Morgunblaðið - 26.05.1996, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996 B 19
A I w I i■^■■^■^#/L\LJkjpl Y O// \Iks7A\K
Borgey hf,
Hornafirði
Borgey hf. er sjávarútvegsfyrirtæki, þar sem
stefnt er að hröðum vexti í landvinnslu og
aukinni tæknivæðingu.
Fyrirtækið óskar eftir að ráða
aðalbókara
Starfssvið:
1. Merking og skráning fylgiskjala.
2. Afstemmingar bókhalds, úrvinnsla gagna
og skýrslugerð.
3. Leysir launabókara og gjaldkera af ífríum.
4. Launauppgjör til sjómanna.
zel2Vinna samkvæmt gæðakerfi fyrirtækis-
ins og samþykktri stefnu fyrirtækisins á hans
sviði.
Við leitum að manni með menntun á sviði
viðskipta, reynslu og haldgóða þekkingu á
bókhaldi. Þekking á bókhaldskerfinu Fjölni
æskileg.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt,
en sömuleiðis að vera góður í liðsvinnu.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar
„Borgey 160“, fyrir 4. júní nk.
Rennismiðir
Rennismiðir óskast til starfa.
Um er að ræða vinnu við CNC rennibekk,
fræsivinnu svo og almenna rennismíði.
Upplýsingar gefur verksmiðjustjóri á milli
kl. 16 og 18.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Q? LANDSSMIÐ JAN HF
Sölvhólsgötu 13, 101 Reykjavík.
Malbikun HG ehf.
auglýsir eftir verkamönnum, vönum vinnu við
malbik.
Einnig vélamönnum á valtara og malbikunar-
vél með vinnuvélaréttindi.
Upplýsingar í síma 564 3685 milli kl. 9 og 12.
Skeljungur hf.
Einkaumboö fyrir Shell-vörur á íslandi
Meiraprófsbílstjórar
Skeljungur hf. vill ráða tvo starfsmenn á
lager og í útkeyrslu.
Um er að ræða sumarafleysingar í júní, júlí
og ágúst.
Meirapróf er skilyrði.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá starfs-
mannahaldi Skeljungs hf., Suðurlandsbraut 4,
5. hæð.
Nánari upplýsingar veittar á staðnum.
Leikskólakennarar
Reykjanesbæ
Reykjanesbær óskar að ráða leikskólakenn-
ara í leikskóla bæjarins. Um er að ræða 5
leikskóla.
Upplýsingar gefur leikskólafulltrúi, Brynja
Vermundsdóttir, í síma 421 6700 eftir kl.
13.00
Hafnarfjörður
Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar
Yfirfélagsráðgjafi
Staða yfirfélagsráðgjafa á félagsmálastofnun
Hafnarfjarðar er laus til umsóknar. Yfirfélags-
ráðgjafi starfar á grundvelli 5. kafla laga nr.
40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og
hefur umsjón með þjónustu á sviði félagsráð-
gjafar. Staða yfirfélagsráðgjafa mun markast
af yfirstandandi stjórnsýslubreytingum hjá
Hafnarfjarðarbæ.
Krafist er a.m.k. fimm ára reynslu af störfum
í barnaverndarmálum og fjárhagsráðgjöf.
Þess er krafist að umsækjandi hafi löggild-
ingu sem félagsráðgjafi á íslandi. Æskilegt
er að umsækjandi hafi a.m.k. fjögurra ára
háskólanám að baki, auk viðbótarmenntunar
á sviði fjölskyldumeðferðar, stjórnunar eða
á öðrum þeim sviðum er starfinu tengjast.
Kjör eru í samræmi við kjarasamning STH
og Hafnarfjarðarbæjar.
Upplýsingar um starfið veita félagsmálastjóri
eða aðstoðarfélagsmálastjóri í síma 565 5710
alla virka morgna frá kl. 10-12.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á Félags-
málastofnun Hafnarfjarðar. Þau er einnig
hægt að fá send með símabeiðni.
Umsóknarfrestur er til 12. júní nk. Umsókn-
um merktar félagsmálastjóra, skal skilað á
Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar, Strand-
götu 8-10.
