Morgunblaðið - 06.06.1996, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 06.06.1996, Qupperneq 1
88 SÍÐUR B/C 126. TBL. 84. ÁRG. FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Vaxandi harka að hlaupa í forsetakosningabaráttuna í Rússlandi Ekkja Dúdajevs styður Jeltsín Moskvu. Reuter. BORIS Jeltsín Rússlandsforseta bættist í gær óvæntur liðsauki er ekkja tsjetsjenska skæruliðaleiðtog- ans Dzokhar Dúdajev lýsti því yfir að forsetinn væri eina von lýðræðis- ins í Rússlandi. „Ég vil byija á því að veija lýðræði okkar, sem þýðir að veija forseta okkar, Borís Ník- olajevítsj Jeltsín," sagði Alla Dúdajev en talið er að eiginmaður hennar hafi látið lífið í rússneskri eldflaugaárás í apríl sl. Kosningabaráttan í Rússlandi hefur harðnað á síðustu dögum og í gær hvatti frambjóðandi kommún- ísta, Gennadíj Zjúganov, stuðnings- menn sína til að beijast „frá manni til manns, frá hjarta til hjarta". Zjúganov, eins og aðrir mótfram- bjóðendur Jeltsíns, er afar ósáttur við það að forsetinn fái langmesta umfjöllun í ríkisreknu sjónvarpi og sagði að nú riði á að hveijum og einum stuðningsmanna sinna tæk- ist að fá sex til sjö manns á sitt band. Þá skoraði Zjúganov einnig á Jeltsín að mæta sér í sjónvarps- kappræðum, sem hann vill að fram fari 10. júní nk., sex dögum áður en forsetakosningarnar eiga að fara fram. Staða Zjúganovs batnaði lítillega í gær þegar einn af frambjóðendun- um í forsetakjörinu, Aman Tulejev, dró framboð sitt til baka og lýsti yfir stuðningi við Zjúganov. Kenndi starfsliði Jeltsíns um Alla Dúdajev lýsti yfír stuðningi við Jeltsín á kvennaráðstefnu í Moskvu í gær. Sagði hún eiginmann sinn ævinlega hafa leitað friðsam- legrar lausnar á átökunum í Tsjetsjníju og kenndi starfsliði Jeltsíns um hvernig komið væri. Dúdajev hefði fjórum sinnum reynt að hafa samband við forsetann en starfsmenn hans komið í veg fyrir fund þeirra. Ekki hefur enn verið upplýst hvort Dúdajev var myrtur af ásettu ráði eða hvort hann lenti fyrir tilviij- un í miðri eldflaugaárás. Pavel Gratsjov, varnarmálaráð- herra Rússlands, sagði í gær, að allir sjóliðar, sem kosið hefðu utan kjörfundar, hefðu greitt Jeltsín at- kvæði sitt og hafa þessi ummæii vakið heilmikið uppnám. Talsmaður yfirkjörstjórnar kvaðst ekki skilja hvernig Gratsjov gæti vitað hvernig atkvæði hefðu fal'iið í leynilegri kosningu og á þingi hefur verið krafist opinberrar rannsóknar á þessu máli. Reuter „ÞÚ ERT okkar síðasta von“ segir á kosningaspjaldi þjóðernis- sinnans og forsetaframbjóðandans Yladimírs Zhírínovskjjs. Hann lýsti yfir i gær að aðeins samkomulag á milli sín, Jeltsíns Rússlandsforseta og frambjóðanda kommúnista, Gennadij Zjúg- anovs, gæti komið i veg fyrir borgarastyrjöld. Áhrif farsíma- notkunar könnuð Genf. Reuter. ÁKVEÐIÐ hefur verið, að Al- þjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO, gangist fýrir umfangs- mikilli rannsókn á næstu fimm árum á áhrifum rafsegulsviðs á fólk en það fýlgir notkun ýmissa tækja, til dæmis far- síma. Rannsóknin var kynnt í Genf í gær en sérfræðingar WHO segja, að enn hafi ekki tekist að sanna, að hætta stafi af rafsegulsviði ýmissa tækja, til dæmis farsíma, örbylgju- ofna, hárþurrkna, raf- magnsrakvéla og rafknúinna sláttuvéla. Samt sé full ástæða til að skoða þetta mál ofan í kjölinn. „Rafsegulsvið af ýmsum toga verður æ algengara í umhverfi okkar og sumir hafa kennt því um krabbamein, óeðlilega hegðun, minnisleysi, Parkinsons- og Alzheimers- sjúkdóm, alnæmi, vöggudauða og margt annað,“ sagði í til- kynningu WHO og vitnað var til rannsókna í Bandaríkjunum og Svíþjóð, sem virðast sýna tengsl á milli rafsegulsviðs og heilsuleysis. Reuter Sorphirða á Everest