Morgunblaðið - 22.05.1996, Page 1

Morgunblaðið - 22.05.1996, Page 1
KNATTSPYRNA: KYNNING ÁIBV OG LEIFTRI í 1. DEILD KARLA / C2-C3 í GÆR var undirritaður samn- ingur milli Ólympíunefndar íslands, Sundssambands ís- lands, Hafnarfjarðarbæjar, Spai-isjóðs Hafnar- fjarðar, Vélsmiðju Péturs Hali- dórssonar, Glerborgar hf., Fjörukráar- innar, ís- lenskra matvæla hf. og Sundfélags Hafnarfjarðar um að þau fjár- magni undirbúning Elínar Sig- urðardóttur, sundkonu úr SH, fyrir Ólympíuleikana í Atlanta í sumar. Samningurinn tekui- til tímabilsins frá 1. apríl á þessu ári til 1. ágúst nk. og er að verðmæti 730.000 kr. Verði afgangur af sjóðnum að tímabiiinu loknu rennur hann í minningarsjóð Guðmundar Ólafssonar sundmanns en sjóð- urinn er í vörslu SH og styrk- ir afburða sundmenn. Þetta er fjórði samningurinn sem Óí og SSÍ standa saman að í sam- vinnu við fyrirtæki og sveitar- félög. Elín stefnir að þátttöku í 50 metra skríðsundi á leikunum og er 16/100 úr sekúndu frá lágmarkinu, en það er 26,80 sekúndur. Með samkomulag- inu stefna hlutaðeigandi aðilar að því að Elín geti æft og keppt á sama grundvelli og aðrir bestu sundmenn iandsins, en til þess þarf hún að keppa er- lendis. Elín sagði í samtali við Morgunblaðið að hún væri glöð og ánægð með þennan stuðning. Með honum gæti hún einbeitt sér að æf ingum og keppni fram að Ólympíuleik- um. Hún hefði faríð í tvær æfingaferðir nú í vor til Þýska- lands og Bandarikjauna og í dag fer hún tii Mónakó með Ólympíuhópi SSÍ til keppni og í kjölfarið væri annaðmót í Cannet í Frakklandi. Á þessuin mótum yrði allt lagt í sölumar tii að ná lágmarkinu. Reynt við ÓL-lág- mörkí Frakklandi ÓLYMPÍUHÓPURINN í sundi, sem keppir að því að ná lág- mörkum fyrir Olympíuleikana í Atianta, heldur í dag til Frakklands þar sem sund- mennirnir taka þátt I tveimur mótum. Hópurinn er skipaður Arnari Frey Ólafssyni, Þór, Eydísi Konráðsdóttur, Kefla- vík, Elínu Sigurðardóttur, SH, Loga Jes Kristjánssyni, ÍBV og Magnúsi Konráðssyni, Keflavík. Fyrra mótið fer fram í Mónakó um næstu helgi og það seinna í Canet 1. og 2. júní. Arnai- Freyr keppir í 200 og 400 m skriðsundi, er 1,45 og 1,97 sek. frá lágmörkum, Eiín í 50 m skriðsundi, er 0,15 sek. frá lágmarki, Eydís í 100 m flugsundi, er 0,20 sek. frá lágmarki, Magnús í 100 m bringusundi, er 1,49 sek. frá lágraarki og Logi Jes i 100 m og 200 m baksundi, er 1,19 og 3,35 sek. frá lágmörkum. Gull og brons í Danmörku KONRAÐ Stefánsson sigraði í opnum flokki á Opna danska meistaramótinu í kumitee um helgina, hafði betur gegn öllum fjórum mótherjum sínum. Hall- dór Svavarsson varð í þriðja sæti í -65 kg flokki, sigraði í fimm viðureignum en tapaði einni. Keppendur í hvorum flokki voru 35 en 350 keppendur frá tíu löndum voru með. Ingólf- ur Snorrason, keppti í -80 kg flokki en komst ekki á verð- launapall og sömu sögu er að segja af Eydísi Líndal, sem keppti I -60 kg flokki. Þetta er annað af tveimur stærstu karate- mótum sem haldin eru á Norður- löndum. Borgarráð samþykkti í gær til- lögu íþrótta- og tómstunda- ráðs um að teknar verði upp form- legar viðræður við Knattspyrnu- samband íslands um hugsanlega aðild að byggingu stúku við Laug- ardalsvöll, öðrum framkvæmdum og rekstri vallarins. Rætt hefur verið um að KSÍ standi að hönnun, uppbyggingu og fjármögnun gegn fastri árlegri