Morgunblaðið - 26.05.1996, Page 40

Morgunblaðið - 26.05.1996, Page 40
40 SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ i'm 60IN6 H0ME,MANA6ER IF AM'ONE MIT5 A 8ALLT0 RI6HT FIELP, LET ME KNOU) MERE5 MV PHONE NUMBER, OUR FAX NUM0ER AND OUR E-MAIL APPRE55.. 0UTFIELPER5 5EEMT0 BE MUCH MORE C0N5IDERATE THAN TMEV U5EDT0BE.. Ég er að fara heim, stjóri. „Ef Hérna er símanúmerið mitt, fax- Útvallarmenn virðast vera miklu einhver slær bolta út á hægri númerið okkar og netfangið. tillitssamari en þeir eiga vanda til. vallarhelming, láttu mig þá vita.“ BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Komið og fylgið mér Frá Sigfúsi B. Valdimarssyni: í MATTHEUSAR guðspjalli 4. kapítula, 17.-20. versi, er sagt frá því er Jesús byijaði að predika og sagði: „Gjörið iðrun“ og hann gekk meðfrem Galíleuvatninu. Sá hann þá bræðuma Símon Pétur og Andrés sem voru fiskimenn. Hann kaliaði á þá og sagði: „Komið og fylgið mér, og mun ég gjöra yður að mannaveið- urum.“ Þessir fiskimenn hlýddu kall- inu og urðu fyrstu lærisveinar Jesú, og boðberar þess fagnaðarerindis er hann flutti að „Frelsa synduga menn!“ „Leita að hinu týnda og frelsa það.“ Drottinn Jesús Kristur er hinn sami í dag. Hebr. 3:9. Lifandi og upprisinn Frelsari, sem fyrir sinn heilaga anda og lifandi orð, kallar á menn og konur á öllum aldri til fylgd- ar við sig, og margvísleg er þjónust- an í víngarði hans. Eg heyrði rödd hans og kom til hans „sár af synd“ þegar ég var 21 árs. Hvílík gæfa. Stærsti viðburður lífs míns. Eins og Jesús segir: „Þann sem til mín kem- ur, mun ég alls ekki burtu reka.“ Hann tók mig að sér í því hörmunga- rástandi sem ég var í og frelsaði mig. A einu augnabliki hafði ég „end- urfæðst" Var orðinn „ný sköpun í honum“ 2. Kor. 5:17. Svo þegar ég flyt til ísafjarðar 1946 kallaði Guð mig til að hefja þar kristilegt sjómannastarf. Sr. Sig- urbjörn Á. Gíslason hvatti mig líka og studdi meðan hans naut við. Sal- em Sjómannastarfið er því 50 ára á þessu ári. Ég get ekki annað sagt en að Drottinn hafi leitt það og bless- að á undursamlegan hátt öll þessi ár, og ég lofa hann fyrir að enn gefur hann mér heilsu til að sinna þessari þjónustu. Ég er þakklátur öllum þeim mörgu vinum, sem ég hefi eignast utan lands og innan. Það er ómetanleg uppörvun. Fagnaðarer- indi Jesú Krists getur aldrei orðið nema til blessunar og gleði, þeim sem vilja taka við því. „En öllum þeim, sem tóku við honum, gaf hann rétt til að verða Guðs böm, Þeim sem trúa á nafn hans“ Jóh. 1:12. Á sjómannadegi fer fjöldi sjó- manna til árdegismessu og hlýðir á Guðs orð og tekur þátt í lofgerð il Drottins og er það vel við hæfi því margs er að minnast og margt er að þakka, þó einnig hafi komið sorg og söknuður, en þá hefir líka margur fengið að upplifa hve gott það er að eiga Jesú, „sem einkavin í hverri þraut“. Því miður hættir mörgum við er líða tekur á daginn að slást í fýlgd með bölvaldinum „Bakkusi" en því fylgir aldrei nema vonbrigði og óhamingja, því vil sterklega vara við slíku. Haldið dag ykkar út með lof- gerð í hjarta, og hafið svo Jesú með í öllum verkum ykkar. Minnist sálms- ins, sem ég held að við öll höfum lært. „Við freistingum gæt þín og falli þig ver“. Að endingu vil ég benda á að ræðu Péturs fiskimanns er hann flutti á stofndegi kristinnar kirkju og skráð er í 2. kapitula Postulasög- unnar. „En er þeir heyrðu þetta, stungust þeir í hjörtun og sögðu við Pétur og hina postulana: Hvað eigum vér að gjöra, bræður? En Pétur sagði við þá: Gjörið iðrun og sérhver yðar láti skírast í nafni Jesú Krists... Og með öðrum fleiri orðum bar hann vitni, áminnti þá og sagði: Látið frels- ast frá þessari rangsnúnu kynslóð. Þeir sem þá veittu orði hans viðtöku voru skírðir og á þeim degi bættust við hér um bil þijú þúsund sálir. Og þeir héldu sér stöðuglega við kenning postulanna og samfélagið, brotning brauðsins og bænirnar.“ Þannig verður kristin kirkja að starfa í dag, svo sami árangur náist. Svo endar þessi kapítuli með þessum orðum: „En Drottinn bætti daglega við í hópinn, þeim er frelsast létu.“ Lesið nú í samhengi þennan kapítula og síðan sem allra mest í hinni heilögu bók. Orð Jesú er andi og líf.“ „Sæl er sú þjóð, sem á Drottin að Guði.“ Sálm. 33:12. Gleðilega sjómannahátíð. SIGFÚS B. VALDIMARSSON, sjómannastarfinu Salem, ísafirði. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ölum Opið um l'tvítasunnuna: 2Ó. maí hvítasunnudag: Kaffihlacihorö Ul. 14-18 laðtorð U1. 18.30 - 21.30 27. maí mánuaag, annan í hvítasunnu, Kaffihlaðborð U1. 14 - 18 i : G I € v C < i i ( ( ( I I I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.