Morgunblaðið - 07.06.1996, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Tommi og Jenni
mere's wmat i'v/e
BEEN TMINKING..
YOU MAVE A BROTMER
UiMO LIVE5 OUT ON
TMEDE5ERT;DON'TYOU?
hecoulduseA ,
BETTER HOME.COULDNT
HE?5URE;ME COULD..
50 MERE'S MY IDEA..
Ég hef verið að Þú átt bróður sem á Hann gæti átt betra Heyrði ég einhvern
hugsa þetta. heima úti í eyðimörkinni, heimili, er það ekki? nefna „matartíma"?
er það ekki? Auðvitað, svo mér dett-
ur þetta í hug.
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: Iauga@mbl.is
3. júní 1996 -
sorgardagur
á Islandi
Frá Friðríki Schram:
í MORGUNFRÉTTUM ríkisút-
varpsins kl. 8.00 í morgun (4. júní)
var sagt að lagafrumvarpið um
„skráða samvist" (hjónabönd sam-
kynhneigðra) hefði verið samþykkt
sem lög frá Alþingi í gærkvöldi.
Þetta voru mér sorgarfréttir og
eflaust mörgum öðrum. I því sam-
bandi kom mér í hug að innan nokk-
urra ár munum við halda hátíðlegt
1000 ára afmæli kristni í landinu.
Með kristnitökunni á Þingvöllum
höfnuðu íslendingar ýmsum heiðn-
um siðum og tryggðu íbúum lands-
ins þess í stað ýmis grundvallar-
mannréttindi í anda kristinnar trú-
ar. Afleiðing þessa var m.a. sú að
barnaútburður var bannaður. Á síð-
ustu árum og áratugum hefur þjóð-
félag okkar verið að snúa frá ýms-
um kristnum siðferðisviðhorfum og
vegið hefur verið að grundvallar-
mannréttindum - hin fijálslegu
fótureyðingarlög eru dæmi um það.
Nú fellur enn eitt vígið. Löggjafar-
þingið lögfestir það sem hingað til
hefur verið álitið óhæfa - hjóna-
bönd kynvillinga. Ástæða þessarar
þróunar er slöpp kirkja sem hefur
slakað á gagnvart þrýstingi siðleys-
is og endurkomu heiðinna viðhorfa.
Forysta þjóðkirkjunnar og kenni-
menn hennar hafa ekki „skipað sér
í skarðið" sem skyldi og staðið vörð
um þessi grundvallaratriði. Þeir
hafa duflað við „frjálslynd" viðhorf
og talið sig óbundna af kennivaldi
Heilagrar ritningar í mörgum mikil-
vægum atriðum. Þetta hafa stjórn-
málamennirnir séð og því talið sér
óhætt að láta undan þrýstihópum
sem hafa hátt, enda óttast þeir að
missa atkvæði þeirra í næstu kosn-
ingum. Svo undarlegt sem það er,
virðast þeir láta sér í léttu rúmi
liggja viðhorf trúaðs fólks innan
þjóðkirkjunnar og annarra kristinna
safnaða. Óttast þeir ekki að missa
atkvæði þeirra?
Eitt er hið veraldlega vald og
annað er kirkja Krists. Þó svo al-
þingi hafi lagst svo lágt að sam-
þykkja lög sem fara gegn grund-
vallarsiðferði, þá er það nú skylda
kristinna manna að beygja sig ekki
undir þessa óhæfu. Orð Heilagrar
ritningar (sem hefur verið grund-
völlur siðferðis okkar og þess besta
í menningu okkar) í þessum efnum
eru ótvíræð: samlíf samkyn-
hneigðra er rangt og siðlaust. Prest-
ar, ég skora á ykkur: Eigið engan
þátt í þessu. Látið ekki nota ykkur
til þess að festa þetta siðleysi í sessi.
Lýsið vanþóknun ykkur á þessum
lögum. Neitið að sætta samkyn-
hneigða í „skráðri samvist" sem eru
í skilnaðarhugleiðingum og hvetjið
þá heldur til að slíta samvistinni.
Fylgið hinu forna postullega við-
horfi að framar ber að hlýða Guði
en mönnum. Sýnið kjark og líkist
upphafsmanni kirkjudeildar okkar,
Marteini Lúther, sem óttaðist
hvorki páfa né veraldleg yfirvöld
þegar um tryggð við vilja Guðs var
að ræða. Kristið fólk, nú eru örlaga-
tímar. Skriðan er farin af stað og
fleira ranglæti mun fylgja í kjölfar-
ið. Standið föst fyrir og látið ekki
hrekja ykkur af grunni sannleikans.
Standið vörð um heilbrigt og fagurt
mannlíf í anda Krists og kenningar
hans.
FRIÐRIK SCHRAM,
guðfræðingur,
Fljótaseli 25.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútaridi.
SKATABUÐIN
___k_Æl._Æ._^_k_
-SMMR fWAUK
Frelsaðu fæturna
urinn fylgir meö
fyrstu sandalar
sinnar gerðar...
...eru frábærir í fríið, bæði inni sem úti.
Margar gerðir með dempun í hæl og
mjög mjúkum og góðum sóla sem er
til í allt!