Morgunblaðið - 04.06.1996, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.06.1996, Blaðsíða 24
i4 C ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ HVANNHOLMI - KOP. Vorum aö fá í sölu fallegt einbhús 200 fm m. 26 fm bílskúr. 4 svefnherb. Parket. Suöur- garður. Mögul. á 3ja herb. íb. á jarðh. Skípti LANGHOLTSV. - SÉRH. Nýstandsett neöri sérh. 132 fm í tvíbhúsi. 3 svefnherb., parket sérinng. Bílskúrsréttur. Áhv. 5,3 millj. Verð 8,5 millj. 050066 FLÉTTURIMI - SÉRH. Ný glæsileg sérhæö á 2. hasö 120 fm ásamt 21 fm bílskýli, 3 svefnh., stofa, boröstofa, merbau-parket, vestursv. Laus strax. Áhv. 6,8 millj. Verð 8,9 millj. 050041 FÍFURIMI - SÉRH. Stórglæsil. efri sérhasö 100 fm, 3ja herb. m. sérsm. innr. Parket. Áhv. 5,2 millj. Laus strax. Hagstæð kjör. Verð aðeins 8,2 millj. 050034 URÐARHOLT - MOS. Rúmgóö og björt 3ja herb. íb. 100 fm á 1. hæð. Parket, suðursvalir. Áhv. 5,5 millj. Verð 7,5 millj. 020123 GARÐATORG - GBÆ. Ný lúxusíbúö 3ja herb. 108 fm á 4. hæö í lyftuhúsi. Selst tilbúin undir trév., fullfrág. sameign og hús að utan. Lóð frág. m. gróöri. Góð staðsetn. m. miklu útsýni. Mögul. áhv. 6,0 millj. Verð 8,7 millj. 020126 HRINGBRAUT - HF. Góð 3ja herb. íb; 80 fm á jaröhæö m. sér- ínng. Skipti mögul. á raðhúsi í Mosfells- bæ. Áhv. 3,0 millj. góð lán. Verð 5,4 millj. 020127 4ra - 5 herb. BÁRUGATA -4RA Rúmgóð 4ra herb. risíbúð 110 fm á 3. hasð. Forstofuherb., parket. Góö staösetning. Hagstætt verð 6,8 millj. 030115 DVERGAÐAKKI - 3JA Rúmgóð 3ja herb. íb. 92 fm á 2. hæð meö aukaherb. 15 fm á jaröhæð. Parket. Vestur- svalir. Áhv. byggsj. 4,2 millj. Verð 6,5 millj. 020128 ÞVERHOLT - MOS. Stórglæsileg ný 3j|herb. íb. 95 fm á 2. hæö í litlu fjölbýlishúsi.'Séraðkoma. Stutt í alla þjónustu. Mögul. áhv. 6,0 millj. Verð 8,5 millj. 020124 FRAMNESVEGUR - 2JA Mjög falleg nýleg 2ja herb. íb. 60 fm á 2. hæð m. yfirb. svölum, 8fm sólstofu. Mögul. áhv. 3;6 millj. Verð 5,2 millj. Laus strax. 010108 MIÐHOLT - 2JA Vorum að fá í sölu nýja 2ja herb. ib. á 3. hæö í litlu fjölbhúsi. Suöursvalir. Áhv. 3,0 millj. Tækifærisverð 4,7 millj. 010107 ENGIHJALLI - KÓP. Góð 2ja herb. íb. 54 fm á 1. hæö í lyftuhúsi, húsvörður. Mögul. áhv. 3,0 millj. Hagst. verð 4,5 millj. 010018 TRYGGVAGATA -2JA Falleg 2ja herb. íb. 60 fm á 5. hæð í lyftu- húsi. Parket, suðursvalir. Áhv. 2,6 millj. byggsj. 40 ára lán. Vextir 4,9%. Verð 5,3 millj. 010106 SNORRABRAUT-2JA Vorum að fá í einkas. 2ja herb. íb. 61 fm á 3. hæð. Verð 5,4 millj. 010103 VÍKURÁS - 2JA Falleg nýl. 2ja herb. íb. 60 fm á 3. hæð. Parket. Fallegar innr. Austursv. Mikið útsýni. Áhv. 2,6 millj. byggsj. Verð 5,4 millj. 010098 VESTURBERG - 4RA Mjög góð 4ra herb. íb. 100 fm á 1. hæð. 3 svefnherb. Parket. Sv.-svaiir. Skipti mögul. á minni eign. 030080 AÐALSTRÆTI - NYBYGGT Ný stór 2ja herb. íb. 77 fm á 5. hæð, tiibú- in undir trév. í lyftuhúsi, austursvalir. Frábær staðsetning 010102 GRETTISGATA - 5 HERB Tækifærisverð. Rúmg. 5 herb. íb. 117 fm á 2. hæð. 4 svefnh., stofa, borðstofa. Suð- ursv. Laus strax. 050045 HRAUNBÆR - 3JA Falleg 3ja herb. íb. 74 fm á efri hæð í 2ja hæða húsi. Parket. Vestursv. Góð staðsetn. Tækifærisverð 6,0 millj. 020107 Sæberg Þórðarson, löggiltur fasteigna- og skipasali, Háaleitisbraut 58, sími 5885530 Fasteignamiðlunin Berg, Háaleitisbraut 58, sími 588 55 30 ar Guðmundsson. Umræðanumfrárennsl- iskerfin hefur hins vegar orðið útundan. Hver kannast ekki við stíflu í frá- rennsli frá eldhásvaski eða ólykt í baðherbergi? Þetta eru aðeins tvö vandamál sem upp kunna að koma í hveiju húsi. Umræða um stillingu hitakerfa, nýt- ingu vatns eða millirennsli í blöndun- artækjum, svo nokkuð sé nefnt, hef- ur verið umtalsverð á undanförnum árum og almenningur er að gera sér betri grein fyrir hvers hann á að vænta af hita- og neysiuvatnskerf- um, hvaða kröfur hann á að gera til kerfanna og þeirra sem þau leggja og