Morgunblaðið - 02.06.1996, Qupperneq 1
96 SlÐUR B/C/D
123. TBL. 84.ÁRG.
SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Ragnar Axelsson
Á LEIÐ Á MIÐIN
Tékkland
Klaus með
örugga
forystu
Prag. Reuter.
VACLAV Klaus og flokkur hans,
Lýðræðislegi borgaraflokkurinn
(ODS), bættu við sig nokkru fylgi
í þingkosningunum í Tékklandi á
föstudag og laugardag, samkvæmt
útgönguspám er birtar voru síðdeg-
is í gær.
Samkvæmt spám, sem birtar
voru í ríkissjónvarpinu og á einka-
stöðinni TV-NOVA, fær flokkur
Klaus um 33% atkvæða en Jafnað-
armannaflokkurinn, sem hagfræð-
ingurinn Milos Zeman veitir for-
ystu, einungis um 23-24%.
Spáði sjálfur 30%
Klaus hafði sjálfur spáð því í
gær, áður en kjörfundi lauk, að
flokkur sinn fengi um 30% at-
kvæða.
Kannanirnar voru unnar af tékk-
neskum og þýskum stofnunum.
Verði niðurstöður kosninganna
í samræmi við útgönguspámar
ætti fjögurra flokka hægristjórn
Klaus að halda velli. Samkvæmt
tölvuspám sjónvarpsstöðvanna átti
stjórn Klaus að fá fimm þingsæta
meirihluta.
Barist í
Tsjetsjníju
Arabaríki hvetja Netanyahu til að halda friðarferlinu áfram
Sýrlendingar segja frið
vera eina kostinn
Moskvu. Reuter.
BARDAGAR brutust út milli rúss-
neskra hersveita og tsjetsjenskra
skæruliða í suðurhluta héraðsins
Nozhai-Yurt í gær þrátt fyrir að
vopnahlé hafi tekið gildi á mið-
nætti aðfaranótt laugardagsins.
„Það er barist af mikilli hörku,“
sagði Vacheslav Tikhomirov, æðsti
yfirmaður rússneska heraflans í
Tsjetsjníju, í samtali við rússneska
sjónvarpið. Hann sagði skæruliða
hafa ráðist á rússneska hersveit og
hefði hún svarað árásinni. „Herinn
hefur svarað skothríðinni og ætlar
að drepa þessa stigamenn,“ sagði
Tikhomirov.
Movladi Udugov, talsmaður
skæruliða, sagði í samtali við
Reuíer-fréttastofuna að rússneskar
árásarþyrlur hefðu skotið eldflaug-
um á stöðvar skæruliða.
Vopnahléssamkomulagið var
undirritað á mánudag og áttu frek-
ari viðræður að eiga sér stað í
gær. Þeim hefur verið frestað.
Damaskus, Amman, Washington. Reuter.
SÝRLENSK stjórnvöld sögðu á laug-
ardag að ekki væri neins annars
kostur en að halda friðarferlinu í
Mið-Austurlöndum áfram. Hvöttu
þau bandarísk stjórnvöld til að boða
til nýrra viðræðna ísraela og Sýr-
lendinga sem fyrst. Blaðið al-
Thawra, hin opinbera málpípa stjórn-
arinnar, tók hins vegar skýrt fram
að viðræðurnar yrðu að vera á þeim
grundvelli að land yrði látið af hendi
í staðinn fyrir frið, líkt og verið hefði
frá því viðræðurnar hófust árið 1991.
Benjamin Netanyahu, leiðtogi
Likudbandalagsins, er sigraði Shim-
on Peres í kosningum um forsætis-
ráðherraembættið í Israel á miðviku-
dag, sagði hvað eftir annað fyrir
kosningarnar að ekki kæmi til greina
að afhenda Sýrlendingum Gólan-
hæðir á ný.
Al-Thawra sagði að i augum
Sýrlendinga væri lítill munur á
Verkamannaflokknum og Likud og
minnti á að friðarviðræðurnar hefðu
hafist í stjórnartíð Likud.
Hussein bjartsýnn
Hussein Jórdaníukonungur sagði
í gær að hann væri bjartsýnn á fram-
hald friðarþróunar og að ferlið myndi
halda áfram undir stjórn Netanya-
hus. Hann sagðist hlakka til að starfa
með Netanyahu. „Eg held að mögu-
leikarnir séu til staðar og að þeir séu
miklir og við lítum framtíðina von-
góðum augum,“ sagði Hussein við
bandarísku sjónvarpsstöðina CNN.
Konungurinn sagði ekki ástæðu til
að gera of mikið úr kosningunum
og halda því fram að ísraelar hefðu
kosið að leggja frekari friðaráform
á hilluna.
Jórdönsk stjórnvöld höfðu fyrir
kosningarnar greint frá því bak við
tjöldin að þau hefðu frekar kosið að
Peres yrði áfram við völd.
Arabaríki við Persaflóa greindu
frá því í gær að þau myndu áfram
styðja friðarferlið ef Netanyahu
starfaði áfram að friði.
Bandaríska blaðið The Washing-
ton Post sagði á laugardag að Yass-
er Arafat, leiðtogi Palestínumanna,
„væri í losti" vegna úrslita kosning-
anna. Hafði blaðið eftir vestrænum
stjórnarerindreka, er rætt hafði ítar-
lega við Arafat, að hann hefði sagt
að ísraelar hefðu greitt atkvæði gegn
friði. „Þeir vilja frið við Jórdan-
íumenn, þeir vilja frið við Egypta en
þeir vilja ekki frið við Palestínu-
menn,“ var haft eftir Arafat.
Palestínuleiðtoginn var sagður
svartsýnn á framhald og óttast að
friðarferlið myndi stöðvast.
I yfirlýsingu frá Arafat, sem tals-
maður hans las upp í gær, er Net-
anyahu hvattur til að „halda friðar-
ferlinu áfram og virða framkvæmd
þeirra þátta friðarsamkomulagsins
er þegar hefur verið samið um.“
Brottkast
ekki
stöðvað
Lif vié litla athygli
vmsHPryaviNNUUF
Á SUNNUDEGI
24
ALLTERIBLOMA
B