Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996 D 3
KNATTSPYRNA
Hörður
jafnaði fyrir
FH í lokin
LITLU munaði að Leiknismenn
ynnu annan leik sinn í 2. deild
þegar þeirfengu FH, sem féll í
fyrra, í heimsókn í Breiðholtið í
gærkvöldi en Hafnfirðingar
náðu að jafna 1:1 á síðustu mín-
útu. Jafntefli var sanngjart því
fyrri hálfleikur var heimamanna
en sá síðari gestanna. „Ég hefði
viljað öll stigin en jafntefli var
viðunandi og ég var ekki sáttur
við byrjun okkar,*' sagði Ingi
Björn Albertsson þjálfari FH.
„Annars stefnum við upp, höf-
um burði tii þess og munum
sanna það.“
Leiknismenn voru mun frískari til
að byrja með enda búnir að
fínna sigurbragð eftir síðasta leik og
á þriðju mínútu átti
Stefán Heiðar Ómarsson
Stefánsson skot rétt framhjá
skrifar marki FH. Leiknis-
menn fengu miðjuna
fyrir sig og náðu oft ágætis sóknum
en gekk illa að komast síðasta spöl-
inn að marki FH-inga, sem voru alls
ekki sannfærandi. Eftir hálftíma leik
gekk loks upp skemmtileg sókn
Leiknis upp vinstri kant og Kristinn
Gunnarsson renndi fyrir á Friðrik
Ellert Jónsson sem skoraði fyrir
Leikni, 1:0.
Það var allt annað að sjá til gest-
anna eftir hlé, þeir spiluðu mikið
meira og börðust en heimamenn
vörðust fimlega og lögðu alla áherslu
á vörnina. Á 47. mínútu lék Arnar
Viðarsson á markvörð Leiknis, Guð-
mund Þorvaldsson, en skot hans
hafnaði í hliðarnetinu og á 72. mín-
útu varði Guðmundur með tilþrifum
skalla frá Herði. Fjórum mínútum
síðar lék Arnar aftur á Guðmund
markvörð og renndi boltanum að
opnu markinu en Ásmundur Ólason
renndi sér glæsilega og náði að
hreinsa frá. Mark lá í loftinu og á
43. mínútu fór boltinn í hönd Leiknis-
manns inni í vítateig svo að ágætur
dómarinn, Pjetur Sigurðsson, dæmdi
vítaspyrnu sem Hörður skoraði úr
og bjargaði heiðri Hafnfirðinga.
„Við getum verið sáttir við fjögur
stig úr tveimur fyrstu leikjunum en
það var svekkjandi að missa þetta
niður í jafntefli í blálokin," sagði
Ingvar Jónsson, annar þjálfari Leikn-
is, eftir leikinn. „Við erum með lið
sem byggt er á ungum mönnum
uppöldum í félaginu og þeir þurfa
sinn tíma. Við ætlum okkur meira í
sumar en tökum hvern leik fyrir sig
og það má segja að hver leikur sé
eins og bikarleikur fyrir okkur.“
Leiknismenn voru sprækari og
hungraði meira í sigur til að byrja
með. Axel Ingvarsson var mjög góð-
ur í vörninni og Kjartan Hjálmars-
son, Steindór Elíson og Heiðar Óm-
arsson voru góðir.
FH-ingar voru lengi vel ekki með
á nótunum. Það tók þá fullan hálf-
leik að vakna til lífsins en þá mátti
oft sjá snarpar sóknir. Vörnin var
þung og sein að sjá en hélt þó sínu.
Lúðvík Arnarsson og Arnar Viðars-
son voru bestu menn liðsins.
BLAK
Fámennt lið
til Ítalíu
ÍSLENSKA karlalandsliðið í blaki
tekur þátt í 5. meistarakeppni smá-
þjóða í vikunni, leikur við San Marinó
á fimmtudaginn, Kýpur á föstudag
og Lúxemborg á laugardaginn. Mótið
fer fram í Corridonia á Ítalíu, en ítal-
ir halda mótið fyrir San Marinó. At-
hygli vekur þegar hópurinn er skoð-
aður að aðeins sjö leikmenn fóru ut-
an, en sex eru inná hveiju sinni, og
því aðeins einn varamaður. Landsliðið
hefur æft vel, en á síðustu stundu
forfölluðust fjórir leikmenn, tveir
meiddust, einn varð að taka upp próf
sem hann féll í og annar gat ekki
fengið sig lausan úr vinnu.
Auðveldur
sigur hjá
Þrótti
Morgunblaðið/RAX
KA-MENN höfðu góðar gætur á Þorblrni Atla Svelnssynl í gær og hér eru það Steingrímur
Blrglsson, til hægrl, og Jón Hrannar Elnarsson sem kljást við hann.
