Morgunblaðið - 14.06.1996, Blaðsíða 37
I
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ1996 37
I
I
I
I
I
I
I
I
I
i
I
1
I
I
1
I
I
(
(
i
(
(
4
i
(
í
i
AÐSENDAR GREINAR
Sterkt fjarskiptafyrir-
tæki er styrkur fyrir alla
2. grein
í MORGUNBLAÐINU í gær
gerði ég grein fyrir nauðsyn þess
að Pósti og síma yrði breytt i hluta-
félag. Það hefur komið mér nokkuð
á óvart að sú rödd hefur af og til
heyrst að Póstur og sími hf. yrði
of stórt fyrirtæki fyrir okkur Is-
lendinga. Þeir sem þannig tala sjá
það fyrir sér að hið nýja hlutafélag
muni sérstaklega beita sér gegn
öðrum smærri sem hafa verið að
hasla sér völl á markaðnum. Þetta
er ástæðulaus ótti. Fjölþjóðafyrir-
tæki á sviði íjarskipta munu leita
eftir samstarfsaðilum hér á landi
til þess að styrkja sig í samkeppn-
inni við Póst og síma hf. Sömuleið-
is mun Póstur og sími hf. í vax-
andi mæli leita eftir samstarfí við
erlend fjölþjóðafyrirtæki og treysta
sig í sessi með því að fjárfesta er-
lendis.
Póstur og sími hf. hefur mörgu
góðu starfsfólki á að skipa og er
símakerfið íslenska mjög fullkomið
eins og sést á því að við vorum
fyrstir þjóða til þess að gera allt
símakerfið stafrænt. Það gerir okk-
ur mögulegt að tileinka okkur hvers
konar nýjungar á sviði fjarskipta
sem er ómetanlegt í viðskiptum og
raunar í hvers konar starfsemi,
hvort sem við horfum til atvinnu-
rekstrar eða hinna ýmsu stofnana
á sviði heilbrigðismála, menntunar
og rannsókna ekki síst. Loks er
alnetið smátt og smátt að verða
hluti af okkar daglega lífi eins og
raunar ýmsar aðrar nýjungar á
sviði fjarskipta.
Á síðustu árum hefur hvert fyrir-
tækið af öðru, sem byggir á hug-
viti eingöngu, verið að skjóta rótum
hér á landi. Eg hef lengi talið það
veikleika í okkar stjórnkerfi að hin-
ar sterku stofnanir á sviði sam-
göngumála; Vegagerðin, Flug-
málastjórn, Hafnamálastofnun og
Póstur og sími, skuli ekki hafa
komið sterkar inn í þessa mynd en
raun ber vitni, en þar er eðli þeirra
sem opinberra stofnana um að
kenna. Þó er þess skemmst að
minnast að Flugmálastjórn hefur
um árabil átt náið samstarf við
Kerfísverkfræðistofu Háskóla ís-
lands með þeim árangri að ratsjár-
gagnabúnaðurinn í
nýju flugstjórnarmið-
stöðinni er ávöxtur
þess. Hann er algjör-
lega byggður á ís-
lensku hugviti og unn-
inn undir yfírstjórn ís-
lenskra hugvitsmanna.
Þegar hefur komið
fram áhugi hjá íslensk-
um fyrirtækjum að
taka upp samskonar
samstarf við Póst og
síma hf. Með þeim
hætti nýtist hin mikla
tækniþekking sem
Póstur og sími býr yfir
betur en ella og mark-
aðssetning nýs hugbúnaðar verður
öll auðveldari. Það er m.ö.o. ekki
gert ráð fyrir því að hið nýja fyrir-
tæki vilji gína yfir öllu. Þvert á
móti er kveðið á um það í lögunum
Sterkt arskiptafyrir-
tæki eins og Póstur og
sími, segir Halldór
Blöndal, hefur alla
möguleika til þess að
hasla sér völl á nýrri öld.
að Póstur og sími hf. geti tekið
þátt í slíku samstarfí á víðtækari
hátt og á öðrum forsendum en
áður, m.a. með því að leggja fram
hlutafé ef það þykir góður kostur
eða með því að leggja fram fé til
þróunar nýs hugbúnaðar.
