Morgunblaðið - 06.06.1996, Síða 1
88 SÍÐUR B/C
126. TBL. 84. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Vaxandi harka að hlaupa í forsetakosningabaráttuna í Rússlandi
Ekkja Dúdajevs
styður Jeltsín
Moskvu. Reuter.
BORIS Jeltsín Rússlandsforseta
bættist í gær óvæntur liðsauki er
ekkja tsjetsjenska skæruliðaleiðtog-
ans Dzokhar Dúdajev lýsti því yfir
að forsetinn væri eina von lýðræðis-
ins í Rússlandi. „Ég vil byija á því
að veija lýðræði okkar, sem þýðir
að veija forseta okkar, Borís Ník-
olajevítsj Jeltsín," sagði Alla
Dúdajev en talið er að eiginmaður
hennar hafi látið lífið í rússneskri
eldflaugaárás í apríl sl.
Kosningabaráttan í Rússlandi
hefur harðnað á síðustu dögum og
í gær hvatti frambjóðandi kommún-
ísta, Gennadíj Zjúganov, stuðnings-
menn sína til að beijast „frá manni
til manns, frá hjarta til hjarta".
Zjúganov, eins og aðrir mótfram-
bjóðendur Jeltsíns, er afar ósáttur
við það að forsetinn fái langmesta
umfjöllun í ríkisreknu sjónvarpi og
sagði að nú riði á að hveijum og
einum stuðningsmanna sinna tæk-
ist að fá sex til sjö manns á sitt
band. Þá skoraði Zjúganov einnig
á Jeltsín að mæta sér í sjónvarps-
kappræðum, sem hann vill að fram
fari 10. júní nk., sex dögum áður
en forsetakosningarnar eiga að fara
fram.
Staða Zjúganovs batnaði lítillega
í gær þegar einn af frambjóðendun-
um í forsetakjörinu, Aman Tulejev,
dró framboð sitt til baka og lýsti
yfir stuðningi við Zjúganov.
Kenndi starfsliði
Jeltsíns um
Alla Dúdajev lýsti yfír stuðningi
við Jeltsín á kvennaráðstefnu í
Moskvu í gær. Sagði hún eiginmann
sinn ævinlega hafa leitað friðsam-
legrar lausnar á átökunum í
Tsjetsjníju og kenndi starfsliði
Jeltsíns um hvernig komið væri.
Dúdajev hefði fjórum sinnum reynt
að hafa samband við forsetann en
starfsmenn hans komið í veg fyrir
fund þeirra.
Ekki hefur enn verið upplýst
hvort Dúdajev var myrtur af ásettu
ráði eða hvort hann lenti fyrir tilviij-
un í miðri eldflaugaárás.
Pavel Gratsjov, varnarmálaráð-
herra Rússlands, sagði í gær, að
allir sjóliðar, sem kosið hefðu utan
kjörfundar, hefðu greitt Jeltsín at-
kvæði sitt og hafa þessi ummæii
vakið heilmikið uppnám. Talsmaður
yfirkjörstjórnar kvaðst ekki skilja
hvernig Gratsjov gæti vitað hvernig
atkvæði hefðu fal'iið í leynilegri
kosningu og á þingi hefur verið
krafist opinberrar rannsóknar á
þessu máli.
Reuter
„ÞÚ ERT okkar síðasta von“ segir á kosningaspjaldi þjóðernis-
sinnans og forsetaframbjóðandans Yladimírs Zhírínovskjjs.
Hann lýsti yfir i gær að aðeins samkomulag á milli sín, Jeltsíns
Rússlandsforseta og frambjóðanda kommúnista, Gennadij Zjúg-
anovs, gæti komið i veg fyrir borgarastyrjöld.
Áhrif
farsíma-
notkunar
könnuð
Genf. Reuter.
ÁKVEÐIÐ hefur verið, að Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunin,
WHO, gangist fýrir umfangs-
mikilli rannsókn á næstu fimm
árum á áhrifum rafsegulsviðs
á fólk en það fýlgir notkun
ýmissa tækja, til dæmis far-
síma.
Rannsóknin var kynnt í
Genf í gær en sérfræðingar
WHO segja, að enn hafi ekki
tekist að sanna, að hætta stafi
af rafsegulsviði ýmissa tækja,
til dæmis farsíma, örbylgju-
ofna, hárþurrkna, raf-
magnsrakvéla og rafknúinna
sláttuvéla. Samt sé full ástæða
til að skoða þetta mál ofan í
kjölinn.
„Rafsegulsvið af ýmsum
toga verður æ algengara í
umhverfi okkar og sumir hafa
kennt því um krabbamein,
óeðlilega hegðun, minnisleysi,
Parkinsons- og Alzheimers-
sjúkdóm, alnæmi, vöggudauða
og margt annað,“ sagði í til-
kynningu WHO og vitnað var
til rannsókna í Bandaríkjunum
og Svíþjóð, sem virðast sýna
tengsl á milli rafsegulsviðs og
heilsuleysis.
