Morgunblaðið - 14.06.1996, Síða 1
72 SÍÐUR B/C
133. TBL. 84. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Frakkar
reiðir
Bretum
París, London. Reuter.
MIKIL reiði ríkir í Frakklandi vegna
upplýsinga um, að breska stjórnin
hafi leyft mikinn útflutning á dýra-
fóðri, sem er talið hafa valdið kúa-
riðu, eftir að notkun þess var bönn-
uð í Bretlandi 1989.
Franskir stjórnmálamenn og fjöl-
miðlar höfðu stór orð um bresku
stjórnina í gær og fréttaskýrendur
sögðu, að uppnámið í landinu auð-
veldaði ekki Jacques Chirac Frakk-
Iandsforseta að aðstoða John Maj-
or, forsætisráðherra Bretlands, við
að fá útflutningsbanninu aflétt.
„Iðnaðarglæpur“
Dagblaðið Le Monde sagði
bresku fóðursöluna vera „iðnaðar-
glæp“ og fréttaskýrandinn Pierre
Georges sagði, að bijálsemin hefði
ekki aðeins Iagst á nautgripi, heldur
líka á fólk, sem væri brjálað í gróða.
Lýsti hann hugarfari Breta með
þessum orðum: „Seljum, seljum,
hvað sem það kostar."
Breska stjórnin staðfesti í fyrra-
dag grein í vísindatímaritinu Nature
þar sem sagði, að Bretar hefðu flutt
út tugþúsundir tonna af dýrafóðri,
sem hugsanlega hefur verið með
kúariðusmit, eftir að notkun þess
var bönnuð í Bretlandi 1989. Voru
Frakkar aðalkaupendurnir.
Talsmaður framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins, ESB, sagði í
gær, að kaupin á breska dýrafóðr-
inu hefðu verið á ábyrgð viðkom-
andi ríkja, þau hefðu sjálf átt að
grípa í taumana.
Kraftaverki næst
Reuter
TALIÐ er ganga kraftaverki
næst að 272 farþegar og fluglið-
ar skyldu komast lífs af þegar
indónesískri breiðþotu hlekktist
á I flugtaki í Japan í gærmorg-
un. Eldur kom upp í vélinni og
breiddist hratt út. Þrír fórust
og rúmlega hundrað slösuðust.
Þotan var af gerðinni Douglas
DC-10. Allir farþegarnir, utan
fjórir, voru japanskir og sögðu
að mikil ringulreið hefði gert
þeim erfitt um vik að yfirgefa
vélina, og lítil japönskukunn-
átta þjónustufólks um borð gert
illt verra. Ekki er vitað um or-
sakir slyssins en flugritar vélar-
innar, sem skrá upplýsingar um
flugið, eru fundnir og eru rann-
sóknarmenn indónesíska flugfé-
lagsins, sem átti vélina, komnir
til Japans.
■ Þrír fórust/22
Baráttunni fyrir forsetakosningarnar í Rússlandi lýkur í dag
Jeltsín segir
komið nóg af
byltingum
Pétursborg. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, sagði i gær í
Pétursborg, þar sem bylting bolsévika hófst
1917, að Rússar þyrftu ekki á fleiri byltingum
að halda og skoraði á kjósendur að hafna hinni
kommúnísku fortíð. Tveimur dögum fyrir kosn-
ingar hefur Jeltsín góða forystu í skoðanakönn-
unum en Gennadí Zjúganov, frambjóðandi
kommúnista, segir samt, að sigur sinn sé vís
enda aðhyllist meirihluti Rússa kenningar komm-
únista.
Jeltsín sagði á rokktónleikum, sem haldnir
voru honum til heiðurs við Vetrarhöllina í Péturs-
borg, að bylting bolsévika hefði hafist í borginni
1917 en Rússar þyrftu ekki á fleiri slíkum að
halda. „Við höfum fengið nóg af slíku umróti,
treystið mér,“ sagði hann.
Jeltsín sagði, að kosningarnar á sunnudag
myndu ráða miklu um ástandið í Rússlandi á
ókomnum árum og skoraði á kjósendur að segja
skilið við hina kommúnísku arfleifð.
„Við megum ekki hverfa aftur til fortíðarinn-
ar, heldur skulum við treysta framtíð hins nýja
Rússlands," sagði Jeltsín og var honum vel fagn-
að af þúsundum manna, aðallega ungu fólki,
en Jeltsín á miklu meiri stuðning meðal þess en
Zjúganov.
Jeltsín lýkur kosningabaráttunni i heimabæ
sínum, Jekaterínbúrg, í dag en frambjóðendur
hvíla sig og kjósendur á morgun, laugardag.
Zjúganov sigurviss
Zjúganov sagði í gær, að mikill meirihluti
Rússa styddi kenningar kommúnista, sem væru
svo gott sem búnir að vinna kosningarnar þótt
þær hefðu enn ekki farið fram. Gerði hann lítið
úr skoðanakönnunum, sem raunar þykja mjög
óáreiðanlegar í Rússlandi, og gaf einnig í skyn,
að Jeltsín og hans menn bæru ábyrgð á hryðju-
verkunum í Moskvu að undanförnu.
E-pillan
étur upp
heilann
London. Reuter.
FÍKNIEFNIÐ „Ecstasy" eða
E-pillan getur valdið neytendum
varanlegum skaða að sögn
breskra lækna. Segja þeir, að
komið hafi í ljós við rannsóknir,
að hún eyðileggi hluta heilans.
Nagdýr og apar, sem gefið
var efnið, urðu fyrir langvar-
andi skaða og kom hann fram
í rottum strax eftir einn
skammt. Þá hefur komið í ljós,
að efnið, sem er afbrigði af
amfetamíni, eyðileggur tengsl
milli heilafrumna og skaðar
taugafrumur, sem gefa frá sér
serótónín en það hefur mikil
áhrif á andlega líðan og geð-
brigði.
Vísindamenn, sem unnu að
rannsókninni, segja það sér-
stakt áhyggjuefni, að hugsan-
lega séu eituráhrif E-pillunnar
á menn fremur hægvirk. Þess
vegna gætu afleiðingarnar, til
dæmis alvarlegt þunglyndi eða
önnur sjúkleg geðbrigði, komið
fram nokkrum árum eftir að
hennar var neytt.
Reuter
JELTSÍN var á fjölmennum rokktónleik-
um og kosningafundi í Pétursborg í gær
og skoraði þá á lyósendur að nota kosn-
ingarnar á sunnudag til að segja endan-
lega skilið við kommúnismann. Hér veifar
hann til stuðningsmanna sinna, sem biðu
hans og Naínu, konu hans, við komuna
til borgarinnar.
Þjóðernissinninn Vladímír Zhírínovskí viður-
kenndi í gær, að hann ætti ekki mikla möguleika
í kosningunum á sunnudag en kvaðst ekki hafa
áhyggjur af því. Sinn tími myndi koma í næstu
kosningum.
Vill auka veg
þýskrar tungu
Bonn. Reuter.
HELMUT Kohl, kanslari Þýska-
lands, hvatti i gær til þess, að nýtt
átak yrði gert til þess að auka veg
þýskrar tungu í heiminum.
Við þingumræður um menning-
armálastefnu Þýskalands sagði
kanslarinn, að þrátt fyrir aðhald í
ríkisfjármálum yrði að greiða fyrir
aukinni þýskukunnáttu erlendis.