Morgunblaðið - 16.06.1996, Síða 1
Q r
REYNSL UAKSTUR A HONDA SHUTTLE FJOLNOTABIL
- NISSANPATROL DÍSIL - RENA ULTPREMIUM -
NÝR SSANGYONG JEPPI
Skoda Felicia
Aðeins kr. 849.000,-
t@Oi
fHAMT/DIN BYCCIST A HtfDINNI
Tryggðu þér nýjan
fjölskyldubíl núna.
Þýsk gæði á ótrúlega
lágu verði.
19 4 6 -19 9 4
Nýbýlavegur 2
Síml: 554 2600
IltwjpiiiMiiMft
SUNNUDAGUR 16. JUNI
1996
BLAÐ
c
AIJDIA4 bíll Bárðar er glæsilegur á Momo álfelgunum og niðurlækkaður um 4 sm.
Vel til hafður
Audi A4
AUDIA4, rauður, niðurlækkaður
með vindskeiðum og augnlokum á
framlugtum og á Momo álfelgum
frá Ítalíu. Þetta er einn glæsileg-
asti Audi A4 bíllinn á landinu en
eigandinn er Bárður Ágústsson.
Þetta er fyrsti Audi bíliinn sem
Bárður á.
Bárður keypti bílinn í október
1995 og hann er árgerð 1996. A4
er með fjögurra strokka, 1,8 litra,
20 ventla véi, 140 hestafla. Hann
kveðst hafa viljað gera bílinn dá-
lítið sérstakan í útiiti. Hann byij-
aði á því að taka hliðarspeglana
af og lét sprauta þá í sama rauða
litnum og bílinn. Sama gerði hann
við hurðaopnarana. Speglamir
voru svartir þegar hann fékk bíl-
inn. Fyrirtækið Impetus smíðaði
vindskeiðina og „augnlokin".
Lækkunarsettið, sem er reyudar
ekkert nema styttri gorm-
ar, fékk hann sent að utan.
Impetus flytur inn álfelg-
urnar sem eru m.a. notað-
ar á Ferrari. Auk innflutn-
ings steypir fyrirtækið
vindskeiðar og ýmsa aðra
hluti úr trefjaplasti.
Blaupunkt og
Goodyear
„Bíllinn þolir alveg
þessa lækkun, hann er það
hár fyrir. Lækkunin gerir
hann líka sportlegri. Bíll-
inn lækkar um 3'á til 4
sentimetra. Það á eftir að
koma í |jós hvort þetta
spilii eitthvað aksturseig-
inleikum bílsins í ófærð að
GOODYEAR F1 hjólbarðar hrinda frá
sér vatni og minnka hættu á fleytingu
á blautum vegum.
vetrarlagi. Ég er búinn að fara
með hann í margar hindranir og
hann tekur ekkert niðri,“ segir
Bárður.
í bílnum eru hljómflutningstæki
frá Blaupunkt sem eru með nokk-
uð nýstárlegri þjófnaðarvörn. Til
þess að kveikja á tækinu verður
að renna plastkorti inn í þar til
gerða rauf. Án plastkortsins er
tækið gagnslaust. Tvö kort fylgja
tækinu. Korthafinn getur sett inn
ákveðnar stöðvar á kortið sem
tækið leitar uppi þegar kortið er
sett í það.
Undir bílnum eru Goodyear F1
hjólbarðar, 225/45/17, ný lína með
vatnsmunstri. Dekkin hrinda vatn-
inu þvert frá sér og minni hætta
er á fleytingu. ■