Reuter
Sorphirða
á Everest
NEPALSKIR fjallgöngumenn
hafa verið önnum kafnir að
undanförnu, ekki við að setja
ný met í fjallklifri heldur að
bæta fyrir sóðaskapinn á hæsta
fjalli í heimi, Everestfjalli. Hér
er 15 manna hópur að koma
ofan af fjallinu með tvö tonn
af rusli eftir 25 daga leiðangur
en að þeirra sögn eru enn eftir
að minnsta kosti 15 tonn af alls
konar úrgangi, sem fjallamenn
víðs vegar að úr heimi hafa
eftirlátið drottningu fjallanna.
Byggðaráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Istanbul
„Vatnskreppa“ mesta
ógnunin við friðinn
Istanbul. Reuter.
HORFUR eru á, að vatnsskortur
eða ónógur aðgangur að vatni verði
helsta deiluefni ýmissa þjóða á
næstu árum og áratugum. Kom það
fram á Byggðaráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna í Istanbul í Tyrklandi
í gær. Bentu sérfræðingar á, að
þegar kæmi fram á næstu öld myndi
meirihluti mannkyns búa í borgum
og mætti þá búast við alvarlegri
„vatnskreppu".
Milljónir manna þjást af sjúk-
dómum og búa við sára fátækt
vegna skorts á drykkjarvatni og
margir óttast, að þetta ástand, sem
versnar stöðugt, muni síðar leiða
til alvarlegra átaka milli ríkra og
fátækra. A Byggðaráðstefnunni í
Istanbul er því haldið fram, að
vatnsskortur sé mesta ógnunin, sem
steðjar að mannkyni nú á dögum,
og sé miklu líklegri til að valda
styrjöldum þjóða í milli en hugsan-
legur olíuskortur.
Vatnsskammturinn minnkar
Vandamálin eru mest í risaborg-
unum, borgum með 10 milljónir
íbúa eða meira, en þeim hefur fjölg-
að mikið í þróunarlöndunum.
„Um aldamótin munu mörg ríki
hafa helmingi minna vatn en þau
höfðu 1975,“ sagði Arcot Ramach-
andran, fyrrverandi framkvæmda-
stjóri Byggðaráðstefnunnar, og
samkvæmt úpplýsingum frá Al-
þjóðabankanum á einn milljarður
manna ekki kost á hreinu drykkjar-
vatni og 1,7 milljarðar geta ekki
viðhaft lágmarkshreinlæti vegna
vatnsskorts.
I mörgum ríkjum og borgum eru
vandamálin þegar orðin yfirvöldum
ofviða. Þau hafa ekki efni á miklum
framkvæmdum til að koma í veg
fyrir vatnssóun en sem dæmi má
nefna, að í því auðuga ríki Singa-
p.ore fara aðeins 8% vatnsins til
spillis áður en það nær til neytenda
en í Manila á Filippseyjum tapast
58% vegna ónýtra og lekra leiðslna.
80-85% þess vatns, sem mennirn-
ir nota, fara til landbúnaðar og tal-
ið er, að helmingurinn af því fari
til spillis. Þá er óttast, að uppgang-
ur borganna eigi eftir að ýta undir
átök um vatnið milli íbúa þeirra og
íbúa á landsbyggðinni.
Útflutningsbann vegna kúa-
riðunnar afnumið að hluta
Brussel, París. Reuter.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu-
sambandsins (ESB) ákvað í gær að
aflétta að hluta banni við útflutn-
ingi á breskum nautgripaafurðum
en það var sett á í apríl vegna kúa-
riðunnar. Þeim skilaboðum var jafn-
framt komið á framfæri við Breta
að þeir yrðu að hætta stríði því sem
þeir hafa átt í við ESB ef aflétta
eigi öllum hindrunum á sölu kjöts-
ins.
Jacques Santer, forseti fram-
kvæmdastjórnarinnar, sagði á Evr-
ópuþinginu í gær að stjórnin hefði
ákveðið að aflétta banni við sölu á
hleypi og dýrafitu, sem unnin væru
úr nautagripum, svo og sæði úr
nautum.
I ræðu sinni réðst hann þó jafn-
framt harkalega á þá stefnu bre-
skra stjórnvalda að hindra allar
lagasetningar ESB til þess að reyna
að þvinga framkvæmdastjórnina til
að aflétta banninu. Sagði hann að-
gerðir Breta ganga „gegn orðum
og anda Evrópusáttmálans".
Malcolm Rifkind, utanríkisráð-
herra Bretlands, fagnaði í gær
ákvörðun ESB og sagðist vona að
aðgerðir Breta gegn lagasetningum
ESB væru ekki nauðsynlegar leng-
ur. í framhaldi af því komu Bretar
ekki í veg fyrir undirritun samnings
um aukaaðild Slóveníu að ESB.
■ Þrýst á Breta/22