sverrir
MIHAJLO Bíbercic kom Skagamönnum 2:1 yfir í framlenging-
unni og var rekinn af velli skömmu síðar. Hann var marka-
kóngur keppninnar, skoraði 11 mörk.
Urðu meistarar meistaranna á Ásvöllum
ÓTRAUÐAR halda Blikastúlkur,
íslandsmeistararnir 1995,
áfram sigurgöngu sinni og í
gærkvöldi urðu þær meistarar
meistaranna með 3:0 sigri á
bikarmeisturum Vals á gervi-
grasinu að Ásvöllum í Hafnar-
firði. Kópavogsbúarnir eru
þegar íslandsmeistarar innan-
húss og deiidarbikarmeistarar
og stefna á að vinna allt sem
í boði er.
Eg er ánægð með sigurinn en
leikurinn var ekkert sérstak-
ur og við spiluðum hvorki vel né
illa,“ sagði Sigrún Óttarsdóttir,
■■■■■■ fyrirliði Breiða-
Stefán bliks, að leikslok-
Stefánsson um. „En þetta lofar
skrífar góðu, við höfum
spilað vel og nýtt færin í undan-
förnum leikjum og ætlum að hafa
Reynslan reid
baggamuninn
gaman af fótboltanum í sumar,
leikgleðin verður til staðar og við
munum spila hraðan ieik. Svo er
stefnan að sigra í öllum mótum
sumarsins.“
Valsstúlkur bytjuðu betur í
leiknum í gærkvöldi en Blikar
sóttu í sig veðrið. Fátt markvert
gerðist í nepjunni á Ásvöllum uns
Kristrún L. Daðadóttir skoraði
fyrsta mark Blika á 43. mínútu
upp úr skoti Helgu Óskar Hannes-
dóttur.
Eftir hlé var fátt um fína drætti.
Margrét Ólafsdóttir rakti boltann
upp völlinn og skoraði annað mark
Blika á 12. mínútu og Kristrún
bætti við öðru marki sínu á 34.
mínútu þegar hún fylgdi eftir skoti
Ingu Dóru Magnúsdóttur.
I lið Breiðabliks vantaði Ásthildi
Helgadóttur og það virtist hafa
áhrif til að byrja með. Þegar á
leið fór spil þeirra að ganga betur
en liðið getur samt mun betur og
það þarf til, ef sigra á allt í sum-
ar. Vanda Sigurgeirsdóttir þjálfari
var traust í vörninni og Inga Dóra,
Kristrún og Margrét Ólafsdóttir
stóðu sig vel.
Eftir góða byijun gáfu Vals-
stúlkur eftir, þó að þær hafi aidrei
gefist upp en samspil þeirra var
ónákvæmt er á leið. Ragna Lóa
Stefánsdóttir, Bergþóra Laxdal og
Írís Andrésdóttir voru ágætar.
per gerði 12 stig. Toni Kukoc lék
ekki með Bulls þriðja leikinn í röð
vegna meiðsla.
Patrick Ewing var stigahæstur í
liði New York með 22 stig, Anthony
Mason kom næstur með 16 og Char-
les Oakley gerði 14 stig og tók auk
þess 13 fráköst. New York gerði að-
eins 36 stig í fyrri hálfleik á móti 42
frá Bulls.
San Antonio á enn von
í undanúrslitum Vesturdeildar vann
San Antonio lið Utah Jazz 98:87 og
Stoudamire
besti nýliðinn
DAMON Stoudamire, leikstjórnandi Tor-
onto Raptors, var í gær útnefndur best
nýliði NBA-deildarinnar í vetur, hlaut 76
atkvæði í 113 manna dómnefnd sem skip-
uð er blaða- og fréttamönnum í Bandaríkj-
unum og Kanada. Stoudamire var stiga-
hæstur leikmanna Toronto og varð fimmti
á lista yfir þá sem sendu flestar stoðsend-
ingar i deildinni. Hann gerði 19 stig að
meðaltali í leik í vetur, en annars eru
meðaltalstölur hans 9,3 stoðsendingar, 4
fráköst, l,4_„stoInir boltar“ og 40,9 mínút-
ur leiknar, í gegnum tiðina hafa aðeins
sex nýliðar leikið meira á fyrsta ári sínu,
þar er Wilt Chamberlain efstur með 46,4
mínútur.
Arvydas Sabonis, miðherjinn hjá Port-
land, varð í örðu sæti með 17 atkvæði og
Joe Smith framherji Golden State varð
þriðji með 15 atkvæði.
