Morgunblaðið - 02.06.1996, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 1996 47
/ QAommzmuít
MlApmZJlJXZL
:m SaÆMÆSlM
DIGITAL
- ^
SAMWtmm SAMB90
bMhAíuh saca-
BÉÓIIÖI.L
- SIMI 5878900
AKKA 8
SIMI 5878900
MIKE NICHOLS FIIM
Executive Decision er ekkert annað en þruma beint í æð. David Grant, hámenntaður
Bráðskemmtileg gamanmynd um brjálæðislegasta par toffari hja Pentagon þarf að taka a honum stora sinum þegar arabískir
hvíta tjaldsins. Robin Williams, Gene Hackman, Nathan hryðjuverkamenn ræna bandarískri breiðþotu.
Lane og Dianne Wiest fara á kostum í gamanmynd sem Aðalhlutverk: Kurt Russel, Halle Berry, Steven Seagal og Oliver Platt. Framleiðandi:
var samfleytt 4 vikur í toppsætinu í Bandaríkjunum í vor. ________________________Joel Silver (Lethal Weapon)._____
Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11 í THX. b.í. i6ára.
Frumsýning: Trufluð tilvera
Frá þeim sömu og gerðu „Shallow Grave" kemur
„Trainspotting", mynd sem farið hefur sigurför um
heiminum að undanförnu. Frábær tónlist, t.d. Blur
og Pulp, skapa ótrúlega stemmingu og gera
„Trainspotting" að ógleymanlegri upplifun.
Ekki missa af þessari!
"MIÐNÆTURSÝNING KL. 00:151
Kátur Willis
•BRUCE Willis var kátur þegar
gamli skólinn hans, Montclair State
University í New Jersey, gerði hann
að heiðursdoktor fyrir skömmu.
Bruce hóf leiklistarnám sitt við skól-
ann og vissulega má segja að sú
ákvörðun hafi borið ríkan ávöxt, enda
er hann hæstlaunaði leikari heims
um þessar mundir.
Vaski apinn Dunston
KVIKMYNDIR
R e g n b o g i u n
APASPIL
„Dunston Checks In“ ★ ★
Lcikstjóri: Ken Kwapis. Aðalhlut-
verk: „Dunston", Jason Alexander,
Faye Dunaway, Rupert Everett,
Paul Reubens og Eric Lloyd. 20th
Century Fox. 1995.
í BANDARÍSKU gaman-
myndinni Apaspili leikur Rupert
Everett þjóf sem skráir sig inn
á fimm stjörnu hótel og þykist
vera breskur aðalsmaður en not-
ar vaskan apa til að ræna fyrir
sig úr hótelherbergjunum. Jason
Alexander er hótelstjórinn og á
tvo óstýriláta syni, sem mjög
flækjast fyrir honum. Faye
Dunaway er hóteleigandinn,
óforbetranlegt snobb og einstök
tæfa í samskiptum við starfs-
fólkið, og Paul Reubens, sem
áður lék Pee Wee Herman svo
snilldarlega, er meindýraeyðir
kallaður til að útrýma apanum.
Eins og sjá má er samankom-
ið ágætt leikaralið í myndinni
og hún virkar prýðilega sem
ævintýralegt þrjúbíó þar sem
vonda liðið fær að lokum á bauk-
inn og valmennin lifa hamingju-
söm það sem eftir er. Leikurinn
er ýktur í takt við farsakennt
sjónarspilið en gamanið byggist
mikið á ærslum og látum og sjón-
rænu sprelli eins og að líkum
lætur þegar api er með í spilinu.
Sjónvarpsleikarinn Alexander
reynir hvað hann getur að halda
ró sinni sem hótelstjórinn og
faðir drengjanna. Everett fer
léttilega með skopútgáfu af
breskum heldrimanni sem er
meinlega rotinn steluþjófur og .
dýraníðingur, Dunaway leikur
hóteleigandann eins og hún sé
nornin í ævintýrinu og Reubens
á enn til gamla Pee Wee-takta
og er auðvitað góðmenni inn við
beinið.
En stjörnufansinn má sín lítils
við hliðina á aðalleikaranum sem
er apinn Dunston. Hann fettir
sig og brettir fyrir börnin og býr
yfir feikilegum eyðileggingar-
mætti og hefur minnst fyrir því
að fá yngstu börnin til að hlæja.
Ein gretta er í rauninni allt sem
þarf og hann á nóg af grettum.
Apaspil er barnagaman fyrst
og fremst með góðum leikara-
hópi og skemmtilegum apa og
hún er ágætlega heppnaður
ærslaleikur.
Arnaldur Indriðason