Morgunblaðið - 23.05.1996, Page 1
FYRIRTÆKI
Skinnaiönaður á
beinni braut /4
ÚTBOÐ
Nýtt og öflugra
Þróunarfélag /8
VERSLUN
Bökum snúiö
saman /10 '
Skynjaratækni
RKS Skynjaratækni á Sauðár-
króki sem framleiðir skyi\jara er
greina ammoníaks- og freonleka
í frysti- og kælikerfum, hefur sam-
ið um útflutning á skynjurunum
við danska fyrirtækið Sabroe
Refigerations. Samkv. fréttabréfi
Útflutningsráð er útflutningur á
þessu ári áætlaður um 20 miHj.
af 30 millj. veltu.
ímark
ÍMARK gengst fyrir ráðstefnu á
morgun um Aftermarketing eða
samskiptamarkaðssetningu eins
og það hefur verið kallað á ís-
lensku. Fyrirlesari verður Terry
G. Vavra, gamalreyndur ráðgjafi
á þessu sviði sem boðar mikilvægi
þess að rækta tengsl við núver-
andi viðskiptavini í stað þess að
einblína á að ná í nýja.
Hlutabréf
Viðskipti á hlutabréfamarkaði
voru nyög lífleg í gær og hafa
raunar verið með mesta móti alla
vikuna. Virðist mikið framboð á
hlutabréfum þessa dagana hafa
haft lítil áhrif þar á. Nú standa
yfir 5 hlutafjárútboð, auk sölu
hlutabréfa í Jarðborunum, alls að
söluvirði um 1.300 millj. Ekkert
lát virðist þó á hækkunum.
Sjá Torg/B12
SÖLUGENGI DOLLARS
Morgunblaðið/Sverrir
FRÁ undirritun kaupleigusamnings um Sighvat Bjarnason VE. Á myndinni eru standandi f.v. þeir Baldvin Tryggvason, Kjartan Georg
Gunnarsson, Benedikt Ragnarsson, Hallgrímur Jónsson og Arnar Sigurmundsson. Við borðið sitja þeir (f.v.) Þorgeir Baldursson, Sig-
hvatur Bjarnason og Sigurður Hafstein.
Sparísjóðakerfið annaðist 600 milljóna flármögnun á nýju skipi Vinnslustöðvarinnar
Nótaveiðiskip á kaupleigu
VINNSLUSTOÐIN hf. í Vestmannaeyjum hefur
gert kaupleigusamning að fjárhæð um 600 millj-
ónir króna vegna nótaveiðiskipsins Sighvats
Bjarnasonar við sparisjóðina, Sparisjóðabanka
íslands og SP-fjármögnun hf. Þetta er í fyrsta
sinn sem slíkur samningur er gerður hér á landi
um tog- og nótaveiðiskip.
Að sögn Kjartans Georgs Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra SP-fjármögnunar, leitaði
Vinnslustöðin til Sparisjóðs Vestmannaeyja í
byijun apríl til að kanna möguleika á fjármögn-
un á skipi sem koma ætti stað nóta- og togveiði-
skipsins Sighvats Bjarnasonar. Vinnslustöðin
hafði þá komið auga á skipið í Noregi, en það
hafði verið endurnýjað fyrir nokkrum árum.
Sparisjóður Vestmannaeyja beindi erindinu
áfram til Sparisjóðabankans sem er í eigu spari-
sjóðanna. Þar var ákveðið að fjármögnunin yrði
í formi kaupleigu og að framkvæmd samninga-
gerðarinnar yrði í höndum eignarleigufélags
sparisjóðanna, SP-fjármögnunar. Jafnframt var
ákveðið að leita til fleiri sparisjóða og annarra
lánastofnana um þátttöku og voru undirtektir
góðar. Þannig komu alls 6 lánveitendur að lán-
veitingunni.
Ákveðið var að stofna sérstakt eignarhaldsfé-
lag um kaupin, Bárustíg ehf., og eru eigendur
þess lánveitendur í hlutfalli við framlag sitt í
heildarlánveitinunni. Kaupleiguíjárhæðin, 600
milljónir, stendur undir öllum kostnaði við kaup
skipsins og er aflahlutdeild skipsins innifalin í
verðinu. Þetta er nýlunda því hingað til hafa lán
Fiskveiðasjóðs, sem fjármagnað hefur stærstan
hluta af fiskiskipaflota landsmanna, fjármagnað
visst hlutfall af heildarkostnaði.
Kjartan segir að sú leið sem farin hafi verið
í þessu tilviki undirstriki að samstarf sparisjóð-
anna gegnum Samband sparisjóða og Sparisjóða-
bankann veiti þeim styrk sem jafnist á við styrk
öflugustu lánastofnana hérlendis.
Þremur vikum eftir að Vinnslustöðin bar upp
erindi sitt við Sparisjóð Vestmannaeyja lét skip-
ið úr höfn í Noregi og kom til Vestmannaeyja
þann 3. maí. Skipið hefur þegar hafið veiðar óg
kom til Vestmannaeyja fyrir nokkrum dögum
með stærsta síldarfarm sem þangað hefur kom-
ið. Það hefur um 1.500 tonna burðargetu og er
búið kælitönkum sem bæta verulega gæði hrá-
efnisins og auka þar með verðmæti þess.
Vextir um 1% lægri
Sighvatur Bjarnason, framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar hf., sagði í samtali við
Morgunblaðið að vextir af þessari fjármögnun
væri um 1% lægri en af hefðbundu láni til fjár-
festingar í fiskiskipum. Síðan er fastur kostnað-
ur við lántökuna um 10 milljónum króna lægri.
„Við höfum lengi verið að velta fyrir okkur þess-
ari hugmynd og leituðum síðan til sparisjóð-
anna. Lánardrottnarnir eru mun betur tryggðir
með þessum hætti en með hinum hefðbundnu
lánveitingum, auk þess sem við spörum okkur
verulegar fjárhæðir í vöxtum."
1
H
, landsbréf hf.
Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands.
Til fyrirtœkja ojy rekstraraðila:
Haqk væ m lá n
• • • • i i
til i 25 ára
• Vextir 6,75% til 8,25%
• Hagkvæm endurfjármögnun styttri og óhagkvæmari lána
• Lægri fjármagnskostnaður
• Lægri greiðslubyrði áhvílandi lána
• Auðveldari fjármögnun nýrra fjárfestinga
• Betri veltufjárstaða
Lán eru veitt gegn fasteignaveði á höfuðborgarsvæðinu. Veðsetningarhlutfall skal ekki fara yfir 55% af söluverði eignar.
Leitaðu upplýsinga hjá ráðgjöfum Landsbréfa og umboðsmönnum í öllum útibúum Landsbanka íslands.
SUÐURLANDSBRAUT 24, 108 REYKJAVIK, SIMI 588 9200, BREFASIMI 588 8598