Morgunblaðið - 07.06.1996, Side 4

Morgunblaðið - 07.06.1996, Side 4
gtSttSL Jl^pttiMta&iíþ „Magic" til Boca Juniors? Phil Jackson, þjálfari Chicago, eftir sigur á Seattle ílyrsta úrslitaleiknum Tókum stjóm- ina í okkar hendur I lokin Chicago Bulls, með Michael Jordan í fararbroddi, átti ekki í miklum vandræðum með Shawn Kemp og félaga í Seattle Super- ' Sonics þegar liðin mættust í fyrsta leiknum í úrslitum NBA-deildarinn- ar í Chicago í fyrrinótt og sigraði 107:90. Leikurinn var jafn og spennandi framan af og eftir þrjá leikhluta hafði Chicago einungis tveggja stiga forskot, 79 stig gegn 77, en í fjórða og jafnframt síðasta leik- hluta gerðu heimamenn út um leik- inn, sýndu stórkostleg tilþrif og skoruðu 28 stig gegn aðeins 13 stigum gestanna. „Við fundum “rétta taktinn seint í leiknum og náðum þá að taka stjómina í okkar Helgi leikur í Austurríki HELGI Kolviðsson knatt- spyrnumaður sem leikið hef- ur síðastliðin tvö með þýska 4. deildar félaginu Pfullen- dorf hefur gert þriggja ára samning við austurríska 2. deildarliðið Austria Lustenau. Félagið varð i sjöunda sæti deildarinnar nú í vor og ætlar sem að ná lengra á næstu leiktíð. Helgi lék með HK áð- ur en hann fór til Þýskalands. Hann spilaði i fyrsta sinn með landsliðinu gegn Rússum á Möltu í febrúar á þessu ári. hendur," sagði Phil Jackson, þjálf- ari Chicago, að leik loknum en þjálf- ari Seattle, George Karl, var þung- ur á brún í leikslok og sagði sína menn hafa tapað leiknum sökum þess hve oft liðið missti knöttinn í hendur andstæðinganna. í liði heimamanna var Michael Jordan stigahæstur með 28 stig, næstur kom Scottie Pippen með 21 og Króatinn Toni Kukoc gerði 18. Ron Harper átti góðan leik fyrir Chicago, skoraði 15 stig, tók fimm fráköst, átti sjö stoðsendingar pg stal knettinum tvisvar á örlagarík- um augnablikum á lokasprettinum. Þá stóð hinn hárprúði Dennis Rod- man fyrir sínu að vanda, hirti knött- inn 13 sinnum undir körfunni auk þess sem hann gerði 7 stig, og Ástralíumaðurinn Luc Longley sýndi einnig góðan leik í byijun og lék vörnina mjög vel. Besti leikmaður Seattle-liðsins, Shawn Kemp, var útilokaður frá leiknum með sex villur eftir að hafa brotið á Dennis Rodman þegar tæp- ar tvær mínútur voru til leiksloka, en áður hafði hann náð að skora 32 stig og var hann stigahæstur leikmanna Seattle. Sam Perkins, sá eini úr leikmannahópi gestanna sem áður hefur leikið til úrslita í NBA- deildinni, átti góðan leik og gerði 14 stig, en þeir Detlef Schrempf og Gary Payton skoruðu 13 stig hvor. Næsti leikur liðanna fer fram í Chicago í nótt og búast má við spennandi leik þar sem strákamir frá Seattle sætta sig örugglega ekki við að halda heim á leið með tvo ósigra á bakinu. Reuter MICHAEL Jordan smeygir sér á mllll Shawn Kemps og Gary Paytons í fyrsta úrslitalelknum í fyrrinótt. Calipari til New Jersey Nets JOHN Calipari var í gær ráðinn þjálfari New Jersey Nets. Hann var áður þjálfari háskólaliðs Massachusetts og undir hans stjóm komst það í vor í fyrsta skipti í undanúrslit. Kemur hann í stað Butch Beard sem rekinn var í vor eftir slakt gengi Nets á síðustu leiktíð þar sem það vann aðeins þijátíu leiki af áttatíu og tveimur. Samningur Calipari er til fimm ára en ekki fékkst uppgefið hvað hann fengi í sinn hlut. Hann mun einnig sjá um ýmis tækinmál félagsins auk þjálfuninnar. KORFUKNATTLEIKUR / NBA MAURICIO Mai-ci stjórnar- formaður argentinska íþróttafélagsins Boca Juniors fullyrti í gær að Earvin „Magic “ Johnson myndi leika með félaginu í deildarkeppn- inni þar I landi frá febrúar og fram í mai lok á næsta ári. Frá samningi yrði gengið snemma í næsta mánuði. Eng- in