Morgunblaðið - 07.06.1996, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 07.06.1996, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA HANDKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson VELKOMINN í hópinnl Patrekur Jóhannesson landsllðsmaður úr KA, sem er á lelð tll Essen í Þýskalandi, sýnlr Jullan Róbert Duranona, félaga sínum úr Akureyrarliðinu, landsliðstreyju sína fyrir norðan í gær. Slóveni ráðinn þjálfari hjá KR HANDKNATTLEIKSDEILD KR hefur ráðið nýjan þjálfara til félagsins, Juij Horvat, og kemtir hann frá Slóveníu. Horvat er 32 ára gamall og lék á árum áður með liðinu Slovan Ljubljana, sem m.a. keppti í undanúrslitum Evr- ópukeppni meistaraliða árið 1987. Árangur Horvats sem þjálf- ara er mjög góður, en á 10 árum hafá lið hans 7 sinnum Juij Horvat hlotið meistaratitla og sex sinnum hafa þau lent í öðru eða þriðja sæti. Síðustu tvö árin hefur Horvat þjálfað meistara- flokkslið Slovan og á nýliðnu keppnistímabili var hann annar tveggja þjálfara kvennaliðs Olimpija Lubljana, sem hafnaði f öðru sæti í deildarkeppninni. Horvat tekur til starfa hjá KR15. júli nk. og mun hann taka að sér þjálfun meistaraf lokks kvenna og 3. flokks pilta auk þess sem hann mun sjá um tækniþjálfun meistaraflokks karla. Graf og Vicario leika til úrslita ÞAÐ verða þýska stúlkan Steffi Graf og hin spænska Sanches Vicario sem mætast f úrslitum Opna franska meistaramótsins f tennis á sunnu- daginn. Þetta verður f þriðja skiptið sem þær mætast f úrslitum. Sanches hafði betur árið 1989 en Graf náði fram hefndum í fyrra með sigri í þremnr settum. í undanúrslitum f gær lenti hvorug þeirra í vandræðum með að innbyrða vinninginn og Graf lét þess getið að hún hefði viljað leika lengur, áhorfenda vegna. „Svona stuttir og ójafnir leikir verða oft lítt skemmtilegir fyrir áhorfendur." Grafvann landa Vicario, Conchitu Martinez, 6-3, 6-1. Voicario lagði hins vegar Jana Novotnu frá Tékklandi einnig f tveimur settum, 6-3,7-5. Graf hefur fjórum sinnum borið sigur úr býtum á Opna franska mótinu en þetta verður f áttunda sinn sem hún leikur til úrslita, þá var þetta f tf- unda sinn sem hún leikur í undanúrslitum. Graf brosti út í annað er hún var spurð að þvf hvort þessi leikur hennar hefði bara verið formsatriði og sagði einungis. „Ég er ánægð með í hversu góðri æfíngu ég er um þessar mundir. „ Viðureign- in við Vicario verður erfíð, þótt ég hafi haft bet- ur í fyrra þá telur það ekki nú,“ sagði Graf og lét þess getið að hún hefði hitt Vicario f búnings- klefanum eftir sigurinn f dag og þær hefðu skipst á árnaðaróskum. „Ég lék vel gegn Novotnu, var vel einbeitt og tókst að gera það sém ég ætlaði, sigra,“ sagði Sanchez eftir leikinn við Novotna en hann tók 97 mfnútur. Sanchez hefur tvisvar sinnum sigrað í Ojpna franska mótinu, 1989 og 1994. I dag verður leikið í undanúrslitum í karla- flokki og þá mætir Pete Sampras Bandarfkjunum, Rússanum Yevgeny Kafelnikov annars vegar og hins vegar leikur Olympíumeistarinn Marc Rosset frá Sviss gegn hinum þýska Michael Stich. 