Toni Kukoc, leikmaður Chicago Bulls,
var í vikunni kjörinn besti varamaður
NB A-deildarinnar, hlaut 45 atkvði af þeim
113 sem í boði voru. Arvydas Sabonis kom
næstur með 24 og Jayson Williams, New
Jersey Nets, var þriðji með 14 atkvæði.
Kukoc er 27 ára Króati og er 2,11 m á
hæð. Hann gerði að meðaltali 13,1 stig í
81 Ieik á tímabilinu, tók fjögúr fráköst
og átti 3,5 stoðsendingar. Hann var aðeins
20 sinnum í byrjunarliðinu í vetur, en var
þó þriðji stigahæsti leikmaður liðsins og
hittni hans úr þriggja stiga skotum var
40,3 prósent. Kukoc er fyrsti leikmaður
Chicago sem hlýtur þessa viðurkenningu.
Hann hefur ekki getað leikið síðustu þrjá
leiki Chicago í úrslitakeppninni vegna
meiðsla.
er staðan þar 3:2 fyrir Utah. Liðið sem
fyrr vinnur fjóra leiki mætir Seattle,
sem sló meistara Houston út, í úrslit-
um Vesturdeildar. David Robinson var
stigahæstur í liði San Antonio með
24 stig og tók 15 fráköst. And Avery
Johnson og Vinny Del Negro gerðu
21 stig hvor.
Karl Malone var með 24 stig fyrir
Utah og Jeff Hornacek kom næstur
með 18 stig. John Stockton setti niður
14 stig og var með átta stoðsendingar
áður en hann fór útaf meiddur þegar
rúmlega mínúta var eftir.
ÍSLANDSMEISTARAR ÍA urðu f gærkvöldi fyrstu deildarbikar-
meistarar karla í knattspyrnu er þeir lögðu Breiðablik, 3:1, í
skemmtilegum og framlengdum úrslitaleik. Það var reynsla
Skagamanna sem fleytti þeim áfram íframlengingunni, orðnir
einum manni undir, en Breiðabliksmenn veittu þeim harða og
verðuga mótspyrnu allan tímann í leik sem lofar góðu fyrir
knattspyrnuvertíðana sem framundan er.
Leikurinn hófst fjörlega og á
fyrstu mínútunum áttu bæði
lið upplögð færi sem ekki tókst að
nýta. Eftir því sem
á leið óx Blikum
Benediktsson ás™e&n Þeir
skrifar virtust vera að na
yfirhöndinni í leikn-
um en aftasta varnarlína íslands-
meistaranna var föst fyrir og
hleypti ungum Kópavogsbúum ekki
í færi. Þar kom þó á 35. mínútu
að Blikar fengu besta færi hálfleiks-
ins. Þorhallur Hinriksson, sem lék
í stað Arnars Grétarssonar sem var
í leikbanni, stakk boltanum laglega
inn fyrir vörn ÍA og Kjartan Einars-
son komst einn á móti Þórði Þórðar-
syni markverði en var of seinn að
taka af skarið og Þórður reyndist
vandanum vaxinn og hirti knöttinn.
Skagamenn bættu á ný í seglin á
síðustu mínútum hálfleiksins og á
markamínútunni, þeirri 43., opnaði
Ólafur Adolfsson markareikning
leiksins með fallegu marki með
skalla úr miðjum vítateig Blika eft-
ir aukaspyrnu Ólafs Þórðarsonar
af 40 m færi af hægri væng. Þar
við sat í hálfleik.
Góðir sprettir sáust áfram í síð-
ari hálfleik og varnir beggja liða
fengu að hafa fyrir hlutunum. Er
halla tók á leiktímann virtist sem
þreyta væri farin að segja til sín í
Skagavörninni og Blikar fengu
nokkur hættuleg færi sem vantaði
herslumun upp á að rötuðu rétta
leið. En þolinmæðin þrautir vinnur
allar og fjórum mínútum fyrir leiks-
lok jöfnuðu Blikar. Fyrrum Skaga-
maður, Pálmi Haraldsson, sótti upp
hægri kantinn og sendi Jmitmiðaða
sendingu inn í vítateig ÍA þar sem
Kjartan Einarsson var fyrstur að
átta sig og skallaði af krafti frá
markteig í hægra markhornið og
tryggði framlengingu.
Skagamenn voru sterkari í fram-
lengingunni en Blikar voru síður
en svo af baki dottnir en færðu
andstæðingum sínum mark á silfur-
fati á 99. mínútu. Vilhjálmur Har-
aidsson, sem hafði staðið í strögnu
við að gæta Mihajlo Bibercic, fékk
boltann rétt fyrir utan teig að-
þrengdur og skallaði í átt að eigin
marki til Caradaklija en sendingin
var of stutt og Bibercic komst inn
á milli skallaði yfir Caradaklija áður
en hann kom höndum á knöttinn
og í markið fór boltinn. Bibercic var
síðan skömmu síðar rekinn af lei-
kvelli.