yfirlýsing héfur borist frá „Magic“ vegna þessarar um- mæla Marcis. Sem kunnugt er tilkynnti „Magic“ er Los Angeles Lakers féll úr keppni í NBA í vor að hann hefði nú endanlega iagt skóna á hiUuna, hvort svo eður ei kemur væntalega í ijós er á næstunni, en Marci og hans félagar eru farnir að leita að nýju keppnishúsi þvi núver- andi heimavöUur Boca tekur aðeins 2.000 áhorfendur en reikna má með að talsvert fleiri vijji sjá „galdramann- inn“ verði af þessum samn- ingi. Vert er að geta að annar heimsfrægur íþróttakappi leikur með Boca Juniors þó reyndar sé á öðru sviði; Diego Maradona er í knatt- spyrnuliði félagsins. Baslá Basler MEÐ öllu er óvíst að Mario Basler einn miðvallarleik- manna þýska landsliðsins í knattspymu geti verið með liðinu f lokakeppni EM sem hefst um helgina, a.m.k. þyk- ir með öllu útilok að hann leiki með í fyrsta leiknum gegn Tékklandi á sunnudag- inn. Hann er meiddist í upp- hitun fyrir viðureignina gegn Liechtenstein á þriðju- dagskvöldið og í gær var hann enn illa bólginn. Strax og og þýska liðið kom til Englands í gær fór hann til skoðunar og meðferðar hjá sjúkrþjálfurum Manchester United liðsins. Wolfgang Niersback talsmaður þýska liðsins sagði gær að útlitáð þjá Basler væri ekki gott. KNATTSPYRNA / BIKARKEPPNI KSI Keflavík og Val- ur komin áfram! Keflavík og Valur eru örugg með að eiga lið í 16-liða úrslit- um Mjólkurbikarkeppninnar, eftir dráttinn í 32-liða úrslitum í gær. Ungmennalið Keflavíkur (U-23) dróst gegn 1. deildarliði Keflavík- ur og sama var uppi á teningnum í herbúðum Vals. „Það er ljóst að ferðakostnaðurinn kemur ekki til með að þvælast fyrir okkur í þessari umferð,“ sagði Kjartan Georg Gunnarsson, settur for- maður knattspyrnudeildar Vals, sem dró mótheija U-23 ára liðsins sjálfur upp úr mjólkurbrúsanum og var ánægður með það. „Ég tryggði Val öruggt sæti í 16-liða úrslitum," bætti hann við. Bikarmeistarar KR drógust gegn Magna frá Grenivík. Magni leikur í „KR-búningum“ og því verða KR-ingar að grípa til vara- búningsins þegar þeir fara til Grenivíkur. íslandsmeistarar Akraness þurfa að fara til Egils- staða og etja kappi við Hött. Leikirnir í bikarkeppninni dreifast nokkuð um landið; þrír leikir fara fram á Norðurlandi, tveir á Austurlandi, einn á Vest- urlandi, einn á Vestfjörðum og átta á höfuðborgarsvæðinu. Enn er ekki komið á hreint hvaða lið frá Austfjörðum verður mótheiji Stjörnunnar. Kærumál kom upp eftir bikarleik KVA og Leiknis, sem KVA vann. Leiknis- menn kærðu þar sem þeir töldu að einn leikmaður KVA hafí átt að taka út leikbann í umræddum leik. Það lið sem vinnur kæruna mun síðan leika við Sindra um sætið í 32-liða úrslitum. KJARTAN G. Gunnarsson, formaður knattspyrnudeild- ar Vals (t.v.), og Birglr Þór Runólfsson, gjaldkerl knatt- spyrnudelldar Keflavíkur, voru ánægðir með mótherj- ana í 32-liða úrslltunum. Llð frá félögum þeirra er öruggt með sætl í 16-llða úrslitum. 32-liða úrsl'rt Eftirtalin lið drógust saman í 32-liða úrslitum bikarkeppni KSÍ. Liðunum var skipt í tvo 16-liða hópa, fyrstu deildarlið- in og sex efstu liðin úr 2. deild frá síðasta ári voru í öðrum hópnum og gátu því ekki dreg- ist saman. Þriðjudag 18. júní: Stjarnan U-23 - FVam Miðvikudag 19. júní: Keflavík U-23 - Keflavík Fimmtudag 20. júní: Fram U-23 - Breiðablik Leiknir Rvk. - Þór Akureyri Dalvík - Leiftur Vfkingur Ól. - Fylkir KVA-Leiknir/Sindri - Stjarnan Magni Grenivík - KR Bolungarvík - FH Víkingur Rvk. - Skallagrímur Föstudag 21. júní: Völsungur - KA ÍR - Þróttur Reykjavík Valur U-23 - Valur Breiðablik U-23 - ÍBV Höttur - ÍA Ægir - Grindavík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.