1996 FOSTUDAGUR 7. JUNt BLAD Mistök að gefa munnlegt, jákvætt svar „MÉR leist vel á tilboð það sem Selfyssingar buðu mér og eflaust voru það mín mistök að gefa munnlegt, jákvætt svar við því og ef til vill tókumst við í hend- ur, ég og formaður Selfoss, en það var aldrei skrifað undir neinn samning,“ sagði Mikhael Abkashev i samtali við Morgun- blaðið í gær. Þar með staðfesti hann yfirlýsingu sem birtist i blaðinu í gær frá handknattleiks- deild Selfoss um að hann verði ekki næsti þjálfari liðsins. Sel- fyssingar halda því fram að hann hafi handsalað samning á vor- dögum en Abkashev segist ekki viss um það. Þjálfun ekki fullt starf „Ég hef rætt við formann handknattleiksdeildar Selfoss og greint honum frá því að það var ekkert í samningi þeim sem fé- lagið bauð sem mér leist ekki á. Hins vegar verð ég að hugsa um fjölskyldu mína einnig. Þjálfun handknattleiksliðs hér á landi er ekki fullt starf og ég vildi fá fjörutíu eða fimmtíu prósent starf við íþróttakennslu meðfram þjálfuninni til þess að geta fram- fleytt fjölskyldu minni. Þessa ósk mína gátu forráðamenn Selfoss ekki uppfyllt og þar með varð ekkert af því að ég tæki að mér þjálfun félagsins.“ Harmar málalok Mikhael sagðist ennfremur harma að svona hefði farið. Hann hefði verið of jákvæður þegar tilboðið kom upp og hitt forráða- menn félagsins nokkrum sinnum bæði fyrir austan og í Reykjavík. „Ástæðan fyrir því að ég tók ekki tilboðinu er persónuleg og hefur ekkert með þennan samn- ing að gera. Konan mín hefur sótt um að komast í hjúkrunar- fræðinám í Háskóla Islands, verði af því er nauðsynlegt að ég hafi öruggt starf og þjálfun er ekki öruggt starf." Mikhael Abk- ashev þjálfari JULIAN Róbert Duranona, landflótta Kúbumaðurinn sem leikur með KA og fékk nýlega íslenskan ríkisborgararétt, er kominn í íslenska landsliðið. Þorbjörn Jensson, landsliðs- þjálfari, tilkynnti 18 manna landsliðshóp sinn í gær. Liðið mun hefja æfingar eftir helgi í undirbúningi sínum fyrir und- ankeppni HM í haust. Liðið leikur tvo vináttuleiki við Sviss í Aarau og Wettingen 29. og 30. júní. Þorbjörn sagði að spennandi yrði að sjá hvemig Duranona komi til með að falla inn í leikmannahóp- inn. „Hann er frábær handknatt- leiksmaður og hefur sýnt það og sannað með KA. Ég er viss um að við getum notið krafta hans og við þurfum á svona leikmanni að halda. Hann á eftir að styrkja liðið,“ sagði þjálfarinn. „Þessir strákar eru allir tilbúnir í slaginn. Þetta er sá kjarni sem við byggjum á í undirbúningi okkar fyrir undankeppni HM. Þetta eru reynslumiklir strákar og svo hef ég líka valið tvo unga og efnilega með, Valgarð og Gunnar Berg. Það er ekki hægt að gera miklar til- raunir með nýja leikmenn því tíminn er dýrmætur sem við höfum fram á haustið. Ég fæ alla leik- mennina á fyrstu æfingun'a á mánudaginn nema Júlíus Jónasson sem er í æfingabúðum með liði sínu. Hann kemur síðan til landsins eftir viku.“ Aðspurður hvort Héðinn Gilsson væri ekki inni í myndinni sagði Þorbjörn: „Við sáum það í vetur að hann var alls ekki í neinni æfíngu og ég vil sjá hann fyrst koma sér í æfingu áður en ég fer að hugsa um að velja hann. Hann kemur til greina eins og hver annar ef hann nær sér á strik. Ég hef hreinlega ekki tíma til að keyra þrekæfingar því við verðum að fara í gegnum leikkerfi og spilið á þessum stutta tíma sem við höfum til stefnu. Allir leikmennirnir sem ég valdi hafa haldið sér í æfíngu síðan deildar- keppninni lauk í vor.“ HOPURINN Markverðir: Bjami Frostason, Haukum Guðmundur Hrafnkelsson, Val Sigtryggur Albertsson, Gróttu Aðrir leikmenn: Björgvin Björgvinsson, KA Gústaf Bjarnason, Haukum Róbert Sighvatsson, UMFA Geir Sveinsson, Montpellier Júlíus Jónasson, TV Suhr Gunnar Berg Viktorsson, ÍBV Sigurður Bjarnason, Stjörnunni Dagur Sigurðsson, Val Jason Ólafsson, Brixen Ólafur Stefánsson, Val Bjarki Sigurðsson, UMFA Valgarð Thoroddsen, Val Julian Róbert Duranona, KA Patrekur Jóhannesson, KA Valdimar Grlmsson. Selfossi Duranona í landsliðið KNATTSPYRNA: LKHN í B-RIÐU EVRÓPUKEPPNINNAR í ENGLANDI / C2, C3

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.