Morgunblaðið - 29.05.1996, Qupperneq 7
JLl MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ 1 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1996 D 7
KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA
Þjálfarasonurinn hélt uppteknum hætti er Akurnesingar burstuðu Keflvíkinga og KR-ingar sigruðu Leiftursmenn verðskuldað í Frostaskjólinu
Guðmundur var
hetja KR-inga í
fyrsta sigrinum
GUÐMUNDUR Benediktsson
var hetja KR-inga er þeirtóku
á móti Leiftri í Frostaskjólinu á
mánudaginn. Hann skoraði
bæði mörk Vesturbæjariiðsins
i verðskulduðum 2:1 sigri, auk
þess sem hann skaut varnar-
mönnum Leifturs nokkru sinn-
um skelk í bringu með færni
sinni er hann lagði upp færi
fyrir samherja sína. Leifturs-
menn náðu ekki að fylgja eftir
sigrinum á ÍBV ífyrstu umferð
og verða að sýna meiri djörf-
ung í sóknarleiknum í næstu
umferð er þeir taka á móti ís-
landsmeisturunum ífyrsta hei-
maleik sínum.
Leikmenn KR voru mun skæðari
í upphafi leiksins og áttu nokk-
ur þokkaleg færi til að komast yfir
ívar
Benediktsson
skrifar
áður en Guðmundur
skoraði fyrra mark
sitt á 18. mínútu.
Leiftursmenn !éku
4-5-1 gegn 4-4-2
uppstillingu KR. Pjðrir leikmenn KR
á miðjunni höfðu oftast nær í fullu
tré gegn fimm kollegum sínum að
norðan og ein skýringin getur verið
sú að leikmenn Leifturs virtust oft
hafa meiri áhyggjur af vamarleikn-
um en sóknarleiknum í stað þess að
herja hressilega á öftustu vörn KR
sem lék sér oft að eldinum með því
að senda hæpnar sendingar slag ofan
í slag aftur á Kristján Finnbogason
markvörð.
Júlíus í
aðgerð
JÚLÍUS Tryggvason, leikmaður
Leifturs, fór í gær í uppskurð þar
sem laga átti brotið kinnbein.
Brotið hlaut hann eftir samstuð
við félaga sinn, Daða Dervic, í
fyrstu umferð gegn ÍBV. Þrátt
fyrir brotið lék Júlíus leikinn
þann til enda og ennfremur lék
hann allan leikinn gegn KR í
fyrradag. í hvorugum leiknum
var hann með hlífðarbúnað fyrir
andlitinu. Að sögn Óskars Ingi-
mundarsonar var þetta Iítil að-
gerð sem Júlíus gekkst undir og
bjóst hann við að Júlíus yrði með
í næsta leik gegn IA laugardaginn
8. júní, en það verður fyrsti
heimaleikur Leifturs í sumar.
Kristófer
ekki sést
„KRISTÓFER hefur ekki komið
á æfingu upp á síðkastið og ég
hef reynt að tala við hann en án
árangurs," sagði Lúkas Kostic,
þjálfari KR, í samtali við Morg-
unblaðið eftir leikinn gegn
Leiftri. Athygli hefur vakið að
Kristófer Sigurgeirsson sem
skipti úr Breiðabliki í KR fyrir.
þessa leiktíð hefur ekki verið í
leikmannahópi KR það sem af er.
„Hvað Kristófer gerir veit ég
ekki en það er á hreinu að hann
fer ekki frá KR í sumar. Hann
gerði eins árs samning við félagið
og við ætlum ekki að leysa hann
undan honum,“ bætti Lúkas við.
KR-ingar voru sterkari en fátt var
um færi þar til fór að halla á leikhlut-
ann. Asmundur Haraldsson átti
skalla jrfir á 35. mínútu og mínútu
síðar varði Kristján vel hinumegin
vallarins bakfallsspyrnu frá Sverri
Sverrissyni eftir langt innkast. Áður
en flautað var til leikhlés átti hvort
lið eitt gott færi og voru það sömu
ieikmennirnir og áður sem stóðu í
stórræðunum.
