Morgunblaðið - 02.06.1996, Síða 1
LÚXEMBORG
KINSALE
Kinsale var aðeins dapurlegur
grár hafnarbær á suðurströnd
Irlands fyrir um tuttugu árum.
Eftir gagngerar endurbætur
hlaut Evrópsk umhverfísverðlaun
ferðaþjónustunnar árið 1995.
Hátt í gamla bænum tróna rústir
kastala frá 11. öldinni. Þverhnípi er
niður í dalinn og hafa sumir hagsýn-
ir byggt hús að því og sparað sér
að reisa ijórða vegginn.
jndrgttitEiIafttft
SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 1996 BLAÐ C
Lægsfa verð á
bílaleigubílum
hvert sem
ferðinni er
heifið
Hrlngdu i okkur og fáðu sendan
sumarbæklinglnn s: S88 35 35
Mikill áhuqi á útivist og gönguferðum um fjöll oq firnindi í hópferðum eða á eiqin vequin
Upp til f jalla
gleymast allar
áhyggjur
SVOKÖLLUÐ heilsuvakning, sem
greip vestrænar þjóðir fyrir allmörg-
um árum, virðist eiga sinn þátt í aukn-
um áhuga Islendinga á útivist og
gönguferðum um fjötl og fímindi inn-
anlands. Hjá Ferðafélagi íslands og
Utivist ber mönnum saman um að
vinsældir slíkra ferða, dagsferða eða
lengri, hafí aukist jafnt og þétt frá
árinu 1990.
Félagar í Ferðafélagi Islands eru
um 8.000. Að sögn Kristjáns M. Bald-
urssonar, framkvæmdastjóra, fóru
413 ferðalangar í ýmsar lengri hóp-
ferðir árið 1990, en á síðasta ári var
fjöldinn kominn upp í 910, en alls er
heildarQöldi ferðalanga félagsins um
7.000 á^ri.
„Nokkurra daga gönguferðir milli
Landmannalauga og Þórsmerkur eru
vinsælastar, enda skemmtileg leið og
aðstaða góð. Þessi leið er oft nefnd
„Laugavegurinn", en við bjóðum
nokkrar slíkar ferðir árlega. Eftir að
við sömdum við eigendur húsa um
gistingu hefur gönguleið um Hom-
strandir átt auknum vinsældum að
fagna, bæði lengri og styttri ferðir.“
Á vegum Ferðafélagsins er einnig
farin gönguferð frá Hvítámesi til
Hveravalla og aðrar lengri ferðir sem
Kristján segir aukna ásókn í.
„Markmið Útivistar er fyrst og
fremst að kenna fólki að ferðast á
eigin vegum. Við keppumst ekki við
að fjölga farþegum, heldur reynum
að Ieiðbeina fólki um áhugaverða
staði, gönguleiðir, útbúnað, ferða-
máta og þess háttar. Ég held að vel
hafí tekist til því eftirspum eftir gist-
Mocgunblaðið/RAX
LEIÐIN Landmannalaugar- Þórsmörk er oft nefnd „Laugavegurinn".
ingu í skálum félagsins hefur aukist
og sums staðar er upppantað. Áhugi
landans á ferðalögum innanlands hef-
ur aukist,“ segir Heiðar Már Guðjóns-
son, framkvæmdastjóri Útivistar.
Með nesti og nýja skó
Heiðar segir að árlega fari um
5.000 manns í dags- og helgarferðir
með Útivist, eri í lengri ferðir, eins
og gönguferð um „Laugaveginn"
fari að jafnaði um 300 manns ár-
lega. „Þær áhyggjur eru ekki til, sem
ekki gleymast upp til fjalla.“
Sala á gönguskóm, bakpokum,
svefnpokum og viðleguútbúnaði hef-
ur aukist jafnt og þétt í Skátabúð-
inni og Útilífí. „„Sprengjan" varð
1990, en þá varð fólk í auknum
mæli meðvitað um að hreyfíng og
útivist væri leiðin til heilbrigðara
lífs,“ segir Halldór Hreinsson, versl-
unarstjóri Skátabúðarinnar. I sama
streng tekur Dagbjört Gunnarsdóttir
hjá Útilífi. „Þá má segja að íslending-
ar hafí fundið fæturna og farið að
ferðast meira um landið en áður,“
segir Dagbjört. ■
BÍTLAHÁTÍÐ
► S AM VINNUFERÐIR-Lands-
sýn efna til ferðar á Internati-
onal Beatles Festival 1996, í Li-
verpool, 20. ágúst nk. Tvær
fyrstu næturnar verður gist á
St. Giles hótelinu í London.
Fimmtudaginn 22. ágúst er farið
til Liverpool þar sem gist verður
á fjögurra sljömu hóteli rétt hjá
Cavern klúbbnum. Hátíðin hefst
seinna um daginn og stendur til
þriðjudags. Farnar verða skoð-
unarferðir á sögufræga „Bítla-
staði“, s.s. á æskuheimili þeirra,
I skóla, í Cavern klúbbinn o.fl.
Þá verður haldin ráðstefna með
fyrirlestrum, spurningakeppn-
um, uppboði o. fl. Bítlaeftir-
hermuhljómsveitir halda tón-
leika öll kvöldin. Hápunktur há-
tíðarinnar verður á mánudegin-
um þegar yfir 120 hljómsveitir,
víða að úr heiminum, spila á
krám, í klúbbum, á veitingastöð-
um og úti á götu í miðbæ Li-
verpool og um kvöldið verða
lokatónleikar. Á þriðjudeginum
verður farið aftur til London þar
sem g^ist verður á St. Giles í 3
nætur og svo haldið heim föstu-
dagskvöldið 30. ágúst. Ferðin
kostar 69.745 kr. með sköttum,
miðað við staðgreiðslu með flugi,
gistingu með morgunmat í Lond-
on og Liverpool, aðgangi á hátið-
ina og flugvallarsköttum. ■
R0DRIMAR I ALGARVE
Vistarverur: Rúmgóö stúdíó og íbúöir, með svölum,
baöherbergi, eldhúsi og öryggishólfi.
Aðstaða: Snyrtilegur sundlaugargarður með góðri sundlaug
með barnalaug afgirtri í enda. Góð sólbaðsaðstaða og
snakkbar.
Staðsetning: Örskammt frá Ondamar og því í góðu
göngufæri við flestar verslanir, veitinga- og skemmtistaði.
ÚRVALIÍTSÝN
Bókunar-
staða
1. júní
júlí
5.
12.
19.
26.
3.
10.
17.
i sæti laus
uppselt/biðlisti
laus sæti
5 sæti laus
uppselt/biðlisti
laus sæti
uppselt/biðlisti
Verófrá
60.645 kr.
staögreitt á mann m.v. 2 fullorðna
í stúdíó á Rodrimar í 2 vikur.
Sérstakt kynningarverð á nokkrum viðbótaríbúðum
24. laussæti
31. laus sæti
ágúst 7. 6 sæti laus
14. uppselt/biðlisi
21. laussæti
28. iaussæti
sept. laus sæti
VSA
Ldgmúla 4: sími 569 9300,
Hafnarfiröi: s(mi 565 2366, Keflavík: sfmi 421 1353,
Selfossi: sfmi 482 1666, Akureyri: sfmi 462 5000
- og hjá umboðsmönnum um land allt.