Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 12
Kristján fer til Noregs KRISTJÁN Halldórsson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik hefur ákveð- ið að framlengja ekki samning sinn við HSÍ um þjálfun landsliðsins. Þess í stað hefur hann tekið til- boði norska félagsins Lar- vik um að gerast aðalþjálf- ari kvennaliðs félagsins. Larvik lék til úrslita í Evr- ópukeppni félagsliða í vor, en beið lægri hlut fyrir ungversku félagi. Ríkarður setti ís- landsmet RIKARÐUR Ríkarðsson sundmaður úr Ægi setti um helgina íslandsmet í 50 metra flugsundi í 50 metra laug á alþjóðlegu sundmóti i Sheffield í Englandi. Synti hann á 25,75 sekúndum og bætti fyrra metið um tæpa sekúndu og varð fjórði í greininni en sigurvegari varð heimsmethafinn Mark Foster frá Bretlandi, synti á 25,04 sekúndum. Auk Ríkarðs tóku Hildur Ein- arsdóttir og Sigurgeir Hreggviðsson þátt í mótinu en voru nokkuð frá sínu besta. Ríkarður hefur þegar náð lágmarki fyrir þátt- töku á EM í sprettsundum sem fram fer í Rostock í Þýskalandi í nóvember. Stefnir á aðkasta yfir 100 metrana Tékkinn Jan Zelezny bætti heimsmet sitt í spjót- kasti um tæplega þrjá metra á móti í Jena í Þýska- landi um helgina. Hann kastaði 98,48 metra en fyrra metið var 95,66 m frá því í Sheffield í Englandi í ág- úst 1993. Þetta er í þriðja sinn sem tékkneski heims- og ólympíumeistarinn, sem er 29 ára, bætir heimsmet- ið sem hann setti fyrst 1987. Fyrir keppnina spurðist Zelezny fyrir um verðlaunaf- éð, um 450.000 krónur, fyrir að setja heimsmet og hætti þegar það var í höfn í þriðju tilraun. „Eg vissi hvað ég gæti og nú vil ég kasta yfir 100 metrana,“ sagði hann. Tilhugsunin um að hann nái því hræðir skipuleggj- endur fijálsíþróttamóta en þegar spjótið flaug vega- lengdina síðast fyrir 12 árum varð að breyta spjótinu svo hægt væri að keppa í greininni á flestum völlum með stærð þeirra og öryggi áhorfenda í huga. Metið vakti mikla athygli og eins tap breska ólympíu- meistarans Sally Gunnells í 400 metra grindahlaupi. Gunnell, sem var frá lengst af á liðnu ári vegna meiðsla, varð að sætta sig við þriðja sætið á 55,84 sekúndum en Silvia Rieger frá Þýskalandi sigraði á 54,97 og Debbie Ann Parris frá Jamaíka hljóp á 55,62. Bandaríkjamaðurinn Butch Reynolds átti ekki í erfið- leikum með að sigra í 400 m hlaupi en heimsmethafinn lét sér nægja að hlaupa á 45,04 á þessu eina móti í Evrópu fyrir Ólympíuleikana. Reuter FRJALSIÞROTTIR Frábært heimsmet spjótkastarans Jan Zelezny í Jena í Þýskalandi ■ Heimsmetið í spjótkasti / D2 JAN Zelezny setti glæsilegt heimsmet í Þýskalandi. SUND Elín og Logi náðu ÓL- lágmarki í Mónakó íslandsmet hjá Elínu Sigurðardóttur í Drummond hafði Lewis JOHN Drummond sá til þess að Carl Lewis sigraði ekki í síðustu keppni sinni fyrir bandaríska úrtökumótið vegna Ólympíuleikanna í Atl- anta. Drummond hljóp 200 metrana á 20,20 sek. á móti í Oregon um helgina og var tveimur hundruðustu úr sek- úndu á undan Lewis en frekar kalt, var í veðri og meðvindur. „Ég er greinilega skemmdar- vargur,“ sagði Drummond. „Hann hélt að hann væri á toppnum en svo kemur smá- peð eins og ég og sigra." Lewis sagði fyrir keppnina að hann væri tii alls líklegur en eftir hlaupið sagðist hann ætla að fara heim til Houston og æfa fyrir úrtökumótið sem hefst 14. júní. „Eitt hlaup skiptir ekki máii,“ sagði hann. Ég hleyp ágætlega og hef engar áhyggjur af einu hlaupi.