Dauft var yfir upphafi síðari hálf-
ieiks og fátt um færi allt þar til á
10. mínútu að Guðmundur átti skalla
í átt að marki Leifturs en bjargað
var í horn. Upp úr hornspyrnunni frá
hægri barst knötturinn yfir á mark-
teigshornið vinstramegin þar sem
Guðmundur spyrnti aftur fyrir sig
beint á kollinn á Ólafi Kristjánssyni
sem staddur var á markteig hægra
megin. Ólafur skallaði í átt að marki
en Pétur Björn Jónsson varði greini-
lega með hendi, en ekkert var dæmt.
KR-ingar héldu áfram að sækja og
gestunum gekk erfiðlega að byggja
upp sóknir. En eftir að KR-ingar
voru komnir tveimur mörkum yfir á
þá skipti Óskar Ingimundarson þjálf-
ari Leifturs Baldri Bragasyni inn
fyrir Pál Guðmundsson. Um leið fóru
norðanmenn að leika meira 4-3-3 og
það hreif því aukinn þungi færðist í
sóknina sem skilaði marki skömmu
síðar. „Við urðum að breyta leik
okkar eftir að KR hafði skoraði ann-
að mark sitt á vægast sagt vafasöm-
um forsendum," sagði Óskar þjálfari
Leifturs að ieik loknum. „Okkur tókst
að gera eitt mark og með smá heppni
IB^^Sigurður Örn Jóns-
■ \JFson tók innkast á 19.
mínútu hægra megin á vallar-
helmingi Leifturs og fljótlega
barst boltinn til Hilmars Björns-
sonar sem lék stutta leið og
sendi síðan rakleitt inn á miðjan
vítateiginn þar sem Guðmund-
ur Benediktsson var einn á
ferð og hann skallaði af krafti
efst í markhornið hægra megin,
óveijandi fyrir Þorvald Jónsson.
■ #|Á 69. mínútu brýtur
■ %#Sigurður örn Jóns-
son sókn Leifturs á bak aftur á
miðjum eigin vallarhelmingi og
án hiks sendir hann knöttinn
rakleitt fram á völlinn inn fyrir
vöm Leifturs þar sem Guð-
mundur Benediktsson tók við
honum. Guðmundur var greini-
lega rangstæður, en engin at-
hugasemd var gerð og hann
hélt því sínu striki með knöttinn
upp að marki Leifturs. Er hann
var kominn rétt inn fyrir víta-
teig skaut hann föstu skoti með
hægri fæti sem rataði í vinstri
hluta marksins.
2« 4 Pétur Bjöm Jónsson
■ I sótti upp hægri kant-
inn á 83. mínútu rétt við víta-
teigshornið. Hann sendi stutta
sendingu á Baldur Bragason
sem ætlaði að senda f þríhyrning
aftur á Pétur en Brynjar Gunn-
arsson, varnarmaður KR, komst
inn í sendinguna og hugðist
hreinsa frá en skot hans var
máttlaust og fór beint fyrir fæt-
ur Rastislavs Lazoriks sem var
ekki seinn að kveikja á perunni
og skaut föstu skoti með hægri
fæti í vinstra markhomið án
þess að Kristján Finnbogason
kæmi við vörnum í marki KR.
hefðum við átt að bæta við, en það
tókst ekki. Við komum fullir sjálfs-
trausts til leiks ákveðnir í að taka
stig því þetta eru áþekk lið,“ bætti
Óskar við. En honum varð ekki að
ósk sinni þrátt fyrir nokkur þokkaleg
færi á lokakaflanum.
