Morgunblaðið - 14.06.1996, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 1996
FRÉTTIR
DABBI segir, Dabbi segir, mér er nú alveg saman hvað hann tautar, Pétur minn.
Þetta er nú minn garður, góði . . .
NORÐURARKORTIÐ nýja.
Morgunblaðið/Þorkell
Laxveiði glæðist
í Borgarfirði
LAXVEIÐI hefur glæðst í Norðurá
að undanfömu, hópur sem lauk
veiðum á aðalsvæðinu á hádegi
miðvikudags veiddi 43 laxa, að
sögn Bergs Steingrímssonar,
framkvæmdastjóra SVFR, í sam-
tali við Morgunbiaðið. Voru þá
komnir 120 laxar á land af svæð-
inu. 17 punda lax veiddist á flugu
í Myrkhyl og er stærstur úr ánni
í sumar. Lítið bólar enn á smá-
laxi, en menn hafa gert því skóna
að hann fari að láta sjá sig í
straumnum sem verður stærstur
á mánudaginn.
Enn sem komið er hefur lítið
veiðst á neðri svæðum Norðurár,
í svokölluðum Stekk og Munaðar-
nesi. Að öllu jöfnu gera menn það
gott þar um slóðir í júní, en mjög
lág vatnshæð árinnar miðað við
árstíma og hagstætt hitastig ár-
innar veldur því að fiskur stoppar
þar ekki. Það hefur þó ekki farið
hjá þvi að menn hafa séð talsvert
af laxi á svæðinu, en höfðinginn
hefur verið á fleygiferð fram ána.
Sum sé vant við látinn.
Nýtt kort
SVFR hefur í samvinnu við
Landmælingar íslands gefið út
nýtt veiðikort af Norðurá. Er það
í gormamöppuformi, ^ prentað á
þykkan glanspappír. í möppunni
er ánni skipt í svæði sem hvert
um sig er tekið út á einni síðu. í
viðbót eru margháttaðar upplýs-
ingar um veiði í einstökum hyljum
um nokkurt árabil.
Annar fróðleikur er einnig fyrir
hendi, eitt og annað sem nauðsyn-
legt og þægilegt er fyrir veiðimenn
að hafa við höndina. „Þetta er
sniðið og hannað til að endast.
Allt of mörg veiðikort eru þannig
að þau eru ónýt eftir veiðitúrinn,“
sagði Bergur Steingrímsson,
framkvæmdastjóri SVFR. Áður
hafði félagið gefið út sams konar
kort af Hítará og Soginu. Á næst-
unni kemur síðan út það ijórða,
sem er af Elliðaánum.
Friðun milli fossa
Hinir nýju leigutakar Vatns-
dalsár, sem taka við ánni til
þriggja ára árið 1997, hafa samið
við núverandi leigutaka um að
taka við einni stöng í ánni sem
veiðir á millí Stekkjarfoss og Dals-
foss. Pétur Pétursson, einn hinna
nýju leigutaka, segir þetta gert í
verndunarskyni.
Núverandi leigutakar munu við-
hafa „veiða-sleppa“ fyrirkomulag-
ið fram í miðjan ágúst, en nýju
leigutakarnir munu hafa það kerfi
vertíðina á enda næstu árin. Um-
rætt svæði í Vatnsdalsá er það
efsta í ánni og í besta falli hefur
það gefið um 70 laxa, yfirleitt
með feiknagóðri meðalþyngd. Pét-
ur segir mikilsvert að ganga ekki
of nærri laxi sem hrygnir á svæð-
inu á milli umræddra fossa. Um
þetta hafi tekist góð samvinna
leigutakanna tveggja.
Víða byrjað
á næstunni
Veiði hefst í dag í Elliðaánum
og Stóru-Laxá í Hreppum og í
fyrramálið munda menn stangir í
Langá í fyrsta sinn á þessu sumri.
Á þjóðhátíðardaginn verður
Grímsá opnuð og sagði Sturla
Guðbjarnarson- á Fossatúni, að
hann hefði séð lax fyrst í ánni um
síðustu mánaðamót, bæði í Lax-
fossi og síðan ofan af brúnni yfir
Hörgshyl.
Síðustu daga hefði verið tals-
verður lax í Laxfossi og þar fyrir
neðan, þar af einn „heljarbolti,
svona 20 pund“, eins og Sturla
komst að orði. 18. júní verður
Víðidalsá opnuð og 20. júní hefst
veiði síðan í Gljúfurá og Ytri-
Rangá og daginn eftir, 21. júní,
hefst veiði í Miðfjarðará, þar sem
mikill lax hefur sést að undan-
förnu, sérstaklega í Vesturá.
MORGUNBLAÐIÐ
Alþýðumenning allsráðandi
Handverks-
sýning á leið
til Þýskalands
Rósa Ingólfsdóttir
IÐIR 1996 er nafn á
handverkssýningu
sem Rósa Ingólfs-
dóttir stendur fyrir
18.-21. júlí næstkomandi.
Rósa stóð fyrir svipaðri
sýningu síðastliðið sumar
í Perlunni, en í ár verður
hún haldin í Laugardals-
höllinni.
- Hvers vegna er sýn-
ingin á nýjum stað í dr?
„í fyrra sprengdum við
öll aðsóknarmet Perlunn-
ar, en gestirnir voru á bil-
inu 15 til 20 þúsund. Því
þurfti ég að setja sýning-
una upp í stærra húsnæði
að þessu sinni.“
- Hveijir taka þátt í
sýningunni í ár?
