Morgunblaðið - 31.05.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 31.05.1996, Síða 1
BÍRSK KRÁARSTEMMNI1MG/2 MEIÐARLEGUR SEMPILL/3BSMAGAR/4 BKÓRINMSEMSYNGUROGLÍKIMAR/5 GÆLUDÝRÁAIMNARRAMANIMA LÓÐUM/6BHEILANUM HALDIÐ í FORMI/6 FRUMLEGAR FLÍKUR/8 Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson Björg ásamt undirleikara sinum og söngþjálfara, Guðrúnu Onnu Kristinsdóttur. Úr hjúkrun * JÞ i songnam BJÖRG Þórhallsdóttir, sem er hjúkrunarfræðingur að mennt og lektor við Háskólann á Akur- eyri, ætlar að snúa við blaðinu og hefja söngnám í The Royal Northern College ofMusic í Manchester, sem sagður er einn af þremur virtustu tónlistar- háskólum í Bretlandi. 4 Berar tær skyggnast út úr sandölum í birtu og súrefni SKAMMDEGIÐ er löngu liðið á Is- landi en skammdegi tánna virðist engin takmörk sett. Þær hírast ennþá kramdar inni í sokkum og misgóðum lokuðum skóm og þrá súrefni og bjart- ari daga sumarsins og hefðu þær munn heyrðist hrópað í myrkrinu: „Hleypið okkur út!“ Berar tær sem gægjast út úr sand- ölum er öruggt merki um að sumarið sé komið. Tæmar iða í skinninu eftir að hafa búið í svarta myrkri allan lið- langan veturinn, og vilja skoða heim- inn með eigin augum. Aftur á móti er ekki nóg að rífa af sér skítuga sokkana og spenna á sig sandala, því tæmar líta öragglega ekki vel út eft- ir veturinn. Fótabað er ágæt byijun, skrúbba tæmar síðan, bera krem á, klippa neglurnar og jafnvel lakka þær í skrautlegum litum á góðum stund- um. Halldóra Steingrímsdóttir, Snyrtistofu Halldóra, segir tæm- ar fegnar frelsinu á sumrin og vonar að sem flestir leggi sokkunum og leyfi tánum að X anda að sér heilnæmu súr- efninu. i „Tæmar búa við raka í lokuðum skóm við 40 stiga hita og era hreinlega soðn- ar,“ segir hún. „Og í stað þess að neglumar vaxi eðlilega fram á við, bætast við framulög ofan á þeim. Við þurfum stundum að þynna táneglurnar til að tæmar geti fengið súrefni." Halldóra ráð- leggur fólki að fara vel með tæmar á sér til að forðast tásveppi sem lifa góðu lífi, á soðnum tám. „Best er að venja sig á að vera sokka- laus heima hjá sér í góðum sandöl- um,“ segir hún. „Tæmar þurfa birtu til að ná sér á strik.“ „Núningur í þröngum skóm getur líka skapað sigg og líkþom," bætir hún við. „Góðir sandalar era með stíf- an sóla en samt mjúkir undir il.“ Hún segir opna skó sem auðvelt er að beygja í miðju ekki nógu góða, betri eru þeir sem bogna við tábergið og eru hærri að aftan. Nú er bara að fara varlega úr sokkunum og skoða tæmar. Ef neglurnar era gular og þykkar hefur tásveppurinn unnið sitt verk. Einnig ef táhúðin er flagnandi. Sokkar úr gerviefni hleypa ekki miklu súrefni að vesalings tánum og ef nauðsynlegt þykir að hylja tæmar eru þunnir bómull- arsokkar betri kostur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.