„Þó að þeir hafí komið af krafti
inn í leikinn undir lokin er enginn
vafi á að við verðskulduðum sigur-
inn,“ sagði brosmildur Lúkas Kostic
þjálfari KR eftir að fyrsti heimasig-
urinn á leiktíðinni var í höfn. „Okkur
vantar meira jafnvægi í liðið þar sem
ekki hefur verið möguleiki á að stilla
upp bestu leikmönnum í hvern leik
vegna meiðsla. Ég vonast til þess
að mér takist að koma meira jafn-
vægi á fyrir leik okkar í þriðju um-
ferð en þangað til eru tólf dagar,“
sagði Lúkas ennfremur.
ÍHémR
FOLK
■ STURLAUGUR Haraldsson lék
ekki með Skagamönnum á móti
Keflvíklngum en hann fékk högg á
læri í leiknum við Stjörnuna og verð-
ur að taka því rólega í viku til viðbót-
ar.
■ STEINAR Adolfsson lék fyrsta
deildarleik sinn fyrir ÍA en hann tók
út leikbann í 1. umferð.
■ ZORAN Mtykovic lék ekki með
ÍA í fyrradag, þar sem hann var í
banni vegna brottreksturs gegn
Stjörnunni í 1. umferð.
■ STJÖRNUVÖLL URINN var
sérlega giæsilegur á mánudaginn,
fagurgrænn og sléttur auk þess sem
hann var fastur í sér. Garðbæingar
hafa líka hugsað vel um hann og
breytingarnar á síðustu tveimur
árum eru ótrúlegar. Frá því í fyrra-
haust eru heimamenn búnir að setja
um 400 kíló af golfvallarfræi á völl-
inn, enda er hann eins og teppi.
■ KRISTINN Lárusson reif liðþðfa
í leiknum gegn IA í fyrstu umferð-
inni á fimmtudaginn var, en hann
var samt mættur til leiks á mánudag-
inn.
■ HEIMIR Hallgrímsson, vinstri
bakvörður Eyjamanna, var í leik-
banni á móti Val. Rútur Snorrason,
sem var líklegastur tii að leysa hann
af, veiktist fyrir leikinn og var ekki
með. Magnús Sigurðsson tók því
stöðu vinstri bakvarðar.
■ KRISTINN Hafliðason lék
fyrsta leik sinn fyrir IBV í 1. deild
gegn Val. Hann kom inn á sem vara-
maður fyrir Tryggva Guðmundsson
á 67. mínútu.
■ BLIKAR gerðu tvær breytingar
á vörninni á móti Grindavík frá því
í fyrstu umferð gegn Fylki. Hreiðar
Bjarnason og Sævar Pétursson
tóku stöðu miðvarða í stað Guð-
mundar Arnar Guðmundssonar og
Theódórs Hervarssonar.
■ GUÐMUNDUR Torfason, þjálf-
ari Grindvíkinga, skipti sjálfum sér
inn á þegar fimm mínútur voru eftir
af Ieiknum gegn Breiðabliki.
■ ÓSKAR Hrafn Þorvaldsson hef-
ur ekkert leikið með KR það sem
af er íslandsmótinu og að sögn Lúk-
asar Kostic, þjálfara liðsins, er ekki
reiknað með að hann leiki með með
fyrr en í fjórðu umferð. Það er lið-
þófí í hægra hné sem er skaddaður
hjá Óskari.
GUÐMUNDUR Benediktsson lék sérlega vel með KR gegn Lelftri og gerði tvö mörk. Hér er hann í baráttu um knöttlnn við Júlíus Tryggvason, fyrrum samherja s'inn'hl'á'Þór
á Akureyri, sem lék kinnbeinsbrotinn eins og gegn ÍBV. Júlíus fór i aðgerð í gær og verður tllbúinn strax í næsta leik Leiftursmanna.
Lerfur Geir
tryggði ÍBV
fyrstu stigin
ÍBV sigraði Val 1:0 íVest-
mannaeyjum þar sem vindur-
inn setti nokkuð mark sitt á
leikinn. Leifur Geir Hafsteins-
son gerði sigurmarkið í upp-
hafi síðari hálfleiks og tryggði
þar með fyrstu stig Eyjamanna
á þessari leiktfð. Sigurinn var
öruggari en tölurnar gefa til
kynna.
