Morgunblaðið - 26.05.1996, Side 10
10 B SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
INNRA
MEÐMÉR
Á hvítasunnudag var kirkja Krists á jörðu
stofnuð. Njörður P. Njarðvík, sem hefurtekið
saman orð Krists í eina bók, segir Kristínu
Marju Baldursdóttur frá hugmyndum sínum
um trúarbrögð, innri og ytri kirkju, hver hann
haldi að Kristur hafi verið og hvað það sé að
vera kristinn að hans dómi.
HEILAGUR andi kom yfir
postulana á hvítasunnu-
dag og þeir stofnuðu
kristna kirkju til að
breiða út kærleik meðal manna.
Engu að síður hefur heimurinn log-
að í illdeilum og styrjöldum. Ein-
hveijir hafa ekki skilið boðskap
Krists rétt. Hann er þó svo skýr
að yngstu börnin eiga ekki í nokkr-
um erfiðleikum með að skilja hann.
Það eru hinir fullorðnu sem mis-
skilja. Til að komast að því hver
hinn eiginlegi boðskapur Krists var,
þarf að fletta fram og til baka í
guðspjöllunum og þeir eru kannski
ekki margir sem nenna því nú orð-
ið. Ekki eftir að alnetið kom til
sögunnar. Einn er þó sá sem hefur
iegið yfir biblíunni mánuðum saman
til að komast að kjarnanum. Njörð-
ur P. Njarðvík, skáld og prófessor
í íslenskum bókmenntum við Há-
skóla íslands hefur tekið saman í
eina bók allt sem Kristur er sagður
hafa sagt.
Orð Krists
Bók Njarðar, Orð Krists, kom
út fyrir síðustu jól. Það hefði líklega
komið fáum á óvart ef guðfræðing-
ur hefði unnið slíkt verk, en hvem-
ig stendur á því að bókmenntafræð-
ingurinn fór að leggja á sig þessa
miklu vinnu og hvemig vann hann
verkið?
„Ég er áhugamaður um andleg
málefni og mér fannst ég ekki vita
nógu mikið um boðskap Krists,“
segir Njörður. „Ég vildi vita hvað
þessi maður er sagður hafa sagt
og fann enga betri leið en þessa.
Ég fór að lesa Nýja testamentið
af alvöru, en því miður eru það
ekki orð Krists sjálfs sem þar
standa heldur það sem aðrir hafa
eftir honum. Stundum ber guð-
spjöllunum saman, stundum alls
ekki. Ég komst fljótt að því að til
þess að reyna að átta sig á því
hvað Kristur hefði boðað um tiltek-
in efni, eins og til dæmis um guðs-
ríki, fyrirgefningu, boðorð og svo
framvegis, þá var þetta ansi fyrir-
hafnasamt, því orð hans eru á víð
og dreif út um öll guðspjöllin. Því
tók ég mig til og fór fyrst skipulega
í gegnum Matteusarguðspjall, og
skráði eftir lykilorðum öll tilsvör,
allt hið talaða orð sem haft er eftir
Kristi sjálfum. Ég bar þetta síðan
undir mér fróðari menn í guðfræði,
og eftir uppörvun hélt ég áfram og
fór skipulega í gegnum öll guð-
spjöllin. I bókinni Orð Krists er
hægt að fletta upp á nær fimm
hundruð lykilorðum og þá má sjá á
einum stað allt sem haft er eftir
Kristi í guðspjöllunum um eitthvert
tiltekið efni.
Ég tek það skýrt fram að þessi
bók kemur engan veginn í stað bibl-
íunnar. Þegar menn fletta uþp í
Orðum Krists, geta þeir svo séð
samhengið í guðspjöllunum því allar
tilvitnanir eru vandlega merktar. í
fyrstu ætlaði ég að vinna þetta fyr-
ir sjálfan mig, en síðan fæddist sú
hugmynd að auðvelda fólki að
kynna sér boðskap Krists.“
Lærdómur
Njörður hefur stundum sagt við
nemendur sína að til að kunna góð
skil á bókmenntum þurfí menn að
þekkja biblíuna. En hefði það nú
samt ekki verið hlutverk guðfræð-
inga að taka-saman orð Krists?
„Ég get ekki svarað því hvers
vegna aðrir hafa ekki unnið það
verk sem ég hef unnið. Ég veit
ekki til þess að bók sem þessi sé
til. Erlendis eru að vísu til bækur
sem heita „The Sayings of Jesus“,
eða eitthvað í þá áttina, en í þeim
eru kaflaheiti miklu stærri og þeim
er yfirleitt raðað eftir aldri Krists
en ekki eftir lykilorðum.
