Morgunblaðið - 22.05.1996, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 22.05.1996, Qupperneq 3
2 C MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ Leikmenn Markverðir: Friðrik Friðriksson Gunnar Sigurðsson Varnarmenn: Jón Bragi Arnarsson Friðrik Om Sæbjörnsson Heimir Hallgrímsson Hermann Hreiðarsson Lúðvík Jónasson Magnús Sigurðsson Björn Jakobsson Miðjumenn: Hlynur Stefánsson Ingi Sigurðsson Leifur Geir Hafsteinsson Nökkvi Sveinsson Rútur Snorrason ívar Bjarklind Bjarnólfur Lárusson Kristinn Hafliðason Sóknarmenn: Sumarliði Arnason Steingrímur Jóhannesson Tryggvi Guðmundsson Töluverðar breytingar HELSTU breytingarnar á Eyjaliöinu síðan í fyrra eru þær að Hlynur Stefánsson er kominn heim til Eyja frá Örebro í Svíþjóð. Eins hafa þeir fengið Kristin Hafliðason og Nökkva Sveinsson frá Fram og Lúðvík Jónasson frá Stjörn- unni. Gunnar Sigurðsson, sem lék í markinu þjá HK í fyrra, er kominn heim til Eyja. Liðið hefur hins vegar misst Dragan Manojlovic sem er farinrfheim og Martin Eyjólfsson, sem er í námi erlendis og hefur lagt knattspymuskóna á hilluna. Ný „fögn“ í sumar EVJAMENN ætla að halda áfram að fagna mörkum sínum eins og í fyrra. Atli Eðvalds- son, þjálfari liðsins, sagði að „fögmin" yrðu með öðm sniði í sumar. „Ég hef trú á því að „fögnin" færist upp í áhorf- endastúku að einhverju leyti. Annars er þetta hernaðar- leyndarmál og við gefum ekki upp hvernig þetta verður. Stuðningsfélag ÍBV i Reykja- vík, ÁTVR, mun aðstoða okkur við „fögnin“. Það ætti engum að leiðast á leikjum ÍBV í sum- ar. Við ætlum að skemmta áhorfendum,“ sagði Atli. Lúðvík í leikbanni LÚÐVÍK Jónasson, sem gekk til liös við ÍBV úr Sljörnunni, tekur útþriggja leikja bann í upphafi Islandsmóts. Þrir leik- menn Eyjamanna era meiddir; ívar Bjarklind, Nökkvi Sveins- son og Kristinn Hafliðason. Þeir leika ekki á móti Leiftri í fyrstu umferð í Vestmanna- eyjum annað kvöld. KNATTSPYRNA Leikmenn Markverðir: Þorvaldur Jónsson Atli Knútsson Varnarmenn: Auðunn Helgason Júlíus Tryggvason Slebodan Milisic Daði Dervic Sigurbjörn Jakonsson Sindri Bjarnason Miðjumenn: Gunnar Oddsson Páll Guðmundsson Sverrir Sverrisson Pétur Björn Jónsson Ragnar Gíslason Matthías Sigvaldason Sóknarleikmenn: Rastislav Lasorik Baldur Bragason Jón Þór Andrésson Gunnar Már Másson Óli Hjálmar Ingólfsson Æft á grasinu hennar Ingi- bjargar Sólrúnar ÓSKAR Ingimundarsson þjálfari Leifturs segir að liðið hafi æft á grasinu hennar Ingibjargar Sól- rúnar borgarsljóra í vor og vetur. „ÖII liðin eru komin á sína velli fyrir mánuði, en við höfum verið að finna grasbletti innan borgarmarkanna og æft þar í skjóli myrk- urs,“ sagði Óskar. Eins og Kleppsveg- urinn ÓLAFSFIRÐINGARera stoltir af knattspyrnulið sínu, og hafa fulla ástæðu til. Á Ólafsfirði búa um 1.200 manns og stuðningur bæjarbúa við félagið er mikill og sjald- an koma færri en 500 manns á völlinn og stund- um um 1.000. Óskari finnst þetta líka merki- legt og bendir á að þarna búi svipaður fjöldi og við Kleppsveginn í Reykja- vík! Sjötta árlð hjá Leiftri ÓSKAR er ekki alveg ókunnur á Ólafsfirði því sumarið f sumar verður hans sjötta hjá félaginu, fyrst árið 1988. Óskar keyrir mikið á milli Ól- afsfjarðar og Reykjavfk- ur og þegar Morgunblað- ið reyndi að ná i hann á mánudaginn var hann á leiðinni norður og í gær- kvöldi rauk hann suður strax að lokinni æfingu. „ Auðvitað er þetta rugl og ég stefni alltaf að því að vinna bót á þessu. Annars er ég farinn að þekkja leiðina vel og það er ekki svo lengi verið að skjótastþetta.