Morgunblaðið - 30.05.1996, Side 1

Morgunblaðið - 30.05.1996, Side 1
RÁÐGJÖF SJÓNARHORN FLUTNINGAR j/', Lengt í líftíma k yWvÍMlfíi Þjóösögur um út- í Samskip á fullan ^ ^ fyrirtækja/4 lendar pitsur /6 WmÉMik skriö í Hull/8 !||v: J VIÐSKIFn AIVINNULÍF PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1996 BLAÐ Plastprent Ekkert lát virðist ætla að verða á hækkunum á gengi hlutabréfa í Plastprenti. Lokagengi bréfanna á Verðbréfaþingi í gær var 5,0 og hafa þau þá hækkað um tæp 54% á þeim rúma mánuði sem lið- inn er frá hlutafjárútboði fyrir- tækisins. Lífeyrir Áætlað er að ráðstöfunarfé lífeyr- issjóða á árinu 1995 hafi numið 44,9 milljörðum króna. Aukningin frá 1994 er aðeins 1,2 milljarðar eða 2,8%, sem er talsvert minna en verið hefur á undanförnum árum. Áætlað ráðstöfunarfé líf- eyrissjóða á þessu ári er 45,5 milljarðar króna, sem samsvarar um 1,3% aukningu á milli ára, að því er fram kemur í fréttabréfi Sambands almennra lífeyrissjóða. Stjórnun Sljórnunarfélagið stendur fyrir námstefnu n.k. miðvikudag í næstu viku um lögmál og leikregl- ur verðlagningar. Fyrirlesari verður dr. Thomas Nagle, sem hefur sérhæft sig í að leiðbeina fyrirtækjum í verðlagningar- stefnu sinni. Námstefnan verður haldin á Hótel Loftleiðum frá 9-17. SÖLUGENGIDOLLARS GENGI NOKKURRA GJALDMIÐLA frá 3. maí 1995 (sölugengi) DOLLARI +3,82% breyting frá áramótum Kr. 80 •75 Japanskt YEN -0,37% breyting frá áramótum Kr. -0,80 MJJÁSONDJFMAM STERLINGSPUND +1,46% breyting // frá áramótum yo 1995 ...... 1996 'm'j' j'á's'o'n'd j'f'm'a'm' 00 Dönsk KRÓNA Kr. 12,5 ^^^11 »5 11,380 11.0 -3,33% breytin 3 i n n frá áramótur n 10’° 1995 1996 'm' j' j'á's'o'n'd j'f'm'a'm' 9,0 Þýskt MARK 45,56 Kr. 50 48 46 >44 43,95 ----42 -3,53% breyting frá áramótum 40 38 1996 MJJÁSONDJFMAM r+7-* 36 Franskur FRANKI -2,70% breyting frá áramótum 352 13 | 12,99-1 1° J995 1996 ^Mtf jháis'oinid j'f'm'a'm' 1 Gróska í rekstri Vinnslustöðvarinnar hf. Aætlaður heildar- hagnaður hálfur milljarður ÞAÐ STEFNIR í að heildarhagnaður Vinnslustöðvarinnar hf. í Vest- mannaeyjum á þessu ári verði ná- lægt 500 milljónum króna. Þar af er söluhagnaður eigna 400 milljónir. Mikil gróska er í rekstri fyrirtæk- isins og er heildarframleiðsla þess áætluð 37 þúsund tonn á þessu ári en hún var 27.500 tonn í fyrra. Vinnslustöðin hf. seldi á þessu ári Sighvat Bjarnason VE og var bók- fært verð skipsins það lágt að tölu- verður söluhagnaður myndaðist. Einnig seldi Vinnslustöðin fiskveiði- heimildir og keypti nýjar heimildir. Þær voru ekki bókfærðar nema að hluta þannig að hagnaður af því varð umtalsverður. „Við erum að sjá verulegar breyt- ingar á efnahagsreikningi á milli ára,“ segir Sighvatur Bjarnason, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar- innar hf. „Miðað við þær áætlanir sem við höfum gert ætti veltufjár- hlutfallið að vera komið yfir einn í lok ágúst en það var 0,68 í ágústlok í fyrra." Fjármagnskostnaður lækkar Sighvatur segir að náðst hafi betri tök á rekstrinum og framlegð hafi verið góð. Mestu skipti þó að fjár- magnskostnaður hafi verið að lækka mjög skart, en hann hafi helst sligað fyrirtækið á undanförnum árum. „Með breytingum á því vonumst við til að geta skilað hagnaði að öllu jöfnu á næstu árum,“ segir hann. „Eins og útlitið er í loðnu og síld ætti það að vera raunhæfur mögu- leiki. Einnig er Handsal að klára hlutafjárútboð fyrir okkur upp á 200 milljónir til að styrkja efnahaginn. Þau seldust upp til forkaupsréttarað- ila þannig að ekkert fer á markað. Þetta er betri árangur en ég þorði að vona.“ Á aðalfundi Vinnslustöðvarinnar síðastliðið haust var samþykkt að veita stjórn félagsins heimild til þess að auka hlutafé þess um rúmar 400 milljónir. „Ætlunin er að klára þær heimildir sem við höfum," segir Sig- hvatur. „Allt miðar þetta að því að styrkja efnahaginn. Fyrirtækið verð- ur 50 ára í lok ársins og þá verðum við að vera með þokkalega sterka stöðu. Við erum að reyna að byggja upp fyrirtækið til framtíðar." Öll vinnsla á einum stað Unnið er að því hjá Vinnslustöð- inni um þessar mundir að sameina alla vinnslu á einum stað, en hún hefur hingað til verið hýst í þremur frystihúsum. „Til að mæta þeirri fjárfestingu og til að auka ekki skuldir fyrirtækisins var ákveðið að selja eignir,“ segir Sighvatur. „Við höfum þegar selt fasteignir upp á þijátíu milljónir og erum að vinna að sölu á fasteignum fyrir 70 milljónir til viðbótar.“ Einnig segir hann að það sé vel hugsanlegt að eitthvað af hlut Vinnslustöðvarinnar hf. í öðrum fyrirtækjum verði aug- lýst til sölu seinna á árinu. Sighvatur segir að stefnt sé að því á næstu árum að koma einnig upp starfsemi annars staðar á land- inu til þess að vera nær síldarmiðun- um. „Allt veltur það á því hvernig Norsk-íslenski síldarstofninn þró- ast,“ segir hann. „Stofninn virðist mjög sterkur þannig að útlit þar er mjög gott.“ Glitnir hf. Kirkjusandi, 155 Reykjavfk Sími 560 88 00 og 560 88 20. Myndsími 560 88 10. FJÁRMÖGNUN ATVINNUTÆKJA Skynsamlegar fjárfestingar í atvinnutækjum eru oftar en ekki lykillinn að velgengni. Við hjá Glitni sérhæfum okkur í fjármögnun atvinnutækja. Glitnirhf DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.