Morgunblaðið - 26.05.1996, Síða 16
16 SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
SÆNSKI rithöfundurinn Per
Olov Enquist og hin danska
stallsystir hans; Susanne Brogg-
er, nefna bæði Islendingasög-
umar sem eina helstu áhrifa-
valda sína í viðtali sem birtist
við þau í Politiken fyrir
skemmstu og fjallaði um stöðu
norrænna bókmennta. „Em
Norðurlöndin ósönn?“ var yfir-
skrift viðtalsins.
Rithöfundamir em í upphafi
spurðir hvort norrænar bók-
menntir hafi meiri þýðingu fyr-
ir þá en t.d. þær engilsaxnesku.
„Mér hefur alltaf fundist ég
vera afar norrænn höfundur,"
segir Enquist. „Að sjálfsögðu
verður maður fyrir áhrifum frá
alls kyns bókmenntum en
gmnnurinn að skrifum mínum
er tónfall og mál íslendinga-
sagnanna. Mér finnst það svo
augljóst, að hver sá sem les
bækur mínar ætti að geta séð
það. Maður getur nefnt Hem-
ingway - eða eins og þú, Sus-
anne, Henry Miller, en Miller
hélt því jú fram að hann hefði
lært að skrifa af Hamsun. Lesi
maður Hamsun sér maður alls
staðar glitta í íslendingasög-
urnar.“
Brogger svarar spurning-
unni einnig játandi, en hún
hefur m.a. þýtt Völuspá yfir á
Púka-
leikur á
Lista-
hátíð
H VUNNDAGSLEIKHÚ SIÐ
samtök listamanna um klassíska
leikmennt - æfir nú ærslaleik-
inn/púkaleikinn Jötuninn eftir
Evrípídes og mun sýna. hann á
Listahátíð í Loftkastalanum 8., 11.
og 13. júní.
Svonefndir „púkaleikir“ voru til
forna hafðir til að létta mönnum
lund eftir langa og mikla harm-
leiki Bakkosarhátíðanna hel-
iensku, en þessi, Jötuninn eða
Kýklópinn, er sá eini sem geymst
hefur í heilu lagi. Helgi Hálfdánar-
son hefur þýtt þetta verk Evrípí-
desar og er hann til á prenti ásamt
harmieikjaþýðingum Helga í út-
gáfu Máls og menningar.
Jötuninn er að efni til sprottinn
upp af Pólífemosar-þætti Ódis-
seifskviðu Hómers. Ódisseifur á
heimleið úr Trójustríðinu lendir í
ÞAÐ hlýtur að gefa ástardúettum
sérstakt inntak þegar söngvararnir
sem syngja þá eru ástfangnir og
þannig er því farið með nýjan disk
sem þau Roberto Alagna og Angela
Gheorghiu gáfu út fyrir skemmstu.
Þau kynntust þegar þau sungu sam-
an í La Bohéme og gripu tækifærið
þegar þau tóku þátt í annarri upp-
færslu i New York snemma á árinu
og giftu sig; brúðkaup sem óperu-
unnendur hafa kallað brúðkaup árs-
ins, enda eru þau skærustu stjörn-
urnar í óperuheiminum.
Olíkur uppruni
Roberto Alagna er fransk-sikil-
eyskur og hafði ofan af fyrir sér
með því að syngja á pizzustað í
París fyrir þjórfé að loknu söng-
námi. Hann vakti þegar athygli
fyrir túlkun og fagra rödd og eins
og í takt við vinsæla iðju gagnrýn-
enda var hann útnefndur arftaki
tenóranna þriggja; sumir hafa
gengið það langt að kalla hann hinn
nýja Pavarotti. Alagna var kvænt-
ur, en kona hans lést sviplega fyrir
stuttu.
