Morgunblaðið - 25.05.1996, Page 1

Morgunblaðið - 25.05.1996, Page 1
88 SIÐUR LESBOK/C/D 117. TBL. 84.ÁRG. LAUGARDAGUR 25. MAÍ1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Yiðræður um lausn á Tsjetsjníju-deilunni kunna að hefjast í næstu viku Reuter Fyrsti kven- nautabaninn CHRISTINA Sanchez verður í dag fyrsta spænska konan sem fær að bera titilinn nautabani eða „matador de Toros“ í nauta- ati í borginni Nimes i suður- hluta Frakklands. Hún hefur æft stíft undanfarið og sést hér fella síðasta naut sitt sem „ung- nautabani" í nautaati í Madrid. Jeltsín bjartsýnn á samkomulag Moskvu. Reuter. VIÐRÆÐUR milli rússneskra stjórnvalda og aðskilnaðarsinnaðra tsjetsjenskra skæruliða kunna að hefjast á mánudag, samkvæmt heimildum rússnesku fréttastof- unnar Itar-Tass í röðum skæruliða. Fréttastofan tók þó fram að þessi tímasetning hefði ekki fengist stað- fest samkvæmt öðrum leiðum. Boris Jeltsín Rússlandsforseti, sem nú er á kosningaferðalagi um norðurhluta Rússlands, lýsti því yfir er hann kom til hafnarborgar- innar Arkhangelsk á fimmtudags- kvöld að hann hefði boðið Zelimk- han Jandarbíjev, leiðtoga að- skilnaðarsinnanna, til viðræðna í Moskvu. Jeltsín sagðist vera bjartsýnn á að hægt yrði að ná samkomulagi. Talið er að átökin í Tsjetsjníju kunni að kosta Jeltsín sigurinn í forseta- kosningunum í næsta mánuði og segja sérfræðingar hugsanlegt að Tsjetsjenar sjái sér nú færi á að ná friðarsamkomulagi, sem væri þeim í hag. Átök halda áfram í Tsjetsjníju og sögðust yfirmenn í her Rússa hafa náð síðasta vígi aðskilnaðar- sinna, bænum Bamut í vesturhluta lýðveldisins, á sitt vald í gær eftir þriggja daga bardaga. Yfirmaður í rússneska varnar- málaráðunejdinu sagði í gær að 2.483 rússneskir hermenn hefðu fallið í Tsjetsjníju frá því átök hóf- ust í desember 1994. Þá eru 16.843 skæruliðar sagðir hafa fallið. Tsjetsjenar véfengja þessar tölur. Jeltsín reyndi í gær að höfða til kjósenda á heimskautssvæðum Rússlands með því að heita þeim miklum fjárframlögum. „Ég kem með fullar hendur fjár,“ sagði for- setinn í gamansömum tón er hann ræddi við kjósendur í Arkhangelsk. Forsetinn lýsti því jafnframt yfir að hann hefði undirritað röð tilskip- ana um fjárstuðning við norðurhlut- ann, en markaðsstefna stjórnvalda síðustu ár hefur bitnað mjög á þungaiðnaði á svæðinu er var al- gjörlega háður ríkisstyrkjum. Ekki þjóðnýting Rússneskir kommúnistar birtu í gær í fyrsta skipti opinberan út- drátt úr efnahagsstefnu sinni fyrir forsetakosningarnar. Þar kemur m.a. fram að kommúnistar hafa ekki í hyggju að þjóðnýta á ný eign- ir er einkavæddar hafa verið á síð- ustu árum. Þó er gerður fýrirvari um eignir sem dómstólar kunni að úrskurða að færðar hafi verið frá ríki til einkaaðila á ólöglegan hátt. Markmið stefnu kommúnista yrði að leggja áherslu á „þjóðernislega hagsmuni" Rússa og skipuleggja „réttlátari" eignaskiptingu. Gennadí Zjúganov, forsetaefni kommúnista, reyndi hins vegar að slá á ótta kaupsýslumanna með því að heita því að ekki yrði um neina „kollsteypu" að ræða í efnahags- málum. Frjálslyndi hagfræðingurinn Grigorí Javlinskí sagðist í gær ekki hafa í hyggju að draga framboð sitt til baka til að auðvelda endur- kjör Jeltsíns. Forsetinn hefur hvatt Javlinskí og aðra frambjóðendur til að draga sig í hlé þannig að koma megi í veg fyrir sigur kommúnista í kosningunum. Kínverskir vopnasalar neita aðild að smy&rli «/ o Pcking. Rcutcr. TVEIR stærstu vopnasalar í Kína, fyrirtækin Norinco og Polytechno- logies, vísuðu í gær