Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ1996
Fiskur frá Norður-Noregi unninn í frystihúsi ÚA
Fréttir
Markaðir
■
Frekari viðskipti gefi
tilraunin góða raun
^^^^^^^^^■■■■■■■^■■■■■■■■■^æ FYRSTA aflanum af
Lágmarksverð fyrir fiskinn, i>“ S,ri!SliXr
sem er læera en hér á landi If ,frá..Rongsfjord í
° _ Norður-Noregi var
landað úr Hríseyjunni, sem ÚA hefur leigt af Samherja til flutninganna í gær
og var strax byijað að vinna aflann i frystihúsi félagsins.
Um tilraunaverkefni er að ræða,
áætlað er að sigla þtjár ferðir eftir
fiski til Noregs og sagði Jón Þórðar-
son, formaður stjórnar ÚA, að eftir
það ætti að liggja fyrir hvort dæmið
gangi upp. Gefi það góða raun má
búast við að félagið muni kaupa um-
talsvert magn af ísfiski frá Noregi í
náinni framtíð.
Lægra fiskverð í
Norður-Noregi en hér
Fiskverð í Noregi lækkaði lítillega
á dögunum og er nú lægra en hér á
landi. ÚA kaupir fiskinn á gildandi
lágmárksverði en það eru samtökin
Norges Ráfisklag sem ákveða lág-
marksverð á fiski í Norður-Noregi og
er þar um fast verð að ræða. Grund-
völlur þótti því fyrir þessum kaupum
en stjórnendur félagsins leita nú allra
leiða til að auka hráefnismagn til
vinnslunnar. Yfirmenn Norges Rá-
fisklag sem forsvarsmenn ÚA ræddu
við sáu enga meinbugi á því að ÚA
keypti fisk i Noregi og flytti til ís-
lands.
Félagið kaupir eingöngu fisk af
línu- og snurvoðarbátum og setur það
skilyrði að fiskurinn sé ekki eldri en
eins til tveggja daga gamall. Aðallega
er um að ræða þorsk, ýsu og ufsa en
einnig eitthvað af grálúðu og stein-
bít. Sigling heim tekur um 4-5 sólar-
hringa þannig að aflinn er 6-8 daga
gamall þegar hann fer í vinnslu hjá
ÚA og sagði Gunnar Aspar fram-
leiðslustjóri að það væri svipað og hjá
íslensku togurunum. „Þessi fiskur
stendur undir okkar væntingum,"
sagði hann.
Samið hefur verið við fyrirtæki í
Kongsfjord í Austur-Finnmörku um
að taka á móti fiskinum, vigta hann
og ganga frá til flutnings.
Vinnslur hér vilja kaupa
norskan fisk af ÚA
Björgólfur Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri sagði að viðbrögð úti
hefðu verið jákvæð og fiskimenn grip-
ið tækifærið að selja ÚA aflann feg-
ins hendi. Algengt væri að fiskvinnsl-
ur á svæðinu væru lokaðar vegna
gjaldþrota eða i greiðslustöðvun og
hefði sjómönnum gengið illa að fá
viðunandi verð fyrir aflann. Þá sagði
hann að nokkrar vinnslur hér á landi
hefðu sett sig í samband við ÚA og
sýnt áhuga á að kaupa norskan fisk
af félaginu.
Fyrsta farminum af norska fískinum
var landað í gærmorgun, en Hágangur
II heldur frá Noregi í dag, miðviku-
dag, með næsta skammt og er væntan-
legur til Akureyrar um næstu helgi
og síðan kemur Hríseyjan með þriðja
farminn. Stefnt er að því að fá flutn-
ingaskip til að leysa þessi skip af hólmi
við flutning aflans eftir það.