Angeia Gheorghiu er rúmensk
Grunnurinn að skrif-
um er tónfall og mál
íslendingasagnanna
PER OIov Enquist og Susanne Bragger séð með
augum Anne-Marie Steen-Petersen.
dönsku og hlotið mikið lof fyr-
ir. Þegar talið berst að nor-
rænum samtímabókmenntum
segir hún að hvorki hún né
aðrir norrænir höfundar geti
Ijáð sig um norrænar bók-
menntir sem dæmigerðir full-
trúar þeirra, sú tíð sé löngu
liðin. „Ástæðan er m.a. sú að
að bókmenntir eru ekki lengur
eitt mikilvægasta samskipta-
formið. Það koma nærri því
engar danskar bækur út í
Noregi og Svíþjóð nema Peter
Hoeg og ástæðan er sú að
hann er meira amerískur en
danskur. Svo virðist sem bók-
menntirnar endurspegli sam-
félagið ekki lengur."
Enquist og Brogger verður
tíðrætt um að ekki aðeins hafi
Norðurlöndin fjarlægst hvert
annað, heldur einnig löndin í
Evrópu. Þó nefnir Brogger
það sem dæmi um að Norður-
löndin hafi færst nær hvert
öðru í Evrópusamstarfinu, að
þegar hún kynnti þýðingu sína
á Völuspá á rithöfundaþingi í
Brussel fyrir skömmu, kom að
máli við hana kona frá Suður-
Evrópu sem sagðist nú skilja
hvað það væri sem héldi Norð-
urlöndunum saman: Þau hefðu
aldrei verið almennilega
kristnuð.
HVUNNDAGSLEIKHÚSIÐ - samtök listamanna um klassíska leikmennt - æfir nú ærslaleikinn/púka-
leikinn Jötuninn eftir Evrípídes og mun sýna hann á Listahátíð í Loftkastalanum í júní.
miklum mannraunum. Jötuninn
eineygi Pólífemos ríkir á Sikiley
og heldur þar Sílenosi gömlum
skógarpúka og konum hans í
ánauð. Sílenos fóstraði áður vín-
guðinn Bakkos. Ódisseifur leitar
vista eftir hrakningar á hafi en
allt bendir til þess að hann verði
næsti málsverður Pólífemosar. Úr
efni þessa púkaleiks Evreípídesar
vinnur Leifur Þórarinsson tón-
skáld verk sitt ásamt leikurum og
starfsfólki Hvunndagsleikhússins
undir leikstjórn Ingu Bjarnason.
Hönnuðir leikmyndar og búninga
er G. Erla og lýsingar er Alfreð
Sturla. Með helstu hlutverk fara
Arnar Jónsson, Gísli Rúnar Jóns-
son, Hinrik Ólafsson, Jóhanna Lin-
net, Margrét Pétursdóttir, Gunnar
Gunnsteinsson, Jóhanna Þórhalls-
dóttir og Björk Jónsdóttir. Að sýn-
ingunni standa yfir 50 manns, þar
af 30 í kór og hljómsveit.
Ásthrifnir söngfuglar
Tvær skærustu söngstjörnur heims um þess-
ar mundir eru Roberto Alagna og Angela
Gheorghiu. Þau kynntust þegar þau sungu
ástardúetta saman, urðu ástfangin og sendu
fyrir skemmstu frá sér ástardúettaplötu.
og fór hefðbunda leið í tónlistar-
námi þar til hún sló í gegn nýkom-
in úr tónlistarakademíunni í Búda-
pest fyrir sex árum. Upp frá því
hefur henni gengið allt í haginn og
svo vel þótti henni takast upp í hlut-
verki Violettu í La Traviata og disk-
ur sem gefinn var út með upptök-
unni var valinn diskur ársins í Bret-
landi á síðasta ári. Fyrir stuttu gaf
hún út aríudisk, þar sem hún syng-
ur meðal annars aríur úr La
Bohéme. Diskurinn sem þau Alagna
og Gheorghiu sungu inn á saman
hefur fengið góðar viðtökur gagn-
rýnenda, en þau spreyta sig meðal
annars á dúettum eftir Mascagni,
Gounod, Bernstein, Berlioz og eðli-
lega Puccini.