Framarar til
alls líklegir
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Framarar unnu sanngjarnan 2:0
sigur á KA þegar liðin mætt-
ust á Valbjarnarvelli í gærkvöldi
og virðast til alls lík-
legir í sumar. Fyrri
hálfleikur var íjör-
ugur og skemmti-
legur en í þeim síð-
ari fór að rigna og virtist það hafa
slæm áhrif á leikmenn beggja liða,
en þegar stytti upp um miðbik hálf-
leiksins birti yfir mönnum á ný. Það
birti samt ekkert yfir dómaranum
því hann var alls ekki nógu vel
upplagður og rak til dæmis Halldór
Kristinsson útaf á 75. mínútu fyrir
brot á Þorbirni Atla Sveinssyni,
brot sem varla verðskuldaði rautt
spjald.
Framarar voru sprækari frá upp-
hafi til enda og léku oft prýðilega
á milli sín. Fyrra markið gerðu þeir
á 24. mínútu. Steinar Guðgeirsson
komst framhjá varnarmanni KA
upp að endamökum hægra megin
og sendi fyrir markið. Boltinn fór
framhjá nokkrum mönnum utan
markteigsins og á móts við stöngina
fjær kom Anton Björn Markússon
og skaut föstu skoti í markið.
Þorbjörn Atli Sveinsson hafði
áður fengið gott færi og hann var
aftur á ferðinni skömmu eftir mark-
ið, en Eggert markvörður KA varði
skot hans vel. Kristinn R. Jónsson
átti síðasta orðið í fyrri hálfleik,
gott skot frá vítateig en Eggert
varði mjög vel.
Þorleifur Arason, sextán ára
KA-maður, kom inná snemma í síð-
ari hálfleiknum og var mjög spræk-
ur. Hann fékk ágætis færi á 68.
mínútu en Ólafur markvörður sá
við honum og varði vel. Halldór
fékk síðan að líta rauða spjaldið
þegar 15 mínútur voru eftir og léku
gestirnir því einum færri. Það virt-
ist ekki koma að sök fyrr en í lokin
þegar þreytan var farin að segja
til sín. Það nýttu Framarar sér,
Valur Fannar komst innfyrir vörn
KA hægra megin og lagði boltan
snyrtilega yfir Eggert sem kom út
á móti.
Anton Björn og Þorbjörn Atli
voru hættulegir frammi, Steinar
sterkur á hægri vængnum, sérstak-
lega í fyrri hálfleiknum og Kristinn
var sterkur á meðan hans naut við.
Þorvaldur vann vel á miðjunni og
Jón Sveinsson var traustur sem
aftasti maður með Ásgeir sér við
hlið. Varamannabekkur Fram er
einnig sterkur og greinilegt að ekki
er hörgull á góðum leikmönnum í
Safamýrinni.
Hjá KA var Eggert góður í mark-
inu og verður ekki sakaður um
mörkin. Steingrímur er alltaf yfír-
vegaður og klókur, Gauti Laxdal
virkaði mun léttari og frískari en
oft áður og Þorvaldur Makan er
duglegur frammi. Bjarni Jónsson
ætlaði að vera í byijunarliðinu en
hætti við á síðustu stundu.
Guöni Rúnar
með þrennu
Guðni Rúnar Helgason skoraði
þijú mörk _þegar Völsungur
vann stórsigur á IR-ingum á Húsa-
vík í gærkvöldi, 4:0. Völsungur
fékk óskabytjun er Guðni Rúnar
skoraði eftir aðeins fimm mín. -
komst einn inn fyrir vörn ÍR-inga
eftir stungusendingu Róberts
Skarphéðinssonar. Hjörtur Hjart-
arson bætti siðan marki við áður
en Guðni Rúnar skoraði úr víta-
spyrnu og hann innsiglaði sigurinn
rétt fyrir leikslok með góðu skoti
frá vítateig, knötturinn hafnaði á
þverslánni og þeyttist þaðan í net-
ið.
Leikurinn var jafn til að byija
með, síðan tóku heimamenn öll
völd. IR-ingar hafa stórtapað
fyrstu tveimur leikjum sínum, þar
sem þeir máttu þola tap, 0:5, fyrir
Skallagrími í Borgarnesi.
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar frá
Akureyri
olnbogaskot.
Þórsarar tóku á móti Þrótti í
fyrsta heimaleik sínum á
ósléttum Þórsvellinum í suðaustan-
stinningskalda. Það
var einhver gustur í
leikmönnum líka og
töluvert um Ijót
brot, stympingar og
Dómaraþrenningin
aðhafðist lítið í þeim málum og Jón
Siguijónsson lyfti gula spjaldinu
aðeins þrisvar á loft. Knattspyrnan
var ekki fögur og flest mörkin ódýr
en Þróttur vann auðveldlega 4:2.