Eftir markið freistuðust Blikar
til að færa sig framar og sækja og
það nýttu Skagamenn sér og beittu
skyndiupphlaupum og upp einni
slíkri sókn fengu þeir horn þar sem
Ólafur Adolfsson innsiglaði sigur-
inn.
„Við fengum verðuga mótspyrnu
í þessum leik. Fæðingin var erfið
en hafðist að lokum. Reynsla okkar
vóg þungt,“ sagði Guðjón Þórðar-
son, þjálfari ÍA. „Það sýnir styrk-
leika að við vorum fljótir að komast
inn í leikin á ný eftir að fá á okkur
jöfnunarmark skömmu fyrir leiks-
lok. Þrátt fyrir að við misstum
mann útaf var sigurinn aldrei í
hættu."
„Ég er stoltur af mínum mönnum
í þessum leik en reynslan sagði til
Vonandi ekki það
sem koma skal
NORÐMENN unnu íslendinga,
75:72, í síðari vináttulandsleik
þjóðanna í íþróttahúsinu við
Strandgötu í gærkvöldi. ís-
lenska liðið náði sér aldrei á
strik og nú vona menn bara að
leikurinn hafi ekki verið dæmi
um það sem koma skal í næstu
viku þegar liðið tekur þátt í
Evrópukeppninni.
Islenska liðið lék fyrri hálfleikinn
álíka illa og og í fyrri leiknum.
Þó var heldur meira um klaufaleg
mistök, sendingar
Skúli Unnar sem fóru beint útaf
Sveinsson og annað í þeim dúr.
skrifar Norðmenn léku sem
fyrr mjög stífa mað-
ur á mann vörn og íslenska liðið
náði aldrei að stilla almennilega upp
í sókninni. Athugandi er hvort leik-
menn eru of bundnir í ákveðin leik-
kerfi. Það þarf að vera hægt að
btjótast undan þeim ef ljóst er að
hvorki gengur né rekur.
Islenska liðið á að geta talsvert
betur en það sýndi í þessum tveim-
ur leikjum og ætli það sér áfram í
Evrópukeppninni verður það að
gera mun betur. Vandamál þess er
svipað og verið hefur undanfarin
ár - það vantar stærri leikmenn.
Þegar lágvaxið lið eins og það ís-
lenska keppir við lið sem er með
hávaxna leikmenn í teignum lendir
það oft í viiluvandræðum og sú varð
raunin í gær. Liðið náði einu sinni
að jafna í síðari hálfleiknum, 55:55,
þegar 9,39 mínútur voru eftir, en
þá fékk Guðmundur sína fimmtu
villu og þótt hann hafi alls ekki átt
neinn stórleik munaði um hann.
Annað sem einkennir iágvaxin lið
er að þau verða að treysta á skytt-
urnar en í gær gekk hvorki né rak
hjá þeim. Þær fengu einfaldelga
ekki frið fyrir varnarmönnum Norð-
manna og allt of sjaldgæft var að
sjá að leikmenn reyndu að opna
hver fyrir annan þannig að skytt-
urnar fengju brot úr sekúndu til
að athafna sig. Þar sem leikmenn
fengu fá tækifæri til að skjóta urðu
þeir ragir og menn sem skjóta mik-
ið í leikjum hér heima virtust alls
ekki þora því enda færin ekki eins
og best verður á kosið.
Hjörtur átti ágætan leik í síðari
hálfleiknum, Guðjón hefði mátt
skjóta meira því hann hitti ágætlega
og Teitur iék vel í síðari hálfleikn-
um, gerði meðal annars öll 12 stig
sin eftir hlé. Hermann lék einnig
vel og Herbert stóð vel fyrir sinu
en var langt frá því að vera öfunds-
verður að leika gegn sér miklu
hærri og þyngri manni í vörninni.
Hjá Norðmönnum var Torgeir
Bryn allt í öllu, hitti ótrúlega vel,
sérstaklega í fyrri hálfleiknum.
Bryn gerði 29 stig og tók 18 frá-
köst og það munar svo sannarlega
um minna. íslenska landsliðið verð-
ur að hafa í huga að í Evrópukeppn-
inni munu verða nokkrir leikmenn
sem eru hávaxnari en Bryn og betri,
þannig að það má öllum vera Ijóst
að það verður á brattann að sækja.
Körfuknattleikslandsliðið treystir á
að allt smelli saman í næstu viku
og auðvitað á stuðning áhorfenda.