stilla. En það er eins og umræðan um frárennsliskerfin hafi orðið útundan og því sannarlega tími til kominn að reyna að bæta þar úr. Stóreygir lagnamenn á vellinum Bandarískur her tók sér bólfestu á Keflavíkurflugvelli 1951 og hefur verið þar síðan og hefur um þá dvöl verið deilt æ síðan. En hvort sem menn voru ir.eð eða móti hernum slógu fáir hendi á móti þeirri vinnu sem þar bauðst enda var atvinnuástandið í landinu með því bághornasta sem þekkt hefur verið upp úr miðri öldinni. Herinn hóf þegar umfangsmikiar byggingaframkvæmdir og fjöimargir íslenskir iðnaðarmenn fengu þar vinnu. Allar teikningar voru banda- rískar svo og nánast allt byggingar- efni. íslenskir lagnamenn urðu stóreyg- ir og undrandi yfir mörgu sem þeir kynntust þar og áttu jafnvel bágt með að kyngja því öllu. Eitt af því var að allar frárennslis- lagnir í þriggja hæða sambýlishús, sem byggð voru skammt frá gömlu flugstöðinni, voru tvöfaldar og tengdust alltaf saman fyrir ofan hvert tæki, önnur lögnin tengdist frárennsli í grunni en hin lá upp úr þaki. Hvers konar rugl var nú þetta, hugsaðu íslenskir lagnamenn. Úloftun frárennsliskerfa Þarna var landinn í fyrsta skipti að kynnast útloftun frárennslislagna sem nú þykir sjálfsagður hlutur. Hvers vegna þörf er á útloftun frárennslislagna er best að skýra með stuttri dæmisögu: Ef hellt er úr fullri flösku af vatni og henni hvolft á meðan sýgur hún jafnmikið rúmmál af lofti upp í sig eins og vatnið sem úr henni rennur; þetta skilja allir. Það er ekki eins víst að allir skilji að það sama gerist í frárennslislögn; þegar sturtað er úr salernisskál renn- ur allt ljúflega svo lengi sem vatn kemur úr skálinni, en þegar það þrýt- ur vandast málið. Þá vantar loft inn í leiðsluna eins og flöskuna áðan, vatnið hrapar niður leiðsluna og myndar á bak við sig tómarúm eða undirþrýsting. Það gerist hins vegar ekki ef frárennslislögnin er lögð upp úr þaki, þá dregur fallandi vatnið með fyigihlutum einfaldlega loft inn í leiðsluna á eftir sér. Ef enginn möguleiki er á að fá ioft inn í leiðsluna myndast undir- þrýstingur eða sog, það mikið sog að vatnslásar undir baðkerum eða öðrum tækjúm tæmast og þá á ólykt- in og rotið loftið úr frárennsliskerfi götunnar greiða leið inn í hýbýli og vistarverur; heidur ókræsilegt. Vakúmventlar í fjölmörgum húsum, líklega flest- um, sem byggð voru á fyrri hluta aldarinnar, er engin útloftun á frá- rennsliskerfum upp úr þaki og vandamálið „ólykt“ er því miður allt of algengt. Það er engin undra þó mörgum vaxi það í augum að ráðast í að komast inn á frárennslislögn inni í íbúð til að leggja leiðslu upp úr þaki. Þessu má bjarga á einfaldari hátt, því má bjarga með svokölluðum vak- úmventlum, öðru nafni og íslenskara nefndir undirþrýstingsventlar. Siíkir ventlar eru til í mörgum stærðum og gerðum og þeim er hægt að koma fyrir víða án þess að miklu þurfi að raska. Það má koma þeim fyrir á frá- rennsli handlaugar, eldhússvasks eða salernisskálar. Það þarf að gera þetta skipulega, leysa vandamálið í heild. Einu má ekki gleyma hvort sem um nýbyggingu eða endurbætur á eldra húsnæði er að ræða; á hverju frárennsliskerfi, sem hefur eina sam- eiginlega tengingu við götuæð, verð- ur að vera ein útloftun upp úr þaki eða út úr vegg ef vakúmventlar eru notaðir. Þetta kemur til af því að það er ekki alltaf um sog eða undirþrýsting að ræða í frárennsliskerfum, stund- um er þar verulegur yfírþrýstingur sem kemur af sjávarföllum og sterk- um vindum. Þessi yfirþrýstingur get- ur orðið svo mikill að vatn gangi upp úr vatnsiásum og ólyktin ryðjist inn í híbýli manna. Gegn þessu vinnur bein útloftun eins og öryggisventill. Ef margir vakúmventlar eru á frá- rennsliskerfi en engin útloftun geta ventlarnir skemmst. Gleymið því aldrei: Það verður að vera ein útloftun með vakúmventlum!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.