Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 1
JNttrgtmMafrifc
D
1996
MIÐVIKUDAGUR 29. MAI
BLAD
■ ý
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
LOGI Ólafsson landsllðsþjálfari og Guðni Bergsson fyrlrllðl spá hér í spllln á fundinum í gær
þegar landsliðshópurinn var tllkynntur.
Amar og Eyjólf-
urekkimeð
Jón Arnar
hætti
vegna
ökkla-
meiðsla
JÓN Arnar Magnússon, ís-
landsmeistari í tugþraut,
varð að hætta þátttöku í al-
þjóðlegu tugþrautarmóti í
Götzis í Austurríki um heig-
ina vegna meiðsla á ökkla.
Jón Arnar var í þriðja sæti
eftir fjórar greinar og var
með betri árangur eftir þær,
2.683 stig, en þegar hann
setti íslandsmet í Talence í
Frakklandi í fyrrahaust. Um
helgina var hann fyrstur í
mark í 100 m hlaupi á 10,71
sek. (miðað við 10,79 sek. í
Talence), stökk 7,51 m í lang-
stökki (7,67 m í fyrra), 1,88
m í hástökki (1,94 mí fyrra)
og varpaði kúlunni 15,49 m
(14;30 m í fyrra).
Arangur Jóns Arnars um
helgina var því betri í tveim-
ur greinum af þessum fyrstu
fjórum miðað við metþraut-
ina, í 100 m hlaupinu og
kúluvarpinu. Hann kvaðst
m.a.s. hafa kastað kúlunni
um 17 metra í upphituninni.
„Ég tognaði á ökkla í há-
stökkinu. Talið er að örvefur
í ökklanum hafi slitnað þann-
ig að ég vona að ég fái bara
meiri liðleika í ökklann á
eftir!“ sagði Jón Arnar við
Morgunblaðið í gær.
„Þetta leit mjög vel út og
ég var á góðu skriði - kom-
inn með 70 stigum meira en
í metþrautinni í Talence.“
Jón sagði alla þá bestu í
heiminum hafa verið með á
mótinu nema Bandaríkja-
mennina, sem nú eru að búa
sig undir bandaríska meist-
aramótið, sem er úrtökumót
fyrir Ólympíuleikana. Mike
Smith frá Kanada sigraði í
Götzis með 8.609 stig. „Ég
er ekki haltur lengur og held
að þetta verði orðið gott fyr-
ir Évrópubikarkeppnina í
Tallinn um miðjan júní. Ég
vona það að minnsta kosti.
Maður verður að hugsa já-
kvætt,“ sagði Jón Arnar.
ÍSLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu hefur þátttöku sína í
undankeppni HM 98 í Frakk-
landi með leik gegn Makedóniu
á Laugardalsvelli á laugardag-
inn klukkan 19. Logi Ólafsson
landsliðsþjálfari kynnti hóp
sinn fyrir leikinn í gær og gerði
nokkrar breytingar á honum frá
viðureigninni við Eistlendinga
í apríl vegna meiðsla nokkurra
lykilmanna. Eyjólfur Sverrisson
meiddist í hné með félagi sínu,
Herthu Berlin, í leik um helgina
og verður frá i tvo mánuði og
verður því ekki með í þessum
leik. Annar leikmaður sem hef-
ur verið í landsliðinu síðustu
misseri getur ekki verið með
sökum meiðsla en það er Arnar
Gunnlaugsson en að sögn
Loga eru meiðsli hans ekki
stórvægileg. Þá er Eiður Smári
Guðjohnsen einnig úr leik ibili
sem kunnugt er.
4T
Agóðum degi eigum við raun-
hæfa möguleika á sigri,“
sagði Logi Ólafsson, landsliðþjálf-
ari. „Lið Makedóníu er skipað fljót-
um leikmönnum og ljóst er að við
verðum að vara okkur vel á þeim.
Þetta er lýðveldi sem sprottið er
upp úr gömlu Júgóslavíu svo þeir
hafa ríka hefð fyrir góðum árangri
í íþróttum. Ég legg mikla áherslu
á að við einbeitum okkur að þessum
leik og hugsum ekki það sem liðið
er né það sem framundan fýrr en
þessum leik verður lokið.“
Það er að sjálfsögðu eftirvænting
í manni þegar flautað er til leiks í
nýrri keppni og eins og vant er
nauðsynlegt fyrir okkur að byrja
vel,“ sagði Guðni Bergsson fyrirliði
landsliðsins í knattspyrnu er hann
var inntur eftir því hvernig leik-
urinn við Makedóníu á laugar-
daginn legðist í hann.
„Við höfum fullan hug á að
leika af krafti og til sigurs í
þessum fyrsta leik keppninnar
og mikilvægt er að ná upp góðri
stemmningu utan vallar jafnt
sem innan. Slíkt smitar fljótt
út frá sér til áhorfenda upp í
stúku þaðan sem við þurfum
að fá mikilvægan stuðning,“
sagði Guðni ennfremur og vildi
hvetja sem flesta til að koma á
leikinn og styðja við bakið á lið-
inu.
„Ég þekki lítið til Makedóníu-
manna en mér skilst á þeim sem
séð hafa til þeirra að þeir séu
með gott lið og þetta ætti því
að geta verið skemmtilegur og
jafn leikur."
Landsliðshópurinn
Markverðir:
Birkir Kristinsson, Brann........42
Kristján Finnbogason, KR......... 8
Aðrir leikmcnn:
Guðni Bergsson, Bolton...........66
ÓlafurÞórðarson, ÍA..............65
Arnór Guðjohnsen, Örebro.........65
Rúnar Kristinsson, Örgryte.......52
Sigurður Jónsson, Örebro.........42
Arnar grétarsson, Breiðabliki....31
Hlynur Stefánsson, ÍBV...........23
Bjarki Gunnlaugsson, Mannheim....l7
Ólafur Adolfsson, ÍA.............13
Þórður Guðjohnsen, Bochum........ 6
Ágúst Gylfason, Brann............ 4
Guðmundur Benediktsson, KR....... 4
HiImarBjörnsson, KR.............. 2
Lárus Orri Sigurðsson, Stoke..... 2
SUND: ÍSLAIMDSMET í MÓNAKÓ OG SHEFFIELD /D12
VINNINGSTÖLUR
MIÐVIKUDAGINN ESdBkÉðtMfl
AÐALTÖLUR
UPPLÝSINGAR
• Fyrsti vinninguri Lottói 5/38 verður
tvöfaldur næsta laugardag. Um siöustu
helgi var einn meö 4 rétta auk
bonustölunnar og hlaut 271.480 kronur i
vinning. Hann keyptl miöann I S.T.A.
rvötaöut '
1. yínníngur
1. vinningur or íistlnður 44 milliónlr kr.
Vldeo viö Alfhólsveg í Kópavogi.
fmrnm
Vqrtu v»ðbúin(n) vinningi
M6RKÍSMEKN RDJ