Michael Jordan gerði 35 stig þeg-
ar Chicago sigraði New York
94:81 í fyrrinótt og tryggði sér um
leið sæti í úrslitum Austurdeildar. Þar
mætir Chicago annað hvort Orlando
eða Atlanta en í þeirri viðureign stend-
ur Orlando betur og hefur yfir 3:1.
Chicago, sem setti nýtt NBA-met
með því að vinna 72 leiki í deildar-
keppninni sjálfri, vann sjö af átta leikj-
um sínum við New York á tímabilinu
og því komu úrslitin sl. nótt ekki á
óvart. Scottie Pippen var með 15 stig
og 11 fráköst fyrir Bulls og Ron Har-
Morgunblaðið/Sverrir
ÓLAFUR Þórðarson, fyrirliði ÍA, tekur við deildarbikarnum
úr hendi Eggerts Magnússonar formanns KSÍ.
sín er á leið. Við lentum undir og
náðum að jafna sem er gott gegn
svona sterku liði. Þessi leikur gerir
ekkert nema veita okkur aukið
sjálfstraust fyrir sumarið,“ sagði
Sigurður Halldórsson, þjálfari
Blika. Hann er með mjög breytt lið
frá síðasta ári og virðist vera að
gera góða hluti. Ef fram heldur sem
horfir verða Kópavogsbúar á góðu
róli í sumar. Liðið leikur laglega
knattspyrnu og menn hafa vilja,
löngun og þor til að halda leik sín-
um á jörðinni.
Opid golfmót
í Leirunni sunnudaginn 19. maí kl. 8.00
Bakhjarlar:
Atlanta og Matarlyst
Fyrirkomulag: Höggleikur. Karlar/konur
Hvítir/bláir teigar, án fgj. 3 veröl.
Gulir/rauðir teigar, án fgj. 1 verðl.
Gulir/rauöir teigar, m. fgj. 3 verðl.
Utanlandsferð fyrir holu í höggi í mótslok!!!
Skráning hafin í síma 421 4100
Asgerður Halldórsdóttir, deild-
arstjóri hjá Tryggingamið-
stöðinni og fyrrverandi_ formaður
Gróttu, og Guðmundur Á. Ingvars-
son, framkvæmdastjóri hjá Ingvari
Helgasyni hf. og formaður lands-
liðsnefndar HSÍ, gefa kost á sér til
formanns HSÍ í staðinn fyrir Ólaf
B. Schram, sem hættir. Jóhanna
Á. Sigurðardóttir, gjaldkeri HSÍ,
gefur ekki áfram kost á sér en
aðrir stjórnarmenn virðast tilbúnir
að halda áfram. Kosningar fara
fram á ársþinginu sem lýkur í dag.
HSÍ stendur vægast sagt mjög
illa en Ásgerður og Guðmundur
sögðust vera tilbúin að vinna að
eflingu sambandsins og nauðsyn-
legt væri að helja nýja sókn. Þau
voru sammála um að það yrði hvorki
verk eins formanns né einnar
stjórnar að leysa skuldastöðuna
heldur þyrfti stuðningur ríkisvalds,
sveitarfélaga og almennings að
koma til.
„HSÍ verður ekki bjargað nema
með samstöðu breiðrar fylkingar,
ríkisvaldsins og sveitarfélaga,"
sagði Guðmundur við Morgunblaðið
á ársþinginu í gærkvöldi. „Ljóst er
að handboltinn hættir ekki og miklu
skiptir að samstaða allra náist um
að koma sambandinu á réttan kjöl.“
Ásgerður tók í sama streng.
„Vandi sambandsins verður ekki
leystur nema með samvinnu við
hreyfinguna og við verðum að leita
styrks til ríkisvalds og sveitarfélaga
og annarra lánardrottna til að
hjálpa okkur íþessari erfiðu stöðu.“
Að sögn Ásgerðar er Ragnar
Birgisson rekstrarhagfræðingur til-
búinn að gefa kost á sér í gjaldkera-
starfið en Guðmundur hefur rætt
við Ásdísi Höskuldsdóttur, starfs-
mann HM nefndarinnar í fyrra, um
embættið. Ásdís og Kjartan
Steinbach eru tilbúin að starfa með
báðum formannsefnunum. Gunnar
Einarsson er varaformannsefni Ás-
gerðar og Guðmundur sagpi að
meðal annarra væru Bjarni Ásgeir
Jónsson, Siguijón Pétursson, Ragn-
heiður Karlsdóttir og Gústaf A.
Gústafsson tilbúin að starfa með
sér í stjórn.
Morgunblaðið/Halldór
VEL fór á með formannsefnum HSÍ á ársþinginu í gærkvöldi.
KORFUKNATTLEIKUR