Morgunblaðið - 30.05.1996, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
nrfliiwMa&Ífo
1996
FRJALSIÞROTTIR
FIMMTUDAGUR 30. MAI
BLAD
Ennmet
hjá Völu
VALA Flosadóttir, frjálsíþrótta-
kona úr ÍR, keppti í gær í stang-
arstökki á alþjóðlegu móti í Brat-
islava í Slóvakíu og gerði sér lítið
fyrir og setti glæsilegt íslandsmet
utanhúss er hún stökk yfir 4,06
metra og er árangur hennar einn-
ig Norðurlandamet. Vala varð í
öðru sæti en þýska stúlkan Nastya
Ryshich sigraði með því að vippa
sér yfir 4,12 metra og setti hún
þar með heimsmet unglinga, en
hún er 19 ára. Hún fór naumlega
yfir fjóra metra í þriðju tilraun,
þurfti einnig þijár tilraunir til að
komast yfír 2,06 en fór yfír 2,12
í fyrstu tilraun. „Hún kom sér þó
yfír,“ sagði Vala þegar Morgun-
blaðið ræddi við hana í gærkvöldi
eftir keppnina.
Vala sagðist vera mjög ánægð
með árangurinn. „Þetta var miklu
betra en ég átti í raun von á því
það er búið að vera svo leiðinlegt
veður í Svíþjóð, rigning, rok og
kuldi, þannig að það hefur lítið
verið hægt að æfa. Ég er því
mjög ánægð með árangurinn,"
sagði Vala, en hún átti gamla ís-
lands- og Norðurlandametið, 3,81
sem hún setti 18. ágúst í fyrra á
Reykjavíkurleikunum á Laugar-
dalsvelli.
„Þetta er fyrsta mótið sem ég
tek þátt í síðan á Evrópumeistara-
mótinu í Stokkhólmi í mars og
héðan liggur leiðin til Tékklands
þar sem ég keppi í Ostrava á
föstudaginn. Þegar því er lokið fer
ég aftur til Svíþjóðar til að útskrif-
ast, ég er að verða stúdent, og
svo verður nóg að gera í sumar.“
Vala var langt frá því að kom-
ast yfír 2,12 í fyrstu tveimur til-
raununum, en í þeirri þriðju mun-
aði ekki miklu. „Ég felldi ránna
með fótunum á uppleið, en hefði
trúlega annars skriðið yfír,“ sagði
hún. Hún sagðist hafa farið mjög
varlega í sakirnar þar sem þetta
var hennar fyrsta mót. „Ég byij-
aði í 3,50 og fikraði mig síðan
áfram. Ég tók ekki neina áhættu,
vildi hafa þetta allt á hreinu.“
Vala sagðist hafa nóg að gera
í sumar, það væru mót út um allt,
en stangarstökkið væri ekki ennþá
orðið gjaldgengt á stigamótum
AJþjóða fijálsíþróttasambandsins.
„Ég keppi meðal annars í Frakk-
landi, á Spáni og á Ítalíu í sum-
ar. Það er boðið á þessi mót og
allt borgað fyrir mann auk þess
sem ég fæ einhvem pening líka,“
sagði Evrópumeistarinn innan-
húss, Vala Flosadóttir.
VALA Flosadóttir settl glœsllegt Islands- og Norðurlandamet
í stangarstökki í gærkvöldl, stökk 4,06 metra. Vala hefur
ekki ke ipt síðan hún varð Evrópoumelstari Innanhúss í mars.
Þjóðverjar mis-
notuðu tvær
vítaspyrnur
ÞJÓÐVERJAR misnotuðu tvær vítaspyrnur í fyrri
hálfleikerþeirgerðujanftefli 1:1 við N-íra í vin-
áttulandsleik í Belfast í gær. Það var Jiirgen Klins-
mann sem misnotaði fyrri spyrnuna strax á fjórðu
mínútu er hann skaut yfir, en spyrmma fékk-hann
eftir að Steve Lomas hafði brotið á honum. Á 33.
mínútu var það Andreas Möller sem skaut einnig
yfir úr vítaspyrnu sem Mehmet Scholl hafði feng-
ið. Fyrsta mark leiksins kom ekki fyrr en á 79.
minútu er varamaðurinn George O’Boyle sem kom
heimamönnum yfir örfáum mínútum eftir að hann
hafði komið inn á fyrir Keith Gillespie. Markið
vakti Þjóðverja af værum blundi og einni mínútu
síðar jafnaði Scholl eftir að Möller hafði opnað
vörnlrauppágáttogþarviðsat. Frakkarsigr-
uðu í 21. leik sínum í röð er
þeir tóku á móti Finnum í
Strassborg í gær - lokatölur
2:0. Þeir glöddu stuðnings-
menn sína með því að leika
ákafa sóknarknattspymu í
þessum fyrsta upphitunarleik
sínum fyrir Evrópukeppnina í
Englandi í næsta mánuði og
stjörauleikmaður Ajax, Jari
Litmanen, hafði iitið fyrir
stafni í framlinu Finna í fyrri
hálfleik. Samt stillti Aime
Jacquet þjálfari Frakka ekki
upp sínu sterkasta liði.
