Morgunblaðið - 26.05.1996, Page 11

Morgunblaðið - 26.05.1996, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996 11 sagði að oftast væri keyptur sýn- ingarréttur fyrir kvikmyndahúsið, myndbönd og þáttasölusjónvarp. Ef breyta ætti út frá samningum um tímalengd myndar í hinum ýmsu gluggum yrði að fá skriflegt samþykki rétthafa fyrir því. Jón sagði að þáttasölusjónvarp hafi verið til skoðunar hjá Stöð 2 í 3-4 ár. Búið sé að vinna alla undirbúningsvinnu og hægt að hefja starfsemi af þessu tagi með tveggja til þriggja mánaða fyrir- vara. „Menn hafa komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé ekki fjár- hagslega fýsilegt eins og markað- urinn er í dag. Ég útiloka ekki að þetta verði gert, en það verður ekki á næstunni," sagði Jón. Erlendis hafa stórir íþróttavið- burðir reynst draga flesta áhorf- endur að þáttasölusjónvarpi. Jón sagði það inni í myndinni hjá Stöð 2 að selja sérstaklega aðgang að slíkum viðburðum. Lítil áhrif á bíó og myndbönd Björn Árnason, framkvæmda- stjóri Sambíóanna, telur að tilkoma þáttasölusjónvarps hafi lítil sem engin áhrif á aðsókn að kvik- myndahúsum. Björn segir að hjá stóru framleiðendunum á borð við Warner og Fox séu aðskildir aðilar sem selja sýningarrétt í kvik- myndahús, á myndböndum, í þáttasölusjónvarp, til áskriftasjón- varps og opins sjónvarps. Hjá minni framleiðendum, oft nefndir sjálfstæðir framleiðendur, segir Björn að sami aðili getið samið um kaup á sýningarrétti í öllum glugg- um hafi hann áhuga á því. Hann segir að Sambíóin kaupi yfirleitt allan sýningarrétt á myndum frá sjálfstæðum framleiðendum. Keyptur er kvikmyndahúsaréttur af stóru framleiðendunum auk myndbandaréttar á myndum frá Warner og Disney. Björn segir að það sé mögulegt að breyta frá tímaáætluninni ef sami aðili á rétt á samliggjandi gluggum, t.d. ef mynd fellur í kvikmyndahúsi þá er mögulegt að gefa hana fyrr út á myndbandi en ella hefði verið. Björn óttast ekki heldur áhrif þáttasölusjónvarps á myndbanda- markaðinn. Myndbandamarkaður- inn hafi einkarétt á kvikmynd í hálft ár áður en megi sýna hana í sjónvarpi gegn gjaldi. Að hálfu ári liðnu í útleigu sé yfirleitt farið að draga verulega úr vinsældum myndbanda. Björn segir að erlendu framleiðendurnir vilji ekki þrengja myndbandagluggann, að minnsta kosti ekki gagnvart íslenska mark- aðnum, þótt finna megi dæmi í Bandaríkjunum um annað. Sambíóin eiga hlut í Stöð 3. Björn segir að sjónvarpsstöðin sé sjálfstæður samningsaðili um sýn- ingarrétt á kvikmyndum frá stóru framleiðendunum. Hins vegar verði hún að semja við Sambíóin um framsal á sjónvarpsrétti í þeim tilvikum sem hann er í eigu Sam- bíóanna. Allt hefur áhrif Stefán Unnarsson, fram- kvæmdastjóri Myndmarks, sam- taka myndbandaleiga og útgef- enda, telur að allar nýjungar á sviði afþreyingar hljóti að hafa STÚDENTSMYNDIR SVIPMYNDIR Hvcrfisf’ötu 18, simi 552 2690 áhrif á það sem fyrir er á markaðn- um. „Við vorum mjög hræddir þeg- ar Stöð 3 byijaði og fórum í her- ferð. Það hefur ekki orðið neinn samdráttur. Sumir eigendur mynd- bandaleiga eru að tala um að apríl hafi verið besti leigumánuðurinn frá upphafi," sagði Stefán. Skýr- ingin er meðal annars sú að góðar myndir hafa verið að koma á mark- að og afhending Oskarsverðlaun- anna virki alltaf hvetjandi. Við höfum nú fengið viðbótargistingu á Benidonn 18. og25.júníáLaEra íbúðarhótelinu, sem reyndist okkur afar vel síðasta sumar. Það er staðsett í hjarta Benidorm, allar íbúðir með einu svefnlierbergi, baði, eldhúsi, stofu og svölum. Móttaka, garður með sundlaug og veitingastaður. Tryggðu þér síðustu sætin í júní. Stefán segir að erfitt sé að segja um áhrif þáttasölusjónvarps á myndbandamarkaðinn fyrr en ljóst er hvað sú þjónusta mun kosta og hvaða efni verður í boði. Algeng- asta leiguverð á myndböndum mun vera 350 kr., en hægt er að fá spólur frá 100 kr. og