Morgunblaðið - 08.06.1996, Blaðsíða 1
+
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
P«nr@iMttl»Ií<í<ií>
C
1996
LAUGARDAGUR 8. JÚNI
BLAD
Einar Baldvin
fer í Stjörnuna
EINAR Baldvin Árnason, handknattleiksmaður,
sem leikið hefur með KR, ákvað í gær að ganga
til liðs við Stjörnuna úr Garðabæ fyrir næsta
keppnistímabil. Einar, sem er 22 ára og var í
landsliðshópi Þorbjarnar Jenssonar um tima í
fyrra, hefur leikið sem leikstjómandi með KR en
var valinn sem línumaður í landsliðshópinn á sínum
tíma. Hann er taUnn mjög góður varnarmaður,
og á ekki langt að sækja hæfileikana á þvi sviði
- faðir hans, Árai Indriðason, fyrrum fyrirliði
Víkings og landsliðsins, var mikill varnarjaxl er
hann var upp á sitt besta.
Um helgina kemur til landsins alsírskur lands-
liðsmaður, örvhent skytta sem leikið hefur í Frakk-
landi siðustu tíu ár, til að skoða aðstæður hjá
Stjöraumönnum. Hann mun mæta á æfingu á
mánudag og eftir það kemur í yós hvort Stjörnu-
menn hafa áhuga á honum. Hann mun einnig
hafa verið í sambandi við Eyjamenn.
FRJALSIÞROTTIR
Christie
kom fram
hefndum
MIKIÐ var um að vera í heimi fijáls-
íþrótta í gær. í Moskvu var haldið
annað stigamót Alþjóða fijáls-
íþróttasambandsins Evrópu og í
Nurnberg í Þýskalandi reyndu menn
og konur einnig með sér. Þar bar
hæst einvígi Olympíumeistarans í
100 m hlaupi, Linfords Christies, frá
Bretlandi og heimsmeistarans í
greininni, Kandamannsins Donovans
Baileys. Christie vann þar sætan
sigur á 10,06 sekúndum, minnugur
ófaranna gegn honum á HM í Gauta-
borg í fyrra. Bailey varð skrefi á
eftir á 10,08 sek. Þeir eru á mynd-
inni, Christie til hægri. Á sama
móti varð heimsmethafinn í 110 m
grindahlaupi, Colin Jackson að gera
sér að góðu þriðja sætið og var þetta
í annað skiptið í vikunni sem hann
sér á eftir Þjóðveijanum Florian
Schwarthoff fyrstum í mark í þeirri
grein sem hefur verið hans aðal.
í Moskvu vakti hlaupadrottningin
Merlene Ottey frá Jamaíka mesta
athygli, en einvígi hennar og Irinu
Privalovu, fótfráustu stúlku Evrópu,
hafði verið beðið með nokkurri eftir-
væntingu. Skemmst er frá að segja
að Ottey sigraði auðveldlega; hljóp
á 10,92, sem er besti tími hennar í ár."
■ Úrslit / C2«
Reuter
KNATTSPYRNA
Verðsku Idaðu r Stjömusigur
STJARNAN vann Keflvíkinga
verðskuldað með einu marki
gegn engu í 1. deild karla í
knattspyrnu Keflavík í gær-
kvöldi. Valdimar Kristófersson
skoraði sigurmarkið í upphafi
leiks. Stjarnan er þar með kom-
in með sex stig eftir þrjá leiki
og er komin ítoppbaráttuna,
upp að hlið ÍA.
Stjarnan byijaði leikinn með lát-
um og það var ekki nema ein
mínúta liðin af leiknum er Goran
Micic komst í gegn-
um vörn Keflvíkinga
og vippaði yfir Ólaf
Gottskálksson
markvörð sem kom
hlaupandi út á móti og boltinn hafn-
aði í stönginni og þaðan skaust
hann út á völlinn. Áfram héldu
Stjörnumenn og réðu gangi leiksins
og uppskáru sigurmarkið á 10.
mínútu. Aðeins tveimur mínútum
síðar voru þeir nálægt því að bæta
öðru marki við er Kristinn Lárusson
skallaði rétt yfir eftir hornspyrnu
Baldurs Bjarnasonar. Á þessum
kafla fór leikurinn aðallega fram á
vallarhelmingi Keflvíkinga, sem
áttu í vök að vetjast.
Keflvíkingar fengu besta færi
sitt í leiknum er Jóhann B. Guð-
mundsson komst í gegn, náði að
spyrna að marki, Bjarni Sigurðsson
varði og missti boltann út aftur á
Jóhann sem mokaði boltanum yfir
markið af markteigslínu. Ragnar
Árnason átti síðan skot í stöng
Keflavíkurmarksins eftir snarpa
sókn Stjörnumanna. Mínútu síðar
voru Stjörnumenn enn aðgangs-
harðir er Valdimar var hársbreidd
frá því að pota boltanum í netið
eftir hornspyrnu.
Síðari hálfleikur hófst eins og sá
fyrri með stórsókn gestanna. Goran
Micic var nálægt því að skora er
Oa 4[ Heimir Erlingsson
■ I sendi inn á vítateig
frá hægri kanti á 10. mínútu.
Keflvíkingum mistókst að
hreinsa frá og boltinn datt niður
við fætur Valdimars Kristó-
ferssonar sem var einn og
óvaldaður á vítateignum og átti
ekki í vandræðum með að setja
boltann í hægra markhornið
framhjá Ólafí Gottskáikssyni.
hann skallaði boltann að marki eft-
ir fyrirgjöf Kristins Lárussonar, en
Ólafur Gottskálksson bjargaði
meistaralega í horn. Og skömmu
síðar þurfti Ólafur aftur að taka á
honum stóra sínum til að bjarga
skalla frá Hermanni Arasyni. Kefl-
víkingar áttu síðasta tækifærið til
að jafna er varamaðurinn Guðjón
Jóhannsson átti bakfallsspyrnu að
marki eftir sendingu Georgs Birgis-
sonar en Bjarni Sigurðsson varði
meistaralega alveg út við stöng og
sýndi að hann hefur litlu gleymt.
Sigur Stjörnumanna var sann-
gjarn því með réttu hefðu þeir átt
að vera þremur mörkum yfir í hálf-
leik, en markstangirnar komu í veg
fyrir það. Leikur liðsins var nokkuð
góður í fyrri hálfleik. Boltinn fékk
að fljóta vel á mllli manna en eftir
því sem liða tók á leikinn fór mesti
vindurinn úr þeim. Miðjuspilið var
sterkasti hluti liðsins, enda þar leik-
menn á borð við Baldur Bjarnason,
Valdimar Kristófersson og Kristin
Lárusson sem hafa mjög góða
boltatækni. Vörnin stóð einnig vel
fyrir sínu.
Keflvíkingar náðu sér aldrei al-
mennilega upp úr meðalmennsk-
unni og sóknin var algjörlega bit-
laus. Þeir voru aðallega í varnar-
hlutverkinu, sérstaklega i fyrri hálf-
leik. Vörnin var traustasti hlekkur
liðsins enda mæddi mjög á henni í
leiknum. Miðað við frammistöðu
liðsins í þessum leik eiga leikmenn
Keflavíkurliðsins erfitt sumar í
vændum.
■ Grindavík / C4
Valur B.
Jónatansson
skrifar
KNATTSPYRNA: UÐIN í C-RIÐLIEVRÓPUKEPPNINNAR í ENGLANDI / C2, C3