“ Morgunblaðið/Sigfús G. Guðmundsson Létt yfir Eyjamönnum ÞEIR tóku laglð ð bryggjunni í Vestmannaeyjum í gær. Frð vinstrl: Tryggvi Guðmundsson, Hlynur Stefðnsson, Hermann Hreiðars- son og ívar BJarkllnd. Lelkmenn liðslns sýndu ýmls „fögn“ í leikjum sínum í fyrra og ætla sér að halda því ðfram f sumar. Ætlum að halda áfram að skemmta áhorfendum - segir Atli Eðvaldsson, þjálfari Eyjamanna EYJAMENN enduðu íþriðja sæti deildarinnar í fyrra og þeim er spáð sama sæti í sum- ar. Atli Eðvaidsson er þjálfari liðsins eins og í fyrra og hann segir að stef nan f sumar verði sett á Evrópusæti og að það sé raunhæft markmið. „Við komum sterkari til leiks núna en í fyrra. Spáin um þriðja sætið setur á okkur þakkláta pressu. Ég á von á þvíað við stöndum undir þeirri pressu og spáin haldi,“ sagði Atli. Eyjamenn hafa leikið 20 æfinga- leiki fyrir íslandsmótið og töp- uðu ekki leik. Þeir eru með mjög ungt lið, 16 af 20 manna hópi er 26 Valur B. ára og yngri og joví Jónatansson framtíðin björt. „Ég settist niður með knattspymuráðinu í Eyjum í fyrra þegr ég tók við liðinu. Þar spáðum við í spilin og ákváðum að byggja upp lið sem gæti orðið stöðugt í Evrópukeppni eftir þijú til fjögur ár. Þetta gerðist reyndar mjög hratt í fyrra og við náðum óvænt þriðja sæti. Við brutum þetta svolítið upp með léttleika, sérstaklega eftir þjóð- hátíðina þegar okkur gekk sem best. Ég tel að ÍBV hafi spilað í fyrra á efstu getumörkum Iiðsins. Við erum núna búnir að vinna saman í kringum 18 mánuði og komum því reynslunni ríkari til leiks. Leikmenn vita vel út á hvað þetta gengur og þekkja vel hver annan. Við erum búnir að fá góðan liðsstyrk eins og Hlyn Stefánsson, sem er búinn að kynnast atvinnumennsku. Ef hann skilar sínu hlutverki er það mikill styrkur fyrir okkur. Við verðum með svolítið heil- steyptara lið en í fyrra. Við gátum fengið á okkur fimm mörk í fyrra og skorað sjálfir sex. Núna held ég að þetta verði þannig að við fáum á okkur eitt eða tvö mörk og getum skorað tvö til þrjú. Sóknarþunginn verður öðruvísi. Síðasta sumar höfðum við engu að tapa og enginn bjóst við miklu af okkur. Þá gátu leikmenn leyft sér visst kæruleysi og það var jákvætt. Núna er kannski vandamálið að leikmenn verði svo hræddir um að gera mis- tök því væntingarnar eru meiri en áður.“ - Verður sami léttleiki yfir Eyja- liðinu og í fyrra? „Já, það verður mjög svipað og kemur til með að þróast eftir stemmningunni í kringum liðið. Það var einhver sem sagði að þetta yrði ekki alveg eins og í fyrra því nú yrði dýpri hugsun á bak við „fögn- in“ hjá okkur. Við förum alla vega í hvern einasta leik með það mark- mið að skemmta okkur og áhorf- endum um leið.“ - Mun liðið spila sömu leikaðferð og / fyrra? „Ég legg upp mjög einfalda leik- aðferð. Fjórir í vörn, fjórir á miðj- unni og tveir frammi (4-4-2). Þetta er mín sannfæring um leikskipulag og ég hef 'sagt við strákana í liðinu að ef þeir geti sannfært mig um að önnur leikaðferð sé betri þá sé ég tilbúinn að breyta. En þeir þurfa að sannfæra mig. Ég geri ekki breytingu breytinganna vegna.“ - Hverjir koma til með að skora mörkin fyrir ykkur í sumar? „Ætli það verði ekki Steingrimur Jóhannesson, Tryggvi Guðmundsson, Rútur Snorrason og Sumarliði Áma- son., Nú svo erum við með mjög sterka miðjumenn sem eiga auðvelt með að renna sér fram í sóknina og geta skorað ef svo ber undir.