Morgunblaðið - 11.06.1996, Síða 1
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ttngtitiltfflMfc
1996
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER
BLAD
Reuter
KNATTSPYRNA
Fjórir leikmenn
Stjörnunnar
í leikbann
FJÓRIR leikmenn Stjörnunnar, Helgi M. Björg-
vinsson, Reynir Björnsson, Hermann Arason og
Valdimar Kristófersson, voru úrskurðaðir i eins
leiks bann á fundi aganefndar KSÍ í gær og
verða þeir því ekki með í viðureign liðsins á
móti Val í 1. deild um helgina. Helgi og Reynir
fengu bannið vegna fjögurra áminninga en Her-
mann og Valdimar vegna sex áminninga. Skaga-
menn verða án þriggja fastamanna á móti
Grindavík en Bjarni Guðjónsson tekur út bann
vegna brottvísunar gegn Fylki og Ólafur Þórðar-
son og Zoran Miljkovic voru úrskurðaðir í bann
vegna fjögurra áminninga. Þorsteinn Þorsteins-
son, Fylki, og Jakob Jónharðsson, Keflavík,
missa af viðureign liðanna, Þorsteinn vegna fjög-
urra áminninga en Jakob vegna sex gulra
spjalda, og Ragnar Gíslason, Leiftri, er kominn
með fjórar áminningar og leikur ekki með á
móti Breiðabliki.
Alls voru 42 leikmenn úrskurðaðir í leikbann,
allir vegna áminninga eða brottvísana í meist-
araflokki, 1. flokki eða 2. flokki karla. Þá fékk
Stjarnan 5.000 kr. sekt vegna brottvísunar Am-
ar Ólasonar, þjálfara.
Erlendur atvinnu-
maður í Albaníu
BRASILÍUMAÐURINN Carlos Eduardo Castro
de Souza hefur gert samning við Lushnja í Alb-
aníu og er fyrsti erlendi atvinnumaðurinn í land-
inu. Að sögn talsmanns félagsins fær miðjumað-
urinn sem er 23 ára, um 50.000 dollara í árslaun
(tæplega 3,4 mil(j. kr.) sem er met í Albaníu.
Félagið hefur lagt út um 200.000 dollara vegna
nýrra leikmanna í þeim tilgangi að ná árangri
heima og í Evrópukeppni. Edu, eins og miðju-
maðurinn er kallaður, lék með Flamengo í Bras-
ilíu og síðan á Kýpur og í Grikklandi en hann á
36 landsleiki með yngri landsliðum að baki.
Knattspyrnumaður
datt og lamaðist
FYRRVERANDI landsliðsmaður Singapore í
knattspyrnu lenti í samstuði við mótherja í æf-
ingaleik og datt illa í kjölfarið með þeim afleið-
ingum að hann lamaðist frá hálsi og niður úr.
Að sögn lækna er um varanlega lömun að ræða
en maðurinn er þijátíu og eins árs.
Léku 18 holur á
níu og hálfri mínútu
Feyenoord
sigraði mót-
herja ÍA
CSKA Moskva, sem sló íslands-
meistara Skagamanna úr for-
keppni Evrópumóts félagsliða í
knattspyrnu, tók á móti hol-
lenska liðinu Feyenoord í 1.
umferð í gærkvöldi. Gestirnir,
sem töpuðu 1:0 fyrir í A á Laug-
ardalsvelli í sömu keppni fyrir
þremur árum, unnu með sama
mun í Moskvu og gerði Kees
van Wonderen eina markið sjö
mínútum fyrir leikslok. A
myndinni er Henryk Larsson
við það að komast framhjá
Rússunum Valeri Minko til
vinstri og Alexander Shoutov.
■ Leikirnir/D2
Georqe Graham
ráðinn til Leeds
George Graham, fyrrum knattspyrnustjóri
Arsenal, var í gær ráðinn knattspymu-
stjóri hjá Leeds og tekur hann við starfi How-
ards Wilkinsons sem var rekinn á sunnudag-
inn. Graham var látinn fara frá Arsenal fyrir
nítján mánuðum og hann dæmdur í árs bann
frá knattspyrnu þegar ljóst var að hann stakk
háum peningaupphæðum í eigin vasa. Þessa
peninga fékk hann frá norskum umboðs-
manni sem seldi Arsenal leikmenn, einn þeirra
var danski landsliðsmaðurinn John Jensen.
Graham er 51 árs Skoti, sem var afar
færsæll í starfi hjá Arsenal - liðið vann sex
titla undir stjórn hans á níu árum, 1986-
1995; varð enskur meistari og deildarbikar-
meistari tvisvar, einu sinni bikarmeistari og
einu sinni sigurvegari í Evrópukeppni bikar-
hafa.
George Graham var leikmaður með Arsen-
al á árum áður og var í liðinu sem vann tvö-
falt 1971, bæði deild og bikar. Hann lék 12
landsleiki fyrir Skotland. Manchester City
reyndi að fá hann til starfa á dögunum, en
ljóst er að Graham valdi Leeds þar sem liðið
hefur yfir peningum að ráða sem hann getur
notað til að byggja upp nýtt lið. Tveir menn
hafa verið nefndir sem aðstoðarmenn Gra-
hams - Stewart Houston, sem nú stjórnar
Arsenal og var aðstoðarmaður Grahams hjá
liðinu, og David O’Leary, fyrrum fyrirliði
Arsenal, sem Graham lét fara fijálsri sölu
til Leeds.
KYLFINGUR er venjulega eitthvað í kringum
fjórar klukkustundir að leika 18 holu golfvöll,
enda er golf ekki leikur hraða, heldur mun frek-
ar nákvæmni. Sumir reyna þó að setja ýmis
hraðamet i íþróttinni og á mánudaginn féll eitt
slíkt met þegai- um 100 kylfingar úr Tatnuck
golfklúbbnum í Bandarikjunum léku 18 holur á
parinu - og timinn var 9 mínútur og 28 sekúnd-
ur.
Gamla metið í að leika 18 holu völl á pari,
völl sem er að vera að minnsta kosti 5.500 metra
langur, var 9 mínútur og 42 sekúndur, sett í
Kaliforníu þann 16. nóvember 1992.
Enn á eftir að skrá metið hjá Guinness en það
verður gert. Golfkennarinn í klúbbnum sagði
að margir hringir hafi verið leiknir áður en
allt small saman. „Þetta gekk ekki vel lyá okk-
ur, en svo small allt saman,“ sagði hann. Fyrri
níu holurnar lék hópurinn á 5,07 mín. og þann
síðari á 4,21 minútu og „þá misheppnaðist varla
eitt einasta högg lyá okkur,“ sagði kennarinn.
Hraðamet er sett með því að slá af teig, nokkr-
ir biða úti á braut og slá um leið og boítinn stopp-
ar og á flötinni eru einnig nokkrir tilbúnir að
pútta og um leið og boltinn dettur í holuna er
slegið af næstateig.
KNATTSPYRNA: MÓTHERJAR KR í EVRÓPUKEPPNIBIKARHAFA MÆTTIR / D4