Morgunblaðið - 29.05.1996, Side 4
4 D MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
GOLF
Vill fleiri
velli
Eg vona að þessi sigur minn
verði til að styðja við bakið á
golfíþróttinni í heimalandi mínu
og hvetji yfirvöld til að byggja
fleiri velli fyrir ungt fólk og þá
sem ekki hafa mikið fé á milli
handanna,“ sagði Constantino
Rocca eftir sigurinn um helgina.
Golf er ekki mikið stundað af al-
menningi í heimalandi hans Ítalíu,
vellir eru fáir og gjald sem tekið
er af iðkendum er hátt.
Birgir Leifur á þremur
undir pari á St. Andrews
BIRGIR Leifur Hafþórsson, úr
golfklúbbnum Leyni á Akranesi,
lék best þeirra fjögurra íslend-
inga sem tóku þátt í St. Andrews
golfmótinu í Skotlandi um helg-
ina, en hann og Björgvin Sigur-
bergsson úr Keili í Hafnarfirði
komust báðir áfram eftir fyrri
daginn, en þá var keppendum
fækkað í fimmtíu. Leiknar voru
36 holur á laugardag og 36 á
gamla vellinum á sunnudag.
Birgir Leifur og Björgvin léku
fyrri 18 á laugardaginn á nýja
vellinum og þá var Björgvin á
71 höggi en Birgir Leifur á 76.
Síðdegis léku þeir á gamla vell-
inum og þá fór Birgir Leifur á
69 höggum, þremur undir pari,
en Björgvin lék á 76 höggum.
Síðari daginn lék Birgir Leifur
á 78 höggum og 77 og lenti í
34. sæti en Björgvin á 82 og 78
og varð í 46. sæti.
Sigurpáll Sveinsson, úr Golf-
klúbbi Akureyrar, lék gamla
völlinn á 77 höggum og þann
nýja á 76 og Kristinn G. Bjarna-
son, Leyni, lék þann gamla á 78
höggum og þann nýja á 77. Þeir
tveir komust ekki áfram til að
keppa síðari daginn.
HjaKi og Þór-
dís unnu fyrsta
stigamótið
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar
HAIMNES Eyvindsson óskar félaga sínum úr GR, Hjalta Pálma-
syni, til hamingju með sigurinn í karlaflokki á fyrsta stiga-
móti sumarsins til landsliðs í Vestmannaeyjum um helgina.
HJALTI Pálmason, GR, og Þór-
dís Geirsdóttir, GK, sigruðu í
meistaraflokki karla og kvenna
á fyrsta stigamóti GSÍ, Flug-
leiðamótinu, sem haldið var í
Vestmannaeyjum um helgina.
28 kylfingar mættu í meistara-
flokki karla og aðeins þrjár
konur. í opnum flokki voru 43
karlar og átta konur.
Þrátt fyrir fámennið í stigakeppni
kvenna kom það ekki í veg
fyrir spennandi keppni. Eftir fyrri
■■■■■ daginn hafði Her-
Sigfús Gunnar borg Amarsdóttir,
Guðmundsson GR, eins höggs for-
skrifarfrá skot £ Þórdísi Geirs-
Eyium dóttur og það var
ekki fyrr en á 18. og síðustu holu
seinni daginn sem Þórdísi tókst að
vinna upp höggið. Þær urðu því jafn-
ar og þurftu að leika bráðabana. Á
fyrstu braut í bráðabana slógu þær
nánast eins alla brautina og komu
kúlunni báðar niður í fimm höggum.
Leiðin lá næst á 2. braut, sem er
par þrír. Þær voru innan við metra
hvor frá annarri eftir upphafshöggið,
rétt utan grínsins. Þórdís var sterk-
ari og kom kúlunni niður á þremur
höggum, eða pari, og stóð hún því
uppi sem sigurvegari.
Skuldaði eitt högg eftir fyrrí
daginn og vann það upp
„Þetta gekk vel hjá mér. Ég er
búin að vera að spila gott golf und-
anfarið og er ánægð með skorið
héma. Ég skuldaði eitt högg eftir
fyrri daginn og vann það ekki upp
fyrr en 1 síðustu holunni," sagði
Þórdís Geirsdóttir eftir sigurinn.
„Það er hálf leiðinlegt að útkljá þetta
í bráðabana, en svona er íþróttin.
Völlurinn er góður hér í Eyjum og
það var eins og við værum að spila
í ágúst, en það er víst bara maí enn.
Það er nauðsynlegt að koma hér
minnst einu sinni til Eyja á ári og
spila. Annars mætti þátttakan í
þessu móti vera betri. Það komu allt
of fáir. Hvers vegna veit ég ekki,
líklega áhugaleysi."