Félagsmálastjórinn íHafnarfirði.
Ræsting
Starfskraft vantar til að ræsta skrifstofur og
starfsmannaaðstöðu hjá iðnfyrirtæki á Ár-
túnshöfðanum. Um er að ræða ca. 150 fm,
sem skulu ræstast tvisvar í viku á tímabilinu
kl. 13 -17.
Þeir, sem hafa áhuga, leggi nöfn sín inn á
auglýsingadeild Morgunblaðsins, merkt:
„Ræsting - 576", fyrir föstudaginn 31. maí
næstkomandi.
Skipstjóri, stýri-
maður og vélstjóri
óskast á grænlenska nótaskipið
„Ammassat".
Vinsamlegast sendið skriflega umsókn,
merkta „Ammassat", í pósthólf 505, 222
Hafnarfirði. Farið verður með allar umsóknir
sem trúnaðarmál.
Togaraskipstjóri
Einn aflasælasti skipstjóri landsins undan-
farin 20 ár leitar að starfi.
Er jafnvígur á þorsk-, ufsa- og karfaveiðar
jafnt í flottroll og botntroll á heimamiðum og
i úthafi.
Tilboð sendist til afgreiðslu Mbl., merkt:
„Togaraskipstjóri - 4411“.
RSI<
RÍKISSKATTSTJÓRI
Spennandi
þróunarverkefni
Ríkisskattstjóri óskar að ráða tölvunar-
fræðing/kerfisfræðing eða verkfræðing til
starfa í tæknideild embættisins.
Starfssvið:
Umsjón með skönnunarkerfi sem RSK
hyggst byggja á árinu. Til stendur að skanna
skattframtöl og framkvæma myndræna
stafagreiningu á skannaðri mynd.
RSK hefur þegar fjárfest í kerfi sem nota á
til þessa verkefnis.
Starfsmaðurinn mun annast uppsetningu
kerfisins og prófanir vegna stafagreiningar.
Einnig mun viðkomandi annast tengingu
kerfisins við fyrirliggjandi kerfi hjá embættinu
og má þar sérstaklega nefna Lotus Notes.
Verkefni þessu fylgir umtalsverð forritunar-
vinna. Leitað er að áhugasömum og dugmikl-
um einstaklingi, sem tilbúinn er að takast á
við krefjandi verkefni.
Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýs-
ingar fást á skrifstofu Guðna Jónssonar,
Háteigsvegi 7, og skal umsóknum skilað á
sama stað.
Umsóknarfrestur er til 31. maí nk.
585244
_Guðni Iónsson
RÁÐGjÖF & RÁÐNINGARÞIÓNUSTA
HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKJAVÍK, SÍMI5-62 13 22 .
Eitt ár sem
au pair
í Bandaríkjunum
er ógleymanleg
reynsla.
AuPAIR • MALASKÓLAR • STARFSNAM
LÆKJARGATA 4 101 REYKJAVlK SlMI 562 2362 FAX 562 9662
Mörg hundruð íslensk ungmenni hafa farið á
okkar vegum til au pair dvalar í Bandaríkjun-
urn síðastliðin 6 ár. Og ekki að ástæðulausu.
Engin önnur samtök bjóða eins góða, örugga
og ódýra þjónustu.
• Allar ferðir fríar. • 32.000 krónur í vasa-
peninga á mánuði. • 5 daga námskeið í
Washington D.C. í skyndihjálp og uppeldis-
fræðum. • 32.500 krónu styrkur til að stunda
nám að eigin vali. • Einstök tilboð á ferðum
um Bandaríkin t.d. á vegum "Trek America."
• "Bring á friend" - Au pair Homestay U.S.A.
eru einu samtökin sem bjóða vinum að sækja
um saman og dvelja hjá fölskyldum á sama
svæði.
Efþú vilt víkka sjóndeildarhringinn og lcera
erlent tungumúl œttirðu að hafa samband.
Við erum að bóka í brottfarir í júní, júlí,
ágúst, september, október og nóvember.