Ég vil bæta því við að boðskapur
Krists er ekkert einkamál guðfræð-
inga. Kristur safnaði ekki í kringum
sig skriftlærðum mönnum, heldur
alþýðufólki. Ég get ekki svarað því
frekar en aðrir hvers vegna hann
gerði það. Það er alveg Ijóst að
hann var sjálfur vel menntaður
maður fyrir sína samtíð. Við vitum
íjarskalega lítið um ævi hans þar
til hann kemur fram sem fræðari,
og til dæmis það guðspjall sem er
merkilegast af þeim öllum, Jóhann-
esarguðspjall, segir ekkert um hann
fyrir þann tíma. Ef ti! vill hefur
hann haft einhveija hugmynd um
það þegar hann er að boða sitt
nýja fagnaðarerindi, að það sé
kannski ekki líklegt til árangurs að
boða það meðal þeirra sem eru
bundnir af lærdómi.
Það er svo merkilegt með margs
konar lærdóm, hann getur bundið
menn í stað þess að gera hugsun
þeirra frjálsa. Þess vegna er það
auðvitað hugsanlegt að hann hafi
viljað byija að boða fagnaðarerindið
meðal þess fólks sem hann hafí álit-
ið að gæti verið óbundið af öðrum
kennisetningum, þótt því miður
hafi svo illa til tekist að hans eigin
boðskapur hafi síðar verið ansi
þröngt bundinn í kennisetningum
annarra."
Testamentin
Njörður segir að ein af ástæðun-
um fyrir því að hann fór að vinna
þetta verk sé allur sá aragrúi sund-
urleitra kenninga sem hafa komið
fram í sögu kristninnar.
„Maður veltir því ósjálfrátt fyrir
sér hvernig þær geti verið komnar
frá einum og sama manninum. Við
megum ekki rugla saman hinum
skýra boðskap sem hafður er eftir
Kristi og hinum guðfræðilegu út-
skýringum sem byija með Páli
postula. Kristur er ekki fyrr horfinn
af sjónarsviðinu en að það rísa upp
deilur á milli Páls postula og Pét-
urs, þar sem hinn aðvífandi, utanað-
komandi maður Páll stendur uppi
sem sigurvegari og mótar kristnina.
Því miður, segja sumir.
Síðan megum við ekki gleyma
því að guðspjallamönnunum ber
ekki heldur saman. Þeim ber til
dæmis ekki saman um það hvar
hann sé fæddur. Það eru bara tvö
guðspjöll, Matteusarguðspjall og
Lúkasar, sem tala um fæðingu
Krists og uppruna. Samkvæmt
Matteusi er hann afkomandi Davíðs
konungs, þar af leiðandi af tignum
ættum. Samkvæmt Lúkasi er hann
að vísu kominn af húsi Davíðs, en
ekki af tignum mönnum. Og það er
í Markúsarguðspjalli sem við heyr-
um söguna af hinum fátæka tré-
smiði. I Lúkasarguðspjalli koma
fjárhirðar við fæðingu Krists, í
Matteusarguðspjalli eru það kon-
ungar, vitringamir frá Austurlönd-
um. Samkvæmt Lúkasi var fjöl-
skylda Jesú frá Nazaret, menn hafa
nú reyndar dregið í efa að Nazaret
hafí verið til sem þorp, en sam-
kvæmt Matteusi bjó fjölskylda Jesú
í Betlehem og hann fæddist ekki í
jötu. Önnur hvor frásögnin hlýtur
að vera röng.“
Hver var Kristur?
Nú skyldi maður ætla að sá sem
hefur tekið saman orð Krists hafi
velt því fyrir sér hver Kristur hafi
verið, hvernig persóna hann hafi
verið. Hver var Kristur?
„Núna er komin upp hreyfing
meðal guðfræðinga, í vesturheimi
aðallega, þar sem þeir hafa verið
að leita að hinum svokallaða sögu-
lega Jesú, og með því að fara með
mjög gagnrýninni hugsun í gegnum
guðspjöllin hafa þeir komist að
þeirri niðurstöðu að það sé ekki
nema ofurlítill partur af frásögnum
þar sem geti verið sögulega réttur.
I Nýja testamentinu eins og það
berst til okkar er bæði að finna
sögulegar frásagnir og goðsöguleg-
ar. Hvernig eigum við að skilja orð
Pílatusar þegar hann segir: „Hvað
á ég að gera við hann sem þið kall-
ið konung?"
Kölluðu Gyðingar hann konung?
Var Kristur konungborinn? Gerði
hann raunverulega kröfur til þess
að vera konungur? Var Kristur
kvæntur Maríu Magdalenu? Átti
hann son með henni? María Magda-
lena er sögð hafa flúið frá Palestínu
til Suður-Frakklands. Sumir halda
því fram að Kristur hafi átt systk-
in.“
- Margir deila um það hvort
Kristur hafi verið maður eða guð?
„í upphafi Jóhannesarguðspjalls
er sagt: „Og orðið var hold“. Krist-
ur kallaði sjálfan sig mannssoninn,
en hann sagðist líka vera sonur
föðurins og faðirinn væri guð. Þetta
hlýtur að tengjast einhveiju hug-
boði okkar um okkur sjálf. Erum
við ekki blanda af guðlegum upp-
runa og mannlegum? Erum við ekki
öll börn guðs, ef guð er til? En þá
þurfum við að svara þeirri óþægi-
legu spurningu: Hvað er guð?