Spenna í kariafiokki
Keppnin hjá körlunum var einnig
spennandi því eftir fyrri daginn voru
menn mjög jafnir og ómögulegt að
spá um úrslit. Tryggvi Pétursson,
GR, lék þó manna best fyrri daginn,
kom inn á 73 höggum, eða þremur
yfír pari. Síðan komu Hjalti Pálsson
og Hannes Eyvindsson einu höggi á
eftir. Það voru því þessir þrír sem
lögðu af stað í síðasta holli seinni
daginn. Baráttan var mikil, sérstak-
lega milli Tryggva og Hjalta, sem
tókst fljótlega að vinna upp höggið
af Tryggva. Það var síðan á 16. braut
sem leiðir skildi. Tryggva gekk afleit-
lega á þeirri braut en Hjalti spilaði
af miklu öryggi, hélt ró sinni og kom
Morgunblaðið/SGG
ÞÓRDÍS Geirsdóttir sigraði
í kvennaflokki eftir umspil
vlö Herborgu Arnarsdóttur.
inn á besta skorinu seinni daginn,
72 höggum, og það nægði honum
til sigurs. Sigurður Hafsteinsson,
GR, skaust upp í annað sætið, lék
síðari daginn á 73 höggum en þann
fyrri á 75. Tryggvi varð þriðji á 73
og 76 höggum.
Gekk framar vonum
„Þetta gekk framar vonum. Ég
er nýskriðinn úr skóianum og hef
því lítið æft undanfarið," sagði Hjalti
Pálmason, sigurvegari í meistara-
flokki karla. „Það er mikill bónus að
vinna þetta mót. Púttin gengu mjög
ÍTALINN Costantino Rocca
fagnaði sigri á breska atvinnu-
mannameistaramótinu (PGA) í
golfi í Wentworth á mánudag.
Rocca lék á 69 höggum, þrem-
ur undir pari, síðasta hringinn,
náði fugli (einu undir) á tveimur
síðustu holunum og lauk
keppni með tveimur höggum
færra en Bretinn snjalli Nick
Faldo, sem sigraði f bandarísku
meistarakeppninni, US Mast-
ers í apríl.
Rocca var í sviðsljósinu á opna
breska meistaramótinu í fyrra
er hann tryggði sér bráðabana um
fyrsta sætið með því að pútta í
holuna af löngu færi á síðustu holu
- en tapaði reyndar í umspilinu
fyrir John Daly. Nú brást hann hins
vel og ég náði góðum hraða á þau.
Ég slapp við þrípútt á öllum 36 holun-
um,“ sagði hann. „Það er alltaf gam-
an að koma hingað til Eyja og spila.
Ég ólst hérna upp á fyrstu níu holun-
um og þekki þær því vel. En hinar
seinni níu þekki ég ekkert betur en
aðrir. Þessi völlur er orðinn einn af
betri völlum landsins. Hann er mjög
kreijandi. Þetta var ágæt upphitun
fyrir væntanlegt landsmót hér í Eyj-
um í sumar. Stefnan verður sett á
fyrsta sætið á landsmótinu en það
verður að koma í ljós hvernig það
gengur. Það eru margir góðir sem
vegar ekki og sigurinn er sá fyrsti
síðan hann vann opna franska
meistaramótið 1993.
„Þessi sigur er engin sárabót
fyrir opna breska í fyrra en mjög
mikilvægur fyrir mig,“ sagði Rocca.
„Þetta er í raun stórkostlegt. Ég
get ekki lýst því hvernig mér líð-
ur.“ Fréttamenn spurðu Rocca
hvernig honúm þætti að sigra
Faldo, og hann svaraði: „Faldo
sagði einhvern tíma í blaðaviðtali á
Italíu að ef hann þyrfti einvern tíma
að lúta í lægra haldi á stórmóti
vildi hann gjarna að það yrði fyrir
mér. Ég hugsaði um þetta í dag,“
sagði Italinn. Rocca og Mark
McNulty frá Zimbabwe voru efstir
fyrir síðasta dag en Faldo var þrem-
ur höggum á eftir. Hann var ekki
langt undan á lokasprettinum en
koma til með að berjast um þann
sig_ur.“
í opnu flokkunum urðu Eyjamenn
sigursælir. Hjá körlunum var það
ungur og efnilegur kylfingur, Örlyg-
ur Helgi Grímsson, sem sigraði með
og án forgjafar. Hann lék á 73 og
83 höggum, eða 156 höggum og 138
höggum nettó. Hann lék sérstaklega
vel fyrri daginn. Hjá konunum var
það Jakobína Guðlaugsdóttir, GV,
sem sigraði einnig með og án forgjaf-
ar með nokkrum yfirburðum. Hún
lék á 89 og 89 höggum eða samtals
178 höggum og 142 höggum nettó.
náði hvorki fugli á síðustu holu né
þeirri næst síðustu og varð því að
gera sér annað sætið að góðu ásamt
landa sínum Paul Lawrie.