greiðslu til fram- kvæmda og reksturs úr borgarsjóði í allt að 15 ár. KSÍ annist jafnframt rekstur Laugardalsvallar. í erindi ITR til borgarráðs kem- ur fram að allt frá árinu 1992 hafi staðið yfir viðræður milli borg- aryfirvalda og KSÍ um byggingu stúku við Laugardalsvöll og lag- færingar á núverandi mannvirkjum við völlinn. KSI hafi lýst sig reiðu- búið til að taka beinan þátt í kostn- aði við framkvæmdirnar og að kanna til hlítar að taka við rekstri vallarins í einni eða annarri mynd. Þá segir að viðræður hafi farið fram um framkvæmdirnar og að rætt hafi verið um að reisa nýja yfirbyggða stúku fyrir allt að 3.500 manns, ný sæti í eldri stúku fyrir allt að 3.500 manns, klukku og tímatökutæki fyrir knattspyrnu og fijálsíþróttir, aðgöngumiðahlið við aðalinngang, bætta aðstöðu fijáls- íþróttamanna yfir Baldurshaga og endurnýjun bað- og búningsklefa. 1996 MIDVIKUDAGUR 22. MAI BLAD Valur Fannar Gísla- son semur við Arsenal Gerir samning við enska úr- valsdeildarfélagið til þriggja ára Valur Fannar Gíslason verður næsti atvinnumaður íslands í knattspyrnu. Enska úrvalsdeildarlið- ið Arsenai bauð honum samning til þriggja ára og ákvað miðvallarleik- j maðurinn að taka boðinu en hann fer út með unnustunni, Margréti Ein- arsdóttur, og Stefáni, bróður sínum, í lok næsta mánaðar. i „Þetta er eiginlega komið í gegn og er 100% öruggt," sagði hajin við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Ég fer út í lok júní en æfingar hefjast 8. júlí og samningurinn er til þriggja ára.“ Valur Fannar, sem er 19 ára í ár, vakti athygli með piltalandsliði 18 ára leikmanna og yngri í riðlakeppni Evrópumótsins í Norður-írlandi á liðnu hausti, átti stóran þátt í að Island komst áfram í 16 liða úrslit og var valinn besti maður keppninn- j ar. Arsenal bauð honum og Stefáni bróður hans til æfinga í janúar sem ■ leið og æfðu þeir hjá félaginu í tvær vikur en tilboðið kom í kjölfarið. „Það hefur alltaf verið draumur minn að komast út en ég bjóst ekki við því á þessum tíma. Þeir sögðu við mig að ég væri ekki keyptur með það í huga að ég léki með aðalliðinu næsta tímabil heldur væri verið að hugsa um framtíðina.“ Valur Fannar er frá Eskifirði og lék með Austra en er að byija fjórða tímabilið með Fram. „Ég á von á staðfestingu frá Arsenal á næstu dögum en skrifa undir samninginn þegar ég fer út.“ Stefán, sem er að ljúka 10. bekk grunnskólans og leik- ur með Austra, fer með honum og verður með unglingaliði félagsins. Ólafur Helgi Árnason, formaður knattspyrnudeildar Fram, sagðist ekki geta staðfest að Valur Fannar væri að fara þar sem hann hefði ekki fengið neina pappíra þar að lút- andi frá Arsenal. Talsmaður félags- ins hefði hringt einu sinni og önnur samskipti hefðu ekki átt sér stað á milli félaganna í þessu máli. Miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Fram frá því í fyrra og verður Valur Fannar fjórði leik- maður félagsins frá síðasta tímabili sem fer í atvinnumennsku. Birkir Kristinsson fór til Noregs og Kristján Jónsson og Pétur Marteinsson til Svíþjóðar. Þá hafa sex leikmenn til viðbótar frá liðnu ári gengið til liðs við innlend félög fyrir nýbyijað tíma- bil. VALUR Fannar Gíslason fer frá Fram til Arsenal. Viðræður við KSÍ um Laugardalsvöll KNATTSPYRNA Elín styrkt fram að ÓL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.