Morgunblaðið - 14.06.1996, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 1996 B 5
MEIST-
ARA-
STYKKI
Björg-
vins
Ploders.
„Þetta
smíðaði
ég einn
og
óstudd-
ur.“
jf5 HUGMYNDASAMKEPPNI
g um grunnhönnun á félagsleg-
™ um íbúðum framtíðarinnar
var haldin í tilefni 40 ára af-
mælis Húsnæðisstofnunar rík-
isins. Tilgangur samkeppn-
52 innar var að sýna fram á nýj-
^ ar leiðir við gerð híbýla og
skipulag íbúðahverfis.
jp Fyrstu verðlaun, tvær millj-
ónir króna, fékk tillaga Arki-
«9 búllunnar; Hebu Hertervig,
X Hrefnu Bjargar Þorsteins-
dóttur og Ilólmfríðar Jónsdóttur,
arkitekta FAÍ, fyrir óhefðbundna
og sterka heildarhugmynd, fyrir
framtíðarsýn og spennandi nálgun
viðfangsefnisins. Löggiltur sam-
starfsaðili var Óli Hákon Hertevig,
Línuhönnun hf. veitti verkfræðir-
áðgjöf og Þorsteinn Einarsson
gerði líkan.
Önnur verðlaun, 1,5 milljónir
króna, fékk tillaga Péturs H. Ár-
mannssonar, arkitekts FAI, fyrir
fjölbreyttar og skemmtilegar íbúð-
ir og samspil þeirra, og fyrir
áhugavert skipulag og uppbygg-
. ingu á Bjarnaborgarreit. Bæring
B. Jónsson, arkitekt FAÍ smíðaði
líkan, Yngvi Þór Loftsson, lands-
lagsarkitekt, veitti ráðgjöf varð-
andi landslagshönnun og Hallgrím-
ur Hallgrímsson á verkfræðistof-
unni Hönnun hf, sá um kostnaðar-
mat.
Þriðju verðlaun, 1,3 milljónir
króna, fékk tillaga Finns Björg-
vinssonar og Hilmars Þórs Björns-
sonar, arkitekta FAI, fyrir áhuga-
verðar hugmyndir um lífstíðar-
íbúðir og nýtingu sameiginlegra
rýma. Einar Valur Ingimundarson,
Phd. í umhverfisverkfræði sá um
ráðgjöf, verkfræðistofa Sigurðar
Thoroddsen um verkfræðiráðgjöf
og Sigriður Maack, arkitekt, smíð-
aði líkan.
í dómnefnd sátu Þórhallur
Jósefsson, stjórnarmaður í Hús-
næðismálastjórn ríkisins, Björgvin
R. Hjálmarsson, forstöðumaður
tæknideildar Húsnæðisstofnunar
ríkisins, Höskuldur Sveinsson,
arkitekt, Jón Ólafur Ólafsson, arki-
tekt og Sigurður Halldórsson, arki-
tekt.
Flugkistur
fyrir viðkvæm tól og tæki
„VIÐ hönnum og smíðum flug-
kistur og töskur af öllum stærð-
um og gerðum fyrir verðmæta
og viðkvæma hluti sem þola
illa hnjask. Sem dæmi má nefna
hljóðfæri, tölvur, skotvopn,
ljóskastará og listaverk.“ Það
er Björgvin Ploder, trymbill í
Sniglabandinu, sem segir frá
en hann hóf feril sinn sem flug-
töskusmiður fyrir fjórum árum
með smíði tösku undir trommu-
settið sitt. „Þetta var tilraun
sem heppnaðist svona ljómandi
vel.“
Fljótt flýgur fiskisagan og
brátt var Björgvin farinn að
gera álíka töskur fyrir tónlist-
armenn, ljósmyndara, veiði-
menn og fleiri.
Einar Rúnarsson, hammond-
leikari Sniglabandsins, kom
fljótlega inn í reksturinn og
nýlega bættist þriðji starfs-
krafturinn við, Haraldur Gunn-
arsson.
Starfsemin fer fram í Skip-
holti 11-13. Þar hanna þeir fé-
lagar einnig rakka utan um
magnara og alls kyns raf-
magns- og rafeindabúnað.
Töskurnar eru að sögn
Björgvins mjög harðgerðar.
Þær eru hannaðar úr krossviði
með álímdri harðplasthúð en
að innan er útskorinn svampur
svo hluturinn haggist ekki. Sem
dæmi um ágæti framleiðslunn-
ar nefnir hann að kista með
hljómborði í, rann af þaki á bíl
sem var á fljúgandi ferð, en
það kom ekki að sök, hvorki
sá á kistunni né hljómborðinu.
Síðastl bærinn í dalnum
En hvernig er nafn fyrirtækisins
S.B.D. flugkistur til komið?
„Fljúgandi kista birtist fyrst á
íslandi í kvikmyndinni Síðasti
bærinn í dalnum. Ég var smág-
utti þegar myndin var sýnd í sjón-
varpinu og var uppnuminn af kist-
unni. Einari datt í hug það snjall-
ræði að nefna fyrirtækið eftir
myndinni. Flugkista er þýðing á
enska orðinu flightcase," segir
Björgvin.
Svipaðar töskur og kistur voru
áður fluttar inn til landsins á okur-
verði að sögn Björgvins. „Stærstu
kisturnar með hjólum undir voru
t.d. tolllagðar með hjólhýsum og
áburðardreifurum."
Útflutnlngur til Bretlands
Hróður S.B.D. hefur borist út
fyrir landsteinana en nýlega keypti
Artlight ljósaskiltafyrirtæki í Bret-
landi af þeim töskur.