Þau Alagna og Gheorghiu segj-
ast fátt ræða annað en tónlist þá
þau hittast, en sem vonlegt er hafa
þau í nógu að snúast hvort í sínu
horni. Þau segjast ekki syngja sam-
an nema listarinnar vegna; þau
hafi ekki áhuga á að verða einhvers-
konar sýningargripir, en það gefi
reyndar augaleið að þau nái að
gæða ástardúetta meiri tilfinningu
en flestir söngvarar aðrir.
Orgeltón-
leikar
ÞÝSKI organleikarinn og pró-
fessorinn Gerhard Diekel heldur
á næstunni fimm orgeltónleika
í jafnmörgum
kirkjum í
Reykjavík
með mismun-
andi efnis-
skrám.
Verkin sem
Dickel flytur
eru eftir
Bach, Hándel,
Buxtehude,
Max Reger, Mozart, Mend-
elsohn, Liszt, Dupré, César
Franck og Flor Peters.
Fyrstu tónleikarnir verða í
Dómkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 28. maí kl. 18. í
Fríkirkjunni í Reykjavík verða
tónleikar miðvikudaginn 29.
maí, einnig kl. 18. Þriðju tónleik-
arnir verða í Digraneskirkju
fímmtudaginn 30. maí, þeir
fjórðu í Fella- og Hólakirkju
föstudaginn 31. maí og loks
spilar Gerhard Dickel í Hall-
grímskirkju sunnudaginn 2.
júní.
Negrasálma-
kvöld
ÞRIÐJU og síðustu tónleikarnir
á Tónlistarvori í Fríkirkjunni
verða halndir næstkomandi
þriðjudagskvöld kl. 20.30.
A þessum tónleikum mun
Kór Fríkirkjunnar í Reykjavík
syngja negrasálma og gospel-
söngva undir stjórn dr. Pavels
Smid organista við kirkjuna.
Einsöngvarar á tónleikunum
eru; Davíð Ólafsson, Ólöf Ás-
björnsdóttir, Svava Kristín Ing-
ólfsdóttir og Þuríður Sigurðar-
dóttir. Miðasala við innganginn,
miðaverð 1.000 kr. Eldri borg-
arar og tónlistamemar fá 50%
afslátt.
Ann Farholt
til Islands
DANSKA djasssöngkonan Ann
Farholt kemur fram á hvíta-
sunnudag í
Vestmanna-
eyjum og á
2. í hvíta-
sunnu á veg-
um Jazz-
vakningar og
Listaklúbbs
Leikhúskjall-
arans. Húsið
opnar kl. 21
en tónleik-
arnir hefjst kl. 21.30. Miðasala
verður við innganginn.
I fréttatilkynningu segir, að
með Ann Farholt komi hingað
til lands gítarleikarinn llenrik
Bay, bassaleikarinn Guffi Pal-
lesen og trommarinn Andy
Eberhart.
Handavinna á
Arbæjarsafni
STÚLKUR úr Hússtjórnarskóla
Reykjavíkur munu sýna handa-
vinnu á Árbæjarsafni mánudag-
inn 27. maí frá kl. 14-17. Gefst
gestum safnsins kostur á að sjá
hluta þeirrar vinnu sem unnin
hefur verið í skólanum í vetur.
Áhugafólk um tóvinnu getur
einnig séð band spunnið í Arbæ
og þar verða búnir til roðskór.
Sóla sýnir á
Selfossi
UÓSMYNDASÝNING Sólu
stendur nú á Kaffi Krús, Sel-
fossi..
Myndir sýningarinnar eru af
klæðskiptingum og voru teknar
í San Fransisco og L.A. Sýning-
in stendur í mánuð.
Ann
Farholt