Færeyingur
kaupir báta
• SÁMAL J. Joensen, eig-
andi Bátasölunnar í
Færeyjum, hefur á und-
anförnum mánuðum keypt á
annan tug báta hér á landi,
sem hafa verið úreltir, og
flutt út til Færeyja og
annarra landa. Sámal hefur
aflað upplýsinga um úrelta
báta hér, hringt í eigendur
þeirra og gert þeim stað-
greiðslutilboð. í sumum
tilvikum hefur hann heimsótt
eigendur, skoðað bátana og
gert tilboð nokkrum vikum
síðar./2
Ekki geta né
áhugi á fiski
• FYRIRTÆKIÐ Suðurnes
hf. í Reykjanesbæ sérhæfir
sig í vinnslu á flatfiski og
flytur út á markaði í Evróqu,
Bandaríkjunum og Japan. I
upphafi var ráðið talsvert af
fólki af atvinnuleysisskrá,
enda var um það samið við
komu fyrirtækisins á stað-
inn. Eggert H. Kjartansson,
framkvæmdastjóri, segir að
fljótlega hafi sú staðreynd
orðið ljós, að mikið „af þessu
fólki hafði hvorki getu,
áhuga né heilsu til þess að
stunda almenn fiskvinnslu-
störf“./3
Úr 23% í 17%
á fimm árum
HLUTDEILD íslendinga í
heildarafla Atlantshafs-
þorsks hefur minnkað á und-
anförnum árum eins og heild-
araflinn hefur gert á síðustu
átta árum. Aflinn virðist nú
orðinn stöðugur, um 1.200
þús. tonn, en hlutur Islend-
inga hefur rýrnað úr 23% í
17% á fimm árum. Með minni
afla hefur staða þorsks veikst
á mörkuðum og notkun ódýr-
ari tegunda, einkum alaska-
ufsa og lýsings, komið í stað-
inn, skv. gögnum frá SH.
Heildarafli 1981-1995
af Atlantshafsþorski
og hlutur íslendinga
p aon-
1981 1985 1 990 1995
Afkastameiri
en Norðmenn
4 Aflayfirlit
og staðsetning
fiskiskipa
Markaðsmál
6 lcelandic Freez
ing Plants Ltd.y
dótturfyrirtæki
SH í Bretlandi
Greinar
7 Deilurum
rækjuverð
NOREGSFISKUR SKOÐAÐUR
Morgunblaðið/Kristján
#JÓN Þórðarson, formaður stjórnar ÚA, og Gunnar Aspar framleiðslu-
stjóri skoða fiskinn sem Útgerðarfélag Akureyringa keypti í Noregi.
Hríseyjan EA kom með fyrsta ísfiskinn frá Kongsfjord í Norður-Nor-
egi og var honum landað I gærmorgun. Fiskurinn stóð undir þeim
væntingum sem til hans voru gerðar.
Þurrkar fisk
í sveitinni
• GUNNAR Hallgrímsson
framkvæmdastjóri Flúða-
fisks hf. í Borgarási í Hruna-
mannahreppi gafst upp á
loðdýraræktinni og skipti
yfir í fiskþurrkun með jarð-
hita. Hann lætur vel af
rekstrinum þótt starfsemin
sé langt frá fiskihöfn. /5
Taprekstur
styrktur
• MIKILL taprekstur hefur
verið á rekstri 10 norskra
verksmiðju- eða frystitog-
ara frá árinu 1988. Sérstök
könnun var gerð á þessum
tíu skipum, en norsku frysti-
togararnir eru 22 talsins og
hefur verið staðfest að þessi
niðurstaða eigi við um allan
flotann. Dæmi eru um að
allt að 800 millj. isl. kr. skuld
einstakra útgerða hafi verið
þurrkuð út með einu
pennastriki. Ekki eru til
nákvæmar tölur um styrki
við norska frystitogara
flotann en áætlað er, að
hann sé ekki undir 20
milljörðum ísl. kr. á sjö
árum./8
Helstu framleiöendur
frystra afurða úr
Atlantshafsþorski 1994
Fryst flök Heilrystur
og blokkir þorskur
RÁÐSTÖFUN heimsaflans
skiptist nokkuð jafnt þannig
að fjórðungur hans er saltað-
ur og fjórðungur er frystur
í flökum og blokkum. Áf-
gangurinn er síðan ísaður
eða heilfrystur, en vitað er
að mikið af því magni fer í
frystar fiskblokkir til endur-
vinnslu. Heilfrysting er enn
ráðandi Iijá Rússum og fer
það hráefni til endurvinnshi
víða í Evrópu og Norður-
Ameríku. í flakafrystingu
eru það hinsvegar fyrst og
fremst Islendingar með 32%
og Norðmenn með 27% sem
ráða ferðinni. íslendingar
eru afkastameiri þrátt fyrir
að Norðmenn hafi úr tvöfalt
meira hráefni að spila.