En segjum sem svo að það sé til
guð og guð vilji tala við mannkyn-
ið, hvernig gerir hann það? Hann
sendir því fyrirmynd. Það er hægt
að skilja mánninn Krist þannig að
hann sé það sem manninum er
ætlað að vera í áætlun guðs. Svona
á maðurinn að vera. Og hvernig
brugðust mennirnir við því? Með
því að krossfesta hann.
Þess má geta að krossfesting var
aftökuaðferð Rómveija. Það voru
ekki gyðingar sem drápu Krist.
Þeir hefðu grýtt hann. Það var
þeirra aðferð.
Þeir sem halda því fram að Krist-
ur hafi unnið við iðn föður síns,
verið trésmiður, nefna máli sínu til
stuðnings hvert hann sækir mynd-
mál í dæmisögur sínar. „Mitt ok
er létt“. Smíðaði hann ok? Hann
talar um kornhlöðu. Smíðaði hann
kornhlöður?
En það er ljóst að hann var vel
að sér í lögmáli gyðinga og þekkti
vel trúarhefð þeirra. Hann var mik-
ill kennari. Það er talað um tillit
hans á vissum stöðum, hvernig
hann lítur á menn, sem bendir til
þess að hann hafi haft mjög áhrifa-
mikið augnaráð. Það er líka talað
um rödd hans. Hann hefur verið
ákaflega hugrakkur. Hann hefur
verið mikill dulhyggjumaður, því í
Jóhannesarguðspjalli talar hann
mikið um hvað hann er og tengsl
mannsins við guð.
En í öllum þessum bollalegging-
um ber að hafa í huga og undir-
strika að ég er ekki lærður guð-
fræðingur. Ég er bara áhugamað-
ur.“
Boðskapurinn
- Nú þegar þú hefur tekið saman
allt sem haft er eftir Kristi, hvaða
orð hans þykir þér vænst um?
„Af öllu því sem hann sagði
finnst mér eitt skipta langmestu
máli. Það er þegar hann segir í
Jóhannesarguðspjalli: „Nýtt boðorð
gef ég yður, að þér elskið hver
annan“.
Þetta er öðruvísi boðorð en hin
boðorðin tíu. Hann kemur með nýja
hugsun á þessum tíma, kærleiks-
boðskapinn. Þetta er mjög einfalt
boðorð og ef við gætum lifað sam-
kvæmt því væri heimurinn öðruvísi
en hann er. En það er undarlegt
að eiginlega hafa engir menn verið
verri hver við annan en kristnir
menn, og nefni ég allar þær ofsókn-
ir, pyntingar og útrýmingar sem
hafa verið gjörðar í nafni Krists.
Þær eru skelfilegar, og Kristur virð-
ist hafa séð þetta fyrir því hann
segir eitthvað á þá leið: „Þér munuð
verða ofsóttir sakir nafns míns“.
Ég vil leyfa mér að halda því
fram, að trúarbrögð segi okkur
ekki mikið um guð, en þau segja
okkur töluvert um skilning okkar á
fyrirbærinu guði. Vegna sjálfsrétt-
lætingar manna verða trúarbrögðin
til að sundra mannkyninu en ekki
til að sameina það. Vegna þess að
sá sem er sannfærður í trú sinni
hefur oft takmarkaða þörf fyrir að
segja: Þú átt að vera eins og ég.
I þeim orðum felst reyndar eitt-
hvert alvarlegasta atriði trúar-
bragðanna. Spámaður kemur fram
með kenningar, síðan verður til
hreyfing sem reynir að túlka kenn-
ingar hans og sú hreyfing byrjar
að hreinsa. I guðspjöllunum sem
við höfum er ekki að finna allar
þær frásagnir sem til eru af Kristi,
og það hafa fundist brot, meðal
annars úr Markúsarguðspjalli, sem
virðast hafa verið vísvitandi útilok-
uð því þau hafa ekki komið heim
og saman við skilning og kenning-
ar ákveðinna manna. Mennirnir
búa til trúarsetningar sem þeir láta
samþykkja, á fundum. Gallinn er
sá, að þessar samþykktir mann-
anna breyta engu um tilvist og
eðli guðs.“
Innri kirkja
Hvaða erindi eiga orð Krists til
mannanna sem geta ferðast til
tunglsins ef svo ber undir, og feng-
ið allar heimsins upplýsingar úr
alneti?
„Tækni er ekkert annað en að-
ferð og umbúðir. Við getum farið
til tunglsins, en til hvers? Við getum
notað alnetið. Til hvers? Við erum
í nútímanum svo upptekin af að-
ferðinni og umbúðunum að við þurf-
um á einhveijum boðskap að halda.
Ég held að þetta sé ekki sá versti
boðskapur sem við getum haft með
okkur.