Eg er ánægður með Ieikinn, sagði
Atli Eðvaldsson, þjálfari ÍBV.
„Þetta var nokkuð taugastrekkjandi
Þar sem mikil pressa
Sigfús G. var a okkur að vinna
Guðmundsson þennan leik. Ég tel
skrifarfrá okkur hafa átt sig-
Eyjum urinn fyllilega skil-
inn. Við fengum fimm til sex dauða-
færi en Valsmenn varla eitt ein-
asta.“
Valsmenn byijuðu leikinn undan
vaxandi vindi og fengu fyrsta fær-
ið. Arnljótur Davíðsson komst í
gott marktækifæri en skaut naum-
lega framhjá. Þetta var reyndar
eina umtalsverða marktækifæri
Valsmanna í öllum leiknum. Vals-
menn reyndu allt of mikið háar
sendingar undan vindinum sem þeir
réðu illa við. Hættulegasta færi
heimamanna í fyrri hálfleiknum,
sem var ekki Ijörugur, átti Stein-
grímur Jóhannesson en skot hans
fór framhjá.
Eyjamenn náðu sér betur á strik
undan vindinum í síðari hálfleik.
Þeir pressuðu fljótt verulega og
uppskáru gott mark þegar Leifur
Geir Hafsteinsson skallaði boltann
í netið. Það sem eftir lifði leiks
fengu Eyjamenn fjölmörg færi en
Lárus Sigurðsson í marki Vals átti
mjög góðan leik og bjargaði því sem
bjargað varð. Hann ásamt Jóni
Grétari Jónssyni átti bestan leik
fyrir Val. Hjá ÍBV börðust menn
betur en í leiknum gegn Leiftri og
uppskáru eftir því. Liðið lék sem
ein heild.
1«f\Eftir nokkuð þunga
■ %#sókn Eyjamanna
fékk Tryggvi Guðmundsson
boltann á hægri kantinum á 51.
mínútu. Hann sendi boltann inn
á miðjan vítateig Vals og þar
var Leifur Geir Hafsteinsson
sterkastur í teignum og skallaði
boltann neðst í vinstra mark-
hornið. Óveijandi fyrir annars
góðan markvörð, Lárus Sigurðs-
son.
Þrennur gegn
Keflvíkingum
BJARNI Guðjónsson er fimmti
Skagamaðurinn sem hefur skor-
að þijú mörk í leik gegn Keflvík-
ingum á Akranesi í 1. deildar-
keppninni. Ríkharður Jónsson
varð fyrstur til þess, skoraði þrjú
mörk í stórsigri, 9:0,1959. Matth-
ías Hallgrimsson vann það afrek
1971 og annar mikill markaskor-
ari, Pétur Pétursson, skoraði
þrjú mörk gegn Keflavík 1977.
Arnar Gunnlaugsson skoraði
þijú mörk í fyrra, þegar Skaga-
menn unnu 8:2.
Þrítugasta
mark Leifs
Geirs
LEIFUR Geir Hafsteinsson,
sóknarleikmaður Eyjaliðsins,
skoraði sitt þrítugasta mark í 1.
deildarkeppninni, er hann skor-
aði sigurmark IBV gegn Val, 1:0.
Leifur Geir hefur skorað 23
mörk fyrir ÍBV í deildinni og sjö
mörk fgyrir Stjörnuna.
Bjami með fyrstu
þrennu sumarsins
Táningurinn hefurgertfimm mörk í tveimur leikjum
Eiríksson
skrifar
Bjarni Guðjónsson var í sviðsljós-
inu þegar íslandsmeistarar ÍA
unnu Keflvíkinga 5:0 á Akranes-
velli í fyrradag.
Bjarni, sem er að-
Sigþór e;ns j y ára, gerði
þtjú mörk og er það
fyrsta þrenna hans
í 1. deild og auk þess fyrsta þrenna
íslandsmótsins í ár, en táningurinn
gerði tvö mörk gegn Stjörnunni í
1. umferð.
