Morgunblaðið - 05.06.1996, Side 1
JMorgtntlilaMfe
D
1996
MIDVIKUDAGUR 5. JUNI
BLAÐ
TENNIS / OPNA FRANSKA MEISTARAMOTIÐ
Seles táraðist
DAGURINN í gær var dagur vonbrigða hjá bandarísku tenniskonunnl Moniku Seles á Opna franska meistara-
mótlnu. Hún tapaði fyrir tékknesku stúlkunni Jana Novotna t tveimur settum og var þetta fyrsti tapleikur
Selesar á Opna franska síðan 1889. Hún þurrkaði því bæði tár úr hvörmum og svita af enni er hún gekk af
leikvelli að loknum 88 mínútna taplelk.
■ Seles úr leik/D2
FC Kaupmanna-
höfn til Keflavíkur
NÚ ER endanlega Ijóst hvaða lið verða mótheijar
Keflvíkinga í Getraunakeppninni svokölluðu
(Intertoto keppni UEFA) í knattspyrnu í sumar.
Oljóst var þar til í gær hvert yrði fimmta liðið I
riðlinum en það verður danska liðið FC Kaupa-
mannahöfn. Fyrir voru Austria Memphis frá
Austurríki, Örebro SK frá Svíþjóð - en með því
leika Arnór Guðjohnsen, Sigurður Jónsson og
Hlynur Birgisson - og Maribor Branik frá Slóv-
eníu. Heimaleikir Keflvíkinga verða gegn danska
liðinu og því slóvenska en liðið leikur gegn Örebro
og austurríska liðinu á útivelli.
Keilumenn
misstu flugið á
lokasprettinum
ÍSLENSKA kvennaliðið í keilu hafnaði í 15. sæti
af álján þjóðum í Evrópubikarmóti í keilu sem
lauk í Finnlandi á laugardaginn og karialiðið
hafnaði í 17. sæti af 22 þátttökuþjóðum. Finnar
sigruðu í kvennaflokki en Svíar í þjá karlmönnun-
um.
Kvennasveit Islands var kominn í 12. sæti fyr-
ir helgi en missti flugið á lokasprettinum og tap-
aði sex af síðustu sjö viðureignunum og karlalið-
ið náði aðeins að hafa betur í tveimur af síðustu
níu leikjum sínum.
Meðaltal íslensku kvennasveitarinnar i keppn-
inni var 889,4 en meðaltal hvers leikmans var
177,9 og sveitin hlaut 12 stig. Til samanburðar
má geta þess að meðaltal finnska liðsins var 984,3
og meðaltal hvers leikmans var 196,9. Að jafnaði
lék íslenska karlaliðið á 960,6 í keppninni sem
þýðir að meðaltal hvers leikmanna hafi verið
192,1 og hlaut liðið 12 stig. Meðaltal sænsku sveit-
arinnar var 1055,4 og hvers leikmans 211,1.
Guðný Heiga Hauksdóttir lék best íslensku
kvennanna og var með 189,5 að meðaltali og Jón
Helgi Bragason hafði besta meðaltalið í karla-
sveitinni, 194,7. Stefán Ingi Óskarsson kom hon-
um næstur með 194,3. Hæstu leiki áttu Guðný
Helga og Stefán Ingi, bæði léku á 257 og Jón
Helgi náði 256.
Búningar Skota
hurfu
FORRÁÐAMENN skoska landsliðsins í knatt-
spymu héldu um tíma í gær, að þeir yrðu að fá
n jja keppnisbúninga á liðið fyrir Evrópukeppn-
ina. Taska með keppnispeysum liðsins hvarf á
hótelinu sem liðið hefur bækistöðvar sínar við
Stratford-on-Avon í Mið-Englandi. Lögreglan var
kölluð til, eftir stutta stimd fannst taskan rétt
hjá hótelinu.
KNATTSPYRNA
*
Islenska landsliðið mætir Kýpurbúum í vináttulandsleik á Akranesi í kvöld
Reynum að laga það
sem aflaga fór
Islenska A-landsliðið í knatt-
spyrnu karla mætir Kýpurbúum
í vináttulandsleik á Akranesvelli
kl. 20.00 í kvöld. Liðin gerðu jafn-
tefli, 1:1, í Larnaca á Kýpur fyrir
fimm árum og gerði Þorvaldur
Örlygsson mark íslands.
Fjórir nýliðar eru í íslenska
hópnum að þessu sinni og gerði
Logi Ólafsson, landsliðsþjálfari,
sex breytingar á liðinu frá því í
HM-leiknum á móti Makedóníu um
síðustu helgi.
Logi sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi að hann væri
ekki búinn að ákveða byrjunarliðið.
„Það er spurning hvort Þórður
Guðjónsson og Hilmar Björnsson
geta leikið vegna meiðsla. Þórður
fékk högg á lærið í landsleiknum
gegn Makedóníu á dögunum og
Hilmar tognaði á magavöðva á
æfingu í gær. Þeir fara báðir í
læknisskoðun í fyrramálið (í dag)
og þá kemur í ljós hvort þeir verða
leikfærir eða ekki. Eftir það get
ég valið byrjunarliðið," sagði Logi.
Hann sagðist lítið vita um mót-
hetjana frá Kýpur, annað en að
Kýpurbúar væru fljótir og léttleik-
andi. „Ég veit að Kýpur vann Eist-
land í vor, en annars hugsa ég
fyrst og fremst um mitt lið. Við
förum í þennan leik til að reyna
að laga það sem aflaga fór í leikn-
um á móti Makedóníu. Okkur tókst
þá ekki nægilega vel upp í sóknar-
leiknum sem var hugmyndasnauð-
ur. Ég vona að við náum að finna
rétta taktinn í þessum leik,“ sagði
landsliðsþjálfarinn.
MorgunDlaoio/Porkell
Nýliðarnir með þjálfaranum
LOGI Ólafsson, landsllösþjálfarl, er hér ásamt nýllðunum
fjórum. Frá vlnstrl: Þórður Þórðarson, ÍA, Hermann Hreiðars-
son, ÍBV, Logl, Þórhallur Dan Jóhannsson, Fylkl, og Sverrir
Sverrlsson, Lelftrl.
KNATTSPYRNA: ÞJÓDVERJAR SIGURSTRANGLEGASTIR Á EM / D4