Morgunblaðið - 06.06.1996, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
JHörgtinWfiirtíi
B
1996
FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ
BLAÐ
Afar slakt á Akranesi
Morgunblaðið/Kristinn
ÍSLENDINGAR sigruðu Kýpurbúa 2:1 í vináttulandsleik í knattspyrnu á Akranesi í gærkvöldi. Leikurinn þóttl
ekki upp á marga fiska, íslendingar voru langt frá sínu besta gegn slökum mótherjum og máttu teljast heppnir
aö sleppa meö sigur. Aðeins góð markvarsla Kristjáns Finnbogasonar kom í veg fyrir að gestirnir jöfnuðu. Á
myndlnni er Þórður Guðjónsson í færi vlð mark Kýpurbúa í gærkvöldi en tókst ekki að skora.
■ Sigur, en vonbrigði / B4
George Donis
til Blackburn
ENSKA úrvalsdeildarliðið Blackburn Rovers gekk
í gær frá kaupum á gríska útherjanum George
Donis frá Panathinaikos. Donis, sem á að baki
27 landsleiki fyrir Grikkland var á Ewood Park
í gær og gekk frá samningnum en talið er að
hann fái um 20.000 pund í vikulaun - andvirði
ríflega tveggja milljóna króna.
Donis, sem er 26 ára, vakti mikla athygli í
Meistaradeild Evrópukeppninnar í knattspyrnu í
vetur fyrir stórgóða frammistöðu og hafði verið -
sterklega orðaður við Englandsmeistara Manc-
hester United. Arsenal og Glasgow Rangers voru
einnig talin hafa sýnt honum áhuga.
Tony Parkes, aðstoðar knattspyrnustjóri Black-
burn, sagði að útsendarar félagsins hefðu fylgst
með Donis í leikjum vítt og breitt um Evrópu síð-
ustu mánuði. „Hann er einstaklega fUótur og við
erum sannfærðir um að hafa gert frábær kaup,“
sagði hann. Kaupverðs var hins vegar ekki getið
í fréttum í gær.
Eggert eftirlits-
maður UEFA
í Sheffield
EGGERT Magnússon, formaður KSÍ, verður eft-
irlitsmaður UEFA á leikjum í D-riðli Evrópu-
keppninnar sem fram fara í Sheffield. Hann held-
ur til Engiands á morgun og verður viðstaddur
opnunarleik keppninnai’ milli Englendinga og
Svisslendinga á Wembley-leikvanginum í London.
„Allir eftirlitsmenn UEFA í keppninni koma
saman til fundar fyrir opnunarleikinn á Wembley
og síðan horfum við á leikinn. Ég fer síðan til
Sheffield á sunnudaginn og verð eftirlitsmaður í
riðli Dana, Króata, Portúgala og Tyrkja," sagði
Eggert við Morgunblaðið á Akranesi í gærkvöldi.
Guðmundur Pétursson, fyrrum varaformaður
- KSÍ, verður einn þriggja í áifrýjunardómstóli
keppninnar. Það er dómstóll sem tekur við kærum
sem koma frá aganefnd keppninnar.
Þriðji íslenski starfsmaður Evrópukeppninnar
er Ellert B. Schram, forseti íþróttasambands ís-
lands og fyrrverandi stjórnarmaður í knatt-
spyrnusambandi Evrópu, UEFA. Hann er tengilið-
ur UEFA og framkvæmdanefndai’ keppninnar.
Ellert hefur reyndar verið í föstu starfi í þessu
verkefui undanfarna mánuði.
Carlos til Real
BRASILÍSKI landsliðsmaðurinn Roberto Carlos,
sem Ieikið hefur með Internazioanele í Mílanó,
er á leiðinni til Real Madrid á Spáni. Carlos, sem
er 23 ára og mjög sókndjarfur vinstri bakvörður,
hefur gert fjögurra samning við félagið og skrif-
ar undir við hátíðlega athöfn 17. júní.