“ Gwen Torrence sigraði ( 100 metra hlaupi kvenna á 10,96 sekúndum sem er næstbesti tími ársins. Elín Sigurðardóttir, SH, og Logi Jes Kristjánsson, ÍBV, náðu bæði ólympíulágmarki fyrir leikana í Atlanta í sumar á sundmóti í Mónakó um helgina. Elín náði lág- markinu í 50 metra skriðsundi, synti á 26,79 sek. og bætti íslands- met Helgu Sigurðardóttur frá því 1992, Hún var 0,01 sekúndu undir lágmarkinu og hafnaði í 7. sæti. Logi Jes varð í 6. sæti í 100 m baksundi og synti undir lágmark- inu, á 57,64 sek. en lágmarkið er 57,72 sek. Besti tími Loga fyrir sundið var 58,86 sek., frá því á Smáþjóðaleikunum í fyrra. Þau hafa því bæði tryggt sér þátttöku- rétt í Atlanta. „Þetta er mér mikill léttir og gleði. Ég hef haft þetta markmið í nokkur ár að komast á Ólympíuleik- ana og lagt stund á erfiðar æfing- ar. Nú er árangurinn að koma í ljós,“ sagði Logi Jes í samtali við Morgunblaðið. „Ég hafði stefnt að því að ná lágmarkinu strax í fyrstu tilraun og það tókst. Fyrir keppnina var eðlilega nokkuð stress í gangi og því varð nokkurt spennufall hjá mér er áfanginn var í höfn. En nú þegar markinu hefur verið náð má ég ekki gleyma mér heldur taka til við næsta verkefni sem undirbún- ingur fyrir leikana.“ Elín var að vonum einnig ánægð: „Þetta gekk alveg eins og það átti að gera, en samt var dálítil spenna í lokin því þetta stóð svo tæpt. Það er ofboðslegur léttir að vera búin að ná lágmarkinu, ég stefndi að því að ná því í fyrstu tilraun og það tókst. Eg held ég eigi meira inni 50 m skriðsundi og nú er bara að sýna það því allt stressið er farið í bili.“ Magnús Konráðsson synti á besta tíma sínum í 200 metra bringu- sundi, 2.23,17 mín., og hafnaði í 16. sæti og á 1.05,72 mín. í 100 metra bringusundi. Systir hans, Eydís, náði einnig besta tíma sínum í 200 m flugsundi, synti á 2.26,22 mín. og varð í 14. sæti. Hún varð sjötta í 100 m flugsundi á 1.03,38 mín., Logi Jes synti 200 m baksund á 2.07,91 mín. og Elín 100 m bringusund á 1.00,07 mín., sem er besti tími hennar í greininni. Arnar Freyr Ólafsson var töluvert frá sínu besta og synti 400 m skriðsund á 4.01,1 mín. og 200 m skriðsund á 1.53,95 mín. Sundfólkið keppir aftur um næstu helgi í Canet. KNATTSPYRNA Konurnar til Frakklands og Hollands Islenska kvennalandsliðið í knatt- spyrnu heldur á morgun til Frakklands og Hollands. Liðið leik- ur fyrst við Frakka í Angeers 1. júní og síðan við Hollendinga í Den Ham 5. júní. Báðir leikirnir eru lið- ir í Evrópukeppni kvenna. Kristinn Björnsson, landsliðs- þjálfari, hefur valið 16 stúlkur til fararinnar. Þær eru: Markverðir: Sigfríður Sophusdóttir, Breiðabliki Sigríður F. Pálsdóttir, KR Aðrir leikmenn: Ásthildur Helgadótir, Breiðabliki Erla Hendriksdóttir, Breiðabliki Helga Ósk Hannesdóttir, Breiðabliki Katrín Jónsdóttir, Breiðabliki Margrét Ólafsdóttir, Breiðabliki Sigrún Óttarsdóttir, Breiðabliki Vanda Sigurgeirsdóttir, Breiðabliki Guðlaug Jónsdóttir, KR Olga Færseth, KR Ingibjörg Ólafsdóttir, lA Ásgerður Ingibergsdóttir, Val Guðrún Sæmundsdóttir, Val Kristbjörg Ingadóttir, Val Ragna Lóa Stefánsdóttir, Val.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.