Morgunblaðið - 26.05.1996, Side 1

Morgunblaðið - 26.05.1996, Side 1
Lægstcs verð á bílaleigubílum hvert sem fferðinni er heitið Hringdu f okkur og fáðu sendan sumarbœklinginn s: SS8 35 35 Þrír starfsmenn Hafrannsóknar- stofnunar hjóluðu Kjalaveg sér til skemmtunar og heilsubótar. HJOLAÐ YFIR KJOL CLERVAUX ag Kiljan SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996 BLAÐ C Danmörk Ódýrir bílaleigubílar fyrir íslendinga Tveggja vikna gjald: Opel Corsa, dkr. 2.995 Opel Astra, dkr. 3.590 Opel Astra st„ dkr. 3.990 Opel Vectra, dkr. 4.390 Innil. ótakm. akstur og tryggingar. Fáið nánari verðtilboð. Nýkominn sumarhúsalisti sendist ókeypis tjölbreytt úrval sumarhúsa um alla Danmörk.. internatipnal Car Rental ApS. Uppl. á ísiandi sími 456-3745. Flestir sólarlandafarþegar leggja leið sína til Benidorm á Spáni Rúm 26 þúsund sæti í boði í sólina með leiguflugi TALSMONNUM ferðaskrifstofa, sem selja hópferðir til sólarlanda, ber saman um að fjöldi farþega verði mun meiri næstu fjóra mánuði en í fyrra. Ástæðuna telja þeir hag- kvæmara verð og góða reynslu land- ans af þeim stöðum, sem boðið er upp á. Spánarferðir eru vinsælastar og fara langflestir til Benidorm. Aðrir helstu áfangastaðir íslenskra ferðaskrifstofa í beinu leiguflugi eru Mallorca, Costa del Sol og Costa Brava á Spáni og Algarve í Portúgal. ►Samvinnuferðir/Landsýn. Sætaframboð Samvinnuferða/Land- sýnar til Benidorm og Mallorca er samtals 8.700 sæti, sem er nánast tvöfalt meira en í fyrra. Helgi Jó- hannsson, framkvæmdastjóri, segir að þegar sé búið að bóka 90% og því uppbókað í margar ferðir. „Við erum með þrisvar sinnum fleiri far- þega til Benidorm en Mallorca, sem helgast að nokkru leyti af því að framboð á gistirými er ekki nægjan- legt á Mallorca. Fólk virðist taka hópferðir fram yfir ferðir á eigin vegum vegna þess að þannig ferða- máti er mun ódýrari,“ segir Helgi, sem jafnframt býst við að um 1300 manns dvelji í sumarhúsum í Hol- iandi og Bretlandi á vegum ferða- skrifstofunnar. ► Heimsferðir. Andri Már Ingólfs- son, framkvæmdastjóri Heimsferða, segir að búið sé að bóka um 2.200 sæti af 3.600 til Benidorm og Costa del Sol. „Þetta er um 30% aukning miðað við sama tíma í fyrra. Til Costa del Sol er uppselt í júní, örfá sæti laus til Benidorm í lok mánaðarins og uppselt í einstaka ferðir í júlí og ágúst til beggja staðanna. Ennfrem- ur eru 400 manns búnir að bóka far til Cancun í Mexíkó." ► Úrval/Útsýn. „Við bjóðum upp á 3.000 sæti til Mallorca og 4.000 til Algarve í Portúgal. Þegar er búið að bóka 80% sætanna til beggja staðanna og ég á ekki von á öðru en að sætanýting fari yfir 90%,“ segir Hörður Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri, sem segir sætafram- boð og bókanir 20% meiri en í fyrra. bFerðaskrifstofa Reykjavíkur. Að sögn Helga Daníelssonar hjá Ferðaskrifstofu Reykjavíkur er sætaframboð svipað og í fyrra en bókanir ívið fleiri. „Ég geri ráð fyrir að um 1.200 manns fari á okkar