Þaö besta undanfarið
„Frammistaða okkar í síðari hálf-
leik er tvímælalaust það besta sem
við höfum sýnt í undanförnum leikj-
um,“ sagði Ólafur Þórðarson, fyrir-
liði ÍA, við Morgunblaðið. „Þetta
er vonandi teikn um betri tíð. Við
höfum verið í erfiðum æfingum og
því verið frekar þungir í síðustu
leikjum en þetta virðist vera að
smella hjá okkur. Keflvíkingar
börðust vel í fyrri hálfleik en við
fengum tvö fyrstu mörkin á góðum
tíma og eftir það þurfti ekki að
spyija að leikslokum.“
Eftir að hafa náð stigi gegn KR
í fyrstu umferð komu Keflvíkingar
ákveðnir til leiks á Skaganum og
til að byija með áttu íslandsmeist-
ararnir í töluverðum vandræðum
með baráttuglaða mótheija. En
Skagamenn létu fljótlega til sín
taka og fyrsta færið kom á 18.
mínútu en Ólafur Þórðarson skall-
aði naumlega framhjá. Mínútu síðar
pijónuðu Bjarni og Mihajlo Bibercic
sig í gegnum vörn Keflvíkinga en
gestunum tókst að bjarga áður en
sá síðarnefndi náði skoti.
íslnn brotinn
Fjórum mínútum síðar braust
Ólafur af miklu harðfylgi í gegnum
vörn Keflvíkinga en nafni hans í
marki gestanna varði meistaralega
þrumuskot í horn. Upp úr horn-
spyrnunni skallaði Gunnlaugur
Jónsson beint niður og þaðan fór
hann yfir markið. Bjarni braut síðan
ísinn skömmu fyrir hlé en þrátt
fyrir ákveðni tókst Keflvíkingum
ekki að skapa sér marktækifæri í
hálfleiknum.
Keflvíkingar voru óheppnir að
jafna ekki í byijun seinni hálfleiks
þegar þeir fengu besta marktæki-
færi sitt í viðureigninni. Þá átti Óli
Þór góða sendingu yfir á Jón Þ.
Stefánsson en fyrir opnu marki
skaut hann framhjá. Þeim hefndist
fyrir þetta því fjórum mínútum síð-
ar kom Alexander Högnason
Skagamönnum í 2:0 með glæsilegu
marki. í kjölfarið komu tvö góð
mörk frá Bjarna og Bibercic átti
síðasta orðið.
1«f|A 44. mínútu kom falleg send-
■ \#ing frá Haraldi Ingólfssyni upp
vinstri kantinn á Bjarna Guðjónsson.
Hann stakk sér inn fyrir vörnina. Ólafur
Gottskálksson, markvörður, kom út á
móti en Bjarni var Öryggið uppmálað og
vippaði yfir Ólaf.
2«f\Á 52. mínútu braust Sigur-
■ \Jsteinn Gíslason upp vinstri
kantinn, sendi fyrir markið á Alexander
Högnason sem tók knöttinn viðstöðulaust
og skoraði með öflugu hægri fótar skoti
af stuttu færi.
3«^Ólafur Þórðarson gaf fyrir
■ \Jmarkið utan af hægri kantinum
á 63. mín., vamarmaður á markteignum
náði ekki knettinum en Bjarni Guðjóns-
son, sem var fyrir aftan hann, var fljótur
að átta sig og skallaði í markið.
4«#\Haraldur Ingólfsson sendi bolt-
■ \#ann frá miðjum eigin vallar-
helmingi og inn fyrir vöm Keflavíkur á
77. mínútu. Bjarni stakk vörnina af, Ólaf-
ur kom út á móti en þessi stórefnilegi leik-
maður renndi boltanum af öryggi frámbjá
honum og í netið.
S« #fcSkagamenn sóttu á 90. mínútu.