Mörkin skoraði franska lið-
ið á þriggja minútna kafla f
fyrri hálfleik og voru þar að
verki Patrice Loko og Reynald
Pedros. Finnar reyndu að
klóra í bakkann í siðari hálf-
leik og fengu eitt gott færi
en markvörður Frakka varði
vel skot frá Litmanen.
Portúgalir mörðu sigur á
írum i landsleik i Dublin i
gærkvöldi með sigurmarki á
síðustu andartökum leiksins
Boksic til
Juventus
KRÓATINN Alen Boksic hef-
ur ákveðið að færa sig um set
á Ítalíu, fara frá Lazíó og
gerast leikmaður með Evr-
ópumeisturum Juventus. Blöð
á Ítalíu sögðu frá því í gær
að hann væri búinn að skrifa
undir þriggja ára samning.
Boksic er 26 ára - Iykilmaður
í landsliði Króatíu, sem tekur
þátt í EM í Englandi. Hann á
að fá það hlutverk hjá Juvent-
us að stjórna leik liðsins á
miðjunni og skapa tækifæri
fyrir aðra leikmenn að ráðast
til atlögu. Boksic varð þekktur
þegar hann gerðist leikmaður
með franska liðinu Marseille
og skoraði 23 mörk keppnis-
timabilið 1992-93. Eftir það
fór hann til Ítalíu og gerðist
Ieikmaður Lazíó.
Öll áfram
ástyrk
KNATTSPYRNA
Samloka kostaði EM-sæti
ÍSLENDING ARNIR fjórir,
sem verið hafa á styrk þjá
Ólympíusamhjálpinni, verða á
styrk fram til 1. ágúst, en
styrkveitinugum átti að hætta
30. júní. Þau sem fá styrkinn
fram til 1. ágúst eru Martha
Ernstdóttir, Pétur Guð-
mundsson, Sigurður Einars-
son og Vésteinn Hafsteinsson.
HÚN var dýrkeypt samlokan sem
Króatinn Ivica Mornar, sóknarleik-
maður hjá Frankfurt, fékk sér að
borða - hún kostaði hann sæti í
22 manna landsliðshópi Króatíu,
sem hefur verið valinn fyrir EM í
Englandi. Komið var að Mornar á
barnum á hótelinu sem landsliðs-
hópur Króatíu hefur búið á í Porec
kl. þijú í fyrrinótt. Miroslav
Blazevic, landsliðsþjálfari, var ekki
ánægður með þetta agabrot -
valdi hann ekki sem varamann
fyrir sóknarleikmennina Davor
Suker og Alen Boksic, eins og
fyrirhugað var. Sterkur landsliðs-
hópur Króatíu er þannig skipaður:
Drazen Ladic (Croatia), Tonci
Gabric (Hajduk) og Marijan Mrmic
(Varteks), markverðir: Varnar-
menn: Robert Jarni (Real Betis,
Spáni), Nikola Jerkan (Real Ovi-
edo, Spáni), Igor Stimac (Derby,
Englandi), Slaven Bilic (West
Ham, Englandi), Dubravko
Pavlicic (Hercules, Spáni), Nikola
Jurcevic (Freiburg, Þýskalandi),
Elvis Brajkovic (1860 Munchen,
Þýskalandi), Dario Simic (Croat-
ia), Zvonimir Soldo (Croatia). Mið-
vallarspilarar eru Zvonimir Boban
(AC Milan, Ítalíu), Robert Pros-
inecki (Barcelona, Spáni), Aljosa
Asanovic (Hajduk), Mladen Mlad-
enovic (Salzburg, Austurríki),
Mario Stanic (FC Brugge, Belgíu).
Sóknarleikmenn: Davor Suker
(Real Madrid, Spáni), Alen Boksic
(Lazíó, Ítalíu), Goran Vlaovic
(Padova, Ítalíu), Igor Cvitanovic
(Croatia), Igor Pamic (Osijek).
Þess má geta að Berti Vogts,
landsliðsþjálfari Þýskalands, hefur
spáð Króatíu góðu gengi í EM.
KNATTSPYRNA: SKALLAGRÍMUR MED FULLT HÚS STIGA í 2. DEILD / C4