Sigur Þróttar var auðveldur að
því leyti að liðið gat skorað mörk
án mikillar fyrirhafnar því vörn
Þórs var úti á þekju. Eitt af mörkun-
um sex kom i fyrri hálfleik, Willum
Þór stýrði boltanum í netið eftir að
knötturinn rataði fram hjá varnar-
mönnum Þórs úr hornspyrnu.
Heimamenn sóttu á móti vindi og
náðu þokkalegri rispu um miðjan
hálfleikinn en Páll Einarsson Þrótt-
ari átti tvö hættulegustu færin und-
ir lok hálfleiksins.
Vind lægði til muna í seinni hálf-
leik og þá komu mörkin á færi-
bandi. Þróttur komst í 2:0 þegar
Einar Örn Birgisson nánast hljóp
með boltann í markið eftir skelfileg
varnarmistök. Heimamenn skutust
inn í leikinn með marki Davíðs
Garðarssonar af stuttu færi á 71.
mín. en Óskar Óskarsson svaraði
strax á 72. mín. með einföldu marki
eftir sendingu Sigfúsar Kárasonar.
Óskar var þá nýkominn inn á sem
varamaður. Enn var Þórsvörnin í
molum. Nokkur spenna hljóp í leik-
inn á 77. mín. þegar Davíð Garðars-
son skallaði í mark Þróttar og stað-
an 3:2. Skömmu síðar fékk Árni
Þór Árnason sendingu inn fyrir
vörn Þróttar en þrumaði yfir. Það
var síðan Árni Sveinn Pálsson sem
gulltryggði sigur Þróttar með fal-
legu marki úr aukaspyrnu undir lok
leiksins.
Sigur Þróttar var sanngjarn.
Sóknir liðsins voru snarpar á köfl-
um og sérstaklega gekk varnar-
mönnum Þórs illa að ráða við Einar
Birgisson. Heimamenn voru óör-
uggir í vöm og bitlausir í sókn og
helst miðjumaðurinn Davíð Garð-
arsson sem skapaði usla. Um þátt
dómarans verður ekki fjölyrt frekar
hér en leikmenn beggja liða mættu
líka líta í eigin barm.
Makedónía tap-
aði fyir Búlgaríu
MAKEDÓNÍA, sem mætir ís-
landi á Laugardals vellinuin á
laugardaginn, tapaði vináttu-
leik fyrir Búlgaríu í gær, 0:3.
Emil Kostadinov (15. mín.)
Hristo Stoichkov (67.) og Ivo
Georgiev (77.) skoruðu mðrk
Búlgaríu. Aðeins 980 áhorf-
endur sáu leikinn, sem fór
fram í Sofíu.
Atli velur sex nýliða
Atli Eðvaldsson þjálfari ís-
lenska ungmennalandsliðsins
skipað leikmönnum 21 árs og
yngri hefur valið 16 manna hóp
vegna fyrsta landsleiksins í riðla-
keppni Evrópumeistaramótsins
sem verður gegn Makedóníu á
Kaplakrikavelli á laugardaginn
klukkan 14. Þetta er í fyrsta skipti
sem 21 árs liðið leikur sama dag
og A-liðið, en sem kunnugt er
mætast þessar sömu þjóðir í und-
ankeppni HM á Laugardalsvelli
síðar á laugardaginn. Hópurinn
er þannig skipaður:
Markverðir:
Atli Knútsson, Leiftri
Árni Gautur Árason, ÍA
Aðrir leikmenn:
Sigurvin Ólafsson, Stuttgart
Brynjar Gunnarsson, KR
Jóhannes Harðarson, ÍA
Ólafur Stígsson, Fylki
Ólafur Bjarnason, Grindavík
Guðni Rúnar Helgason, Völsungi
Bjarnólfur Lárusson, IBV
Stefán Þórðarson, ÍÁ
Andri Sigþórsson, Bayern
Munchen
Þorbjörn Atli Sveinsson, Fram
Valur Fannar Gíslason, Fram
Bjarki Stefánsson, Val
Bjarni Guðjónsson, ÍA
Arnar Viðarsson, FH
Andri, Þorbjörn, Valur, Bjarki,
Bjarni og Arnar hafa ekki leikið
áður með liðinu^ þeir Jóhannes,
Ólafur Stígsson, Ólafur Bjarnason,
Guðni Rúnar, Bjarnólfur og Stefán
hafa aðeins leikið einn leik, Sigur-
vin sjö, Brynjar þrjá og markverð-
irnir sex leiki hvor, þannig liðið
er ekki reynslumikið. Auk leiksins
við Makedóníu leikur íslenska liðið
æfingaleik gegn ÍA á Akranesi
sama dag og íslenska A-liðið leik-
ur þar gegn Kýpurbúum.