FLUGKISTUM komið haganlega
fyrir áður en lagt er i hann
POPPARARNIR Björgvin og Ein-
ar önnum kafnir við smíðarnar
„Minnsta taskan sem við höfum
framleitt rúmar einn sígarettu-
pakka, en sú stærsta er notuð und-
ir gong Sinfóníuhjómsveitarinnar á
ferðalögum."
Nýlega festu þeir félagar kaup á
sérhönnuðu forriti til flugkistusmíða
sem mun létta þeim vinnuna tölu-
vert. „Það er búið að vera mikið að
gera enda tónleikavertíðin að hefj-
ast og alla vantar kistur. Verst er
að popparar eru frekar blankir. Má
birta skuldalista með greininni?"
spyr Björgvin.
„Það er varla að við önnum eftir-
spurn. Við spilum með Sniglaband-
inu um helgar, svo fer einn dagur
í frí með fjölskyldunni, en a.m.k.
þrír dagar í viku fara í framleiðsl-
una, segir Björgvin um leið og hann
skutlar nokkrum flugkistum inn í
Sniglabandsrútuna, en hljómsveitin
var að leggja af stað í tónleikaferð
til Sauðárkróks eftir að blaðamaður
kvaddi Síðasta bæinn í dalnum. ■
hm
HREFNA Björg Þorsteinsdóttir
er engin spurning að með svona
samkeppnum fást bestu lausnirnar,
þannig að þetta er gott fyrir alla
aðila.“
Þær verða sposkar á svip þegar
blaðamaður biður þær að lýsa sam-
vinnunni nánar. „Við erum að þróa
aðferð sem heitir tveir plús einn eða
tvær og ein í sófa,“ segja þær. „Þá
vinna tvær okkar sjálfa tilrauna-
vinnuna, en sú þriðja „liggur í
sófanum." Hennar hlutverk er að
gagnrýna verk hinna og sjá um
framsetninguna á verkinu. Það
gengur vel upp, því hinar tvær geta
verið of tengdar verkinu til þess
að geta séð um framsetninguna,
eða þá að þær eru í of mikilli tíma-
þröng. Við prófuðum þessi vinnu-
brögð fyrst af rælni og þau gengu
svo vel upp að við höfum gripið til
þeirra aftur og aftur.“
Alvöru hugmyndasamkeppnl
Hugmyndasamkeppni Hús-
næðisstofnunar segja Heba, Hólm-
fríður og Hrefna að hafí verið raun-
verulega hugmyndasamkeppni.
„Það er oft sem þessar samkeppnir
heita hugmyndasamkeppnir, en eru
það svo ekki þegar upp er staðið
og úrslitin eru birt.“
Þær áttu ekki von á því að Arki-
búllan ynni fyrstu verðlaun. „Við
urðum frekar hissa. Við töldum
okkur vera með góða hugmynd, en
það er bara svo oft þannig að bestu
hugmyndirnar lenda neð-
ar en aðrar sem eru með
betri úrlausnir eða eru
lengra komnar í vinnslu.
Svona hugmyndasam-
keppni hentar okkur vel,
betur en framkvæmda-
samkeppni. Það er eðli-
legt framhald af náminu
að spinna, en nú er lík-
lega kominn tími til að demba sér
út í framkvæmdasamkeppnirnar af
krafti, leysa þakrennuvandamál og
þess háttar.“
Nú leikur blaðamanni fomtni á
að vita hvaða gildi svona verðlaun
hafi. „Þetta er rosaleg hvatning og
við höfum heyrt að úrslitin hafi líka
hleypt ákveðnum krafti í jafnaldra
okkar í stéttinni. Það munar nátt-
úrulega um peningaverðlaunin sem
voru í boði, tvær milljónir, og svo
mælir dómnefnd með því að tillög-
urnar verði unnar áfram. Það verð-
ur spennandi að sjá hvað verður
úr því. Við vonum að Húsnæðis-
stofnun hafi sama kjark og dóm-
nefndin og fylgi málinu eftir.“
Ef ég spyr ykkur um
sérstöðu Arkibúllunnar,
hvaða svör fæ ég þá?
„Það er þetta með
hundinn,“ kemur svarið
að bragði og enn einu
sinni brýst hlátur út við
borðið. „í fyrsta lagi pöss-
um við að taka okkur ekki
of hátíðlega. Við pressum
ekki út hugmyndir, annaðhvort
fæðast þær eða ekki. Við viljum
líka gjarnan vinna hluti sem gefa
okkur eitthvað nýtt, en fyrst og
fremst leggjum við áherslu á hug-
myndafræðina. Ef hugmyndin á
bak við eitthvað verk er pottþétt,
þá er alltaf hægt að vinna verkið.
Við viljum halda þeim vinnubrögð-
um sem við erum vanar úr skólan-
um. Skissur eru til dæmis mjög
mikilvægar hjá okkur, við leggjum
miklu meiri rækt við þær en fínni
tússteikningar. Skissuvinnan tekur
því töluverðan tíma hjá okkur, en
svo hanga þær uppi á veggjum í
kringum okkur og veita innblást-
ur.“
Kaffið er orðið kalt, kókið búið
og komið að lokum þessa spjalls.
Svo er bara að bíða eftir framtíð-
inni, því sem hún ber í skauti sér,
félagslegum íbúðum jafnt sem
öðru. ■
Hanna Katrín Fríðriksen
Nýjar leiðir
við gerð híbýla
og skipulag íbúðahverfa
„Þetta var
alvöruhug-
myndasam-
keppni hjá
Húsnæðis-
stofnun"