“ - Hvaða lið verða í toppbarátt- unni í deildinni í sumar? „Það verða eins og áður Skaga- menn og KR-ingar sem beijast um íslandsmeistaratitilinn. Þessi lið eru sterkust og ráða yfir þeirri reynslu sem til þarf. Þau eru með reynslu sem ekki er hægt að kaupa. Leik- mennirnir í þessum liðum eru á góðum knattspyrnualdri. Þetta eru best reknu félögin og eru með góð- an kjarna í kringum sig. Við veitum þessum liðum vonandi einhveija keppni." 16 ára og yngri fá frían aðgang FÉLÖGIN sem leika í 2. og 3. deildarkeppninni í knatt- spyrnu hafa ákveðið að 16 ára og yngri fá frían aðgang á leiki liðanna, eldri greiða 500 kr. í aðgangseyri. Aðgöngu- miðaverð þetta er m.a. ákveð- ið í samræmi við þá stefnu að gera knattspyrnuna að meira áhugamáli allrar fjöl- skyldunnar. HVAÐ SEGIR LOGI OLAFSSON? Hlynur akkeri liðsins Eyjaliðið kom á óvart í fyrra með léttu andrúmslofti, skemmtilegheit- um á Ieikvelli og góðu skipulagi. Það er spurningin hvort liðið nær að fylgja uppsveiflunni eftir. Eyjamenn hafa áður komið upp af sama krafti, en ekki náð að fylgja því eftir. Eyjamenn verða að laga varnar- leikinn hjá sér, sem hefur yfirleitt ekki verið sterkasta hlið þeirra í gegnum árin - öftustu leikmenn Eyjamanna yfirleitt hugsað meira fram á við, verið of sókndjarfír. Þeir verða að læra að flýta sér hægt, hlaupa ekki úr stöðum sínum. Lúðvík Jónasson, sem er kominn til þeirra frá Stjörnunni, er sterkur varnarleikmaður ef hann einbeitir sér fullkom- lega að því að leika knattspyrnu, sleppir því að nöldra. Hlynur Stefáns- son er kominn heim á ný og mun hann styrkja miðvallarspil liðsins, verða akkeri liðsins. Það efast enginn um styrk sóknarleiks Eyja- manna, sem eiga marga fijóta og leikna leikmenn, sem þefa uppi mark- tækifæri og nýta sér þau. Kristinn Hafliðason, sem er mjög góður leik- maður, getur gert sóknarleik liðsins hættulegri. Eyjamenn eiga að geta blandað sér í baráttu þeirra efstu - hafa verið að leika vel að undanfömu. Það getur komið niður á leik þeirra ef þeir ætla sér of mikið. Þeir verða að gera sér grein fyrir að nýtt keppnistímabil er að hefjast, þannig að spreii strax í byijun á kannski ekki við. KNATTSPYRIMA MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ1996 C 3 Morgunblaðið/Svavar Magnússon fotím FOLK ■ ALLS hafa 15.000 stuðnings- menn Ajax bókað fiug til Rómar, þar sem liðið leikur gegn Juventus í úrslitaleik Evrópukeppni meistara- liða í kvöld. Sextíu aukaferðir verða farnar frá Schiphol-flugvellinum. • Reiknað er með að 20.000 stuðnings- menn Ajax verði á leiknum, sem verður sýndur beinni sjónvarpsút- sendingu á Sýn kl. 18.30. ■ ÞRIR leikmenn Ajax kveðja liðið eftir leikinn - Michael Reiziger, sem er í leikbanni, og Edgar Davids, fara til AC Milan, og Sonny Silooy, sem fer til Bielefeld í Þýskalandi. ■ BLÖÐ á Ítalíu hafa sagt frá því að markahæsti leikmaður Spánar, Juan Pizzi hjá Tenerife, sé á leið- inni til Lazió. ■ BOBBY Robson, sem skrifaði undir samning til tveggja ára við Bercelona í gær, hefur ekki áhuga að hafa Rúmenann Gheorghe Hagi og Króatann Robert Prosinecki í liði sínu og verða þeir seldir á næst- unni. ■ BARCELONA hefur tryggt sér NÝLIÐAR í herbúðum Leífturs á ÓlafsfirAL AuAunn Helgason, Rastislav Lasorik, Atll Knútsson og DaAi Dervlc. Verður hörkulið þegar alH er orðið eðlilegt - segir Óskar Ingimundarson, þjálfari Leifturs á Ólafsfirði LEIFTUR frá Ólafsfirði