NEPALSKIR fjallgöngumenn hafa verið önnum kafnir að undanförnu, ekki við að setja ný met í fjallklifri heldur að bæta fyrir sóðaskapinn á hæsta fjalli í heimi, Everestfjalli. Hér er 15 manna hópur að koma ofan af fjallinu með tvö tonn af rusli eftir 25 daga leiðangur en að þeirra sögn eru enn eftir að minnsta kosti 15 tonn af alls konar úrgangi, sem fjallamenn víðs vegar að úr heimi hafa eftirlátið drottningu fjallanna. Byggðaráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Istanbul „Vatnskreppa“ mesta ógnunin við friðinn Istanbul. Reuter. HORFUR eru á, að vatnsskortur eða ónógur aðgangur að vatni verði helsta deiluefni ýmissa þjóða á næstu árum og áratugum. Kom það fram á Byggðaráðstefnu Samein- uðu þjóðanna í Istanbul í Tyrklandi í gær. Bentu sérfræðingar á, að þegar kæmi fram á næstu öld myndi meirihluti mannkyns búa í borgum og mætti þá búast við alvarlegri „vatnskreppu". Milljónir manna þjást af sjúk- dómum og búa við sára fátækt vegna skorts á drykkjarvatni og margir óttast, að þetta ástand, sem versnar stöðugt, muni síðar leiða til alvarlegra átaka milli ríkra og fátækra. A Byggðaráðstefnunni í Istanbul er því haldið fram, að vatnsskortur sé mesta ógnunin, sem steðjar að mannkyni nú á dögum, og sé miklu líklegri til að valda styrjöldum þjóða í milli en hugsan- legur olíuskortur. Vatnsskammturinn minnkar Vandamálin eru mest í risaborg- unum, borgum með 10 milljónir íbúa eða meira, en þeim hefur fjölg- að mikið í þróunarlöndunum. „Um aldamótin munu mörg ríki hafa helmingi minna vatn en þau höfðu 1975,“ sagði Arcot Ramach- andran, fyrrverandi framkvæmda- stjóri Byggðaráðstefnunnar, og samkvæmt úpplýsingum frá Al- þjóðabankanum á einn milljarður manna ekki kost á hreinu drykkjar- vatni og 1,7 milljarðar geta ekki viðhaft lágmarkshreinlæti vegna vatnsskorts. I mörgum ríkjum og borgum eru vandamálin þegar orðin yfirvöldum ofviða. Þau hafa ekki efni á miklum framkvæmdum til að koma í veg fyrir vatnssóun en sem dæmi má nefna, að í því auðuga ríki Singa- p.ore fara aðeins 8% vatnsins til spillis áður en það nær til neytenda en í Manila á Filippseyjum tapast 58% vegna ónýtra og lekra leiðslna. 80-85% þess vatns, sem mennirn- ir nota, fara til landbúnaðar og tal- ið er, að helmingurinn af því fari til spillis. Þá er óttast, að uppgang- ur borganna eigi eftir að ýta undir átök um vatnið milli íbúa þeirra og íbúa á landsbyggðinni. Útflutningsbann vegna kúa- riðunnar afnumið að hluta Brussel, París. Reuter. FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu- sambandsins (ESB) ákvað í gær að aflétta að hluta banni við útflutn- ingi á breskum nautgripaafurðum en það var sett á í apríl vegna kúa- riðunnar. Þeim skilaboðum var jafn- framt komið á framfæri við Breta að þeir yrðu að hætta stríði því sem þeir hafa átt í við ESB ef aflétta eigi öllum hindrunum á sölu kjöts- ins. Jacques Santer, forseti fram- kvæmdastjórnarinnar, sagði á Evr- ópuþinginu í gær að stjórnin hefði ákveðið að aflétta banni við sölu á hleypi og dýrafitu, sem unnin væru úr nautagripum, svo og sæði úr nautum. I ræðu sinni réðst hann þó jafn- framt harkalega á þá stefnu bre- skra stjórnvalda að hindra allar lagasetningar ESB til þess að reyna að þvinga framkvæmdastjórnina til að aflétta banninu. Sagði hann að- gerðir Breta ganga „gegn orðum og anda Evrópusáttmálans". Malcolm Rifkind, utanríkisráð- herra Bretlands, fagnaði í gær ákvörðun ESB og sagðist vona að aðgerðir Breta gegn lagasetningum ESB væru ekki nauðsynlegar leng- ur. í framhaldi af því komu Bretar ekki í veg fyrir undirritun samnings um aukaaðild Slóveníu að ESB. ■ Þrýst á Breta/22
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.