I þessu samhengi er nauðsynlegt
að hafa það í huga að það liggur
í eðli íslenskra fyrirtækja að vera
smá af því að starfsemi þeirra tak-
markast við hinn litla íslenska
markað. Það kemur m.a. fram í
því að þau hafa lítið fé fram að
leggja til þróunarverkefna og
markaðssetningar. Þegar hér er
komið sögu getur ráðið úrslitum
að fyrirtækin eigi sér sterkan bak-
hjarl. Póstur og sími hefur getið
sér orð fyrir vönduð vinnubrögð og
góða viðskiptahætti. Stofnunin nýt-
ur þannig mikils trausts erlendis
sem auðvitað gengur
að erfðum til hins nýja
fyrirtækis. Það á að
gera það mögulegt, ef
rétt er á haldið, að
opna dyr sem ella væru
lokaðar, efna til við-
skiptasambanda sem
veita okkur aðgang að
erlendum mörkuðum.
Þá reynir á að sam-
starfsaðilarnir séu
traustir og að nýju
markaðsátaki sé vel
fylgt eftir.
Það verður eitt af
fyrstu verkefnum
stjórnenda Pósts og
síma hf. að velja sér erlenda sam-
starfsaðila af því að við getum
ekki staðið að öllu leyti utan við
þær sterku blokkir sem myndast
hafa á fjarskiptamarkaðnum og
teygja sig aftur og fram yfir heims-
höfin og landamæri einstakra ríkja.
Glöggt dæmi af þessu tagi lýtur
að hnattstöðu okkar og þeirri fyrir-
hyggju að við skyldum ásamt síma-
fyrirtækjum í Kanada og Evrópu
hafa gerst eigendur í Cantat 3,
sæstrengnum milli Evrópu og
Kanada. Það opnar möguleika fyrir
að hægt sé t.d. að leiða símtöl frá
Vesturheimi um sæstrenginn til
Islands og síðan með einu stökki
um gervihnött til landa í öðrum
heimsálfum. Þannig er okkur að
opnast heimur nýrrar tækni og
nýrra viðskipta sem við verðum að
vera þátttakendur í ef við viljum
ekki dragast aftur úr og daga uppi
eins og nátttröll.
Af sama toga er sú þjónusta sem
Póstur og sími veitir fyrirtækinu
Iridium sem er að mestu í eigu
Motorola í Bandaríkjunum. Það er
að koma upp neti gervihnatta til
þess að annast fjarskiptasambönd
og þótti Fljótsdalshérað ákjósan-
legur staður fyrir eftirlits- eða
stýristöð sem hefur því hlutverki
að gegna að beina hnöttunum á
rétta braut.
Þannig hefur sterkt fjarskipta-
fyrirtæki á Islandi alla möguleika
til þess að hasla sér völl á nýrri öld.
Höfundur er
samgöngumálaráðherra.
Halldór Blöndal
Fjölvi býður öllum upp á góða skemmtun
í I nttm <émgsíms
Nýr og ovæntur frambjóðandi kemur fram á sviðið með óþrjótandi fjármagn
og einkavæðir allt.
VIÐ VILJUM VILLA! <>. |pl|y|fj
Stórfelld hætta vofir
yfir ÍSLENDINGUM.
En Kafteinn ísland verndar og bjargar. Hw íslanij llWjrj lcemur tit 1 'lLjr l > VVi bjargar
Skopleg skemmtun! i - i,tir KJAKAÓ
Pantið ykkur 20% Bónusáskrift, aðeins kr. 1150.
Auk þess:
Veljib ykkur ókeypis eina bók!
Bónusáskrift Fjöiva, Njörvasund 15a, 104 Reykjavík.
Sími 5-33-33-22. (Sendið seðilinn í pósti eða pantið í síma)
Vil fá bókina Forsetaslaainn senda í póstgíró með 20%
Bónusáskrift kr. 1150, (Fullt verð kr. 1480) auk póstkostn.
Vil fá ókeypis senda með þá bók sem ég krossa við:
□ l. b. Kafteinn ísland □ 2. b. Árás llluga
Nafn....................................K?nnjta!a..........
..Hsimllj.
Rfistaúme/.
v
$
BRIMBORG
FAXAFENI 8 • SlMI 515 7010
Tollalækkun
á Charade
sedan 1500
Innifalið: Vökvastýri, bein innspýting,
1,5 lítra, 90 hestafla vél og fullur bensíiitankur
i