vegum til Benidorm og um 300 til Costa Brava. íslendingar virðast vilja fara á sama staðinn aftur og aftur ef þeim líkar vel,“ segir Helgi. b-Ratvís. „Við erum með næstum fullbókað í fyrstu tvær ferðirnar til Algarve í Portúgal í júní og þeg- ar er búið að bóka mikið í júlí og ágúst. Við bjóðum 2.880 sæti og mér virðist eftispurnin slík að þau verði nánast fullbókuð," segir Þor- grímur Þorgrímsson. Jk-Plúsferðir. Sætaframboð Plús- ferða til Mallorca og Algarve er 1.300 sæti á hvorn stað. Að sögn Laufeyjar Jóhannsdóttur, fram- kvæmdastjóra, er búið að bóka um 75% og þar af uppselt í júní og júlí. Hún segir ennfremur að um 1.800 íslendingar verði á vegum ferða- skrifstofunnar í Billund á Jótlandi í sumar. Morgunblaðið/vþj Á Benidorm. Samkvæmt framangreindu sækja allmargir íslendingar í sólina í sum- ar og þá eru ótaldir þeir sem fara á eigin vegum, t.d. til Flórída eða Barcelona. Að sögn Dóru Magnús- dóttur, deildarstjóra i upplýsinga- deild Flugleiða, er mikil ásókn í flug til Barcelona og hafi margir farþeg- ar í hyggju að sameina þannig borg- arferð og sólarferð. ■ ÍSÁTTVIÐ UMHVERFIÐ ►FERÐAÞJÓNUSTA í sátt við umhverfið er yfirskrift ráð- stefnu sem umhverfisráðuneytið og Ferðamálasamtök Islands standa fyrir í sal 3 í Háskólabíói miðvikudaginn 29. maí. Fjallað verður um tengsl um- hverfismála og ferðaþjónustu og verða stjórnarformaður og aðal- framkvæindastjóri skosku umhverfisverndarsamtakanna Scottish Natural Heritage sér- stakir gestir. Sá fyrrnefndi er íslandsvinurinn Magnús Magn- ússon, sem flytur erindið Ber er hverað baki, sem fjallar m.a. um hvernig Skotar og íslending- ar geti unnið saman að fram- gangi ferðaþjónustu og bættri umhverfisvernd. Aðalframkvæmdastjórinn, Roger Crofts, fjallar um svokall- aða jákvæða stjórnun ferða- manna og lýsir hvernig skosku umhverfisverndarsamtökin hafa með samvinnu við ýmis félög og stofnanir fengið miklu áorkað. Guðmundur Bjarnason, umhverfisráðherra, ávarpar ráðstefnugesti, fjórir íslending- ar flytja erindi og að lokum verða pallborðsumræður. ■ Stóra Austurlandaferðin, 5. okt. 3 vikur Perlur Austurlanda í einni ferð: Draumaeyjan BALI, viðskiptaundrið SINGAPORE, brennipunktur Austurlanda HONG KONG á tímamótum, besti verslunar- og skemmtistaður Austurlanda BANGKOK, á ótrúlegum kjörum. Fá sæti laus. Ferð ársins „TÖFRAR 1001 nætur(( 17. okt. 3 vikur. Sérkennilegur, heillandi heimur Austurlanda. Ótrúleg fegurð á frábæru verði. Örfá sæti laus. Austurstræti 17,4. hæö 101 Reykjavík, sími 56 20 400, fax 562 6564 Sigling á Karíbahafi eða sæluvika á draumaeynni Dominikana Siglingar á nýjustu skemmtiskipum heimsins. Enn nokkrir klefar lausir á tilboði 2 fyrir 1. Umboð á íslandi: CARNIVAL CRUISE LINES. Dvöl á fegurstu eyju Karíbahafs með öllu inniföldu á PUERTO PLATA VILLAGE NÝTUR SÍUKINNA VINSÆLDA. Spennandi valkostur á verði Evrópuferðar. Ferðir allt árið. HEIMSKLÚBBUR INGOLFS FAN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.