Real gekk illa í vetur, komst ekki í Evrópu-
keppni í annað skipti í sögu félagsins og til að
bæta gráu ofan á svart urðu erkifjendurnir í
Atletico Madrid Spánarmeistai’ar. Fabio Capello,
sem hætti störfum hjá AC Milan á Ítalíu, hefur
verið ráðinn þjálfari Real og allt verður gert til
að gera liðið að stórveldi að nýju að sögn.
Möguleikinn enn til staðar
Stúlkurnar sigruðu Hollendinga 2:0 á útivelli
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
knattspyrnu sigraði Holland með
tveimur mörkum gegn engu í lands-
leik í knattspyrnu í Den Ham í
Hollandi í gær. Leikurinn var liður
í undanriðli Evrópukeppninnar.
Heimastúlkur sóttu mun meira í
leiknum en íslenska liðið varðist vel
og með beittum skyndisóknum
veitti það gestgjöfum sínum skrá-
veifur. Þá lék Sigfríður Sóphusdótt-
ir vel í markinu og greip m.a. eina
vítaspymu.
Með sigrinum eygir íslenska liðið
enn möguleika á að komast í úrslita-
keppnina. Þegar einn leikur er eftir
í riðlinum, viðureign Rússa og Is-
lendinga í Moskvu 17. ágúst, þá
eru Frakkar efstir með 9 stig, Rúss-
ar með 8, íslenska liðið hefur 7 stig
og það hollenska 5 og þau lið sem
verða í öðru og þriðja sæti riðilsins
keppa við lið úr 1. riðli um sæti í
úrslitakeppninni - en í þeim riðli
er m.a. að finna Þýskaland og Nor-
eg, sem léku til úrslita á síðasta
heimsmeistaramóti, og Finnland.
Hollensku stúlkurnar hófu leik-
inn af miklum krafti en íslenska
liðið var vandanum vaxið og varðist
vel og beitti skyndisóknum. Upp
úr einni slíkri kom Katrín Jónsdótt-
ir íslenska liðinu á bragðið á 9.
mín. Það varð til að hleypa enn
meiri krafti í hollensku stúlkurnar
enda talsvert í húfi. Það lið sem
tapaði leiknum varð ekki einungis
í neðsta sæti riðilsins heldur þarf
það að bíta í það súra epli að falla
hugsanlega niður um styrleika-
flokk.
Síðari hálfleikur bytjaði með lát-
um og á 4. mínútu var dæmd víta-
spyrna á íslenska liðið en Sigfríður
Sóphusdóttir gerði sér lítið fyrir og
greip knöttinn. Stuttu.síðar fengu
hollensku stúlkurnar óbeina auka-
spyrnu innan vítateigs íslenska liðs-
ins eftir að dæmd hafði verið töf á
Sigfríði. Hollenska liðið stillti upp
en Ragna Lóa Stefánsdóttir komst
fyrir knöttinn og bjargaði fyrir
horn. Áfram héldu hollensku stúlk-
urnar að gera harða hríð að ís-
lenska markinu, en án árangurs.
Sigfríður markvörður átti stórleik
í markinu og bjargaði hvað eftir
annað á glæsilegan hátt.
Það var síðan eftir mikla pressu
að íslenska iiðið sneri vörn í sókn
og skoraði annað markið í leiknum
á 84. mínútu og gulltryggði sigur-
inn. Margrét Ólafsdóttir tók auka-
spyrnu utan af kanti og sendi inn
í teiginn þar sem Ásthildur Helga-
dóttir kom askvaðandi og þrumaði
knettinum í markið. Nokkru áður
hafði Ragna Lóa skallað boltann í
slá eftir sendingu frá Ingu Dóru
Magnúsdóttur.
Sigurinn var tryggður fyrst og
fremst á sterkri liðsheild þar sem
allir leikmenn lögðu sig fram.
Hollensku stúlkurnar léku fast
frá fyrstu mínútu en þýskt kven-
dómarapar lét þær ekki komast upp
með neinn moðreyk og tók fast á
öllu misjöfnu.
KNATTSPYRNA: LIÐIN í A-RIDLIEVRÓPUKEPPNINNAR í ENGLANDI / B2, B3