er eina liðið á Norðurlandi sem leikur ífyrstu deild að þessu sinni og eru heimamenn að sjálfsögðu stoltir af því. Félagið leik- ur nú í annað sinn ífyrstu deildinni, var á fyrsta ári í fyrra og endaði þá í fimmta sæti sem hlýtur að teljast viðunandi árangur á fyrsta ári þó svo margir hefðu viljað meira. Óskar Ingimundar- son, sem þjálfar liðið þriðja tímabilið í röð, seg- ir að markmiðið sé að gera betur íár. Fyrir átökin í deildinni í fyrra styrktu Ólafsfirð- ingar lið sitt með því að fá fimm nýja leikmann. í ár á að gera enn betur og hafa fjórir nýir leik- menn bæst í hópinn frá því í fyrra og enginn yfirgaf félag- ið. Það sem veldur Olafsfirð- ingum hins vegar nokkrum áhyggjum er að völlurinn hjá þeim er ekki eins og hann á að vera. „Völlurinn hjá okkur er hræðilegur eftir veturinn þó svo hann eigi að vera upp- hitaður. Það var verið að gera eitthvað í námunda við völlinn í vetur og þá hefur rafmagns- dæla verið tekin úr sambandi og ekki tengd aftur. Völlurinn hefur því verið án' hita í ein- hvern tíma, líklegast síðustu þijá mánuði og er mjög kal- inn. Það má því búast við að það verði meiri vorbragur á leik okkar en hinna liðanna sem hafa verið á góðu grasi í langan tíma. Við ætluðum að fara norður 15. maí en því var frestað þegar vitað var hvernig völlurinn var og við fórum norður um síðustu helgi og erum búnir að vera hér síðan. Við erum auðvitað ekki ánægðir með að hlutim- ir skuli ekki vera eins og við vildum helst hafa þá, en það þýðir ekkert að vera að væla neitt yfir þessu. Liðin úti á landi hafa þurft að búa við þetta í áratugi eða árhundr- uði og þetta er ekkert öðru- vísi hjá okkur.“ Sterkara liA en í fyrra Þið hafið bætt við nokkrum leikmönnum frá því í fyrra. Eruð þið með betra lið núna? „Já, við skulum vona það. Úr KR fengum við Atla Knútsson markvörð og Daða Dervic, Auðun Helgason kom frá FH og Rastislav Lasorik frá Breiðabliki. Það hefur enginn farið frá okkur þannig að þessir fjórir eru bara hrein viðbót við það sem við höfðum í fyrra. Ég held að þetta verði hörkulið þegar allt er orðið eðlilegt hjá okkur, allir komn- ir saman og völlurinn kominn í stand. Við höfum af því nokkrar áhyggjur að geta ekki byijað af fullum krafti eins og hin liðin, sérstaklega þegar haft er í huga að við eigum þijá erfiða leiki í fyrstu þremur umferðunum, ÍBV, KR og Skagann." Verður ekkert erfitt að gera alla þessa sterku ein- staklinga að góðu liði? „Nei, nei, það held ég ekki. Það þarf auðvitað að' þjappa hópnum saman og gera úr Skúli Unnar Sveinsson skrifar HVAÐ SEGIR LOGI OLAFSSON? honum lið og það er mitt hlut- verk að gera það. Það snýst um það fyrir okkur hvort það tekst eða ekki. Við verðum að búa til úr þessum strákum samstilltan hóp, þá erum við með góðan mannskap." Hvernig hefur gengið í vor- leikjunum? „Það hefur gengið svona upp og niður í vorleikjunum hjá okkur, eins og lög gera ráð fyrir. Það er ljóst að öll liðin koma betur undirbúin en við og það er einstakri veðurblíðu að þakka. Ég á von á mun jafnara móti en undanfarin ár og ég held að ekkert lið nái að stinga af. Þetta verður heilsteypt og skemmtilegt mót og ég gæti vel trúað að spá forráða- manna félaganna sé nokkuð nærri lagi, sérstaklega hvað toppliðin varðar.