■ \MAðþrengdur af sóknarmönnum
Skagamanna sendi varnarmaður Keflvík-
inga boltann til Ólafs Gottskálkssonar,
sem greip knöttinn. Það þýddi óbeina
aukaspyrnu á markteig. Ólafur Þórðarson
rúllaði á Mihajlo Bibercic, sem þrumaði
boltanum upp í þaknetið.
Vamarbarátta í
rokinu í Grindavík
GRINDAVÍK og Breiðablik
gerðu markalaust jafntefli í af-
ar leiðinlegum rokleik í Grinda-
vík á mánudagskvöld. Liðin
fengu þar með fyrstu stig sín
ídeildinni á þessari leiktíð.
Sunnan hvassviðri var meðan
á leiknum stóð og gerði það
leikmönnum erfitt fyrir. Bæði
liðin lögðu áherslu á varnarleik.
Fyrri hálfleikur var tíðindalaus þar
sem hvorugu liðinu tókst að
skapa sér umtalsverð færi. Hálfleik-
urinn einkenndist af
1 baráttu á miðjunni
Valur B. ■ ., .. J. ,
Jónatansson °« elns sPllað'
skrifar urinn, sem stoð þvert
á völlinn, stórt hlut-
verk og leikmenn áttu í miklum erfíð-
leikum með að hemja knöttinn.
Síðari hálfleikur var aðeins skárri.
Leikmenn reyndu þá að spila boltan-
um meira með jörðinni i stað þess
að reyna háar spyrnur. Gunnar B.
Ólafsson, sem kom inn á sem vara-
maður hjá Blikum, fékk tvö ágæt
færi undir lokin. í fyrra skiptið hitti
hann ekki boltann í dauðafæri í víta-
teignum og síðan náði hann ekki að
stýra boltanum í netið við fjærstöng.
Fimm mínútum fyrir leikslok voru
heimamenn nálægt því að skora er
Páll Valur Björnsson slapp einn inn-
fyrir vörn Blika. Hann vippaði knett-
inum yfir Cardaklija markvörð og
rétt framhjá. Besta færi leiksins kom
á síðustu mínútu. Arnar Grétarsson
tók hornspyrnu frá vinstri á Kjartan
Einarsson sem kastaði sér aftur og
spyrnti knettinum að marki. Boltinn
stefndi efst í markhornið, en Albert
Sævarsson kom nánast fljúgandi og
sló knöttinn frá á síðustu stundu.
Frábær markvarsla.
Eins og áður segir var leikurinn
slakur og fátt sem gladdi augað. Ef
þessi lið leika með sama hugarfari í
sumar er ekkert nema fall sem blas-
ir við. Bæði liðin hugsuðu fyrst og
fremst um að veijast, sérstaklega í
fyrri hálfleik. Grindvíkingar, sem
voru aðeins með Ólaf Ingólfsson
frammi, náðu lítið að ógna marki
gestanna. Blikar settu meiri sóknar-
þunga í síðari hálfleik, þijá leikmenn
í fremstu víglínu í stað tveggja fyrir
hlé og þá batnaði leikur liðsins. Arn-
ar Grétarsson var færður inn á miðj-
una, en hann lék á vinstri kantinum
í fyrri hálfleik og nýttist illa í þeirri
stöðu.
„Þetta var slakur leikur, en ég _er
þó á því að við vorum sterkari. Ég
er ósáttur við leik liðsins. Það' var
erfitt fyrir okkur að fara í þennan
leik eftir það mikla andlega áfall sem
við urðum fyrir í fyrsta leiknum á
móti Fylki. Við vorum of fastir í
varnarhlutverkinu," sagði Sigurður
Halldórsson, þjálfari Blika.
„Rokið setti mark sitt á leikinn.
Það var erfitt að hemja boltann. Við
reyndum að beijast en knattspyman
var ekki áferðarfalleg. Við erum nú
komnir á blað, með eitt stig, og það
er byijunin. Það er gott frí framund-
an í deildinni og þá gefst tími til að
laga ýmislegt í leik okkar,“ sagði
Guðmundur Torfason, þjálfari Grind- ■
víkinga.