upp í 450 kr. „Leiguverð hefur ekkert hækk- að í mörg ár. Það fylgdi bíómiðum í gamla daga en hefur staðið í stað meðan bíóin hafa hækkað. Þetta Verð kr. 39.932 M.v. hjón með 2 börn, La Era, 2 vikur, 18. júni. Verð kr. 49.960 má þakka samkeppninni,“ sagði Stefán. Hann segir að megnið af veltunni á leigumarkaði mynd- banda komi inn á höfuðborgar- svæðinu. Á landinu öllu eru nú um 120 stórar myndbandaleigur, eða „alvöruleigur" eins og Stefán nefn- ir þær. Auk þeirra eru 50-60 sjoppur og bensínstöðvar með myndbandarekka. Til viðbótar eru svo litlar myndbandaleigur sem eru starfræktar í heimahúsum á minni stöðum. Myndmark gefur vikulega út lista yfir vinsælustu myndböndin. Á þeim lista eru 20 myndir. Stefán sagði að einstakar myndir hefðu verið allt upp í 15 vikur á lista. Stefán bendir á að aðstæður hér á landi séu he_ppilegar fyrir mynd- bandaleigur. I þéttbýlinu er stutt á næstu leigu þar sem jafnvel þús- undir titla eru í boði. Hins vegar bendir Stefán á að sýningar í þátta- sölusjónvarpi séu bundnar við ákveðna sýningartíma, líkt og í kvikmyndahúsi. Hann telur mynd- bandið þægilegri miðil, menn geti stöðvað sýninguna þegar þeir vilja, en það sé ekki hægt í sjónvarpinu. Hröð þróun Sala einstakra dagskrárliða er áfangi á leið til sjónvarps framtíð- arinnar. Líkt og viðmælendur nefndu mun reynslan ein skera úr um hveijar viðtökur þessi nýja tækni fær hjá íslenskum sjón- varpsáhorfendum. Til að byija með takmarkast þessi þjónusta við höf- uðborgarsvæðið en með hagnýt- ingu ljósleiðarakerfisins mætti eins bjóða hana á landsvísu. í því sam- bandi má minna á AMUSE verk- efnið sem Kerfisverkfræðistofa Háskóla íslands, Póstur og sími og Nýheiji hf. vinna að í samvinnu við evrópska aðila. Þar er unnið að gagnvirku margmiðlunarkerfi þar sem notandinn getur skilgreint þá þjónustu sem hann óskar eftir, til dæmis að horfa á sjónvarpsefni af öllu tagi þegar honum hentar. HÁBKÚLINIM A AKUREYHI HASKOLINN A AKUREYRI Auglýsing um innritun nýnema Fieilbrigðisdeild: t-ljúkrunarfrœði Kennaradeild: Grunnskólakennaranám Leikskólakennaranám Rekstrardeild: Rekstrarfrœði Iðnrekstrarfrœði Framhaldsnám í gœðastjórnun Sjávarútvegsdeild: Sjávarútvegsfrœði Matvœlaframleiðsla Reglulegri innritun nýnema lýkur t. júní nk. Með umsókn á að fylgja staðfest afrit af prófskírteinum. Ef prófum er ekki lokið skal senda skíreini um leið og þau liggja fyrir. Við innritun ber að greiða 25°/. skráset- ningargjald. kr. 6.000, sem er óafturkrœf fyrir þá nemen- dur sem veitt er skólavist. Bent er á að auðveldast er að leggja þessa upphœð inn á póstgíróreikning Háskólans á Akureyri, reikningsnúmer 0900-26-156876. Skilyrði fyrir innritun í háskólann er stúdentspróf eða annað nám sem stjórn háskólans metur jafngilt. í framhaldsnám í gœðdstjórnun gildd þó sérstök inntökuskilyrði um B.Sc. gráðu í rekstrarfrœði eða annað nám sem stjórn háskólans metur jafngilt. Á fyrs- ta ári f heilbrigðisdeild er gert ráð fyrir að fjöldatak- mörkunum verði beitt. bannig verð fjöldi þeirra 1. árs nema sem fá að halda áfram námi á vormisseri 1997 takmarkaður við töluna 25. Á fyrsta ári leikskólabrautar í kennaradeild verður fjöldi innritaðra nemenda tak- markaður við töluna 30. Með umsöknum um leikskólakennaranám þurfa auk afrits af prófskírteinum að fylgja upplýsingar um starfs- feril og meðmœli tveggja aðila. Umsóknarfrestur um húsnœði á vegum Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri er til 20. júní 1996. Umsóknareyðublöð og upplýsingar eru veittar á skrif- stofu háskólans, Sólborg, 600 Akureyri, sími 46 30 900 frá kl. 8.00 til 16.00. Upplýsingar um húsnœði á vegum Félagsstofnunar stú- denta á Akureyri veitir Jónas Steingrímsson í síma 854 0787 og 46 30 968. Háskólinn á Akureyri. Sértilboð til Benidorm 18. og 25. júní kr. 39.930 í 2 vikur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.