“ franska landsliðsmanninn Laurent Blanc frá Auxerre. Hann er 31 árs miðvörður. LUIS Enrique Martinez, 26 ára, miðvallarleikmaður hjá Real Madrid, gerist að öilum líkindum leikmaður hjá Barcelona. Real keypti hann frá Gjjon fyrir fimm árum. ■ DANSKI landsliðsmaðurinn Jacob Friis-Hansen hjá Bordeaux er genginn til liðs við Hamburger SV - skrifaði undir samning tál þriggja ára í gær. Friis-Hansen kom til Bordeaux í nóvember sl., eftir að hafa leikið sex ár með Lille. Hann er annar leikmaðurinn sem fer frá Bordeaux, þar sem Richard Witsc- hge fór til Ajax á dögunum. ■ ALLT bendir til að þrír aðrir leik- menn Bordeaux séu á förum frá lið- inu - frönsku landsliðsmennirnir Zinedine Zidane, Christophe Dug- arry og Bixente Lizarazu. ■ ZLDANE er orðaður við Juvent- us, Dugarry við Napolí, Inter Mílanó, Juventus, Blackburn og Arsenal og Lizarazu við Athletic Bilbao á Spáni. ■ MARK Wright, miðvörður Liverpool, mun ekki leika með Eng- lendingum í EM í Englandi, vegna meiðsla á hné. Hann meiddist í vin- áttuleik gegn Ungveijum. ■ ANDREAS Brehme, fyrirliði Kaiserslautern, er hættur við að fara frá liðinu - segist ætla að leggja sitt af mörkum til að það endur- heimti sæti sitt í 1. deild. ■ MARKUS Munch, leikmaður hjá Bayer Leverkusen, er á förum til Bayern Mtinchen. ■ KLAUS Aughenthaler stjómaði liði Bayern í síðasta leik liðsins á tímabilinu, í 2:2 leik á móti Dtisseld- orf. Hann skipti fjórum mönnum inná í leiknum, en leyfílegt er að nota þtjá varamenn. Óvíst er hvort Dtisseldorf kærir atvikið. Breiður og sterkur leikmannahópur Leiftursliðið lék oft á tíðum vel í fyrra og það þarf ekki að fara mörgum orðum um að Iiðið, sem hefur ekki misst leikmann frá því í fyrra, hefur fengið góðan liðsstyrk þar sem Auðun Helgason, Daði Dervic, Rastislav Lasorik og Atli Knúts- son eru. Það getur orðið erfíð barátta hjá liðinu í byijun, á meðan leikmenn eru að kynnast betur, finna réttu liðsuppstill- inguna og leikkerfi. Leiftur hefur ekki setið við sama borð og önnur lið á undirbúningstímabilinu, þar sem leikmenn hafa komið úr öllum áttum og hafa ferðast um allt Suðurland- sundirlendi til að finna sér grasvöll til að æfa á. Liðið hefur alla burði til að blanda sér í meistarabaráttu, þar sem leik- mannahópurinn er breiður og sterkur á öllum vígstöðvum; í vörn, á miðju og i sókn. Það er spurningin hvernig þjálfaran- um tekst að spila úr þessum sterka mannskap, púsla leikmönn- um rétt saman. Leiftur þarf að leika sterkari varnarleik en í fyrra og efa ég ekki að liðinu takist það, þar sem sterkir varnarmenn eins og Auðun og Daði eru komnir til að fylla í þau skörð sem voru í vörninni,“ sagði Logi Ólafsson landsliðs- þjálfari um Leiftursliðið. 100 þúsund krónur fyrir þrennu ÞEIR leikmenn sem ná að gera þrjú mörk í einum og sama leiknum í 1. deild karla í knattspyrnu í sumar fá 100 þúsund krónur í verðlaun í hvert skipti. Það eru ís- lenskar getraunir sem veita verðlaunin, nánar tiltekið Lengjan - en þess má geta að flestir leikir deildarinnar í sumar verða á Lengjunni. Allir fimm leikirnir í Fyrstu umferðinni á morgun eru t.d. á Lengjunni. Sex leikmenn gerðu þrennu í deildinni í fyrra. Arnar Gunnlaugsson úr IA afrekaði það þrisvar, Tryggvi Guðmundsson úr ÍBV tvisvar - og gerði m.a.s. fernu í annað skiptið - og þeir Jón Þór Andrésson, Leiftri, Rastislav Lazorik, Breiða- bliki, Mihajlo Bibercic, KR og Tómas Ingi Tómasson, Grindavík, einu sinni hver. Þrennurnar urðu sem sagt níu og Getraunir hefðu því orðið að gi-eiða 900 þúsund krónur í verðlaun hefði þessi háttur verið hafður á þá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.