á bug ásökun- um Bandaríkjamanna um að þeir væru viðriðnir smygl á tvö þúsund sjálfvirkum rifflum af gerðinni AK-47 og talsverðu magni skotfæra til Bandaríkjanna. Bandarísk yfirvöld lýstu yfir því á fimmtudag að lagt hefði verið hald á stærsta farm sjálfvirkra vopna, sem gerður hefði verið upp- tækur í Bandaríkjunum, eftir 16 mánaða umfangsmikla rannsókn og voru kínversku ríkisfyrirtækin Nor- inco og Polytechnologies bendluð Herferð gegn hugverkastuldi við málið. Sjö menn voru handtekn- ir og handtökuskipun gefin út á hendur nokkrum mönnum af kín- verskum uppruna. „Þessi frétt er tómur tilbúningur. Þetta atvik kemur okkur ekki við,“ sagði talsmaður Polytechnologies, sem er dótturfyrirtæki Poly Group Corp, en yfirmaður þess er He Ping, tengdasonur Dengs Xiaopings, hins aldna leiðtoga Kína. Kínverjar hafa skorið upp herör gegn glæpum og undanfarið hafa mörg hundruð manns verið tekin af lífi fyrir morð, nauðganir og aðra glæpi. Samkvæmt yfirlýsingu yfirvalda mun herferðin gegn glæpum nú ná til þeirra, sem hafa stundað þjófnað á hugverkum. Bandaríkjamenn lýstu yfir því í síðustu viku að gripið yrði til refsi- aðgerða á hendur Kínveijum á þeirri forsendu að þeir hefðu ekki staðið við samkomulag milli ríkj- anna um að draga úr þjófnaði á tónlist, kvikmyndum og tölvuhug- búnaði. Vilja fresta hermdar- verkum Gaza. Reuter. MEIRIHLUTI fylgismanna hinna öfgasinnuðu Hamas-samtaka Pal- estínumanna er hlynntur því að fresta frekari hermdarverkum í Isra- el. Khalil Noufal, fyrrverandi yfir- maður hernaðararms Hamas, sagði að frekari hermdarverk myndu vinna gegn markmiðum Palestínumanna. Heimildarmenn innan Hamas segja að hinn andlegi leiðtogi sam- takanna, Ahmed Yassin, sem situr í ísraelsku fangelsi, hafi á miðviku- dag hvatt sendinefnd er heimsótti hann til að efna ekki til frekari hermdarverka fyrir þingkosningarn- ar í Israel. Talið er að slíkt tímabundið vopnahlé muni óbeint ýta undir sig- urlíkur Shimon Peres, forsætisráð- herra og leiðtoga Verkamanna- flokksins. Reuter Hörð kosn- ingabarátta í Albaníu ÞRIÐJU lýðræðislegu kosning- arnar í Albaníu frá falli komm- únistastjórnarinnar árið 1990 fara fram á sunnudag. Stuðn- ingsmenn Lýðræðisflokksins og Sali Berisha forseta fjöl- menntu á baráttufund á Skand- erberg-torgi í höfuðborginni Tirana í gær. Kosningabaráttan hefur staðið í mánuð og ein- kennst af mikilli hörku og deil- um um markaðsstefnu stjórnar- innar. Flokkur Berisha hefur í skoðanakönnunum haft nokkuð öruggt forskot á Sósíalista- flokkinn, arftaka albanska kommúnistaflokksins. Tyrkland Stjórnar- samstarfi lokið Ankara. Reuter. FLOKKUR Tansu Cillers, fyrr- verandi forsætisráðherra Tyrk- lands, ákvað í gærkvöldi að láta af stuðningi við stjórn Mesut Yilmaz forsætisráð- herra. Ráðherrar flokksins munu hins vegar áfram gegna embættum sínum þar til ný stjórn hefur verið mynduð. „Framkvæmdastjórn flokks- ins hefur ákveðið að hætta að styðja þessa stjórn," sagði Cill- er eftir kvöldfund æðstu manna Sannleiksstígsins. Hún sagði að fiokkurinn myndi þegar í stað reyna að hefja myndun nýrrar stjórnar. Vakti þessi ákvörðun flokks- ins þegar í stað vangaveltur í Tyrklandi um það hvort Ciller eða einhver annar flokksleið- togi myndi taka upp viðræður við flokk heittrúaðra múslima, Velferðarflokkinn. Samstarf Ciller og Yilmaz hefur gengið brösulega frá upphafi og sauð upp úr í kjöl- far þess að forsætisráðherrann tók undir ásakanir á hendur Ciller um spillingu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.