Rocca fékk 167.000 pund fyrir
sigurinn, en það jafngildir tæpum
17 milljónum króna. Hann er þar
með kominn í annað sæti á peninga-
listanum á evrópsku mótaröðinni í
ár. Ian Woosnam hefur þénað mest,
255.436 pund - 26 milljónir tæpar,
en hann náði einungis ellefta sæti
á mótinu í Wentworth um helgina.
Woosnam tryggði sér þar með þátt-
tökurétt í opna bandaríska meist-
aramótinu í Oakland Hills í Detroit
13. til 16. júní. Hann sigraði á opna
bandaríska mótinu 1991 og fékk
því sjálkrafa keppnisrétt þar til í
fyrra. Til að fá að vera með nú
varð hann að standa sig.
Rocca fagnaði sigri á
PGA-mótinu í Wentworth
Jóhannes
sigraði í
Englandi
JÓHANNES B. Jóhannesson
sigraði á Opna Loughbaurugh
snókermótinu _ í Englandi um
helgina, en íslendingar hafa
tekið þátt í þessu móti mörg
undanfarin ár. Nokkrir at-
vinnumenn taka jafnan þátt í
mótinu og svo var einnig nú.
Jóhannes sigraði Englend-
inginn Alan Hikcs 3:0 í fyrstu
umferð og lék mjög vel, fékk
meðal annars 124 í einu stuði
í fyrsta leik, 87 í þeim næsta
og 67 í þeim þriðja. í annam
umferð vann hann Jónas Þóri
Jónasson 3:2 og atvinnumann-
inn Steve Shepard frá Englandi
í þriðju umferð. Englendingur-
inn komst í 3:0 en þá hrökk
Jóhannes í gang, gerði 88 í
fjórða leik og vann næstu þrjá,
4:3, og hann var kominn í úr-
slit. Þar sigraði hann Steve
Aldershot frá Englandi 5:4 eft-
ir að hafa verið 2:4 undir. „Ég
spilaði mjög vel og er auðvitað
harðánægður með sigurinn,“
sagði Jóhannes í samtali við
Morgunblaðið á mánudags-
kvöldið. Jóhannes mun fá ein-
hver peningaverðlaun fyrir sig-
urinn, en verðlaunaafhendingin
verður á föstudaginn kemur.
Bjöm Hallgrímsson keppti
einnig á mótinu, tapaði í fyrstu
umferð, og tók þátt í keppni
þeirra sem duttu út í fyrstu
umferðinni og sigraði þar.
Gerpla í 7.
sæti á EM
FIMLEIKAFÉLAGIÐ Gerpla
varð í sjöunda sæti af 16 liðum
á Evrópumótinu í trompfimleik-
um kvenna sem lauk í Finn-
landi um helgina. Stúlkurnar
úr Gerplu hlutu 24,70 stig og
voru valdar til að sýna dansinn
á lokasýningunni á mánudag.
Indónesar
sigursælir
INDÓNESÍA sigraði bæði í
karla- og kvennaflokki (Thom-
as Cup og Uber Cup) í heims-
meistarakeppni landsliða um
helgina. I kvennakeppninni
sigraði Indónesía lið Kína 4:1.
Þetta er í sjötta sinn sem Indó-
nesía sigrar í kvennaflokki og
er það met. Indónesía sigraði
Kína einnig í úrslitaleik fyrir
tveimur árum, 3:2.
Karlalið Indónesíu sigraði
Dani í úrslitum, 5:0, og var
þetta tíundi sigur Indónesa.
Joko Suprianto vann Poul-Erik
Hoyer-Larsen 18-14 og 15-8,
Ricky Subagdja og Rexy Main-
aky unnu Jon Holst-Christens-
en og Jim Laugesen 15-5 og
16-7, Heryanto Arbi vann
Thomas Stuer-Lauridsen 15-8
og 15-8, Rudy Gunawan og
Bambang Suprianto unnu Hen-
rik Svarrer og Michael Sogaard
15-7, 14-18, 15-9 og Allan
Budi Kusuma vann Peter Ras-
mussen 15-9 og 15-6.
„Við höfum æft sérsaklega
fyrir þessa keppni síðan í febr-
úar og við lékum af 90 prósent
styrk,“ sagði Lutfí Hamid,
þjálfari Indónesa, eftir sigur-
inn. „Á Ólympíuieikunum í Atl-
anta munum við leika af 100
prósent getu. Það er dásamlegt
að vinna heimsmeistaratitilinn
og eftir nokkurra daga hvíld
munum við hefja lokaundirbún-
inginn fyrir Ólympíuleikana."