„Þátttakendur í sýning-
unni eru handverksfólk
víðsvegar af landinu. Auk
þess verður íslenskt hugvit og
smáiðnaður kynnt. Meirihluti
þeirra sem tóku þátt í íði á síð-
asta ári ætla að mæta aftur til
leiks, enda skipti' þátttakan miklu
fyrir flesta í fyrra. Margir komu
upp ýmsum viðskiptasamböndum
og aðrir komist á námskeið og
fengu fyrirgreiðslu í ráðuneytum.
Flestir þeirra sem framleiða
snyrtivöru og lækningavörur úr
íslenskum jurtum verði á sýning-
unni og kynna framleiðslu sína.
Mikil gróska er í íslenskum
smáiðnaði og verður ýmis ný-
sköpun á þeim vettvangi kynnt
á sýningunni. Má þar nefna
sportbíla sem framleiddir eru hér
á landi, húsgögn fyrir börn og
vörur unnar úr fiskroði, auk fjöl-
breyttrar flóru íslensks hand-
verks. í veitingasölu sýningar-
innar verður notaður vistvænn
borðbúnaður frá Ömmubakstri,
sem ekki er einungis ætur, held-
ur eyðist hann á skömmum tíma
upp í náttúrunni."
- Hverjir standa að sýning-
unn[ í ár?
„Eg er framkvæmdastjóri og
eigandi íða og hún er algert
einkaframtak. Bændasamtökin,
kaupfélögin í iandinu, landbún-
aðarráðuneytið og Samtök iðnað-
arins styrkja sýninguna ásamt
ýmsum einkafyrirtækjum og ein-
staklingum og vonandi eiga fleiri
styrktaraðilar eftir að koma til
sögunnar, því hér er um mjög
þarft kynningarverkefni að
ræða.“
- Hafa erlendir aðilar sýnt íði
áhuga?
„Það kom töluvert af útlend-
ingum á sýninguna í fyrra og nú
stendur til að hluti íða 1996 verði
settur upp í Þýskalandi næsta
vetur. Fyrirhugað er að halda
Islandsviku í tilraunamarkaðnum
Saar Bazar Center 14.-23.
nóvember. Hann er skammt fyrir
utan borgina Saar-
brucken og það er
mikil ásókn í að kom-
ast að á markaðnum
og hafa aðilar víðs-
vegar að úr heiminum
kynnt vörur sínar og menningu
og listir viðkomandi lands.
Helsti hvatamaðurinn að ís-
landsvikunni er Þjóðverjinn Diet-
er Kolb, sem tók ástfóstri við
ísland fyrir mörgum árum. ís-
landsvikan er stórkostlegt tæki-
færi fyrir okkur Islendinga að
koma okkar vörum á framfæri
erlendis og kynna handverk þjóð-
arinnar."
► Rósa Ingólfsdóttir er fædd
5. ágúst 1947 í Reykjavík. Hún
útskrifaðist sem auglýsinga-
teiknari frá Myndlista- og
handíðaskólanum 1968 og leik-
ari frá Leiklistarskóla Þjóð-
leikhússins 1972. Á árunum
1973-74 var hún leikari við
Þjóðleikhúsið en frá 1974 til
1978 sjálfstætt starfandi aug-
lýsingateiknari bæði innan-
lands sem utan. Hún hefur ver-
ið grafískur hönnuður hjá Rík-
issjónvarpinu frá 1978. Rósaá
tvær dætur, Heiðveigu og
Klöru.
- Hefur sýningin einhvern
vcrndara?
„í fyrra var lögreglan verndari
íðis, en í ár er það íjólkið í land-
inu. Tákn sýningarinnar, „frú
Sigríður", verður einnig á sínum
stað, en hún er tæplega 6 metra
stór brúða í fjallkonulíki. Hún
mun fljótlega sjást á götum úti
og minna á handverkssýning-
una.“
- Nú ert þú þekkt fyrir að
fara ótroðnar slóðir í hönnun,
geta gestir sýningarinnar búist
við einhverju óvenjulegu?
„Ég ákvað að nýta mér ís-
lenskt hugvit við uppsetningu
sýningarinnar. Sigurður Gíslason
verkfræðingur hefur hannað fyr-
ir mig eftirlíkingu af Geysi sem
verður staðsett á sviði Laugar-
dalshallarinnar. Hverinn 'mun
síðan gjósa með reglulegu milli-
bili á meðan sýningin stendur
yfir. Mér hefur alltaf fundist
vanta tengingu á milli náms og
atvinnulífsins svo ég fékk nem-
endur í iðnhönnun við Iðnskólan
í Reykjavík til að hanna sviðið.
Þeir fá vinnuna síðan metna til
prófs.“
— Verður einhver skemmti-
dagskrá á sýningunni?
„Fjöldi skemmti-
krafta treður upp á
sýningunni. Þar á með-
al er alþingismaðurinn
Árni Johnsen, sem
mætir með gítarinn,
karlakórinn Geysir kynnir nýja
geislaplötu, Þjóðdansafélag Is-
lands dansar sléttudans eftir Sig-
ríði Valgeirsdóttur og sýning
verður á íslenska þjóðbúningn-
um. Sýnd verður glíma og gest-
um gefst kostur á að kynnast
vinnubrögðum frá fyrri tíð. 1 til-
efni sýningarinnar kemur út
geislaplatan íðir með tónlist sem
ég samdi fyrir sýninguna í fyrra.“
Geysisgos
í Laugar-
dalshöllinni