Morgunblaðið - 01.06.1996, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 01.06.1996, Qupperneq 1
 BLAÐ ALLRA LANDSMANNA KNATTSPYRNA Pierce fylgdi í kjölfar Agassi MARY Pierce varð í gær annar þekkti tennisieikar- inn tíl að falla úr leik á Opna franska meistaramót- inu í tennis er hún tapaði fyrir lítt þekktri þýskri stúlku, Barbðru Rittner, í tveimur settum, 6-4, 6-2, f þriðju umferð mótsins, en þetta er annað árið í röð sem hún verður að hætta leik að lok- inni þriðju umferð eftir að hafa tapað fyrir minni spámanni í fþróttinni. Áður hafði Andre Agassi hrokkið úr skaptinu í annarri umferð fyrir lítt þekktum landa sínum, Chris Woodruff. Pierce olli aðdáendum sínum á heimavelli mikl- um vonbrigðum með slökum leikþar sem hún áttí aldrei neitt svar við skörpum leik Rittners. Áhorfendur höfðu vonast eftir auðveldum sigri og þar af leiðandi myndi hún mæta hinni spænsku Sanchez Vicario í næstu umferð, en þegar úrslit voru yós var púað á heima- stúlkuna Pierce er hún gekk af leikvelli. Þær Pierce og Rittner mættust síðast á Ber- línarmótinu fyrir tveimur vik- um en þá sigraði Pierce auð- veldlega, en hún er nú í 12. sætí heimslista tennismanna en Rittner er í 80. sætí. Sanchez Vicario rúllaði Ye- lenu Likhovtseu frá Rússlandi upp í tveimur settum 6-0,6-0. Onnur lítíð þekkt tennis- kona, lrina Spirlea frá Rúss- landi, kom á óvart í gær og iagði þá Brendu Schultz-McC- arthy frá Hoilandi í tveimur settum sem bæði enduðu 6-2. Hollenska stúlkan er skráð í 8. sætí heimslistans en Spirlea er þar ekki skráð. ítalir Evrópu- meistarar ÍTALER urðu í gær Evrópu- meistarar í flokki ungmenna- landsliða 21 árs og yngri í knattspyrnu er þeir lögði Spánverja að velli 4:2 í fram- Iengdum leik og vítapsyrnu- keppni. Var þetta í þriðja sinn í röð sem ítalir sigra í EM í þessum flokki. Staðan að lok- inni framlengingu var 1:1 og áður en yfir lauk voru ítalir aðeins með níu leikmenn á vellinum því tveir höfðu verið reknir útaf. Frakkar náðu þriðja sætínu með sigri á Skot- um 1:0. 1996 LAUGARDAGUR 1. JUN1 BLAD Fimm nýlið- ar með í Kaplakrika ATLI Eðvaldsson, þjálfari lands- liðs íslands skipað leikmönnum undir 21 árs aldri, hefur valið fimm nýliða í byrjunarlið sitt, sem mætir Makedóníumönnum í Evr- ópukeppninni á Kaplakrikavellin- um í dag kl. 14. Þá eru í liðinu þrír leikmenn sem hafa aðeins leikið einn leik. Nýliðarnir eru Bjarki Stefánsson, Val, Arnar Viðarsson, FH, Valur Fannar Gíslason og Þorbjörn Atli Sveins- son, Fram, og Andri Sigþórsson, Bayern Miinchen. Þeir sem hafa leikið einn leik eru Guðni Rúnar Helgason, Völsungi, Bjarnólfur Lárusson, IBV og Ólafur Stígsson, Fylki. Leikreyndasti leikmaður- inn er Sigurvin Ólafsson, Stuttg- art, sjö leiki, markvörðurinn Árni Gauti Arason, í A, hefur leikið sex leiki og Brynjar Björn Gunnars- son, KR, hefur leikið þrjá leiki. Vala stökk fjóra m í Ostrava VALA Flosadóttír stökk 4 metra slétta í stangarstökki á alþjóðlegu fijálsíþróttamótí í Ostrava í Tékklandi í gær- kvöldi. Vala sigraði á mótinu en rúmensk stúlka, sem varð í öðru sæti, stökk 3,90 m. Vala stökk 4,06 metra í Bratislava fyrr í vikunni, eins og áður hefur komið fram í Morgun- blaðinu og varð þá í öðru sætí. Birgir Örn í Keflavík? BIRGIR Örn Birgisson, lands- liðsmaður í körfukuattleik úr Þór á Akureyri, sem stóð sig geysilega í fyrstu laudsleikj- um sínum í Evrópukeppninni á dögunum, er að öllum likind- um á leiðinni í raðir Keflvík- inga skv. heimildum Morgun- blaðsins. Verðum að leika til sigurs á heimavelli Birkir Kristinsson mun verja mark íslands í kvöld í HM- leiknum gegn Makedóníu á Laugar- dalsvellinum kl. 19. Birkir sagði að það væri alltaf skemmtilegt að leika fyrir hönd íslands og þá sérstaklega á Laugardalsvellinum, þar sem áhorfendur stæðu við bakið á lands- liðinu. „Það er mikilvægt fyrir okk- ur að ná góðum úrslitum í fyrsta leik. Við verðum að leika til sigurs, eins og við verðum að gera í öllum heimaleikjum okkar. Það er hins vegar mun raunhæfara að reyna að halda í annað stigið þegar við leikum á útivelli, sérstaklega gegn írum og Rúmenum. Ég veit afskaplega lítið um þetta makedóníska lið, annað en að það leikur 4-4-2 leikkerfi. Annars held ég það skipti ekki máli hvaða lið við erum að leika við, við verðum fyrst og síðast að hugsa um okkur sjálfa. Það hefur sýnt sig að þegar við erum að velta mótherjunum of mikið fyrir okkur þá gengur illa, ekki síst þegar við teljum þá lakari en okkur.“ Hvernig heldur að leikurinn verði - á laugardagskvöldi? „Þetta er dálítið skrítinn tími, en leikmenn finna ekkert fyrir því þeg- ar á völlinn er komið. Fyrir áhorf- endur held ég að þetta sé góður tími, Sjómannadagurinn er daginn eftir og ég held það geti myndast skemmtileg stemmning á vellinum og það kemur okkur að sjálfsögðu til góða,“ sagði Birkir. Þeir eru tilbúnir í slaginn Morgunblaðið/Kristinn ÞRIR af reyndustu leikmönnum íslands, GuAni Bergsson, Bolton, Blrkir Kristlnsson, Brann, og Sigurður Jónsson, Örebro, eru allir tilbúnir í slaglnn gegn Makedóníumönnum ð Laugardals- vellinum í kvöld. Viðtal vlö Sigurð / D3 Birkir Kristinsson, landsliðsmarkvörður um leikinn gegn Makedóníu: KNATTSPYRNA: VIÐTAL VIÐ GUÐNA BERGSSON, FYRIRLIÐA ÍSLANDS / D2,D3

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.